Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 DV 27 Tilvera' Sam bíóin/Háskólabíó - Two Weeks Notice ★★ Hilmar Karlsson Haltu mér, slepptu mér skrifar gagnrýni um kvikmyndir. lífiö Hundshjartað hjá MR Herranótt sýnir „Hundshjartað" eftir Mikhail Búlgakov í leikgerð og þýðingu Ólafs Egils Egilssonar í Tjamarbíói í kvöld. Sýningin hefst kl. 20. Hlaupvidd sex Það er leiklestur á leikriti Sigurð- ar Pálssonar, Hlaupvídd sex, í Smiðj- unni, leikhúsi Listaháskólans að Sölvhólsgötu 13. Hlaupvídd sex er annað leikritið sem Sigurður skrifaði fyrir Nemendaleikhúsið, frumsýnt 1977 í leikstjóm Þórhildar Þorleifs- dóttur. Þar segir frá vinkvennahópi í Reykjavík á stríðsárunum, ástandinu og tvískinnungi samfélagsins. Flytj- endur em nemendur 2. bekkjar leik- listardeildar LHÍ ásamt gestum. Að- gangur er ókeypis og öllum heimill. Morguntíð á Selfossi Morguntíð er sungin í Selfoss- kirkju kl. 10. Kaffisopi að henni lok- inni. Borg minninganna Sigríður Björk Jónsdóttir, sagn- og listfræðingur, heldur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist „Borg minninganna". Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12.05 til 13.00. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og skipu- lagsmál. í fyrirlestrinum verður m.a. fjallaö um hugmyndir ítalska arki- tektsins Aldo Rossi um hið „sögu- lega“ form og það hvemig fortíð og sameiginlegar minningar og reynsla íbúa móta borgina og framtíð henn- ar. Sigríður Björk Jónsdóttir er með BA-próf i sagnfræði með mannfræði sem aukagrein frá HÍ, MA-gráðu í History and Theory of Architecure and Design frá University of Essex í Englandi og stundar nú MBA-nám við HR. Tilnefningar til gullnu rifsberjaverölaunanna tilkynntar: Hörð barátta Jenni- ler Lopez og Madonnu Degi áður en tilnefningar til ósk- arsverðlaunanna eru kunngjörðar em tilnefningar til gullnu rifsberja- verðlaunanna einnig tilkynntar, enda fer sú hátíð fram daginn fyrir afhendingu óskarsverðlaunanna. Það þykir þó heldur vafasamur heiður að vera sæmdur gullna rifsberinu því þar em verstu leikarar og kvik- myndagerðarfólk ársins á undan val- in. í ár stendur baráttan hvað harðast milli Jennifer Lopez og Madonnu en þær Britney Spears, Winona Ryder og Angelina Jolie em ásamt þeim til- nefhdar sem versta leikkona ársins. í flokki verstu mynda ársins er hin mjög svo dýra The Adventures of Pluto Nash með Eddie Murphy í að- alhlutverki en hún var afar illa sótt af kvikmyndagestum og varð því mikið tap af henni. Auk hennar em Swept Away með Madonnu, Cross- roads 'með Britney og endurgerð ítalska leikstjórans Robertos Begnini á sögunni um Gosa. Að siðustu er til- nefnd Star Wars 2: Attack of the Clones, mynd sem allir höfðu löngu gleymt þegar þeir sáu Hringadrótt- inssögu um jólin. Tilnefndir sem verstu karlleikarar em þeir Murphy, Begnini, Adriano Giannini (Swept Away), Steven Seagal (Half Past Dead), Freddie Prinze yngri (Scooby Doo), Christopher Walken (The Country Bears) og Robin Williams (Death to Smoochy). Versta leikkonan? Jennifer Lopez er ein þeirra sem til- nefndar eru sem versta ieikkonan. Verðlaun em einnig veitt fyrir leik í aukahlutverki sem og versta parið. Vakti það helst athygli að Madonna var tilnefhd í báðum flokkum, fyrir Bond-myndina Die Another Day og sem versta parið með Giannini í Swept Away. Bíomynd Bnitney verst allra Söngkonunni Britney Spears hefur hlotnast sá vafasami heiður að hafa leikið í verstu kvik- mynd síðasta árs. Mynd- in heitir Krossgötur og var framkoma söngkon- unnar þar frumraun hennar