Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Blaðsíða 16
32
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
Sport
DV
Deildabikarinn í knattspyrnu
Uylkisma&urínn Steingrímur
• Jótiannesson reynir hér skot a&_
marki '/atsmanna í teik fiðámta' á
fóstudaginn. Hann haföi ekki .
heppnina með sér að þessu sinni
frekar en aðpr felagar hans i
teiknumi DV-mynd Hari
Fyrsti sigur Eyjamanna staöreynd:
Tveimup fænni
en unnu samt
0-1 Bjarni Rúnar Einarsson . . (60.)
ÍBV lenti í miklum hremmingum í
leik sínum við Víking á laugardag en
náði að knýja fram sigur, 1-0, þrátt
fyrir að hafa misst tvo menn af velli
með rautt spjald um miðbik leiksins.
Stórsókn Víkinga í seinni hálfleik bar
síðan engan árangur.
FVrri háifleikur var tíðindalaus að
mestu og engin opin færi litu dagsins
ljós. Baráttan var oft hörð en hvorugt
liöið náði afgerandi tökum á miðjunni
og því fór leikurinn þar fram að
mestu leyti. Eyjamenn misstu Hafþór
Rúnarsson af velli eftir að hann hafði
slegið til Daníels Haíliðasonar sem lá
á vellinum eftir harða tæklingu. Liðs-
munurinn kom ekki í ljós fyrr en í
seinni háifleik þegar Bjamólfur Lár-
usson fékk að líta sitt annað gula
spjald fyrir brot á 52. mínútu og aftur
var það Daníel sem lá í valnum.
Víkingar hertu þá mjög sóknar-
þungann en sváfu á verðinum þegar
Gunnar Heiðar Þorvaldsson komst
upp að endamörkum og sendi fyrir á
Bjarna Rúnar Einarsson sem skoraði
með skoti úr miðjum vítateig. Víking-
ar héldu uppi pressu áfram en gekk
ekkert að skapa sér opin marktæki-
færi utan tvö, hið fyrra var skalli
Sölva Ottesens yfir af stuttu færi og
skömmu síðar, eða á 72. mínútu, var
dæmd vítaspyma á ÍBV eftir brot á
Sölva. Stefán Arnarson tók vítaspyrn-
una en Birkir Kristinsson varði hana
með tilþrifum. Það sem eftir lifði leiks
tókst Víkingum ekki að brjóta vörn
ÍBV á bak aftur.
„Við byrjuðum ekki nógu vel og
það vantaði meiri keyrslu hjá liðinu.
Við komumst síðan betur inn í leik-
inn en leikurinn breyttist þegar þeir
misstu tvo menn af velli. Það vantaði
ssunt aðeins upp á að við næðum að
nýta okkur það. Eyjaliðið á heiður
skilinn fyrir baráttuna og Birkir var
frábær í markinu. Þetta var bara ekki
okkar dagur i dag - herslumuninn
vantaði," sagði Sigurður Jónsson,
þjálfari Víkings, í leikslok.
Eyjamenn geta verið ánægðir með
þennan sigur og sérstaklega hve vel
vamarleikurinn var útfærður en þar
voru menn mjög samstiga í öllum að-
gerðum. Páll Hjarðar, Hjalti Jónsson
og Atli Jóhannsson voru bestu menn
þeirra.
Hjá Víkingi börðust þeir Sölvi
Ottesen og Bjami Hall af miklum
krafti í seinni hálfleik en alla ógnun
vantaði í leik liðsins. -HRM
Komu fram hefndum
- Valsmenn lögöu Fylkismenn örugglega á föstudaginn
0-1 Sigurbjöm Hreiöarsson .....(64.)
0-2 Sigurður S. Þorsteinsson .... (75.)
Valur lagði Fylki 2-0 á fóstudaginn
og kom þannig fram hefndum fyrir tap-
ið í undanúrslitum Reykjavíkurmóts-
ins. Sigurinn var sanngjam eftir að
Valur hafði verið sterkari aðilinn í
seinni háifleik.
Það var jafnræði með liðunum í
fyrri hálfleik. Fátt markvert gerðist
fyrstu mínúturnar eða allt þar tfl að
Steingrimur Jóhannesson, náði hörku-
skoti í stöng Valsmarksins á 19. mín-
útu. Valsmenn sóttu í sig veðrið og
áttu nokkur góð færi fram að hálfleik,
sérstaklega Hálfdán Gíslason sem var í
þrígang nálægt því að skora. Það var
ekki fyrr en undir lok hálfleiksins að
það lifnaði aðeins yfir Fylkismönnum
og Sævar Þór Gíslason var óheppinn
að skora ekki þegar hann slapp einn í
gegn en lét Kristin Guðmundsson í
Valsmarkinu verja frá sér.
