Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2003, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2003 DV Fréttir Kröfur í þrotabú Fréttablaðsins rúmar 432 milljónir króna, þar af laun 102 milljónir: Kröfur tengdar eigendum blaösins nærri 96 milljónir Á framhaldsskiptafundi í þrotabúi Fréttablaösins ehf., sem haldinn var í gær, kom fram að kröfur eigendanna sjálfra, Eyjólfs Sveinssonar og Sveins R. Eyjólfssonar, og félaga tengdra þeim og rekstrinum hljóða upp á samtals 95.907.707 krónur. Þá er Toli- stjórinn í Reykjavík með kröfu upp á 66.868.228 krónur vegna vangreiddra opinberra gjalda. Heildarkröfur í búið eru alls 432 milljónir, 431 þús- und, 118 krónur og 22 aurar. Þar af nema forgangskröfur 101.940.349 krónum. Almennar kröfur eru því 332.740.113 krónur. Meðal athyglisverðra krafna sjálfra eigendanna í þrotabúið og tengdra félaga er m.a. krafa frá Fjár- festingarfélaginu Látrabjargi upp á 61.655.653 krónur og sex kröfur frá Eignarhaldsfélaginu Gimli ehf., sam- tals að upphæð 14.560.539 krónur. Þá er ísafoldarprentsmiðja ehf., sem prentaði blaðið, með kröfu upp á 5.098.564 krónur. Þess má geta að ísa- foldarprentsmiðja var einnig í eigu sömu aðila í gegnum Frjálsa fjölmiðl- un hf. en prentsmiðjan varð gjald- þrota skömmu fyrir gjaldþrot Frétta- blaðsins og Frjáls fjölmiðlun var lýst gjaldþrota í haust. Einnig er stór veðkrafa í bú Frétta- blaðsins frá pappírsframleiðandan- um Norske Skog upp á 25.221.656 krónur. Útgáfufélag DV ehf. er með tvær kröfur í búið upp á 4.469.754 og 17.123.065 krónur, m.a. vegna van- greiddra höfundarréttargreiðslna. Forgangskröfur vegna ógreiddra launa starfs- manna þeirra, þ.e. blaðamanna og fleiri, eru einnig mjög háar eða nærri 65 milljónir króna. Þar af eru kröfur frá tveim fyrrverandi rit- stjórum blaðsins, Jónasi Kristjánssyni upp á 9.392.140 krónur og frá Einari Karli Haralds- syni upp á 1.023.165 krónur. Hæsta krafa óbreytts blaðamanns nemur rúmum 2,6 milljónum króna. Ofan á það koma kröfur vegna lifeyrissjóðs- gjalda og annarra launatengdra gjalda og nema þessar kröfur því samtals tæpum 102 milljónum króna eins og áður segir. Fram kemur í drögum að endur- riti úr skiptabók að Fréttablaðið ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta 22. nóvember 2002 en kröfulýsingarfrest- ur rann út 6. febrúar 2003. Engar eignir fundust í búinu þegar félagið var úrskurðað gjaldþrota. Rekstur Fréttablaðsins, nafn, að- staða, vélar og tæki sem til þurfti við útgáfuna var hins vegar seldur Ragn- ari Tómassyni og Gunnari Smára Eg- ilssyni í umboði óstofnaðs hlutafélags samkvæmt kaupsamningi sem dag- settur var 25. júní 2002. í framhaldinu var stofnað hlutafélagið Frétt ehf. sem hóf útgáfu blaðsins að nýju. Kaupverðið var samkvæmt 3. grein samningsins 15 milljónir króna sem skyldu greiðast með því að greiða laun blaðbera