Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Blaðsíða 22
38 MÁNUDAGUR 3. MARS 2003 Sport___________________________________________________________________________x>v 3 Stóðu undir væntingum „Krakkamir stóðu sig vel á mót- inu og alveg undir væntingum. Þau vantar þónokkuð í að vera í sama standard og Englendingar eru í til að mynda. Það sem þessa krakkar vantar aðaliega er styrkur og þol. Ensku krakkamir eru til að mynda vanari því að spila á svona sterkum mótum og það skiiar sér að sjálf- sögðu hjá þeim,“ sagði Ása en segir þó að okkar krakkar séu ekki með minni hæfileika en hinir ensku en reynsluleysið hamli þeim talsvert. Vildu standa sig vel Ása segir að margt hafi glatt hana i þessari ferð. „Það sem ég var ánægðust meö var vilji krakkanna til þess að standa sig vel. Krakkamir sýndu í þessu móti hvað þau hafa mikinn metnað til þess að verða betri. Svo var rosalega gaman aö sjá hvað ísiensku stelpurnar stóöu sig vel á mótinu og hér má sjá þær meö verðlaunapeninga sína ásamt borgarstjóranum í Newtownabbey sem afhenti öll verðlaun á mótinu. Hérna sjást, frá vinstri: mótsstjórinn, Bjarki Stefánsson, Atli Jóhannesson, borgarstjórinn í Newtownabbey sem afhenti verðlaun á mótinu, Stefán Jónsson, Hólmsteinn Valdimarsson og landsliðsþjálfarinn Ása Pálsdóttir. íslenska u-17 ára liöiö í badminton tók þátt í alþjóðlegu móti á írlandi á dögunum: Ánægð með krakkana - segir Ása Pálsdóttir, landsliðsþjálfari og framkvæmdastjóri badmintonsambandsins Á dögunum fór íslenska u-17 ára liðið í badminton til Newtownabbey í írlandi til þess að taka þátt i al- þjóðlegu móti. Ásamt Islendingum komu þáttakendur frá Englandi, Skotlandi, Frakklandi, írlandi, Wales, Suður-Afríku og heimabæn- um Newtownabbey. Englendingar sterkastir íslenska liðið fékk mikla reynslu í þessari ferð og stóð sig meö mikl- um sóma. Þau lentu i 6. sæti af 8 lið- um og var það framfor frá því árinu áður en íslendingar senda árlega keppendur til leiks á þetta mót. Þaö voru aftur á móti Englendingar sem sigruðu að þessu sinni en þeirra lið bar höfuð og herðar yfir aðrar þjóð- ir að þessu sinni. Ása Pálsdóttir er öflug kona en ásamt því að vera þjálfari u-17 ára liðsins er hún framkvæmdastjóri badmintonsambandsins og formað- ur badmintondeildar ÍA. DV-Sport tók Ásu tali eftir komuna heim og við spurðum hana fyrst hvort lands- liðiö færi oft út á þetta mót? „Það er orðinn árlegur viðburður að undir 17 ára liðið okkar fari á þetta mót á írlandi. Ég man ekki nákvæmlega hvað er búið að fara oft en það er búið að fara þó nokkrum sinnum,“ sagði Ása og benti á að þar af leiðandi væru nokkrir af þessum krökkum búnir að fara á þetta mót áður. þjóðemiskenndin var rík hjá krökk- unum en þau höfðu mikinn metnað til þess að standa sig vel fyrir land- ið sitt. Þetta voru krakkar frá þrem félögum en þau spiluðu á mótinu sem ein heild og var virkilega gam- an að sjá samheldnina sem skapað- ist hjá þeim. Þau hvöttu öll hvert annað og allir voru tilbúnir að að- stoða næsta mann,“ sagði Ása og var greinilega stolt af krökkunum. Mikil gulrót Það er ekki á hverjum degi sem þessir krakkar fara erlendis og því veltir maður því fyrir sér hvaða þýðingu fór á slíkt