Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 DV Fréttir Leyfi fyrir viðbyggingu við Heiðargerði í Reykjavík var ógilt með dómi 2001 Hæstaréttarúrskupður ekkl virtup í eitt on háltt ár Byggingaryfirvöld í Reykja- vík hafa enn ekki farið eftir nið- urstöðu Hæstaréttar frá því 20. september 2001 sem fól m.a. í sér að umdeild viðbygging við húsið Heiðargerði 76 í Reykja- vík verði rifin. Byggði Hæsti- réttur á niðurstöðu úrskurðar- nefndar skipulags- og bygging- armála frá 10. nóvember 2000 um að leyfi byggingarfulltrúa frá 6. júní 2000 varðandi við- bygginguna yrði fellt úr gildi. Er þar einnig byggt á því að ekki hafi verið fyrirliggjandi deiliskipulag sem heimilaði aukið nýtingarhlutfall viðkom- andi lóðar. Harðar deilur stóðu um við- bygginguna við húsið Heiðar- gerði 76 í Reykjavík um árabil. Endaði málið fyrir dómstólum en þrátt fyrir úrskurð Hæsta- réttar í september 2001, sem staðfestir að viðbygging hafi verið ólögmæt, hafa borgaryfir- völd enn ekkert aðhafst til að framfylgja þeim dómi. Nýtt deiliskipulag Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulags- og bygginga- nefndar Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við DV í gær að nýtt deiliskipulag svæðisins hefði verið lagt fyrir borgarráð í síðustu viku og kæmi að öllum líkindum aftur fyrir borgarráð í dag. Steinunn Valdís segir að þar sem vinna við nýtt deiliskipulag hafi staðið yflr þá hafi menn ákveðið að aðhafast ekkert að sinni. Þar vísuðu menn m.a. til meðalhófsreglu laga. „Nú er búið að gera deiliskipulag og mín tillaga er sú að það verði ekki gert ráð fyrir að þessi kvistur (viðbygging) fái að standa. Hvort það verður síðan niðurstaða borgar- ráðs og borgaryfirvalda er þó ómögulegt að segja. Ég hef þó ekkert breytt afstöðu minni gagnvart þess- um kvisti.“ Ósammála borgarráði Steinunn og Ámi Þór Sigurðsson, þáverandi formaður skipulags- nefndar, stóðu gegn því á sínum tíma að leyfið fyrir viðbyggingunni yrði veitt þar sem nýtingarhlutfall lóðarinnar væri allt of hátt og ekki í neinu samræmi við lóðimar í kring. Þeirra afstaða náði þó ekki í gegn í borgarráði sem samþykkti viðbygginguna í júlí 2000. Úr 80 í 343 fermetra Húsið að Heiðargerði 76 var upphaflega 80 fermetra einbýlis- hús með geymslurisi og byggt samkvæmt leyfi byggingamefhdar Reykjavíkur árið 1952. Ári seinna var veitt leyfl fyrir kjallara og hækkun mænis um einn metra auk nokkurrar hækkunar á gólf- plötu aðalhæðar hússins. Árið 1954 var samþykkt risbygging ásamt kvisti á norðurþaki hússins og samþykkt íbúð á rishæðinni. Eigandinn fékk síðan leyfi 1962 og 1963 til að byggja bílageymslu við húsið og byggja við það. Var heild- arflatarmál hússins með þessu þá komið í 343 fermetra. Frá 1989 til 1994 var þrívegis sótt um að fá að byggja ofan á áður samþykkta við- byggingu en því var ætíö hafnað. í öll skiptin hafði farið fram grennd- arkynning og var fyrirhuguðum framkvæmdum þá mótmælt af ná- grönnum. Byggingarleyfi stóðst ekki Það gerist síðan að eigandi húss- ins að Heiðargerði 76 fékk leyfi