Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Blaðsíða 4
20 MÁNUDAGUR 3. MARS 2003 Sport ÍBV-Fram 20-24 0-1, 1-3, 4-4, 5-3, 7-11, (0-11), 10-11, 12-13, 12-17,16-19, 20-24. ÍBV: Mörk/viti (skot/viti): Davið Óskarsson 7/5 (12/6), Sigþór Friðriksson 3 (4), Sindri Ólafs- son 3 (4), Sigurður Ari Stefánsson 2 (2), Erling- ur Richardsson 2 (2), Sigurður Bragason 2 (8), Róbert Bognar 1 (5), Kári Kristjánsson (1), Sindri Haraldsson (1). Mörk úr hradaupphlaupum: 2 (Sigþór, Er- lingur). Vitanýting: Skoraö úr 5 af 6. Fiskud vitL’ Sigþór 2, Davíö 2, Siguröur Ari, Sindri Ólafsson. Varin skot/víti (skot á sig): Viktor Gigov 19/3 (43/6, hélt 11, 44%). Brottvisanir: 6 mínútur. Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og Valgeir Ómarsson (8). Gœói leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 80. Maöur leiksins: Viktor Gigov, ÍÐ Fram: Mörk/viti (skot/viti): Björgvin Björgvinsson 7/3 (12/5), Guðjón Drengsson 3 (8), Guölaugur Amarsson 2 (2), Haraldur Þorvarðarson 2 (4), Héðinn Gilsson 2 (4), Þorri Gunnarsson 2 (5), Hjálmar Vilhjálmsson 2 (6), Valdimar Þórsson 2 (7), Stefán B. Stefánsson 1 (2), Gunnar Jóns- son 1 (2). Mörk úr hraóaupphlaupum: 5 (Guðlaugur 2, Guðjón, Hjálmar, Björgvin). Fiskuó víti: Haraldur 3, Hjálmar, Þorri, Björgvin. Vitanýting: Skorað úr 3 af 6. Varin skot/víti (skot á sig): Sebastian Alex- andersson 15 (34/4, hélt 8, 43%, eitt víti yfir), Magnús Erlendsson 0 (1/1,0%). Brottvísanir: 10 mínútur. Framarar höfðu fyrir sigrinum í Vestmannaeyjum mættust heimamenn úr ÍBV og Fram á laug- ardaginn en leiknum hafði verið frestað £rá því kvöldið áður. Fram- arar eru í mikiUi baráttu um að komast í átta liða úrslit íslands- mótsins en á meðan eru Eyjamenn á lygnum sjó í neðri hluta deildarinn- ar. Framarar sigruðu í leiknum með tjórum mörkum og var það kannski fyrst og fremst hungrið í sigur sem færði þeim tvö stig að þessu sinni. Það er samt ekki hægt að segja það að Eyjamenn hafi ekki hungrað í sigur líka en gestimir þurftu meira á stigunum að halda. Framar- ar byrjuðu betur í leiknum en fyrstu fimmtán mínútumar var afar lítið skorað og leikmönnum beggja liða gekk mjög illa í sóknarleiknum. Eyjamenn fóm illa að ráði sínu um miðjan hálfleikinn þegar þeir voru tveimur leikmönnum fleiri en í stað þess að komast yfír þá skomðu Framarar tvö mörk og vom 9-11 yf- ir í hálfleik. Seinni hálfleikur var svo á svip- uðum nótum og sá fyrri, Framarar voru yfir en náðu aldrei að hrista Eyjamenn almennilega af sér. Eyja- menn fengu mörg tækifæri til þess að koma sér almennilega inn í leik- inn en fyrst og fremst þeirra eigin klaufaskapur kom í veg fyrir það. Sigur Framara var aldrei í hættu og lokatölur urðu 20-24. Viktor Gigov markvörður var langsterkastur Eyjamanna en Sig- þór Friðriksson og Sindri Ólafsson áttu einnig ágæta spretti. Hjá Fröm- umm bar mest á Björgvini Björg- vinssyni auk þess sem Sebastian Al- exandersson varði ágætlega. Heimir Ríkarðsson, þjálfari Framara, sagði eftir leikinn að stig- in tvö væm mjög mikilvæg