Fréttablaðsins að sömu upphæð. Mismunur, ef ein- hver yrði, skyldi ganga til seljenda. „Hann virðist enginn hafa orðið,“ eins og segir í fundargerð Sigurðar Gizurarsonar skiptastjóra. Þá vekur einnig athygli að Ábyrgðasjóður launa, sem kemur til með að standa straum af stórum hluta af kaupgreiðslum starfsmanna Fréttablaðsins, er líka með forgangs- kröfu í búið upp á 11.089.296 krónur. Ábyrgð sjóðsins gagnvart launum starfsmanna gjaldþrota fyrirtækja tekur til krafna í bú vinnuveitanda sem viðurkenndar hafa verið sem forgangskröfur samkvæmt gjald- þrotaskiptalögum. Það eru m.a. kröf- ur launþega um vinnulaun fyrir síö- ustu þrjá starfsmánuði hans hjá vinnuveitanda, launatengd gjöld, or- lof og vangoldin lífeyrissjóðsiðgjöld. Þess ber þó að geta að eigendur og helstu stjórnendur fyrirtækja fá ekki greidd laun úr Ábyrgðasjóði. Á síð- asta ári greiddi sjóðurinn um 600 milljónir króna í laun starfsmanna gjaldþrota fyrirtækja. -HKr. Eyjólfur Sveinsson. Gunnar Smári Egilsson. Stórmót Hróksins 2003 9. umferð Onuggun sigur Shinovs Alexei Shirov sigraði nokkuð ör- ugglega á Hróksmótinu og átti sigur- inn fyllilega skilinn eftir frábæra taflmennsku. Eigi er allt fagurt, en frammistaða íslendinganna olli tölu- verðum vonbrigðum. l.Sokolov, sem tefldi hreina úr- slitaskák við Shirov, gerði sér grein fyrir því að hann yrði að tefla upp á vinning - sérstaklega þar sem staða hans var orðin nokkuð „passív" - og þá fómaði hann tveimur peðum en allt kom fyrir ekki, tap varð ekki um- flúið. 2. Kortsnoj vann góðan sigur á Bacrot sem virtist ekki skflja dýpstu leyndardóma stöðu sinnar í hol- lensku vöminni og tapaði ákaflega sannfærandi. Það er gaman að sjá rúmlega sjötugan öldung svona fram- arlega og slá við ungmennum sem ekki ná aldri hans samanlegt! 3. Adams, sem varð fyrir neðan Hannes Hlifar á heimsmeistaramóti sveina 1987 og tapaði síðustu skák þeirra á milli, vann Hannes nú eftir mikinn baming. 4. Stefán Kristjánsson tapaði fyrir jafnaldra sínum Luke McShane í mikflli baráttuskák og eftir miklar flækjur. 5. Eina jafhteflið gerðu Helgi Áss og Macieja og var það eftir miklar flækjur. Helgi Áss sýndi mikla út- sjónarsemi með peði undir í hróksendatafli og það var Macieja sem í raun varð að berjast fyrir jafn- teflinu. Lokastaðan: l.Shirov 7 v. 2.-3. Kortsnoj og Macieja 6 v. 4. Sokolov og McShane 5,5 v. 6. Adams 5 v. 7. Bacrot 3ffl. 8. Hannes 3 v. 9. Helgi Áss 2,5 v. 10. Stefán 1 v. Hvítt: Viktor Kortsnoj (2642) Svart: Etienne Bacrot(GM) (2671) Drottningarpeðsbyrjun. Hróks- mótið Kjarvalsstöðum. (9), 27.2. 2003 1. c4 Rf6 2. Rf3 c6 3. d4 d5 4. Dc2 dxc4 5. Dxc4 Bf5 6. g3 e6 7. Bg2 Rbd7 8. Rc3 Be7 9. Db3 Db6 10. Rd2 Bg6 Næsti leikur vakti athygli mína og Ingvars Ásmundssonar. Hvítur þvingar svart tfl að gefa sér tvípeð á b-línunni sem oftast þykir ekki gott! 11. Rc4 Dxb3 12. axb3 Rd513.0-0 f5 En blessað bamið skil- ur ekki stöðuna! 