Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 DV ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 DV n Ferðir Ferðir -mí.'Ií U!.a;wi x. Verðlag á sólarströndum þykir hagstætt á íslenskan mælikvarða en hitastig þar er talsvert hærra Vilmundur Kip Hansen blaöamaöur andi, hver á sinn hátt, en flest- ar ferðaskrifstofur sem selja ferðir til sólarlanda bjóða upp á ferðir á sömu eða svipaða áfangastaði á verði sem einnig er mjög svipað ef hótelin eru í sama gæðaflokki. Þessa dagana eru ferðaskrif- stofurnar í óðaönn að kynna landanum hvað þær hafa upp á að bjóða næstu mánuðina. Eins og undanfarin ár er mikið um ferðir á suðrænar slóðir þar sem fólki gefst tækifæri til að liggja í sólinni og láta þreytuna og vetrarhrollinn líða úr skrokknum. Allar ferðirnar eru freist- Krít Sólþyrstir íslendingar ættu ekki að missa af tækifæri til þess að fara til Krítar, stærstu eyjar Grikklands. Krít er syðsta eyjan í Evrópu, um 260 km löng og um 60 km breið þar sem hún er breiðust. Eyjan liggur mitt á milli Evrópu og Afríku. íbúarnir eru rúmlega hálf milljón en sú tala margfaldast á hverju ári vegna fjölda ferða- manna sem þangað sækja. Loftslagið er milt og sumrin löng og veturinn minnir á gott ís- lenskt vor. Krít er fjallaeyja þar sem hæsti tindurinn, Psilorítis, teygir sig upp í 2.456 metra hæð og á veturna snjóar í fjöllin. Mest undirlendi er á norðanverðri eyj- unni og þar eru ræktaðar ólífur og vínþrúgur en til fjalla stunda bændur kvikfjárrækt. Fyrr á öldum var Krít menning- arlegt stórveldi og er hin svo- nefnda mínóíska menning kennd við hana. Ýmsar merkar fornminj- ar frá þeim tíma hafa verið grafn- ar upp og er þar helst að nefna hallimar Knossos og Faistos. Á Krít er mikið um einfalda gríska veitingastaði þar sem gaml- ar hefðir setja svip á matseðilinn. Ferðamenn ættu ekki að láta djúp- steiktan smokkfiskinn fram hjá sér fara og þjóðarrétturinn „dol- meðes“ er hreinasta lostæti. Eyj- arskeggjar eru vingjarnlegir þótt veitingamenn geti stundum verið óþarflega ýtnir þegar þeir reyna að lokka ferðamenn inn á mat- sölustaði. Þeir sem nenna ekki að eyða frí- inu á ströndinni geta leigt bíl og keyrt um eyjuna. Það tekur ekki nema fimm til sex daga að fara um hana alla og skoða helstu staðina. Hægt er að komast til Krítar fyrir rúmar fimmtíu þúsund krónur. Portúgal Það er svo sannarlega hægt að njóta lífsins í Portúgal þar sem sam- an fara fjölbreytt afþreying og góðir gististaðir. Portúgal er aðeins minna en ísland að flatarmáli en íbúarnir mun fleiri, eða um ellefu milljónir. í höfuðborginni, Lissabon, búa rúmlega tvær milljónir manna. Portúgalar búa við blómlega menn- ingu og eiga sér langa sögu sem sigl- ingaþjóð. Fyrr á tímum sigldu Portúgalar um allan heim, lögðu undir sig lönd og stunduðu ábata- söm viðskipti. Verðlag í landinu þykir mjög hag- stætt á íslenskan mælikvarða og flestar verslanir og veitingahús taka við krítarkortum. Fyrir þá sem vilja ekki eyða öllu fríinu á sólarströnd er upplagt að leigja bil og keyra um landið. Hitastig í Portúgal er tals- vert hærra en á íslandi þvi meðal- hitinn er rúmar tuttugu gráður frá því í apríl og fram í október. Það tekur um fjóra tíma að fljúga frá Keflavík til Portúgals og hægt er að komast þangað fyrir rúmar fjöru- tíu þúsund krónur í sumar. Benidorm Árlega flykkjast rúmlega 6 millj- ónir ferðamanna til Benidorm á austurströnd Spánar. Auðvelt er að skilja þessa miklu ásókn ferða- manna til bæjarins því þar er allt sem ferðamenn þarfnast og girnast. Miklar vinsældir sínar á Benidorm án efa að þakka hinni miklu hvítu og breiðu strandlengju sem gamli bærinn skiptir í tvennt. Þá er Benidorm umvafið háum fjöll- um sem verja bæinn vindum og veðrum. Þama er