Valsmenn tóku vöidin í seinni hálf-
leik en Fylkismenn byrjuðu þó betur
og Amar Úifarsson var í tvígang nærri
því að koma þeim yfir. Sóknarþungi
Vals jókst eftir þvi sem á leið og á 64.
mínútu skoraði Sigurbjöm Hreiðars-
son af mikilli yfírvegun eftir að hafa
fengið góða sendingu frá Elvari Guð-
jónssyni. Fylkismenn hefðu getað jafn-
að strax í næstu sókn þegar Sævar Þór
misnotaði galopið færi.
Annars komust Fylkismenn lítið
áleiðis en buðu hættunni heim með fá-
skipaðri vöm sinni. Vaismenn nýttu
sér það 15 mínútum fyrir leikslok með
góðri skyndisókn sem endaði með
glæsilegu langskoti Sigurðar Sæbergs
Þorsteinssonar upp í blávinkilinn.
Valsliðið kom mjög vel út í þessum
leik eftir slæman skell gegn Víkingi í
næsta leik á undan. Vömin var góð
með Guðna Rúnar Helgason sem besta
mann og Kristinn Lárasson kom inn í
liðið í stöðu vinstri bakvarðar og leysti
þá stöðu mjög vel af hendi. Á miðjunni
var Sigurður Sæberg i aðalhlutverki
og vann mjög vel auk Sigurbjörns
Hreiðarssonar sem er þar allt i öllu.
„Við vorum mjög einbeittir og mjög
grimmir. Það hefur háð okkur svolítið
að við höfum verið að spila góðan fót-
bolta en vantað smá einbeitingu upp
við markið bæði hjá okkur og svo hjá
andstæðingunum. Seinni hálfleikur
var mjög góður og sá fyrri var í lagi
sem var mikilvægt því það var ekki
mikið sjálfstraust í mannskapnum eft-
ir tapið á móti Víkingi. Kristinn [Lár-
usson] hefur verið frá knattspymuiðk-
un í langan tíma og koma hans inn í
liðið hefur góð áhrif á mannskapinn.
Þetta er auðvitað mjög ungt lið og
hann gefur okkur ákveðna ró sem er
auðvitað bara af hinu góða,“ sagði Þor-
lákur Árnason, þjálfari Vals, í leikslok.
Fylkir átti sína spretti í þessum leik
en átti erfitt uppdráttar á miðjunni og
sóknarmenn þeirra, Steingrímur og
Sævar Þór, fengu úr litlu að moða en
voru jafnan hættulegir þegar þeir
fengu boltann. Valur Fannar Gíslason
og Amar Úlfarsson áttu fman leik í
vöminni auk Ólafs Inga Skúlasonar
sem lék sinn fyrsta leik eftir komuna
frá Arsenal. -HRM
B-riðill
Úrslit:
Fylkir-Valur . . . 0-2
Grindavík-FH . .4-1
Haukar-Þróttur . 2-8
Víkingur-ÍBV Staðan: .0-1
Þróttur 2 2 0 0 12-4 6
Grindavík 2 2 0 0 6-1 6
Valur 2 1 0 1 3-2 3
Vikingur 2 1 0 1 2-2 3
ÍBV 2 1 0 1 1-2 3
Fylkir 2 0 1 1 1-3 1
Haukar 2 0 1 1 3-9 1
FH 2 0 0 2 2-4 0
Markahæstu menn:
Sören Hermanson, Þrótti .......5
Hjálmar Þórarinsson, Þrótti ...3
Grétar Hjartarson, Grindavík .... 2
Páll Einarsson, Þrótti.........2
Næstu leikir:
ÍBV-Fylkir.........7. mars kl. 20.30
Valur-Haukar .... 7. mars, kl. 20.30
Þróttur-Grindavik ... 8. mars, kl. 16
FH-Víkingur........9. mars kl. 18.30
Þróttarar kjöldrógu Hauka, 8-2:
Getup ekki oröið verra
- sagöi Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Hauka
O-l Vignir Sverrisson.....(1.)
0-2 Hjálmar Þórarinsson . . . (13.)
0-3 Hjálmar Þórarinsson . . . (23.)
1-3 Róbert ÓU Skúlason .... (31.)
1-4 Sören Hermanson.......(32.)
1- 5 Hjálmar Þórarlnsson . . . (34.)
2- 5 Davíð Logi Gunnarsson . (39.)
2-6 Sören Hermanson.......(52.)
2-7 Páll Einarsson.......(74.)
2-8 Páll Einarsson.......(90.)
„Það getur eiginlega ekki orðið
verra - þetta er það lélegasta sem
liðiö hefur sýnt undir minni
stjórn," sagði Þorsteinn Halldórs-
son, þjálfari Hauka, pirraður eftir
leikinn gegn Þrótti á laugardaginn
þar sem hans menn voru kjöldregn-
ir, 3-2.
Leikmenn Hauka voru á hælun-
um nánast ailan leikinn og varnar-
menn þeirra voru auðveld bráð fyr-
ir eldfljóta sóknarmenn Þróttara.