á þessum vett- vangi. En myndin var ekki bara kjörin versta myndin einu sinni, heldur tvisvar sinnum. „Hlust- endur okkar töldu að Krossgötur væru versta mynd sem þeir höfðu nokkru sinni séð,“ sagði plötusnúðurinn Daryl Demham hjá Virgin út- varpsstöðinni í samtali við sjónvarpsstöðina Sky, en Virgin stóð fyr- ir annarri atkvæða- greiðslunni. mmBSBB I hvaöa fötum á ég aö vera? Lögfræöingurinn Lucy Kelson (Sandra Bullock) þarfaö sinna ýmsum störfum fyrir milljónamæringinn George Wade (Hugh Grant). Það vita allir sem eitthvað hafa fylgst með ferli Hughs Grants og Söndru Bullock að þegar þeim tekst vel upp í rómantískum gam- anleik þá geislar af þeim. Það þarf því engan að undra að loks skuli hafa tekist að fá þau saman í kvikmynd. Og eins og við er að búast þá stendur eða fellur Two Weeks Notice með frammistöðu þeirra. Og þau standa undir vænt- ingum og ná sér vel á strik, sér- staklega Grant sem verður að telj- ast betri aðilinn í þetta skiptið. Grant og BuUock ná samt ekki að gera söguna áhugaverða þannig að skemmtanagildi myndarinnar byggist að mestu á góðum samleik þeirra og sem slík er Two Weeks Notice peninganna virði. Upphaf myndarinnar þar sem farið er á hraðferð um kynni lög- fræðingsins Lucy Kelson (Bull- ock) og mUljónamæringsins og byggingaverktakans George Wa- des (Grant) er vel heppnað sjónar- spil og gefur fyrirheit um skemmtilega sögu sem því miður koðnar smátt og smátt niður í meðalmennskuna. Eftir að Wade er búinn að ráða Kelson sem helsta ráðgjafa sinn, gegn því að hætta við að rífa fé- lagsmiðstöð, er farið marga mán- uði fram í tímann. Kelson er að fara á taugum í vinnunni enda nær vinnusvið hennar langt út fyrir lögfræðina þegar Wade á í hlut. Má segja að þau séu eins og hjón þar sen tilhugalífið er á enda. Er oft skondið aö fylgjast með því hvað þau gerþekkja hvort annað. Það kemur að því að Kel- son fær nóg og segir upp. Eftir að Wade hefur reynt ýmis brögö til að halda henni veitir hann Kelson tveggja vikna uppsagnarfrest og á þessum tveimur vikum á hún að finna starfsmann fyrir sig. Þá kemur í ljós að Kelson er ekkert tilbúin að hætta, alla vega bregst hún hið versta við þegar ung og hæfi- leikarík stúlka stúlka sækir um starf hennar ... Gæöi Two Weeks Notice, ef frá er talinn leik- ur þeirra Grants og Bullock, liggur í einstökum atrið- um sem mörg hver eru bráð- fyndin. Til að mynda þegar Kel- son verður brátt í brók í miðri bUa- þvögu og þau þurfa að leita að- stoðar hjá fjöl- skyldu sem er í húsbíl. Þá er einnig fyndið atriði þegar Kelson ætlar að reyna að láta Wade reka sig. Þessum skemmtilegu atriðum sem og fleiri í sama stíl tekst ekki að halda myndinni á floti þegar hefðin nær yfirtökunum og í lok- in stefnir myndin í væmiö atriði sem allir gátu séð fyrir. Leikstjóri og handritshófundur: Marc Lawrence. Kvikmyndataka: Laszlo Kovacs. Tónlist: John Powell. Aöalleikarar: Hugh Grant, Sandra Bullock, Alicia Witt, Robert Klein, Dana Ivey og David Haig. Teíknimyndahetja vinsælust Fyrsta „stórmynd" ársins, Daredevil, var frumsýnd í Banda- ríkjunum fyrir helgi og var milljón- um dollara eytt í markaðssetningu og auglýsingar og myndin sett til sýningar í rúmlega 3400 sýningar- sali. Hvort rúmar 47 milljónir doll- ara sé það sem aðstandendur bjugg- ust við að kæmi í kassann eftir langa helgi er ekki vitað en þessi upphæð er ekki jafn mikil og Harry Potter og Hringadróttinssaga tóku inn fyrstu helgina. Daredevil er ætl- að að fylgja eftir vinsældum Spider Man en ljóst er strax eftir fyrstu helgina að