Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Síða 13
+
28
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
29 »•
Sport
Markvörðurinn Jersey Dudek svaraði gagnrýninni fyrr í vetur á viðeigandi hátt:
l’austshs verður
Mörk frá Steven Gerrard og
Michael Owen færöu Liverpool
deildabikarinn í sjöunda skipti
frá upphafi þegar liöiö lagöi
erkifjendurna i Manchester
United í mögnuöum úrslitaleik
á Þúsaldarvellinum í Cardiff í
gær. Maður leiksins var þó án
efa markvörður Liverpool,
Jersey Dudek, en hann bætti
heldur betur fyrir mistök sín í
leik gegn United fyrr í vetur,
þegar hann færði Diego Forlan
tvö mörk á silfurfati. En
Dudek, sem átti erfitt uppdrátt-
ar í upphafi leiktíðarinnar og
var settur út úr Liverpool-liö-
inu í kjölfariö á þeim leik,
sýndi og sannaði að fall er far-
arheill. Vegna meiðsla Chris
Kirkland var Dudek settur að
nýju í liðið fyrir fáeinum vik-
um og síðan þá hefur piltur
staðið sig frábærlega. Til að
þakka Gerard Houllier knatt-
spymustjóra endanlega fyrir
traustið kom hann sínum
mönnum hvað eftir annað til
bjargar í siðari hálfleik með
stórbrotinni markvörslu og var
að öðrum ólöstuðum maðurinn
á bak við sigur Liverpool.
Tíðindalítið framan af
Gerrard kom Liverpool yfir á
38. mínútu þegar fast skot hans
af tæplega 30 metra færi hafði
viðkomu í David Beckham og
af honum fór boltinn í sveig yf-
ir Fabien Barthez sem þrátt fýr-
ir hetjulega tilburöi náði ekki
til hans. Fram að þessu hafði
leikurinn verið tíðindalítill og
það eina verulega markverða
sem gerst hafði var lúmskt skot
frá Ruud Van Nistelroy sem fór
naumlega fram hjá stönginni.
Leikmenn United stjómuðu
leiknum en leikmenn Liverpool
beittu hefðbundnum leikstU og
vörðust fimiega.
En markið hleypti nýju blóði
í leikinn og aðeins örfáum mín-
útum síðar hefði United átt að
vera búið að jafna. Þá varði
Dudek skot frá Juan Sebastian
Veron en frákastið féll fyrir
fætur Paul Scholes. Hann skaut
fram hjá Dudek en þá var
mættur á marklínuna Stephane
Hencoz og náði hann að hindra
mark á einhvem ótrúlegan
hátt.
En þetta var aðeins for-
smekkurinn af því sem koma
skyldi í seinni hálfleik. Leik-
menn United freistuðu þess að
jafna metin og ef ekki hefði ver-
ið fyrir Dudek þá hefðu bæði
Scholes og Nistelroy sennilega
náð að skora sitt markið hvor.
Barthez minnti þó rækilega á
sig um miðjan hálfleikinn þeg-
ar Steven Gerrard komst einn í
gegn eftir góðan undirbúning
Milan Baros sem hafði skömmu
áöur komið inn á sem varamað-
ur.
Ferguson tók áhættu
Þegar um tuttugu mínútur
voru til leiksloka vissi Alex
Ferguson, framkvæmdastjóri
Manchester United, að tíminn
væri orðinn knappur. Hann
fómaði vamarmanninum Wes
Brown fyrir Norðmanninn Ole
Gunnar Solskjær og setti Ryan
Giggs í vinstri bakvörð.
En með stærstan hluta
mótherja sinna á sínum vallar-
helmingi hafa leikmenn Liver-
pool í gegnum tíðina sýnt fram
á að það er þá sem þeir em
hættulegastir. Þegar fjórax
mínútur voru til leiksloka urðu
Michael Silvestre á slæm mis-
tök á miðjum vellinum. Diet-
mar Hamman vann af honum
knöttinn, renndi honum til
Micheal Owen sem komst einn
í gegn. Hann gerði engin mis-
tök og renndi knettinum auð-
veldlega fram hjá Barthez í
markinu.
Manchester United játaði sig
sigrað og var Vladimir Smicer
nálægt þvi að bæta við þriðja
markinu þegar komið var fram
yflr venjulegan leiktíma en Rio
Ferdinand bjargaði á marklínu.
Dudek var hetjan
Houllier viðurkenndi eftir
leikinn að með sigrinum hefði
þungri pressu á sér verið aflétt.
„Með sigrinum höfum við
tryggt Evrópusætið og vonandi
getum við verið afslappaðri í
úrvalsdeildinni vegna þess.
Þetta er því mikill léttir,“ sagði
Houllier.
„Að spila úrslitaleik gegn
Manchester United fyrir fram-
an yfir 70 þúsund áhorfendur
þarfnaðist aga og andlegs
styrks. Við bjuggum yfir því i
dag og uppskárum eftir því.
