Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Side 2
18
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
Sport
DV
Enar Karl stökk
2,23 metra
Einar Karl Hjartarson, íslands-
methafi í hástökki úr ÍR, stökk 2,23
metra á móti í Idaho í Bandaríkjun-
um í gær og sigraði. Hann átti síð-
an góðar tilraunir við 2,27 metra.
Þetta er besti árangur Einars
Karls síðan á árinu 2001, en hann
stökk 2,18 metra á síðasta ári. Það
er því greinilegt að Einar Karl er
að ná sér á strik aftur, en íslands-
met hans innanhúss er 2,28 metrar
og 2,25 metrar utanhúss.
Magnús Aron Hallgrímsson
kastaði kringlunni 59,68 metra á
vetrarkastmóti Evrópu sem fram
fór á Ítalíu um helgina. -ósk
Björgvin og
Hrefna sigruðu
Björgvin Björgvinsson, skíða-
maður frá Dalvík, og Hrefna Dag-
bjartsdóttir, Skíðafélagi Akureyrar,
báru sigur úr býtum á bikarmóti
SKÍ sem fram fór í Hlíðarfjalli á
laugardaginn. Annar í karlaílokki
varð Steinn Sigurðsson úr Ár-
manni og Ingvar Steinarsson frá
Skíðafélagi Akureyrar varð þriðji.
Guðrún Jóna Arinbjarnardóttir úr
Víkingi varð önnur í kvennaflokki
og Harpa Dögg Kjartansdóttir úr
Breiðabliki varð þriðja. -ósk
Pétup vann
Bikanglímuna
Pétur Eyþórsson, glímukappi úr
UV, og Svana Hrönn Jóhannsdóttir
úr báru sigur úr býtum í Bik-
arglímunni sem fram fór í Haga-
skóla á laugardaginn.
Mikil forfóll voru í Bik-
arglímunni og mættu aðeins þrír
keppendur til leiks í karlaflokki.
Pétur fékk þrjá og hálfan vinning,
einum vinningi meira en Ólafur
Oddur Sigurðsson, HSK.
Pétur fetaði með sigrinum í fót-
spor fóður síns, Eyþór Péturssonar
sem vann Bikarglímuna árið 1982.
Aðrir bikarmeistarar urðu Elísa-
beth Patriarca, HSK (meyjar 14-16
ára), sem vann sinn aldursflokk,
Pétur Gunnarsson, HSÞ (sveinar
14-16 ára), Signý Eva Auðunsdóttir
HSK (telpur 11-13 ára), og Pálmi Ei-
ríkur Gíslason (piltar 11-13 ára).
Elísabeth hefur nú sigrað í Bik-
arglímu íslands fimm ár í röð, í
telpnaflokki 1999-2001 og meyja-
flokki 2002 og 2003. -ósk
Utan vallar
Forystumenn félaga í Simadeild-
inni í knattspymu eru famir, í enn
frekari mæli en áður, að kvarta yfir
heimtufrekju íslenskra knattspymu-
manna og segja að launakröfur þeirra
séu alls ekki takt við það erfiða
rekstrarumhverfi sem félögin búa
við.
Það hefur því gerst í æ fleiri tilfell-
um að liðin em farin að leita út fyrir
landsteinana að leikmönnum sem í
flestum en þó alls ekki öllum tilfellum
eru ódýrari en þeir íslensku. Það
kostar þó yfirleitt drjúgan skilding aö
fá til landsins leikmenn sem raun-
verulega hjálpa liði í Símadeildinni
og það getur reynst þrautin þyngri
fyrir félög, hverra sjóðir eru aö mestu
uppumir, að fjármagna komu slíkra
leikmanna til landsins.
Þeir forráðamenn, sem hafa þetta í
hyggju, skulu þó ekki örvænta því að
það eru margar leiðir til að mjólka
sömu kúna.
Það sem fyrst þarf að hafa í huga er
hvort leikmaðurinn á að baki dvöl
hjá einhveiju frægu liði úti i heimi.
Það skiptir litlu sem engu máli hvort
það var fyrir einu ári eða fimmtán -
leikmaðurinn á sér sögu. Þó er rétt að
geta þess að menn, með fortíð í fræg-
um félögum, eru oft á tíöum í ftjálsu
falli getulega séð þegar þeir eru fam-
ir að íhuga rækilega að koma til ís-
lands og spila.
Það fyrsta sem hægt er að gera er
að fá leikmanninn í heimsókn áöur
en gerður er við hann samningur og
reyna að heilla hann með fógru lands-
lagi, fjölbreyttri menningu eða hverju
því sem þurfa þykir hafandi í huga að
tilgangurinn helgar alltaf meðalið.
Varðandi fjármögnun kappans er
gott að byija á því að bjóða íslenskum
fjölmiðlum einkaviðtal við leikmann-
inn gegn „sanngjömu verði". Þetta
væri að vísu nýmæli hér á íslandi en
nýjum mönnum fylgja nýir siðir og
því ættu fjölmiðlar að stökkva á þetta
metnaðarfulla framtak.