byggingarfulltrúa, sem samþykkt var í borgarráði 11. júlí 2000, til að hækka þakið yfir syðri hluta húss- ins og setja á það þijá kvisti. Eig- endur næstu eigna kærðu leyflsveit- inguna til úrskurðamefndar bygg- ingarmála þann 25. júlí 2000. Töldu nágrannarnir að hin um- deilda bygging skerti hagsmuni þeirra með ólögmætum hætti, þar sem viðbyggingin spillti útsýni, ylli skuggamyndun, drægi úr sól og ylli ósamræmi í útliti götunnar. Húsið Heiðargerði 76 hefði þá þegar verið bæði stærra en almennt gerðist í hverfmu og nýtingarhlutfall lóðar mun meira en á öðrum lóðum. Úrskurðamefndin leitaði m.a. umsagnar Skipulagsstofnunar og var niðurstaðan m.a. sú að skipu- lagsyfirvöldum í Reykjavík hefði borið samkvæmt lögum að auglýsa ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 DV Fréttir 9 Heiöargeröi 76 Þrátt fyrir ótvíræöa niöurstööu Hæsta- réttar fyrir einu og háifu ári hefur eig- anda enn ekki veriö gert aö rífa viöbygg- ingu sem sést ófullgerö á innfelldu myndinni. Hún var þó byggö meö út- gefnu byggingarleyfí og samþykki borgar- ráös án þess aö fyrir lægi deiliskipulag sem heimilaöi slíkt. Steinunn Valdís Óskarsdóttir Núverandi formaöur skipulags- og bygginganefndar hefur staðið gegn frekari viðbyggingum viö húsið eins og fyrrverandi formaður, þvert á afstöðu meirihluta borgarráðs. tillögu að deiliskipulagi svæðisins ef auka ætti nýtingarhlutfall lóðar- innar enn frekar en orðið var. Því hefði ekki mátt veita byggingarleyfi gegn mótmælum nágranna eins og gert var. Úrskurðarnefnd felldi byggingar- leyfið úr gildi með úrskurði þann 10. nóvember árið 2000 og lagði fyr- ir byggingamefnd að hún hlutaðist til um að þessi umdeilda viðbygging yrði fjarlægð. Einnig að húsið yrði fært til fyrra horfs innan hæfilegs frests, sem byggingamefnd myndi ákveða. Síðan eru liðin hátt í tvö og hálft ár. Fyrir dómstóla Eigandi Heiðargerðis 76 höfðaði í framhaldinu mál fyrr Héraðsdómi Reykjavíkur sem felldi úrskurð sinn 6. mars 2001. Niðurstaða Hér- aðsdóms var í stuttu máli sú aö felldur var úr gildi úrskurður úr- skurðamefndar skipulags- og bygg- ingarmála frá þvi 10. nóvember ár- inu áður um ógildingu á útgefnu byggingarleyfi. Nágrannamir áfrýj- uðu málinu til Hæstaréttar 26. mars 2001. Samkvæmt niðurstöðu Hæstarétt- ar 20. september um málið er úr- skurður Héraðsdóms Reykjavíkur felldur úr gildi og staðfestur úr- skurður úrskurðarnefndar skipu- lags- og byggingarmála. í heimildarleysi 1 niðurstöðu Hæstaréttar kemm- einnig fram að húseigandinn hafi ráðist í breytingar á húsnæðinu áður en fullnægt var m.a. skilyrðum 44. gr. skipulags- og byggingarlaga um útgáfu byggingarleyfis. Honum hafi verið kunnugt um andstöðu ná- granna sinna og hafi því mátt vita að þeir gátu kært málið. Síðan seg- ir: „Verður að líta svo á að allar framkvæmdir hans við verkið hafi verið unnar í heimildarleysi og ekki í góðri trú.