Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2003, Page 24
24
FÖSTUDAGUR 28. FEBRUAR 2003
DV
Sjötíu og fimm ára
ÍiKíSíiSSiA";';'‘; ‘ i
Guðmundup Norðdald
tónmenntakennari og tónkennari í Reykjavík
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
95 ára_____________________________
Hulda Ásbjarnardóttir,
Hrísalundi lOb, Akureyri.
90 ára_____________________________
Ragnar Þ. Guömundsson,
Nýhóli, Reykjahlíö.
Sigfús Jónsson,
Víðilundi 20, Akureyri.
Stefán Axelsson,
Ytri-Neslöndum, Reykjahlíð.
75 ára_____________________________
Guöný Ingibjörg Hjartardóttir,
Kóngsbakka 10, Reykjavík.
70 éra_____________________________
Bjarney Guöjónsdóttir,
Hraunbæ 132, Reykjavík.
Kjartan J. HJartarson,
Skjólvangi Hrafnistu, Hafnarfiröi.
Þór Vignlr Steingrímsson,
Arahólum 2, Reykjavík.
60 ára_____________________________
Eyþór Lárentsínusson,
Lágholti 8, Stykkishólmi.
Gunnar Hallgrímsson,
Borgarási, Flúðum.
Jóhanna Þormóösdóttir,
Mýrargötu 30, Neskaupstað.
Sigurborg Jónsdóttir,
Þorsteinsgötu 9, Borgarnesi.
Tómas Filippusson,
Bakkastöðum 75, Reykjavík.
50 ára_____________________________
Elnar Guömundsson,
Sunnuflöt 20, Garðabæ.
Jóhanna Fjeldsted,
Barmahlíð 18, Reykjavík.
Jónína Sigurveig Helgadóttir,
Seljahlíð 5c, Akureyri.
Ragnar Sigurösson,
Lyngrima 12, Reykjavík.
Sigþóra Jónatansdóttir,
Strembugötu 17, Vestmannaeyjum.
Timofejus Darcanovas,
Saltvík, Reykjavík.
40 ára_____________________________
Baldur Jónsson,
Efstu-Reykjum, Mosfellsbæ.
Hlynur Snorrason,
Móholti 8, ísafirði.
Hrafnhildur Eiríksdóttir,
Litluhlíð 4e, Akureyri.
Rósa BJörk Jónsdóttir,
Ánalandi 4, Reykjavík.
Sigurður Gísli Gíslason,
Hverafold 34, Reykjavík.
Guðmundur Norðdahl, tón-
menntakennari og tónkennari,
Austurbrún 6, Reykjavík, verður
sjötíu og flmm ára á hlaupársdag,
29.2.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar 1945, stundaði nám á
klarínett, píanó og í tónlistarfræð-
um við Tónlistarskólann i Reykja-
vík 1946-49, lauk kennaraprófl 1960,
söngprófl frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1961, stundaði nám í
einkatímum í tvo vetur hjá dr. Vict-
or Urbancic, Jóni Þórarinssyni og
dr. Róbert Abraham Ottóssyni, lauk
prófum frá Orff Institute við Mozar-
teum í Salzburg 1970, sótti námskeið
hjá Ernst Read Association í
Englandi 1970 og hefur síðan sótt
ýmis tónlistamámskeið á íslandi, í
Kanada og Ungverjalandi.
Guðmundur kenndi við Gagn-
fræðaskóla Keflavíkur 1956-57, við
Bamaskóla Keflavíkur 1958-60 og
1961-64, við Barnaskóla Garðabæjar
1960-61 og 1964-77, við Stórutjama-
skóla í Þingeyjarsýslu 1977-79 og
Hafralækjarskóla 1979-85.
Guðmundur var einn af stofnend-
um Tónlistarskóla Keílavikur og
kenndi við skólann, var einn stofn-
enda og skólastjóri Tónlistarskólans
í Sandgerði frá 1958, var meðal
stofnenda og skólastjóri Tónlistar-
skólans i Garðabæ 1962-75, stjórn-
aði tónlistardeild Stórutjamaskóla
og var stofnandi og stjórnandi tón-
listardeildar Hafralækjarskóla. Þá
kenndi hann við Tónlistarskólann á
Akranesi.