fyrir sína menn. „Ég er mjög ánægður með sigur héma i Eyjum enda hafa Eyjamenn sýnt það að þeir geti staðið í hvaða liði sem er í deildinni. Það þarf að hafa reglulega fyrir þvi að sigra héma og ég er ánægður með að okk- ur tókst það. Varnarleikurinn var góður hjá okkur í fyrri hálfleik en sóknarleikurinn var allt of hægur. Varnarleikurinn var ágætur hjá Eyjamönnum en við vorum líka að fara illa með góð færi. Við eigum erfiða leiki fram undan þannig að viö eram ánægðir með öfl þau stig sem við fáum.“ -jgi Mosfellingar heillum horfnir r __ - sprungu á limminu eftir góöan fyrri hálfleik gegn IR Það þarf ansi mikið að gerast til að Mosfellingar eigi einhvem mögu- leika á að bjarga tímabilinu og kom- ast í úrslitakeppnina í lok deildar- keppninnar. Staðan þeirra er slæm, eftir leikinn á föstudag voru þeir í 10. sæti, heilum níu stigum á eftir FH. Núna um síðustu helgi dó bik- ardraumurinn þegar þeir töpuðu fyrir HK í úrslitum og nú, nokkrum dögum síðar, lítur út fyrir að allar vonir um að komast áfram í úrslita- keppnina hafi einnig dvínað. Sverrir besti maöurinn Gestimir í Austurbergi byrjuðu leikinn vel og mættu greinilega full- ir eldmóði til leiks. Gaman var að fylgjast með Sverri Bjömssyni og Atla Rúnari Steinþórssyni en vam- arleikur þess fyrrnefnda varð til þess að hann var langbesti maður vallarins fyrstu 30 mínútumar. Aðr- ir lykilmenn í liðinu vom ágætir, ef þjálfarinn Bjarki Sigurðsson er und- anskilinn, og átti það eftir að reyn- ast áhyggjuefni. ÍR-ingar, hins vegar, voru ekki að spila góðan handbolta fyrir utan 5 mínútna kafla þar sem þeim tókst að skora 5 mörk í röð og komast 2 yfir. Það þótti þvert á móti bera vott um styrk að Mosfeflingar rifu sig upp úr þeirri lægð og náðu sér í 2 marka forskot í hálfleik. Eftir að Atli Rúnar skoraði fyrsta mark seinni hálfleiksins var það nánast allt og smnt. Heimamenn komust yfir á 9. mínútu og Mosfell- ingar náðu sér aldrei á strik eftir það. Varnarleikur ÍR hrökk loksins i gang og markvarslan með og þeg- ar það gerist eiga fá lið sér viðreisn- ar von. Sóknir Aftureldingar runnu út í sandinn hvað eftir annað og heima- menn gengu á lagið og röðuðu inn mörkunum í sinum sóknarleik, hvort sem úr hraðaupphlaupum eða eftir að hafa leikið vömina sundur og saman. Mosfeflingar vom alger- lega heillum horfnir, þrátt fyrir greinilegan sigurvilja í upphafi, og reyndist verkefnið einfaldlega þeim um megn. Sverrir, Atli og allir hin- ir leikmenn Aftureldingar náðu sér ekki á strik í síðari hálfleik en það var gaman að sjá innkomu Bjama Fritzsonar í síðari hálfleik sem tók stöðu hins meidda Einars Hólm- geirssonar. Hann stóð sig með prýði. Ólafur, Sturla, Ragnar og Ingimundur áttu allir finan dag og óx Hreiðari markverði ásmegin í leiknum. Sigurviljanum aö þakka ■ „Það var einungis sigurviljanum að þakka að við náðum að snúa þessu okkur í hag í síðari háifleik,“ sagði Ólafur Sigurjónsson, leik- stjómandi ÍR, eftir leik. „Við ræddum málin á rólegu nót- unum í hálfleik og reyndum að gera okkur grein fyrir hversu illa við lékum í fyrri hálfleik. Og reyndar held ég að það hafi haft jákvæð áhrif á okkur að Júlli fékk rautt,“ segir hann og vísar til þess þegar þjálfari ÍR fékk rautt spjald fyrir sína þriðju brottvísun sem hann fékk í upphafi síðari hálfleiks. Hann hafði þá komið 3 sekúndum of snemma inn á þegar hans önnur 2ja mínútna brottvísun var að renna út. „Það hafði samþjöppunaráhrif á okkur og við náðum okkur á strik eftir þaö.