eitthvert besta loftslag að jafnaði á allri Miöjarðar- hafsströndinni, allt frá Gíbraltar til Nílar. Benidorm er jafnan kallað „Litla Manhattan“ vegna fjölmargra há- hýsa bæjarins sem í langflestum til- fellum eru hótelbyggingar. Lóðaverö er mjög hátt á Benidorm og því hef- -j-4- Beint flug meö LTU milli Egilsstaða og Dusseldorf: SumarleyflO á spotturá DV-MYND HAFDÍS ERLA BOGADÖTTIR Frá kynningarfundi Hannibal Guömundsson, framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Austurlands, kynnti á dögunum nýjungar sem boöiö er upp á í tengsium við beint flug milli Egilsstaða og Dusseldorf. Ferðaskrifstofa Austurlands kynnti á dögunum þær ferðir sem í boði eru til hinna ýmsu áfangastaða sem ferðaskrifstofan hefur milli- göngu um. En auk þess að vera með ferðir frá helstu ferðaskrifstofunum á landinu var boðið upp á beint flug með þýska flugfélaginu LTU í sam- vinnu við ferðaskrifstofuna Terra Nova milli Egilsstaða og Dússeldorf síðastliðið sumar. Að sögn Hanni- bals Guðmundssonar, framkvæmda- stjóra Ferðaskrifstofu Austurlands, fór þaö vel af stað og eru bókanir nú þegar famar að berast og greinilegt að fólk kann vel að meta þessa nýju þjónustu. „Vissulega býst maður við að það aukist aö Austfirðingar og fleiri noti sér flugið og þetta sé komið til að vera. Við erum með nýjungar frá því í fýrra og bjóöum upp á ýmislegt í tengslum við flugið. Má þar nefna sumarhús í Kempervennen í Hollandi en þangað.er um klukku- stundarakstur og bíða rúta og farar- stjóri eftir fólki á flugvellinum og koma farþegum okkar á áfangastað," segir Hannibal og heldur áfram: „Það er vissulega mikill spamaður að getað flogið beint héðan og sparað þar af leiðandi þann kostnað sem fylgir því aö koma sér til Keflavíkúr. Flug fýrir fulloröna til Dússeldorf kostar 27.500 og 18.400 fyrir böm báð- ar leiðir. Við höfum gert góða samn- inga við bílaleigur í tengslum við flugið, auk leigu á sumarhúsum. Fleira er boðið upp á. t.d. sérferðir í Mósel- og Rínardal, auk þess sem við bjóðum golfferðir sem ættu að koma skemmtilega á óvart. Einnig bjóðum við sumarhús í Danmörku og Þýska- landi," segir Hannibal Guðmunds- son. Austurland kynnt í Berlín Að sögn Jóhönnu Gísladóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Austurlands, era ferðaþjónustuaöil- ar á Austurlandi vel í stakk búnir til að taka á móti ferðamönnum og hefur mikið átak verið gert í þeim málum á svæðinu. „Við erum á leið á stóra kaup- stefnu ITB í Berlín til að kynna þann möguleika fyrir ferðamönnum að stoppa á Austurlandi og kynnast því sem þar er í boði. Hér er hægt að fá gistingu í öllum verðflokkum og fjöldi áhugaverðra safna er í fjórð- ungnum, auk þess sem náttúrufeg- urðin er að sjálfsögðu margbrotin og einstök. Þekktust erum við þó fyrir þróaðar gönguleiöir og eram með gönguleiöakort sem ná yfir stærstan hluta af Austurlandi og era fleiri væntanleg, meðal annars kort þar sem verið er að huga að sérstökum göngu- leiðum í grennd við þéttbýlisstaðina," segir Jóhanna og bendir á að í sumar verði 3 gönguleiðakort komin yfir á ensku. „Þá eru hestaferðir vinsælar og einnig má nefna að fúglaskoðun er afar vinsæl og era fúglaskoðunarstað- ir aðgengilegir hér. Skipulagðar báta- ferðir hafa löngum verið afar vinsæl- ar og þó þar hafi því miður dregist saman má nefna að t.d. Papeyjarferð- ir eru nú rótgróið fyrirtæki og hafa þær ferðir verið viss skrautfjöður í okkar hatt. Jú, það er vissulega margt sem svæðið hefur upp á að bjóða og sí- fellt meira er að bætast við þjónust- una við feröamenn," segir Jóhanna Gísladóttir, bjartsýn á sumarið. -heb íslenski Alpaklúbburinn opnar vef íslenski Alpaklúbburinn hefur opnað nýjan og glæsilegan vef, www.isalp.is. Á forsíðu vefsins er