Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Side 13
13 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 DV __________________________________________________ Útlönd BQNUSVIDEO Norðausturströnd Bandaríkjanna á kafi í snjó: Samgöngur lögðust nær nifiur Miklar truflanir uröu á sam- göngum á norðausturströnd Bandaríkjanna í gær þegar mikl- um snjó kyngdi þar niður. Flestir flugvellir við höfuðborgina Was- hington og við New York lokuðust og þúsundir ferðamanna komust hvorki lönd né strönd. Lítiö fararsnið virðist vera á snjóbylnum, sem fjölmiðlar vestra hafa uppnefnt „skepnuna fyrir austan", því hann mun áfram gera íbúum Nýja-Englands lífið leitt fram eftir degi í dag. Veðurstofan spáir því að jafnfallinn snjór í Boston undir kvöld verði hátt í sextíu sentímetrar. Snjómokstursmenn unnu hörð- um höndum að því í gær að hreinsa götur borga og bæja. Veðrinu er kennt um að minnsta kosti tíu dauðsfóll frá Kentucky til REUTERS-MYND Einn í heiminum Víöa á noröausturströnd Bandaríkj- anna var aöeins hægt að komast ieiöar sinnar fótgangandi eins og þessi maöur í Massachusetts. New Jersey. Tveir létust úr hjartaslagi þar sem þeir voru að moka snjó í Maryland og Vestur- Virginíu. Annar lést og fjórir slös- uöust þegar þak á húsi í Edison í New Jersey gaf sig undan snjó- þyngslunum. Veðrið olli því að rafmagn fór af eitt hundrað þúsund heimilum og fyrirtækjum í Ohio og Kentucky. Ríkisstjórinn í Kentucky lýsti yfir neyðarástandi í ríkinu og sama var uppi á teningnum í þremur sýslum í sunnanverðu Ohio. í Miðgarði í New York var jafn- fallinn snjór orðinn fimmtíu sentí- metrar undir kvöld í gær og að sögn veðurstofunnar hefur sjaldan snjóað meira þar í borg. Mikill skafrenningur var víða á norðausturströndinni og skaflar urðu meira en metri á dýpt. Deiluaðilar í Venesúela fordæma ofbeUð í tilkynningu frá Samtökum Am- eríkuríkja, OAS, segir að stjóm og stjórnarandstaða í Venesúela hafi í gær náð samkomulagi um að for- dæma ofbeldið í landinu og lægja öldumar í langvarandi deilum sem leitt hafa til stöðvunar allrar olíu- vinnslu og þar af leiðandi haft al- varlegar afleiðingar fyrir efnahag landsins. Cesar Gaviria, aðalframkvæmda- stjóri OAS, sagði í morgun aö deiluaðilar myndu í dag undirrita sameiginlega yfirlýsingu í viðleitni sinni til að koma á friði og tryggja lýðræðið í landinu. Talsmaður stjórnarandstöðunnar sagði að deilumar væru þó ekki úr sögunni. ÞARFASTI ÞJÓNNINN! REUTERSMYND Borgarstjórinn bíóur eftir lest Ken Livingstone lítur á klukkuna þar sem hann bíður eftir jarölest á Green Park-stööinni á leiö sinni tii vinnu á fyrsta degi nýs umferöarstjórnunarkerfis þar sem ökumenn þurfa aö greiöa fimm sterlingspund fyrir aö keyra inn í miðborg- ina. Ætlunin meö því er aö reyna aö draga úr umferöaröngþveitinu sem þar er daglegt brauö. Ákærðir stríðsglæpa- menn teknir I Kosovo Liðsmenn úr herdeildum NATO hafa handtekið þrjá fyrr- um albanska skæruliða frá Kosovo sem stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna hefur ákært fyrir stríðsglæpi gegn bæði serbneskum og albönskum óbreyttum borgurum. Þetta er í fyrsta sinn sem fyrr- um liðsmenn Frelsishers Kosovo hafa verið hnepptir í varðhald vegna ákæra frá stríðsglæpadóm- stólnum. Stjórnvöld í Belgrad hafa ítrekað gagnrýnt dómstólinn fyrir að birta aðeins ákærur gegn Serbum fyrir voðaverk framin í átökunum í Kosovo 1998 til 