“ -esá Snorri Steinn Guö|onsson hefur leikiö afar vel eftir að hann kom helm frá heimsmeistaramótinu og hér sest hann skora eitt 8 marka sinna gegn HK á föstudaginn. DV-mynd Sigurður Jökull ÍR-flftupeldíng 35-30 0-1, 3-5, 6-3, 6-10,12-10,12-14, (13-15), 13-16, 14-17, 17-17, 20-20, 25-21, 29-25, 33-27, 35-30. ÍR: Mörk/viti (skot/viti): Sturla Ásgeirsson 8/1 (13/3), Ólafur Sigurjónsson 7/3 (10/3), Bjarni Fritzson 4 (4), Ragnar Helgason 4 (5), Ingimundur Ingimundarson 4 (9), Fannar Þorbjömsson 3 (6), Guðlaugur Hauksson 3/2 (5/3), Kristinn Björgúlfsson 1 (1), Þorleifur Bjömsson 1 (1), Tryggvi Haraldsson (1), Davíð Ágústsson (1/1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 6 (Sturla 3, Ragnar 2, Fannar 1). Vitanýting: Skorað úr 6 af 10. Fiskuó víti: Fannar 5, Bjami 2, Sturla 1, Ingimundur 1, Tryggvi 1. Varin skot/víti (skot á sig): Hreiðar Guðmundsson 21 (49/4, hélt 12, 43%), Stefán Petersen 1 (3/2, hélt 0, 33%). Brottvisanir: 14 mínútur. Júlíus rautt. Dómarar (1-10): Jónas Elíasson og Ingvar Guðjónsson (5). Gœói leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 196. Maður leiksins: Ólafur Sigurjónsson, ÍR Afturelding: Mörk/viti (skot/viti): Valgarö Thoroddsen 6/1 (8/1), Jón Andri Finnsson 6/3 (9/3), Sverrir Björnsson 5 (9), Atli Rúnar Steinþórsson 4 (5), Daöi Hafþórsson 4 (11), Haukur Sigurvinsson 4/2 (7/2), Einar Hrafn Amarsson 1 (1), Hrafn Ingvarsson (1), Bjarki Sigurösson (5). Mörk úr hraöaupphlaupum: 3 (Valgarð 2, Haukur 1). Vitanýting: Skorað úr 6 af 6. Fiskuö vítL’ Valgarð 1, Daði 1, Hrafn 1, Jón Andri 1, Sverrir 1, Bjarki 1. Varin skot/viti (skot á sig): Reynir Þór Reynisson 17/3 (44/7, hélt 7, 39%), Ólafur Helgi Gíslason 2/1 (10/3, hélt 0, 20%). Brottvísanir: 10 mínútur. í Valun-HK 23-23 0-1, 2-3, 7-5,10-8,13-10, (14-11), 15-11,16-15, 19-16, 21-17, 22-19, 23-21, 23-23. Valur: Mörk/víti (skot/víti): Snorri Steinn Guö- jónsson 8/1 (13/2), Markús Máni Michaels- son 7/3 (12/3), Freyr Brynjarsson 6 (8), Ragnar Ægisson 1 (2), Þröstur Helgason 1 (6), Hjalti Pálmason (1), Hjalti Gylfason (2). Mörk úr hraöaupphlavpum: 9 (Freyr 5, Snorri Steinn 4). Vitanýting: Skoraö úr 4 af 5. Fiskuö viti: Freyr, Þröstur, Ragnar, Snorri Steinn, Bjarki Sigurðsson. Varin skot/viti (skot á sig): Roland Erad- ze 20/2 (43/3, hélt 7, 47%). Brottvísanir: 16 mínútur (Brendan Þor- valdsson útilokaður). Dómarar (1-10): Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson (8). Gœöi leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 200. Maöur Roland Eradze, Val HK: Mörk/viti (skot/víti): Alexander Amarson 6 (6), Jaliesky