í öðm lagi er félaginu í lófa lagt að
hækka aðgangseyri á völlinn um
helming þegar hinn frægi erlendi
leikmaður er byijaður að spila með
liðinu. „Frægir" leikmenn trekkja að
og því myndu skilningsrikir stuðn-
ingsmenn félagsins fúslega greiða
hærri upphæö til að beija leikmann-
—
Oskar Hrafn
Þorvaldsson
fþróttafréttamaöur
á DV-Sporti
inn augum.
t þriðja lagi væri hægt að selja inn
á blaðamannafundi eftir leiki hjá fé-
laginu þar sem fjölmiðlar fengju tæki-
færi til að tala við leikmanninn gegn
„sanngjamri greiðslu". Forráðamenn
félagsins verða að gera sér grein fyr-
ir að hvert gullkom sem fellur af vör-
um hetjunnar er söluvara fyrir fjöl-
miðlana og þvi eðlilegt að greitt sé
fyrir. Hugsanlega væri hægt að selja
hveija viðtalsmínútu með stjömunni
- alltaf þó á „sanngjörnu verði".
Treyjur, með nafni og númeri
stjömunnar, myndu rjúka út eins og
heitar lummur aukinheldur sem fólk
gæti leigt hann í kaffiboð og rætt við
hann um landsins gagn og nauðsynj-
ar - gegn „sanngjamri" greiðslu.
Forráðamenn felaga ættu því ekki
að bera nokkurn ugg í bijósti við að
fá dýran erlendan frægan leikmann
til liðsins. Leikmaðurinn gæti oröið
að gullgæs ef forystumenn félagana
em nógu hugmyndarikir, djarfir og
opnir fyrir nýjungum.
Múnudagurinn 3. mars 2003
Efni DV-
Sports í dag
Utan vallar, fréttir
Grótta/KR-Sávehof
Essodeild karla
Essodeild karla
Essodeild kvenna
Essodeild kvenna
1. deild kvenna + NBA
Intersportdeildin
Intersportdeildin
Intersportdeildin
©
0
©
©
©
©
Urslitaleikur enska
deildabikarsins
©
0/
0 Enska knattspyrnan
0 Enska knattspyrnan
© Deildabikar KSÍ
Deildabikar KSÍ
© Evrópuknattspyrnan
© íslandsmót f borðtennis
0 íslandsmót í hópfimleik.
Hestar
Badminton unglinga
Badminton unglinga
Fréttir
Guömundur sést hér í leik gegn Fylkismönnum á siöasta tímabiii en um helgina varö Ijóst aö hann spilar meö KR-
ingum á komandi leiktíö.
Deila KR og Guðmundar Benediktssonar á enda:
Náðu samkomulagj
- Guömundur geröi nýjan samning sem rennur út eftir komandi tímabil
Deila íslandsmeistara KR og fram-
herjans Guðmundar Benediktssonar,
sem staðið hefur frá því í byrjun des-
ember á síðasta ári, var leyst um
helgina.
Forsaga málsins var sú að forráða-
menn KR sögðu upp samningi sínum
við Guðmund í byrjun desember á
þeim forsendum að hann vfidi ekki
- keppm i hvcrju oroi
Bcinn sími: .............. 550 5880
Ljósmyndir: .............. 550 5845
Fax:...................... 550 5020
Netfang:............dvsport@dv.is
Fastir starfsmenn:
Henry Birgir Gunnarsson (henry@dv.is)
Jón Kristján Sigurðsson (jkssport@dv.is)
Óskar O. Jónsson (ooj.sport@dv.is)
Óskar Hrafh Þorvaldsson (oskar@dv.is)
Pjetur Sigurðsson (pjetur@dv.is)
breyta samningi sínum líkt og allir
aðrir leikmenn liðsins höfðu gert.
Síöan þá hefur Guðmundur æft upp á
eigin spýtur og málið hefur dinglað á
milli lögfræðinga beggja aðila.
Guðmundi var meinaður aðgangur
að æfingum KR fyrir skömmu og
héldu þá flestir að dvöl Guðmundar
hjá félaginu væri á enda runnin en
svo var ekki.
Um helgina náðist samkomulag
milli KR og Guðmundar þar sem
samið var um að Guðmundur mundi
spila með KR út komandi tímabil,
væntanlega á öðrum forsendum held-
ur en gamli samningurinn hans
hljóðaði upp á.
Báöir aðilar sáttir
Kristinn Kjærnested, stjórnarmað-
ur í KR, sagði í samtali við DV-Sport
um helgina að það ríkti mikil ánægja
innan KR að þessi mál væru í höfn.
„Það er gott að þetta er komið á
hreint. Báðir aðilar eru sáttir og
núna skapast sá vinnufriður sem fé-
lagið þarf til að undirbúa sig sem
best fyrir tímabilið," sagði Kristinn
og bætti við að honum fyndist Guð-
mundur Benediktsson komast mjög
vel frá þessu máli.
„Guðmundur hefur hagað sér mjög
fagmannlega í öllu ferlinu og gengur
uppréttur frá samningnum líkt og fé-
lagið,“ sagði Kristinn.
Menn vildu leysa þetta
Guðmundur Benediktsson sagði í
samtali við DV-Sport í gær að hann
væri mjög sáttur við þessa niður-
stöðu.
„Það er gott að þetta er búið og
þetta voru að minu mati eðlileg enda-
lok. Menn innan félagsins vildu leysa
þetta mál og fyrir það er ég þakklát-
ur. Ég fékk líka góðan stuðning frá
leikmönnum KR og fyrir hann ber að
þakka,“ sagði Guðmundur og sagðist
vera á réttri leið í endurhæfingu
sinni eftir hnéaðgerð.
„Ég vonast til að byrja að æfa með
liðinu fljótlega og verð kominn í
form þegar Símadeildin byrjar í
maí.“ -ósk