1999. „Aðgerðirnar nú eru mikilvægt nýtt skref í viðleitni NATO til að handsama menn ákærða fyrir striðsglæpi," sagði Robertson, framkvæmdastjóri NATO. REUTERSMYND Eldur í jarölest Suöur-kóreskir björgunarsveitamenn flytja fórnarlamb burt af slysstaö. Þrjátíu og tveir létust í eldsvoða í jarðlest Þrjátíu og tveir menn týndu lífi, 130 slösuðust og tuga manna var enn saknað eftir íkveikju í jarðlest í Taegu, þriðju stærstu borg Suður-Kóreu, í morgun. Slökkviliðsmenn voru enn við jarðlestarstöðina rúmum fimm stundum eftir að eldurinn braust út. Dökkur reykur streymdi út um loftræstiventla stöðvarinnar. „Karlmaður á fimmtugsaldri, klæddur íþróttabúningi, kveikti í mjólkurflösku úr plasti sem í var eldfimur vökvi og henti henni inn í lestina," hafði Yonhap- fréttastofan eftir sjónarvotti. Lögreglan sagði að karlmaður grunaður um verkið hefði fengið aðhlynningu á sjúkrahúsi. „Irakar verða afvopnaðir hvort sem það verður gert með friðsamlegum hætti eða vopnavaldi," sagði Blair. Gerhard Schröder, kanslari Þýska- lands, sagðist hafa komið til móts við óskir annarra þjóða með því að sam- þykkja orðalag um hugsanlegar hern- aðaraðgerðir en ítrekaði að Þjóðverjar myndu ekki taka þátt í að beita vopnavaldi. „í staðinn fengum við því framgengt að setningin „Timinn er að renna út“ var felld út úr lokayfirlýs- ingunni," sagði Schröder. Chirac Frakklandsforseti sagði eftir fundinn að svo virtist sem þessi smáágreiningur væri nú úr sögunni en ítrekaði að Frakkar væru enn á móti nýrri ályktun í Öryggisráðinu sem leyfði hernaðaraðgerðir. Á meðan fundurinn stóð sem hæst bárust fréttir frá írak um að könnun- arflugvélar hefðu í fyrsta skipti verið notaðar við vopnaeftirlitið og voru þær á flugi í fjórar klukkustundir. - en ítreka aö hernaðaraögeröir gegn írökum veröi allra síöasti kostur „írakar geta ekki gert sér neinar grillur. Þeir verða að afvopnast hvað sem það kostar og sýna fullan sam- starfsvilja. Vopnaeftirlitið getur ekki haldið áfram nema með fullu sam- starfí íraka og þeir einir eru ábyrgir fyrir afleiðingunum haldi þeir áfram að hundsa vilja alþjóðasamfélagsins," segir í yfirlýsingu leiðtoga Evrópu- sambandsþjóðanna sem hittust á neyðarfundi um íraksdeiluna í Brúss- el í gær. Leiötogamir fimmtán lýstu einnig yfir stuðningi við baráttu Bandaríkja- manna um afvopnun íraka, en árétt- uðu þó að hemaðaraðgerðir yrðu síð- asti kostur. „Við erum skuldbundnir til þess að vinna náið með bandamönnum okkar, sérstaklega með Bandaríkjunum í baráttu þeirra við að afvopna íraka og koma á friði og stöðugleika á svæð- inu,“ segir i yfirlýsingunni. Á orðalaginu er augljóst að báðar Jacques Chirac Frakklandsforseti fylkingar hafa orðið að gefa eftir til þess að ná sáttum um lokayfirlýsing- una sem var bandalaginu nauðsynleg til að koma í veg fyrir alvarlegan klofning á við það-sem gerðist innan Atlantshafsbandalagsins. í yfirlýsingunni er til dæmis ekkert minnst á þann tíma sem írakar fá til segir ágreininginn úr sögunni. afvopnunar en Bretar hafa lagt sér- staka áherslu á að hann sé á enda runninn. Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, sagði þó eftir fundinn að yfir- lýsingin sendi írökum skýr skilaboð um að þeir fengju ekki annað tæki- færi til friðsamlegrar afvopnunar. Leiötogar Evrópusambandslandanna lýsa yflr stuöningi við Bandaríkin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.