Garcia 6/1 (15/2), Ólafur Víð- ir Ólafsson 4 (11/1), Vilhelm Gauti Berg- sveinsson 2 (4), Elías Már Halldórsson 2 (4), Atli Þór Samúelsson 1 (1), Már Þórarinsson 1 (2), Samúel ívar Ámason 1 (3). Mörk úr hraöaupphlaupum: 6 (Alexander 2, Atli Þór, Vilhelm, EUas Már, Samúel). Vítanýting: Skoraö úr 1 af 3. Fiskuö viti: Alexander 2, Már. Varin skot/víti (skot á sig): Araar Freyr Reynisson 19 (41/3, hélt 11, 46%), Björgvin Gústavsson 0 (1/1, 0%, eitt víti yfir). Brottvisanir: 4 mínútur. Valsmenn klaufar - Alexander Arnarson tryggöi HK jafntefli fjórum sekúndum fyrir leikslok Valur og HK skfldu jöfn, 23-23, að Hlíðarenda á fóstudagskvöld í Essodeild karla í handknattleik Leikurinn var bráðfjömgur og skemmtilegur en heimamenn voru hálfgerðir klaufar að landa ekki sigri því þeir höfðu undirtökin nánast all- an timann. Það var jafnræði framan af leik en eftir tólf mínútur náðu heimamenn tveggja marka forskoti sem þeim hélst á út fyrri hálfleikinn og gott betur, höfðu þrjú mörk yfir þegar gengið var til búningsherbergja. Þeir héldu svo þessu fmmkvæði allan síðari háifleikinn en munurinn var oftast þetta tvö til þrjú mörk. Kópavogspiltar misstu aldrei vonina, venju fremur, og þeir áttu nóg bens- ín eftir i blálokin. Valsmenn komust tveimur mörkum yfir, 23-32, þegar ein mínúta og fimmtíu sekúndur vom eftir. Þeir misstu síðan mann út af og voru því einum færri á loka- sprettinum. HK minnkaði muninn í eitt mark en sigur Valsmanna virtist tryggður þegar Elías Már Halldórsson skaut yfir úr góðu færi. Alexander Amar- son, sá þekkti baráttuhundur, var ekki á því að hlaupa í vömina, held- ur beið færis og náði að trufla klaufa- lega Valsmenn og HK fékk boltann þegar sautján sekúndur lifðu leiks. Þrettán sekúndum siðar skoraði svo Alexander síðasta mark leiksins af harðfylgi inni á línunni og tryggði liði sínum annað stigið en Valsmenn gengu hnípnir af velli. Flottustu tilþrif markvaröar Hjá þeim var Roland Eradze virki- lega góður í markinu og er greini- lega búinn að jafna sig af meiðslun- um sem hafa hrjáð hann undanfarið. Tæpum þremur mínútum fyrir leik- hié sýndi hann flottustu tilþrif sem undirritaður hefúr nokkurn tímann séð hjá markmanni í þessari íþrótta- grein. Jaliesky Garcia tók þá víti og vippaði yfir Roland sem kastaði sér eins og köttur á einhvern ólýsanleg- an hátt (vonandi var einhver að taka upp) og sló knöttinn aftur fyrir. Ótrúleg markvarsla. Snorri Steinn Guðjónsson var geysilega öflugur þrátt íyrir stranga gæslu. Freyr Brynjarsson lék frábær- lega í fyrri hálfleik og Markús Máni átti góða spretti. Hjá HK var Arnar Freyr Reynis- son mjög góður í markinu og áður- nefndur Alexander var sterkur. Þetta HK-lið gefst aldrei upp. Árni Jakob Stefánsson, þjálfari þeirra, leyfir þeim það einfaldlega ekki og finnist honum eitthvað vanta upp á baráttu- þrek sinna manna heldur hann ein- faldlega yfir þeim eldmessu og það er eitthvað sem þeir vilja ekki heyra oftar en einu sinni i leik. -SMS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.