mót hefur fyrir krakkana. „Það hefur gífurlega þýðingu fyr- ir þau. Þau sjá í svona ferðum að það em krakkar úti í heiminum sem eru betri en þau. Þau eru nátt- úrlega best héma heima þannig að þau hafa gott af því að sjá að það er fólk annars staðar sem stendur þeim framar. Slíkt gefur þeim vissa hugmynd um að það er hægt að verða mun betri,“ sagði Ása og hún bendir einnig á þessar ferðir séu mikil gulrót fyrir krakkana sem leggja mikið á sig. „Ef þau fá að fara í svona ferðir þá eykst áhuginn og fyrir vikið halda þau lengur áfram í íþróttinni. Ef ég til að mynda lít til baka á fer- ilinn minn þá eru það þessar ferðir sem standa upp úr. Þaö er ekki spuming að þetta heldur þeim við efnið," sagði Ása en eitt mesta áhyggjuefni forkólfa badmintonsam- bandsins er einmitt það mikla brott- fall sem verður í íþróttinni þegar iðkendumir komast á framhalds- skólaaldur. Mikiö brottfall „Það er mjög mikið um brottfall og það eru krakkamir sem em á þessum aldri sem eru að hætta. Við sjáum til að mynda að á íslandsmót- inu í ár eru um 80 hnokkar og 80 tátur en það eru 9 telpur og 9 dreng- ir sem taka þátt þannig að brottfall- ið er gífurlegt. Þannig að þessar ferðir eru helsta leiðin til þess að halda krökkunum áfram inni í íþróttinni en það þarf að gera betur og fara fleiri ferðir út. Stefna bad- mintonsambandsins er einmitt að fara oftar og fara einnig með fleiri keppendur,“ sagði Ása og möguleik- amir á því að framkvæma þessi tak- mörk urðu betri um jólin þegar bad- mintonsambandið geröi góðan styrktarsamning við Bakkavör. „Þessi samningur er mjög mikil- vægur og gerir mikið fyrir okkur. Þannig að við erum afskaplega þakklát fyrir þann stuðning sem fyrirtækið sýnir okkur,“ sagði Ása sem er bjartsýn á framtíð íslensks badmintonsfólks. - HBG Úrslit úr mótinu Hólmsteinn Valdimarsson og Stefán Jónsson-Sean O’Farrell og Andrew Simpson (Skotl.) . . 6/15, 15/17 Bjarki Stefánsson og Jórunn Oddsdóttir-Calum Menzies og Jaclyn Gilliland (Skotland) . 11/3, 11/2 Hólmsteinn Valdimarsson-Beniot Azzopard (Frakkl.) ... 5/15, 15/9, 4/15 Atli Jóhannesson og Bjarki Stefánsson-Geoffrey Joube og Lo Ying Ping (Frakkland) . 3/15, 4/15 Stefán Jónsson-Scott Bumside (Newtownabbey).......15/8, 15/7 Atli Jóhannesson og Bjarki Stefánsson-Watson Briggs og Alastair Hogg (Newt.) . 15/12, 15/9 Hólmsteinn Valdimarsson og Karítas Ólafsdóttir-Alastair Hogg og KeUy Mead (Newtown.) . 13/10, 7/11, 11/9 Julie Boyd (Skotland)-Snjólaug Jóhannesdóttir ......11/1, 11/0 Calum Menzies og Jaclyn Gilliland (Skotland)-Bjarki Stefánsson og Jórunn Oddsdóttir . . . 11/3, 11/2 Julie Delaune (Frakklandj-Karítas Ólafsdóttir..........11/9, 11/5 Charlotte Faure og Aurelie Constant (Frakkland)-Anna Guömundsdóttir og Jórunn Oddsdóttir...........11/3, 11/4 Matias Quere og Léa Paillony (Frakkland)-Stefán Jónsson og Snjólaug Jóhannesdóttir . . . 11/2, 11/2 Anna Guðmundsdóttir-Catherine Coyle (Newtown)......11/4, 11/7 Snjólaug Jóhannesdóttir og Jórunn Oddsdóttir-Kelly Mead og Emma Mason (Newtown) . . 2/11, 6/11 Hólmsteinn Valdimarsson og Karítas Ólafsdóttir-Alastair Hogg og Keily Mead (Newtown) . 13/10, 7/11, 11/9 -HBG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.