Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Qupperneq 12
12
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003
DV
REUTERSMYND
Á veröi við landamærin
Hermenn frá Noröur- og Suöur-Kóreu
standa vaktina í vopnahiésþorpinu
Panmunjon á landamærum ríkjanna.
Þar var allt með kyrrum kjörum í
morgun, eins og myndin sýnir.
Norður-Kórea hótar
að fella vopnahlés-
samninginn úr gildi
Kommúmstastjórnin í Norður-
Kóreu hótaði í morgun að fella
vopnahléssamninginn, sem gerð-
ur var við lok Kóreustríðsins
1953, úr gildi ef landið verður
beitt refsiaðgerðum vegna kjarn-
orkuvopnaáætlunar sinnar.
Stríðsviðvaranir og staðhæfing-
ar um að Bandaríkin séu reiðu-
búin að ráðast á Norður-Kóreu
hafa verið nær daglegt brauð i
opinberjum fjölmiðlum landsins
frá því kjarnorkudeilan blossaði
upp undir lok síðasta árs.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort yf-
irlýsingin um vopnahléið frá
norður-kóreska Alþýöuhernum
var eitthvað meira en glanna-
skapur. Að minnsta kosti voru
ekki neinar vísbendingar um
aukna spennu í vopnahlésþorp-
inu Panmunjon á landamærum
kóresku ríkjanna.
Aukin netverslun í
grannríkjunum
Frá miöju siðasta ári hefur orðið
gífurleg aukning í netverslun í ná-
grannaríkjum okkar, þótt ekki sé
sú raunin hér á landi. í sænsku
netversluninni Ahlens.com jókst
veltan t.d. um 55 prósent á síðasta
ári og í janúar varð aukningin 74
prósent milli ára. Sérstaklega hefur
orðið aukning í sölu á snyrtivör-
um, eða um 350 prósent.
Hér á landi virðist ekki gæta
sömu þróunar, segir í fréttabréfi
Samtaka verslunar og þjónustu.
Þar eru leiddar líkur að þeirri
skýringu að hvarvetna á höfuöborg-
arsvæðinu er stutt í næstu verslun
og því er síður nauðsyn á að panta
gegnum Netið. Hins vegar telur ís-
landspóstur að mikii aukning hafi
orðið I verslun íslendinga við er-
lendar póstverslanir, sérstaklega
með bækur og geisladiska frá fýrir-
tækjum á borð við Amazon.com.
Foringi vopnaðs arais Hamas á
Gaza-svæðinu skotiim til bana
- hefnd fyrir skriödrekaárásina á laugardaginn
Riad Abu Ziad, yfirmaður vopn-
aðs arms Hamas-samtakanna á
Gaza-svæðinu, lést i gær af sárum
sinum eftir að ísraelskir hermenn
höfðu sært hann alvarlega í skot-
bardaga í nágrenni Gaza-borgar.
Að sögn talsmanns ísraelshers
lést Ziad á leiðinni á sjúkrahús í
ísrael, en þangaö var hann fluttur
í ísrelskri herþyrlu.
ísraelsk hersveit mun hafa setið
fyrir Ziad þar sem hann var á leið-
inni til Gaza-borgar til að vera
viðstaddur jarðarför Hamas-lið-
anna sex sem fórust í öflugri
sprengingu í nágrenni bæjarins
al-Zeitun á Gaza-svæðinu á sunnu-
daginn.
Talsmaður hersins sagði að Zi-
ad hefði hafið skothríð á her-
mennina þegar þeir reyndu að
stöðva bvilinn en að sögn sjónar-
votta hófu hermennirnir skothríð-
ina á bíl Ziads og særðu hann
strax alvarlega.
Kailaö á hefnd
Ziad er talinn hafa verið helsti
foringi Hamas-samtakanna á
Gaza-svæðinu og tekið við þeirri
stöðu af Salah Shehadeh sem ísra-
eskir hermenn skutu tO bana í
júlí sl.
Um þrjátíu þúsund Palestínu-
menn fylgdu Hamas-liðunum til
grafar í gær og var hrópað á
hefnd, en ísraelska hemum er
kennt um dauða þeirra og að hafa
sært þrjá aðra alvarlega.
Að sögn palestínskra yflrvalda
voru Hams-liðarnir, sem tilheyrðu
Izzedine al-Qassam-herdeildinni,
að handfjatla litla fjarstýrða flug-
vél þegar sprengingin varð og
talið að ætlun þeirra hafl verið að
senda hana inn í nálægar land-
tökubyggðir gyðinga, en sprengj-
an sprungið óvænt fyrir flugtak.
Umrædd samtök höfðu lýst
ábyrgð á árásinni á ísraelska
skriðdrekann við Dugit-landtöku-
byggðina á Gaza-svæðinu á laug-
ardaginn, sem varð fjórum ísra-
elskum hermönnum að bana.