að finna dagskrá ísalp, fréttir og tilkynningar, umræður, auk vís- ana í greinar, en á undirsíðum fróðleik um allt sem viðkemur fjallamennsku á íslandi. Flestar síður eru ríkulega skreyttar myndum og skipt er um forsíðu- mynd daglega. Útfærsla vefsins hefur fengið jákvæða gagnrýni og þykir vel lúkkuð. Öll vinna við vefinn er unnin i sjálfboðavinnu. Helgi Borg Jóhannsson, ritstjóri vefsíðunnar, segir að á næstu mán- uðum muni ísalp gera skurk í því að setja inn á vefinn umfjöllun um allt sem viðkemur fjallamennsku á íslandi. „Þama verða greinar um fjallamennsku, viðtöl, leiðarvísar, fræðsla um búnað, klæðnað, staði, öryggi og margt fleira. Upplýsingar MYND HELGI BORG Stóll í mynni Skíðadals Bak viö Stólinn sést í Kerlingu. Klettaraninn sem liggur úr Kerlingu niöur í Kerlingardalinn hefur veriö klifinn aö sum- af þessu tagi hafa hingað til ekki verið aðgengilegar fyrir almenning og það hefur hamlað uppbyggingu og útbreiðslu fjallamennsku á Is- landi." Að sögn Helga er einnig að finna arlagi. Leiöin sú nefnist Kerlingareldur. á www.isalp enskar síður með upp- lýsingum fyrir erlenda fjallamenn. „Útlendingar horfa hingað í aukn- um mæli þessi misserin og undan- farið hafa margir heimsþekktir fjallamenn leitað til íslands ásamt ljósmyndurum og sjónvarpsfólki. Úmfjöllun þeirra hefur verið mjög jákvæð og í kjölfar þess hefur ísalp fengið fjölda fyrirspurna frá erlend- um fjallamönnum sem hyggjast koma hingað." -Kip Háhýsin á ströndinni Benidorm er stundum kölluö „Litla Manhattan “ vegna fjölmargra háhýsa sem í flestum tilfellum eru hótelbyggingar. ur verið byggt upp á við. Reyndar var Benidorm aðeins lítill sjávar- bær fram til 1920. Þá fóru ferða- menn frá Madríd og Alcoy að koma í heimsókn og margir byggðu sum- arhús við Benidorm. Upp úr 1950 fór Benidorm að byggjast upp mark- visst sem ferðamannastaður. Margir eldri íbúar bæjarins kalla hann „stóra hvellinn" vegna þeirra ótrú- legu breytinga og uppbyggingar sem þar hefur orðiö á síðustu áratugum. Nú eru tæplega hundrað þúsund íbúar með fasta búsetu í bænum. Hægt er að fá ferð til Benidorm fyrir fjöratíu þúsund krónur. Mallorca Eyjan Mallorca í Miðjarðarhafi tilheyrir Spáni og hefur notið mik- pla vinsælda sem sumarleyfisstaður íslendinga um áratugaskeiö. Enn flykkist fólk þangað og sumir hafa haldið tryggð við eyjuna árum sam- an. Mallorca er falleg lítil eyja eða eyjaklasi rétt undan Spánarströnd, að lengd svona eins og frá Horn- bjargi í Dýrafjörð, sem leynir á sér. Þrátt fyrir smæðina má endalaust finna nýja staði til að skoða. Tvær aðrar eyjar tilheyra eyjaklasanum. Þær heita Formentera að sunnan og Menorca að norðan. Um tíu milljónir ferðamanna sækja Mallorca heim á ári hverju og á sumrin lenda flugvélar á flugvell- inum í Palma á nokkurra mínútna fresti allan sólarhringinn. Stundum taka flugvélar sig á loft eða lenda á hálfrar mínútu fresti með ferða- menn innanborðs. Ódýrustu ferðimar til Mallorca kosta um fjörutíu þúsund krónur. Tyrkland Undanfarna áratugi hafa íbúar í Norður-Evrópu sótt í auknum mæli á sólarstrendur í Tyrklandi. Ferða- mönnum til Tyrklands hefur fjölgað jafnt og þétt og nú taka Tyrkir á móti rúmlega tíu milljón ferða- mönnum á ári. Síöustu tvö ár hefur verið boðið upp á beint leiguflug frá íslandi til Marmaris í Tyrklandi. ís- Lelkiö sér á sjónum Feröamenn geta alltaf fundiö sér eitthvaö til aö gera, hvort sem þeir vilja liggja í sólinni, renna sér á sjó- bretti eöa fara í skemmtisigtingu. lendingum hefur líkað vel við land og þjóð og dæmi eru um fólk sem farið hefur þrisvar sinnum til Marmaris á tveimur árum. Hægt er að komast til Tyrklands fyrir tæpar sextíu þúsund krónur. -Kip

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.