Guðmundur hefur stjómað fjölda
skólakóra og verið stjórnandi
Lúðrasveitar Keflavikur, Lúðra-
sveitar Sandgerðis og Lúðrasveitar
Reykjavíkur 1994-95.
Guðmundur er höfundur að
kennslubókinni Flautan og litimir,
fyrst útg. 1974 og síðan margendur-
útg. Þá hefur hann skrifað greinar
um tónlistarefni í blöð. Hann var
sæmdur gullmerki Sinfóniuhljóm-
sveitar íslands. Hann er félagi í
Tónmenntakennarafélagi íslands,
Intemational Society for Music Ed-
ucation og í Music Educators
National Conference.
Undanfarin ár hefur Guðmundur
unnið, ásamt yngsta syni, Guð-
mundi, að hönnun og þróun sér-
stakra hjálpartækja fyrir klarínett
og trompet. Hjálpartæki þessi eru
nú þegar seld á heimsmarkaði.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 4.4. 1953
Þórdísi Huldu Ólafsdóttur, f. 12.9.
1927, d. 19.11. 1990, tannsmið. Hún
var dóttir Ólafs Jóhannesar Guð-
laugssonar, búfræðings og veitinga-
manns, og Vilborgar Eiríksdóttur
húsmóður.
Böm Guðmundar og Þórdísar
Huldu era Haraldur Norðdahl, f. 4.4.
1952, fórst á sjó 9.3. 1968; Brynhild-
ur, f. 31.5.1954, hjúkrunarfræðingur
og húsmóðir í Noregi, gift Bemhard
Engen og eiga þau tvær dætur;
Garðar, f. 12.7. 1955, skipatækni-
fræðingur á Akranesi, kvæntur
Ingibjörgu Jónu Gestsdóttur há-
skólanema og eiga þau þrjú böm
auk þess sem hún dóttur frá því áð-
ur; Vilborg, f. 29.1.1958, læknaritari
i Keílavík, gift Þórhalli Ágústi
ívarssyni véltæknifræðingi og eiga
þau þrjú börn; María, f. 28.2. 1959,
bókhaldari í Reykjavík, gift Þóri
Erni Garöarssyni rafvirkjameistara
og eiga þau tvö börn; Guðmundur
Þór, f. 4.4.1960, tryggingaráðgjafi og
háskólanemi í Reykjavík og á hann
einn son.
Systkini Guðmundar: Skúli Norð-
dahl, arkitekt í Reykjavík; Guðrún
Norðdahl, fyrrv. íþróttakennari í
Reykjavík; Jón B. Norðdahl, verka-
maður í Reykja-
vík.
Hálfbróðir
Guðmundar,
samfeðra, er Jó-
hannes Víðir
Haraldsson,
flugstjóri í
Reykjavík.
Foreldrar
Guðmundar
voru Haraldur
Skúlason Norð-
dahl, f. 24.9.
1897, d. 24.1.
1993, yflrtoll-
vörður í Reykja-
vík, og k.h., Val-
gerður Jónsdótt-
ir Norðdahl, f.
20.9. 1895, d.
30.9. 1960, hús-
móðir.
Ætt
Haraldur var bróðir Gríms Norð-
dahl, b. á Úlfarsfelli. Haraldur var
sonur Skúla, vegaverkstjóra og b. á
Úlfarsfelli Guðmundssonar Norð-
dahl, b. á Elliðakoti í Mosfellssveit
Magnússonar Norðdahl, pr. í Meðal-
landsþingum Jónssonar, pr. i
Hvammi í Norðurárdal Magnússon-
ar, sýslumanns í Búðardal Ketils-
sonar. Móðir Magnúsar sýslumanns
var Guðrún Magnúsdóttir, systir
Skúla fógeta. Móðir Magnúsar
Norðdahls var Guðrún Guðmunds-
dóttir, sýslumanns á Svignaskarði
Ketilssonar, bróður, samfeðra,
Magnúsar í Búðardal. Móðir Guð-
mundar í Elliðakoti var Rannveig
Eggertsdóttir, pr. í Stafholti Bjama-
sonar, landlæknis Pálssonar. Móðir
Eggerts var Rannveig Skúladóttir
fógeta Magnússonar. Móðir Skúla á
Úlfarsfelli var Guðrún Jónsdóttir, b.