14. Ra5! 0-0-0 15. Bxd5! exd5 16. Bf4 Rb8 17. Hfcl Bd6. Hér ragl- ar Kortsnoj drenginn al- varlega í ríminu því staðan er u.þ.b. í jafn- vægi. En óvenjuleg er hún! 18. Rxd5 Bxf4 19. Rxf4 Hxd4 20. Rc4 Bf7? Eftir 20. -Ra6 stendur hvítur aðeins betur. En von- in um að loka hrók hvíts inni er sterk. 21. Hxa7! Bxc4? Og þetta var nú óþarfi, 21. Hhd8 var skynsamari leikur. 22. Hxc4 Hdl+ 23. Kg2 He8 24. Hc2 Kc7 25. Ha5 g6 26. Rd5+! Kc8 27. Re3 Hd4 28. Ha4 Hed8 29. Hxd4 Hxd4 30. Rc4 Hdl 31. Hd2 Hbl 32. b4 b5 Það er erfitt að bíða og þessi leikur verður svörtum að falli, betra var 32. Hal eða 32. Kc7 með vamarmöguleikum. 33. Re5 Kc7 34. h4 Kb6 35. Kf3 Ra6 36. Rd7+ Kc7 37. Rf8 Rxb4 38. Rxh7 Rd5 Næsti leikur sýnir vel vonleysi svörtu stöð- unnar. Gott hjá þeim gamla.39. Rf8 Rb6 40. Rxg6 Rc4 41. Hc2 Rxb2 42. Re5 b4 43. Hxc6+ Kb7 44. h5 1-0 4#X A A . k X A A jL Éí A ■ ■ & M. A ‘fe A A 4 A S % ». & 4? A A 4 A £ A & A A Sá& A FuIIup viljl páöheppa að leysa mál Baldurs - Fangelsismálastofnun ekki á sama máli Mál Baldurs Rúnarssonar, fangavarðar á Litla-Hrauni, sem krafinn var um tveggja mánaða laun aftur í tímann meðan hann sinnti konu sinni, sem var í lífs- hættu, og þremur börnum þeirra, er enn óleyst. Samkvæmt upplýs- ingum DV er Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra ósátt við að Fangelsismálastofnun hafi yfir- höfuð krafið Baldur um laun aft- ur í tímann enda hafi hann sýnt fram á með vottorðum lækna að hann var óvinnufær. Ráðherra beindi tilmælum til forstjóra Fangelsismálastofnunar fyrr í mánuðinum um að mál Baldurs yrði leiðrétt. Þegar Sólveig sneri nýlega til baka erlendis frá var ekki búið að leiðrétta launamál fangavarðar- ins. Endurtók hún þá tilmælin til forstjóra Fangelsismálastofnunar. Á miðvikudag gerði fram- kvæmdastjóri Litla-Hrauns fanga- verðinum munnlegt tilboð en neitaði að senda honum það skrif- lega. Var tilboðið á þá leið að fangavörðurinn afsalaði sér með öllu tveggja vikna vetrarorlofi sínu. Einnig myndi hann ekki nýta sér rétt út yfirstandandi ár til að vera heima ef börnin hans veiktust. Féllist hann á þetta yrði hann ekki endurkrafmn um laun á því tímabili sem hann hefði sýnt fram á að hann var óvinnu- fær. Samkvæmt heimildum DV er ekki vilji til að ganga að þessu til- boði enda hafi dómsmálaráðherra lýst þeirri skoðun sinni, nú sem fyrr, við formann fangavarðafé- lagsins að Baldur haldi launum sínum. Hann hafi einfaldlega ver- Baldur og Qölskylda Baldur Rúnarsson sagöi sögu sína og konu sinnar í siöasta helgarblaöi DV. Launamál hans hjá Fangelsismálastofnun er óleyst. ið óvinnufær í desember og janú- ar þegar eiginkonu hans var vart hugaö líf eftir slys í Hólmsá, auk þess sem hann annaðist börnin þrjú sem einnig lentu í slysinu. Málið er því óleyst. Fangaverðir á Litla-Hrauni samþykktu ályktun nýlega