“ njíánáiájí Þjálfunar og æfingarpunktar Það er kaldhæðnislegt að margir sjá ekki ástæðu til að hefja reglubundna þjálfun fyrr en aukakílóin eru orðin nokkuð vel sýnileg. Þegar svo byrjað er að hreyfa sig og aukakílóin hverfa ekki í einum grænum hvelli gefast margir upp. En ávinningarnir af reglubundinni þjálfun eru margfalt fleiri en mögulegt þyngdartap og fæstir sýnilegir berum augum. Þannig auðveldar reglubundin þjálfun insúlíni að ferðast inn í frumurnar og dregur því úr líkum á að einstakling- urinn verði fyrir barðinu á fullorðinssykursýki. Reglubundin þjálfun dregur einnig úr líkum á hjartasjúkdómum með því að bæta blóðstorknunarstarfsemi, minnka blóðfitu og auka magn góðs kólesteróls í blóðinu. Auk þessa dregur reglubundin þjálfun ekki einasta úr líkunum á myndun fjölda sjúkdóma heldur bætir líf okkar að mörgu öðru leyti. Sem dæmi má nefna að fólk sem æfir reglulega sefur betur. Enn eru ótalin jákvæð áhrif á andlega líðan þeirra sem æfa reglulega. Rannsóknir hafa sýnt að þó að reglubundin þjálfun sé að sjálfsögðu ekki allra meina bót hefur hún jákvæð áhrif á bæði þunglyndi og kvíða. Sláðu því ekki á frest lengur. Vertu á hreyfingu og láttu þér líða betur. (Ágústa J.). Matseðill dagsins Dagur 8 Morgunverður: Hafragrautur 3 dl = 1 diskur Strásykur 1/2 msk. Dreitill 2,5 dl = 1 glas Hádegisverður: Grænmetisbakki Millistærð (hálfur) (s.s. grænmeti 150 g; túnfiskur 130 g; núðlur 120 g; ávextir 60 g; egg 60 g; baunir 40 g; kotasæla 30 g) Eplasafi 2,5 dl = 1 glas Miðdegisverður: Grænmetisbakki Millistærð (hálfur) Kvöldverður: Lax, soðinn 150 g Kartöflur, soðnar 4 „eggstórar" Smjör 1 msk. Hvítlauksídýfa, létt 1 msk. Grænmeti 100 g + Kvöldhressing: Kirsuber 200 g = 30 stk. Til umhugsunar: Tannskemmdum valda bakteríur í munni sem vinna að gerjun kolvetna og framleiða þá sýrur sem leysa upp glerung tannanna. Sífellt nart í kolvetnaríkan mat getur því ýtt undir tannskemmdir. Þess ber að geta að vatnsdrykkja á milli mála og sykurlaust tyggigúmmí geta dregið verulega úr sykurmagni í munni og þar með tannskemmdum. Þær afurðir sem eru hvað varhugaverðastar þegar tennur eiga í hlut eru þær sem innihalda kolvetni og festast í tönnum f lengri tíma. Dæmi um slíkan mat eru þurrkaðir ávextir eins og rúsínur eða sælgæti á borð við karamellur. Þá skal geta þess að tannsérfræðingar hafa lýst áhyggjum sínum yfir miklu þambi súrra drykkja, eins og gosdrykkja og ávaxtasafa, en sýran hefur eyðandi áhrif á tannglerunginn. Hagstæðustu drykkirnir með tilliti til að draga úr tannglerungs- eyðingu eru vatn og mjólk. Þegar á heildina er litið er þó Ijóst að tannheilsa þjóðarinnar hefur skánað mikið á undanförnum árum og án efa má þakka það auknu eftirliti og markvissari notkun á flúor og tannvænum „verkfærum" eins og tannburstum og tannþráðum. En betur má ef duga skal. Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur HReynnc FRÍTT f 3 DAGA HReynnc Ef þú hefur ekki æft í Hreyfingu áður en tangar til að prófa bjóðum við þér að koma og æfa frítt í þrjá daga til reynslu gegn framvísun þessa miða. Hringdu í síma 568-9915 og pantaðu tíma hjá ráðgjafa. Gildir til 1. aprfl 2003

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.