í Langholti Gissurarsonar og Guð-
rúnar Jónsdóttur, b. á Syðri-Steins-
mýri, Jónssonar, prests í Meðal-
landsþingum, Jónssonar, bróður
Steingríms biskups. Móðir Jóns
prests var Helga Steingrímsdóttir,
systir Jóns eldprests.
Móðir Haralds var Guðbjörg,
systir Eiríks, afa Vigdísar Finn-
bogadóttur. Annar bróðir Guðbjarg-
ar var Einar, faðir Guðmundar frá
Miðdal, foður Errós, Ara Trausta og
Egils arkitekts. Guðbjörg var dóttir
Guðmundar, b. í Miðdal Einarsson-
ar, b. á Álfsstöðum á Skeiðum Gísla-
sonar, b. þar, Helgasonar, bróður
Ingveldar, móður Ófeigs ríka á
Fjalli, langafa Grétars Fells rithöf-
undar. Móðir Guðmundar var Mar-
grét Hafliðadóttir, b. á Bimustöð-
um, Þorkelssonar. Móðir Guðbjarg-
ar var Vigdís Eiríksdóttir, b. á
Vorsabæ á Skeiðum Hafliðasonar,
bróður Margrétar.
Valgerður var dóttir Jóns Bjama,
sjómanns á Patreksfirði Jónssonar,
og Guðbjargar Össurardóttur frá
Látrum, forstöðukonu Sjúkrahúss-
ins á Patreksfirði.
Guðmundur er að heiman.
Sextíu og fimm ára
Ragnar Guömundsson, Dalbraut 21,
áöur Bogahlíð 10, lést á
Landspitalanum Hringbraut þriöjud.
25.2.
Anna Alfonsdóttir, Starmóa 16,
Kópavogi, lést á líknardeild
Landspítalans þriðjud. 25.2.
Sveinn Guðfinnur Ragnarsson lést
þriöjud. 25.2.
Björn Ragnarsson, Lindargötu 20,
Reykjavík, lést á heimili sínu sunnud.
23.2.
Þorgeir Guðmundsson af Melrakka-
sléttu varö bráðkvaddur á heimili sinu í
Tingsryd í Svíþjóö sunnud. 23.2. sl.
Kristján Sigurðsson, Háholti 18, Akra-
nesi, lést á heimili sínu sunnud. 23.2.
Guðni Gíslason lést á heimili sínu,
Granaskjóli 23, aö morgni sunnud.
23.2.
Magnús Ólafsson verkfræöingur, Álf-
heimum 22, lést á gjörgæsludeild Land-
spítalans viö Hringbraut sunnud. 23.2.
Svava Kristlnsdóttir lést á heimili sínu
sunnud. 23.2.
Auðumt Gestsson
blaösölumaöur
Auðunn Gestsson blaðsölumaður,
til heimilis að Sólheimum 27,
Reykjavík, varð sextíu og fimm ára
í gær.
Starfsferill
Auðunn fæddist í Flatey á Breiða-
firði og ólst þar upp. Hann flutti til
Reykjavíkur með Gerði, systur
sinni, 1961, en hann er til heimilis
hjá henni.
Auðunn hefur verið einhver dug-
legasti og samviskusamasti blað-
sölumaður DV um árabil. Hann hef-
ur stundað lausasölu á DV frá því
að blaðið var stofnað 1981 en þar áð-
ur seldi hann Vísi af sömu eljusemi.
Fjölskylda
Systkini Auðuns: Björn Gestsson,
f. 1.7. 1919, d. 30.6. 1992, uppeldis- og
sálfræðingur og forstöðumaður
Kópavogshælisins, var búsettur í
Reykjavík, var kvæntur Ragnhildi
Ingibergsdóttur lækni og eru böm
þeirra tvö; Gerður Gestsdóttir, f. 2.7.
1921, húsmóðir í Reykjavík, ekkja
eftir Jón Guðmundsson sem lést 1.7.
1991, starfsmann Samvinnutrygg-
inga en þeirra börn eru þrjú; Yngvi
Gestsson, f. 27.12. 1922, d. 29.11. 1985,
byggingatæknifræðingur hjá
Reykjavíkurborg, en eftirlifandi
kona hans er Guðrún Gunnarsdótt-
ir þroskaþjálfi og eignuðust þau
þrjú böm; Nanna Gestsdóttir, f. 14.7.