hún nær því ekki. Daredevil er byggð á teiknimynda- hetjunni Matt Murdock sem er lög- fræðingur á daginn en svalur töffari á nóttunni. Hann er sonur hnefa- leikakappa sem var drepinn þegar hann neitaði að tapa viljandi. Murdock hefur því hina megn- ustu óbeit á glæpamönnum og notar styrk sem hann hefur fram Daredevil Ben Afleck leikur hetjuna Matt Mur- dock. yfir aðra í baráttunni gegn þeim. Teiknimyndin The Jungle Book 2 var einnig frumsýnd fyrir helgi og fékk dágóða aðsókn þó ekki dygði það nema í fjórða sætiö. How To Lose a Guy in 10 Days og Chicago héldu sínu og má búast við að Chicago haldi áfram að fá góða að- sókn óskarsverðlaunahátíðina. -HK I 11" II 11 IPI1II11 I 1 i —_____________________________________________________________ ALLAR UPPHÆÐIR I ÞUSUNDUM BANDARIKJADOLLARA. FYRRI INNKOMA INNKOMA FJÖLDI SÆTl VIKA TIT1LL HELGIN: ALLS: BÍÓSALA O _ Daredevil 47.300 47.300 3471 o 1 How To Lose a Guy in 10 Days 21.000 49.706 2923 © 3 Chicago 15.500 83.600 2268 o _ The Jungle Book 2 15.110 15.110 2808 o 2 Shanghai Knights 12.800 35.951 2755 o 4 The Recruit 7.555 39.683 2336 o 5 Final Destination 2 6.400 36.295 2238 o 7 Kangaroo Jack 5.600 59.000 2535 o 6 Deliver Us From Eva 4.460 12.326 1139 © 13 The Hours 3.850 26.523 1003 0 10 Lord of the Rings: Two Towers 3.760 325.610 1422 0 11 About Schmidt 3.575 53.115 1208 © 12 Catch Me If You Can 2.700 159.500 1135 © 8 Biker Boyz 2.650 19.500 1330 © 19 Gangs of New York 2.479 72.834 1503 © 9 Darkness Falls 2.350 29.871 1539 © 18 The Pianist 1.617 11.127 557 © _ The Quiet American 1.547 3.039 157 © 20 Adaptation 1.350 18.600 672 © 14 Just Married 925 53.970 621 Vinsælustu myndbondin Svefnleysi í fllaska Tvær nýjar myndir koma sterkar inn á myndbandalistann þessa vikuna. Hin ágæta sakamálamynd Insomnia nær efsta sætinu og kafbáta- myndin K-19: The Widowmaker, sem skartar meðal annars Ingvari Sigurðssyni, fer í þriðja sætið. Insomnia skartar þremur óskarsverð- launahöfum, A1 Pacino, Robin Willi- _______________ ams og Hilary Swank. ieysi. Fær hann aðstoð hjá Myndin er óvenjuleg sakamála- þorpslöggunni Ellie Burr (Hilary mynd meö flókinni fléttu. Lög- Swank). -HK reglumaðurinn Will Dormer (A1 Pacino) er sendur frá Los Angeles til Alaska til að leysa dularfullt morðmál. Með hon- um í ferðinni er Hap (Martin Donovan) og saman eiga þeir að leysa morðmál þar sem sautján ára stúlka hefur verið myrt. Fljótlega gruna þeir rithöf- undinn Walter Finch (Robin Willi- ams) um morðið. í umsátri í mikilli þoku gerist það að Hap er skotinn til bana, óvíst er hver hleypti skotinu af. Dormer tekur á sig ábyrgðina og hefur það áhrif á rannsókn hans, auk þess sem hann þjáist af svefn- VIKAN 10. _ 16. FEBRÚAR SÆTl FYRRI VIKA TTTILL (DREIRNGARAÐIL!) VIKUR ÁUSTA O _ Insomnia (sam myndbönd) 1 Q 1 The Sum of All Fears <sam myndbönd) 4 © _ K-19: The Wldowmaker imyndformi 1 O 9 Serving Sara (sam myndbönd) 2 o 2 The Sweetest Thing iskífan) 4 o 4 Orange County isam myndbónd; 3 o 3 Van Wilder (myndformj 5 o 7 Unfaithful (skífan) 6 o 5 Bad Company (sam myndbönd) 9 © 6 Eight Legged Freaks (sam myndböndj 3 © 8 Murder By Numbers (sam myndbönd) 9 © 10 Bend It Like Beckham (góðar stundir) 10 © 13 Joe Somebody (skífan) 3 © 12 The New Guy iskífan) 9 © © 14 Black Knight iskífan) 10 19 Importance of Being Earnest iskífani 2 © 15 My Big Fat Greek Wedding (myndformj 19 © n About a Boy <sam myndbönd) 14 © 18 The Royal Tenenbaums isam myndbóndj 11 © _ Mr. Bones (sam myndbönd) 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.