Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003
DV
Fréttir
uv-ivi i iNUin MAurJuo o i trMivoouiv
Seyöisfjörður í morgunsáriö
Seyöisfjöröur er eins og eftir sprengjuárás, brotnar rúöur eru víöa, skemmdir bílar, brak úr mannvirkjum. Ljóst er aö milljónatjón varö í nótt.
Milljónatjón og alvarlegt slys á Seyöisfiröi í nótt:
Mætti gömlum bílskúr
sem hvarf síðan í fljótið
- segir einn björgunarmanna eftir erfiða nótt í ofsarokinu
Ofsaveður var á Seyðisfirði í alia
nótt og olli miklu tjóni á eignum.
Einn maður slasaðist illa þegar
hann varð fyrir bílkerru sem fauk
á hann. Maðurinn höfuðkúpubrotn-
aði og beið í morgun eftir að kom-
ast í sjúkraflug til Reykjavíkur.
„Upp úr klukkan tvö fóru menn
á stjá, áður höfðu margir farið af
stað til að dytta að. Talsvert af rúð-
um hafði brotnað, plötur fuku um
allt, og heilu skúramir komnir af
stað og þök að fjúka af húsum.
Björgunarsveit og slökkvilið vann
við að festa það sem hægt var og
koma þannig í veg fyrir frekara
tjón. Við fengum líka góða liðs-
menn ofan af Héraði,“ sagði
Tryggvi Harðarson, bæjarstjóri á
Seyðisflrði, í morgun eftir langa og
stranga nótt heimamanna við
björgunarstörf.
Á tímabili fór vindhraðinn yfir
40 metra á sekúndu í hryðjunum
uppi á heiðinni. Sunnan- og suð-
vestanáttir gengu þaðan niður yfir
bæinn og ollu miklu tjóni. Tryggvi
segir að sér sýnist að 40 til 50
manns hafi verið að vinna við
björgunina í nótt við afar erfið
skilyrði.
„Skemmdir verða kannaðar
strax og birtir, en erfitt er að meta
tjónið á þessari stundu. En ég tel
víst að það nemi milljónum
króna,“ sagði Tryggvi.
„Þetta var hrikalegt óveður og
húskofar eru að fjúka, ég mætti
sjálfur gömlum bÚskúr sem var
kominn af stað og ég sá hann
hverfa í fljótið," sagði einn björg-
vmarmanna í nótt en hann var vak-
inn snemma nætur af almanna-
vamakerfi sem Neyðarlínan ræsti.
Vitað er um allavega tvo bílskúra
sem létu undan og einn geymslu-
skúr til viðbótar. Þök fuku af tveim
húsum. Brakið úr þessum mann-
virkjum tvístraðist um bæinn og
olli skemmdum. Mikið var um
rúðubrot og við höfnina mátti sjá
steypustöðina á hliðinni.
Undir morgun var heldur að
hægja á vindinum og búist var við
að um hádegi hefði veðrið lægt.
-JBP/KÞ
DV-MYNDIR HARI
I öruggri höfn
Kafarar og björgunarsveitarmenn gæta að bilun í stýrisbúnaöi Trinket þegar björgun þess var afstaöin í Grindavíkurhöfn í gærdag. Skemmdir komu í Ijós á
botni skipsins og stýrisbúnaöi. Óljóst er hvenær skipiö getur lagt úr höfn aö nýju.
Snarræði björgunarsveitarmanna sem björguöu skipi í innsiglingunni í Grindavík:
Stóðum í sjó upp í mitti
„Þetta eru sennilega mestu átök
sem við höfum lent í. Tveir okkar
voru viðstaddir þegar Eldhamar
fórst en þetta var út af fyrir sig
miklu erfiðara," sagði Agnar
Smári Agnarsson, vélstjóri á
björgunarbátnum Oddi V. Gísla-
syni í Grindavík. Hann og fjórir
aðrir björgunarsveitarmenn úr
Þorbimi sýndu mikið snarræði í
gær þar sem þeir þurftu jafnvel að
standa í sjó upp í mitti meðan gaf
yfir þá þegar þeir voru að bjarga
aflvana leiguflutningaskipi Eim-
skipafélagsins, Trinket, í hinni
erfiðu innsiglingu í Grindavík.
„Það var Útkall rauður hjá okkur,
algjört neyðarkall, þegar okkur barst
tilkynning klukkan 12.47 að vélar-
vana skip væri í innsiglingunni. Við
vitum að þama geta mínútur eða
sekúndur skipt máli,“ sagði Agnar
Smári. Fimm menn voru aðeins sjö
mínútur að fara heiman frá sér, úr
matartíma, eða af vinnustöðum,
koma sér um borð í Odd og sigla út
aö skipinu. Menn voru því eldsnögg-
ir svo ekki sé meira sagt. Tíu metra
ölduhæð hafði verið þegar verst lét
og mikið hvassviðri.