1925, d. 27.9. 1993, húsmóðir í
Reykjavík, var gift Ólafi Jóhann-
essyni stýrimanni en þau eignuðust
sjö börn; Heiður Gestsdóttir, f. 8.5.
1930, teiknikennari í Reykjavík, gift
Jóni Zophoníassyni kerfisfræðingi
en þau eiga einn son; Karl Gestsson,
f. 12.3. 1933, d. 25.8. 1939.
Foreldrar Auðuns voru Gestur
Gestsson, f. 2.1. 1895, d. 27.12. 1982,
kennari í Flatey, og k.h., Oddný
Sölvadóttir, f. í Gafli í Svínadal i
Austur-Húnavatnssýslu 24.4.1895, d.
13.5. 1945, húsmóðir.
Ætt
Gestur var sonur Gest, b. í Hjarð-
ardal og í Kanada Björnssonar, b. á
Hrafnabjörgum Gestssonar Galdra-
Þórarinssonar. Móðir Gests í Hjarð-
ardal var Halldóra Sigfúsdóttir
Bergmann á Þorkelshóli í Viðidal.
Móðir Gests kennara var Jóna
Benediktsdóttir, b. í Hjarðardal
Oddssonar, og Ólafar Jónsdóttur
Oddný var dóttir Sölva, b. að
Gafli Teitssonar, Guðmundssonar,
b. á Hvalsnesi á Skaga Björnssonar.
Móðir Oddnýjar var Signý, ljósmóð-
ir Sæmundsdóttir, b. Ytra-Hólmi
Halldórssonar, b. í Vogatungu í
Leirársveit Sæmundssonar, b. í Des-
ey í Norðurárdal Halldórssonar.
Útför Margrétar B. Þorsteinsdóttur,
Laugaskarði, Hverageröi, fer fram frá
Hverageröiskirkju laugard. 1.3. kl. 14.
Anna S. Bjarnadóttir, Hlíf 1, ísafiröi,
veröur jarösungin frá ísafjaröarkirkju
laugard. 1.3. kl. 13.30.
Höröur Sigurjónsson, fýrrv. flugstjóri,
Háaleitisbraut 81, Reykjavík, veröur
jarðsunginn frá Háteigskirkju föstud.
28.2. kl. 13.30.
Jarðarför Benedikts Valdemarssonar,
dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, verður
gerð frá Höfðakapellu 28.2. kl. 13.30.
Útför Ólafíu Pétursdóttur, Nönnugötu 7,
Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju
föstud. 28.2. kl. 15.
Útför Siguröar Hafstað veröur gerð frá
Neskirkju föstud. 28.2. kl. 15.
Glsli Björgvin Kristjánsson, ritstjóri Bún
iðarblaðsins Freys, var fæddur 28. febrúar
904 að Gröf í Svarfaðardal. Foreldrar hans
'oru Kristján Sigurjónsson, bóndi að
irautarhóli í Svarfaðardal, og kona
íans, Kristín Kristjánsdóttir.
Gísli stundaði nám meðal annars í
iændaskólanum á Hólum, íþrótta-
ikólanum Ollerup í Danmörku,
nternational People College í sama
andi og nam síðan við Landbohojskolen
Kaupmannahöfn og útskrif-
iðist þaðan sem cand. agronom. árið 1942
>g lauk sérnámi úr sama skóla árið 1942
ísli fór í námsferðir til flestra landa í Norð-
ír-Evrópu. Hann gegndi ýmsum störfum á lífs-
eiðinni og var til að mynda kennari, vegaverk-
Gísli Björgvin Kristjánsson
stjóri, starfsmaður Stéttarsambands bænda
og umsjónarmaður búnaðarþáttar Ríkis-
útvarpsins. Þá var hann ritstjóri Búnað-
arblaðsins Freys frá 1945 til 1974.
Gísli var áhugamaður um sam-
skipti við Grænland og annaðist
mörg verkefni í samskiptum við
Grænland og hafði til dæmis umsjón
með grænlenskum nemendum hér á
landi. Hann ritaði fjölda greina í
dönsk, sænsk og íslensk blöð og tíma-
rit. Gísli fékk silfurpening frá Norsk
Hydro og gullpening frá finnsku bún-
aðarsamtökunum og var heiðursfélagi í
Æðarræktarfélagi íslands. Hann lést á að-
fangadag jóla árið 1985.
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000