þar sem þeim tilmælum var beint til dómsmálaráðherra að hlutast til um að starrfsmannamál þeirra verði tekin til endurskoðunar og yfirstjórn fangelsisins sýni þeim meiri mannúð. -Ótt DV-MYND ÞORSTEINN G. KRISTJÁNSSON Hrota Mikill afli barst á land í fyrradag í Grindavík en ekki eru jólin alla daga hjá sjómönnum, þaö gefur misvel. Aflahpota á línu við Grindaufk Talsverð aflahrota var í Grinda- vík í fyrradag og voru dæmi þess að bátar lentu í vandræðum. Voru menn að fá mjög góðan afla á línuna og fékk m.a. einn bátur, Gísli Einars GK, rúm 10 tonn á 24 bjóð og nokkrir aðrir fengu 6-8 tonn. Þá lenti Hælsvík GK bein- línis í vandræðum vegna mikils afla en komst þó til hafnar við ill- an leik. Tíðarfarið hefur verið af- leitt undanfarinn mánuð og minni bátar aðeins komist í örfáa róðra og þó að gott sé að fá góðan afla þegar gefur blóta menn því í sand og ösku að hætti sjómanna að geta ekki róið oftar. -ÞGK Keikó slasaöist í ísnum Keikó varð fyrir slysi á Skála- víkurfirði í Norður-Mæri í Noregi í síðustu viku. Hann synti undir lagnaðarís, fann hvergi op á ísn- um og villtist. Tilraunir hans til að komast gegnum isinn upp á yf- irborðið urðu aðeins til að særa dýrið sem var blóðugt og skrámað á löngum kafla á hryggnum eftir þetta ævintýri þegar gæslufólkið, Colin Baird og Þorbjörg Kristjáns- dóttir fundu hvalinn aftur, gátu staðsett hann eftir tækjum sem komið er fyrir á hvalnum. Þau gera lítið úr sárunum sem vissu- lega séu ljót. „Skrámur á skinni eru ekki hættulegar háhyming- um,“ sagði Colin Baird líffræðing- ur. Bæði neita þau að þama hafl verið hætta á ferðum. Ennfremur neita þau að reynt hafi verið að breiða yfir atburðinn. Hvalurinn er núna utarlega í flóanum, en Baird segir að þau vilji halda bát- um og fólki burtu frá hvalnum. Keiko hefur verið mikið á ferð- inni undanfarið og meðal annars lagt leið sína í nokkur skipti að laxeldisstöðvum sem eru þama í grendinni enda þykir honum feit- ur eldislax mikið hnossgæti að sögn norskra blaða. Eins og fram hefur komið er beðið eftir að síldartorfúr sæki upp í landgrunnið. Talið er að há- hyrningar fylgi torfunum, og reynt verður að koma Keikó í tæri við meöbræður sína ef hægt er. Colin Baird segir í Tidens Krav að í raun hafi menn ekki miklar vís- indalegar upplýsingar um háhyrn- inga og síld á Norður-mæri. -JBP Tvíbreiö brú á Hnausakvísl Einbreiðum brúm á hringveg- inum fækkar hægt og hljótt en betur má ef duga skal því enn er fjöldi þeirra talinn í nokkrum tugum. Yfir Hnausakvísl í Vatns- dal í Húnavatnssýslu, skammt frá Sveinsstöðum, er unnið við að byggja tvíbreiða brú sem væntan- lega verður tilbúin fyrir sumarið. Þrátt fyrir að akstur að brúnni sé nokkuð beinn og vel sjáist á brú- arsporða hafa orðið umferðaró- höpp þarna. Þeim mun þá fækka og vonandi hverfa alveg. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.