„Þegar við komum út að skipinu
hafði lóðsbáturinn verið að fylgja
því,“ sagði Agnar Smári. „Við tókum
hring og áhöfn skipsins var tilbúin
með trossu í stefninu. Við straujuð-
um svo með fram bakborðssíðunni
og tókum spottann og settum fast.
Svo var togað af öllu afli. Á meðan
gengu fyllumar yfir bátinn og við
stóðum stundum í sjó upp i mitti."
Komið var með hiö 1.574 tonna
skip upp að bryggju einungis tæpri
háifri Uukkustund eftir neyðarkall-
ið. Var þyrla Landhelgisgæslunnar
þá þegar komin en aðeins 9 mínútur
tók að koma vélinni í loftið í Reykja-
vík. „Þeir eiga heiður skilinn fyrir
hvað þeir voru snöggir," sagði Agnar
Smári.
Trinket var á leið til Kolding í
Danmörku en hafði verið að lesta
1.300 tonn af fiskimjöli í Grindavík.
Sverrir Vilbergsson hafnarstjóri
sagði að skipstjórinn hefði verið að
bíða eftir að veðri slotaði. Lóðsbátur-
inn hafði fylgt skipinu út fyrir svo-
kallaða garða, þaö er utarlega í inn-
siglinguna, en þá hafði skipstjórinn
skyndilega tilkynnt að stýrið virkaði
ekki. -Ótt
Óveöriö í gær:
Þakkantur fauk
Tvö útköll tengd óveðursaðstoð
hafa verið hjá björgunarsveitum
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
í dag og í kvöld. Á Flúðum var
Björgunarfélagið Eyvindur kallað
út eftir að þakkantur fauk af húsi
síðdegis í gær. Björgunarsveitar-
menn brugðust að vonum skjótt
við og negldu kantinn á aftur.
Seinna útkallið var kl. 19.14 í
gærkvöld þegar boð komu frá
Vopnaflrði að þakið á Fiskmark-
aðnum væri að fjúka af. Svo
reyndist nú ekki vera en þakið var
hins vegar farið að losna. Björgun-
arsveitarmenn frá Björgunarsveit-
inni Vopna-Erni negldu þakið bet-
ur niður þannig að það ætti að
halda í veðrinu. Einnig komu
beiðnir um fleiri smáviðvik af
völdum veðurs frá bæjarbúum og
brugðust björgunarsveitarmenn
liðlega við þeim að venju. -aþ
Flugleiöir felldu niður flug:
250 strandaglópar
Um 250 farþegar sem áttu bókað
flug til Baltimore og Boston í
Bandaríkjunum í gær gistu hér-
lendis í nótt. Fella varð niður flug-
ið vegna hríðarbyls sem geisaði á
austurströnd Bandaríkjanna.
Flug til Minneapolis var sam-
kvæmt áætlun í gær.
Gert er ráð fyrir að farþegamir
250 komist leiðar sinnar með flugi
Flugleiða til þessara tveggja borga
sem fer samkvæmt áætlun síðdeg-
is í dag. -aþ
Kastaði upp í leigubíl
- og hafnaði undir bílnum
Farþegi í leigubil varð undir
bílnum aðfaranótt sunnudagsins.
Frá þessu er greint í dagbók lög-
reglunnar en þar segir að upp hafi
komið ágreiningur milli farþegans
og leigubílstjórans - og hafði sá
fyrrnefndi kastað upp inni í bíln-
um. Ekki kann lögregla skýringar
á því hvers vegna maðurinn var
skömmu síðar kominn upp á vél-
arhlíf bílsins. Hann virðist síðan
hafa fallið í götuna og hafnað und-
ir bílnum.
Farþeginn var fluttur með
sjúkrabifreið á Landspítalann í
Fossvogi en meiðsl hans voru ekki
talin alvarleg. -aþ
Ofsaveður í Hvalfirði
Ofsaveður brast á í Hvalfirði síð-
degis í gær er lægðin var að fara
yfir landið. Fjörðurinn var allur
hvítfyssandi og víða mátti sjá
hvirfilvindi myndast sem soguðu
upp sjóinn en síðan greip hvass-
viðrið sjóinn og feykti honum yfir
landið. Framrúða sprakk í bifreið
sem var sunnan megin í firðinum,
við Tíðaskarð, en einn hvirfil-
strókurinn náði upp grjóti og þyrl-
aði því yfir bifreiðina. Bílstjórinn
slapp meö skrekkinn. -GG