Hinn sextán ára gamli Hjálmar Þór-
arinsson og Daninn Sören Herman-
son léku saman í framlínu Þróttara
og náðu vel saman. Þeir voru þó
ekki einir þvi að Guðfmnur Ómars-
son og HaÚdór Hilmisson áttu báð-
ir mjög góðan leik og mötuðu
Hjálmar og Sören oft með glæsileg-
um sendingum. Þessir ijórir leik-
menn vom bestu menn Þróttar í
leiknum, Halldór þó sýnu bestur,
en það var langt frá því að liðið
væri að spila einhvern glansleik.
Þróttarar mega ekki ofmetnast á
þessum úrslitum því mótstaðan var
engin. Haukaliðið, sem hafði náð
jafntefli gegn Fylki með mikilli bar-
áttu og öguðum vamarleik, var ein-
hvers staðar víðs fjarri. Allir leik-
menn Haukaliðsins áttu ákaflega
dapran dag og vilja öragglega
gleyma þessum leik sem fyrst.
„Það sem pirraði mig mest var
að öllum virtist standa á sama þó
þeir væm að tapa stórt - andleysið
var algjört," sagði Þorsteinn Hali-
dórsson.
Maður leiksins: Halldór Hilm-
isson, Þrótti. -ósk
Kaflaskiptur leikur
- Grindavík spilaöi vel fyrstu og síðustu 20 mínútur leiksins gegn FH og vann, 4-1
1-0 Alfreð Jóhannsson.....(5.)
1- 1 Guðmundur Sævarsson . . (34.)
2- 1 Óli Stefán Flóventsson . . (67.)
3- 1 Grétar Hjartarson....(77.)
4-1 Róbert Magnússon, sjálfsm. . (88.)
Grindavík bar sigurorð af FH, 4-1, í
B-riðli deildabikars KSt á laugardag-
inn.
Þeir hófu leikinn af miklum krafti
og fyrstu tuttugu mínútumar voru
þeir einráðir á vellinum. Leikmenn FH
virtist skorta sjálfstraust í byrjun og
Grindvíkingar gengu á lagið. Hvað eft-
ir annað skapaðist hætta bak við flata
vöm FH-inga en Grindvíkingar náðu
þó aðeins að skora eitt mark á þessum
góða kafla sínum þrátt fyrir aragrúa
færa.
Eftir þetta komust FH-ingar meira
inn í leikinn, fengu sjálfstraust og fóm
að láta boltann ganga manna á milli.
Þeir jöfnuðu á 34. mínútu eftir fallega
sókn og vom betri aðilinn það sem eft-
ir lifði hálfleiks.
í byijun seinni hálfleiks var það
sama uppi á teningnum. FH-liðið var
sterkari aðilinn en Grindvíkingar
náðu sér ekki á strik. Leikmenn liðsins
voru að pirra sig yfir öll sköpuðum
hlutum og ekkert virtist benda til þess
að þeir myndu ná að skora. Þeir gyrtu
sig þó i brók um miðjan hálfleikinn og
skoruðu þrjú mörk án þess að FH-ing-
ar næðu að svara fyrir sig.
„Þetta var kaflaskiptur leikur eins
og leikimir á þessum árstíma vilja oft
verða. Ég er ánægður með margt í okk-
ar leik og mér finnst vera mun betra
rennsli á liðinu en í fyrra. Við höfum
sloppið við meiðsli í vetur og það hef-
ur sitt að segja," sagði Bjami Jóhanns-
son, þjálfari Grindavíkur, eftir leikinn.
Sinisa Kekic spilaði eins og kóngur
i vöminni hjá Grindavík og var að öðr-
um ólöstuðum besti maður vallarins.
Alfreð Jóhannsson var einnig sprækur
meðan hans naut við sem og Grétar
Hjartarson en hann mætti þó eyða
minni orku í óþarfa nöldur.
Ásgeir Ásgeirsson var bestur FH-
inga, sívinnandi og grimmur. Emil
Hallfreðsson var einnig ágætur í fyrri
hálfleik en hvarf gjörsamlega i þeim
síðari. Lykilmaður í FH-liðinu er samt
sem áður Heimir Guðjónsson. Hann er
ekki kominn í sitt besta form en það er
eins gott fyrir liðið að hann verði kom-
inn í það þegar Simadeildin hefst.
Hann er hjartað og sálin í liðinu, rífur
menn áfram og kallar alltaf á boltann.
Það háði hins vegar FH-liðinu í þess-
um leik að það var alltaf gefið á hann
þegar hann kallaði, hversu aðþrengdur
sem hann var og eyðilagði það margar
efnilegar sóknir hjá liðinu.
„Þetta var mun skárra en í síðustu
leikjum. Við vorum ekki með sjálfs-
traust í byrjun en það óx eftir þvi sem
á leikinn leið. Við erum á uppleið og
verðum komnir á fullt þegar deildin
byrjar - ég lofa því,“ sagði Heimir eft-
ir leikinn.
Maður leiksins: Sinisa Kekic,
Grindavík -ósk