Israelsk stjórnvöld skipuðu í
gær ofsatrúarmanninn Uri Lupo-
lianski tímabundið borgarstjóra í
Jerúsalem og er það talið endur-
spegla ótta stjómvEdda um aukinn
óróa í borginni.
REUTERSMYND
Kastaö út um glugga á fimmtu hæö
Þessi þriggja og hálfs árs snáöi liggur nú á gjörgæsludeild sjúkrahúss í borginni Xuzhou í Jiangsu-héraöi Kína eftir aö
móöir hans kastaöi honum út um glugga íbúöar þeirra á fimmtu hæö. Konan haföi veriö aö rífast viö kærastann sinn.
Drengurinn lenti á steinsteyptu gólfi og fyrir eitthvert kraftaverk liföi hann falliö af.
pssmssip
Annan genir lokatilraun
Kofi Annan,
framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóð-
anna, er að búa
sig undir að gera
lokatilraun til að
sameina grísku-
og tyrkneskumæl-
andi hluta Kýpur
í eitt ríki. Sameiningin kann að
vera í uppnámi eftir sigur fram-
bjóöanda stjómarandstööunnar í
forsetakosningum í gríska hlutan-
um.
Uppreisnarmenn gefa eftir
Uppreisnarmenn á Fílabeins-
ströndinni létu í gær af hótunum
sínum um að hefja aftur vopnaða
baráttu og gáfu stjórnarerindrek-
um úr nágrannaríkjunum færi á
að miðla málum.
TróAust tíl bana í Chicago
Tuttugu og einn maður lést í
troðningi á ólöglegum nætur-
klúbbi í Chicago í fyrrinótt.
Troðningurinn varð eftir að ör-
yggisverðir sprautuðu pipargasi
til að leysa upp átök.
Blaðamenn sakaöir um guðlast
Yfirvöld í Jórdaníu hafa stung-
ið þremur blaðamönnum í stein-
inn fyrir guðlast vegna greinar
sem þeir skrifuðu um kynlíf Mú-
hameðs spámanns.
Lula hvetur til umbóta
Luiz Inacio Lula
da Silva, forseti
Brasilíu, hvatti
þingmenn í gær
til að samþykkja
með hraði efna-
hagsumbæturnar
sem hann lofaði
almenningi í kosningabaráttu
sinni.
Snjó rutt frá gangamunna
Hundruð manna vinna nú að
því að ryðja burtu snjóskriöum
sem lokuðu Salang-jarðgöngunum
í Afganistan, helstu samgönguæð-
inni milli höfuðborgarinnar og
norðurhluta landsins.
Forsetabróðirinn klúöraði
Jeb Bush, ríkisstjóri í Flórída
og bróðir Bandaríkjaforseta, mis-
mælti sig herfilega í gær þegar
hann kallaði Spán lýðveldi.
kr./stk.
kr./stk.
tónar
Til að panta hringitón sendir þú skeytið: Tone DV kódi.
T.d.: Tone DV 2142, til að velja Lose Yourself með
EMINEM og sendir á 1919. 99 kr. stk.
Flytjandi
EMINEM
Jennifer Lopez
Theme
Lenny Kravitz
Led Zeppelin
Kelly Osborne
Nirvana
No Doubt
Weezer
Europe
Deep Purple
Coldplay
Bryan Adams
Buffy the Vampire
ACDC
lag
Lose Yourself
Jenny From The Block
Mothy Python
American Woman
Stainvay to heaven
Papa Dont Preach
Smells Like Teen Spirit
Hey Baby(DTI)
Hashpipe
FinalCountdown
Smoke On The Water
In my Place
Summer of 69
Theme 2
TNT
wmm
Nú senda allir sitt SMS
deitt númer: 1919
D V
~ Tonar ^
eingöngu fyrir
. NOKIA síma.
Faöu stjornuspana þina beint i farsimann þinn á hverjum^.
degi. Ef þú ert t.d. fiskur sendirðu SMS-skeytið DV FISKUR.
Á hverjum degi munum við senda þér stjörnuspá dagsins
beint í farsímann þinn.
Að móttaka hvert SMS kostar 49 kr.
kodi
2142
2144
3147
5026
Til að stöðva þjónustuna sendu DV FISKUR STOPP á
númerið 1919.
9425
1864
Þú getur fengið fleiri
tóna og merki á
www.smartsms.is
9431
0587
SENDU:
DV Steingeit
9540
DV Krabbi
DV Ljon
DV Meyja
DV Vog
DV Sporddreki
DV Bogamadur
DV Fiskur
DV Vatnsberi
7008
5064
DV Hrutur
DV Naut
DV Tviburi
1762
1772
9269
9566
M.
Qlds
Með þvi að taka þátt i Smait-leikjum ertu orðinn meðlimur I Club SmartSMS
Þjónustur þessar eru á vegum Smart auglýsinga ehf.
■■