Gleymið ekki að leikmenn
United fengu tveimur dögum
lengri hvíld en við. En ég tek
ekkert frá United. Þeir eru með
frábært lið og ég tek fyllilega
undir þær fullyröingar að Jers-
ey Dudek hafi verið maður
leiksins. Hann var hetjan okk-
ar,“ sagði Hollier.
Liverpool ................2
Manchester Utd . . 0
Mörk Liverpool: Steven Gerrard
(39.), Michael Owen (86.).
Gul spjöld: Stephane Henchoz,
Liverpool (13.).
Liö Liverpool: Jerzy Dudek, Jamie
Carragher, Stephane Henchoz, Sami
Hyypia, John Ame Riise, Steven
Gerrard, Dietmar Hamann, Danny
Murphy, E1 Hadji Diouf (90. Igor Bis-
can), Emile Heskey (61. Milan Baros
(89. Vladimir Smicer)), Michael
Owen.
Liö Manchester United: Fabien
Barthez; Gary Neville, Wes Brown
(74. Ole Gunnar Solskjær), Rio
Ferdinand, Mikael Silvestre, David
Beckham, Ryan Giggs, Roy Keane,
Paul Scholes, Juan Sebastian Veron,
Ruud van Nistelrooy.
Sport
Micheai Owen viröist kunna vel viö sig á Þúsaldarvellinum í Cardiff en hann skoraöi bæöi mörk Liverpool þegar liöiö sigraði Arsenal í
úrslitaleik FA-bikarsins áriö 2001 á sama velli. Hér sést hann fagna marki sínu í gær. DV-mynd Reuters
Punktar um
deildabikarinn
Leióin sem liöin fóru tii að komast í
sjálfan úrslitaleikinn var áþekk.
Liverpool byrjaði á að vinna South-
ampton í þriðju umferð 3-0 en þá
vann Manchester United topplið 1.
deildar, Leicester, með sömu marka-
tölu. í næstu umferð þurfti Liverpool
vítaspyrnukeppni til að yfirstíga Her-
mann Hreiðarsson og félaga i Ipswich
á meðan Manchester United vann 2-0
sigur á Bumley.
í 8-liöa úrslitum vann Liverpool lið
Aston Villa 4-3 í eflirminnilegum
leik en Manchester sigraði Chelsea
með minnsta mun. 1 undanúrslitum
fékk Liverpool harða mótspymu frá
Sheffield United og tapaði meðal ann-
ars fyrri leiknum 2-1. En á Anfield
skoraði Liverpooi í framlengingu og
tryggöi þannig farseðilinn til Cardiff.
United mættu Blackbum og gerði 1-1
jafntefli í fyrri leiknum á heimavelli.
Útileikinn vann United síðan sann-
færandi, 1-3.
Fyrir leikinn i gœr höfðu Liverpool
og Manchester United mæst þrisvar
sinnum í deildabikamum. Árið 1983
áttust liðin við í sjálfum úrslitaleikn-
um og haíði Liverpool þá betur, 2-1,
eftir framlengdan leik. Áriö 1986 átt-
ust liðin viö að nýju og sigraði Liver-
pool þá aftur með sömu markatölu.
Áriö 1991 kom United fram hefhdum
með öraggum 3-1 sigri.
Liverpool og Manchester United
voru að leika til úrslita í enskri bik-
arkeppni í fjórða sinn um helgina.
United vann FA-bikarinn árið 1977
eftir 2-1 sigur á Liverpool. Eins og áð-
ur segir mættust liðin árið 1983 I úr-
slitum deildabikarsins og varð
United þá að lúta I lægra haldi. Árið
1996 áttust liðin við öðra sinni í úr-
slitaleik FA-bikarsins og vann United
þá aftur, 1-0.
Þakinu yfir Árþúsundaleikvangin-
um var lokað meðan leikurinn í gær
stóð yfir sökum rigningar. Leikmenn
Liverpool virðast kunna vel við sig
innanhúss því þegar þessi sömu lið
áttust við i leiknum um Góðgeröar-
skjöldinn árið 2001 hafði Liverpool
einnig betur, 2-1. Það var í fyrsta
skipti sem stórleikur í Bretlandi var
leikinn innanhúss.
Meö sigrinum um helgina tryggði
Liverpool sér deildabikarinn í sjö-
unda skipti. Ekkert lið hefur unnið
bikarinn í jafnmörg skipti en næst
kemur Aston Villa, sem hefur unnið
bikarinn fimm sinnum. Þess má geta
að Manchester United hefur aðeins
unnið deildabikarinn einu sinni.
Liverpool hefur einnig tekið þátt í
flestum úrslitaleikjum deildabikars-
ins, eða í alls níu skipti.
Deildabikarinn fór af stað leiktíðina
1960-1961. Það var þáverandi ritari
enska knattspyrnusambandsins, Al-
an Hardaker, sem átti hugmyndina
að keppninni. Úrslitaleikurinn í gær
var sá 42. í röðinni. -vig
Leikmenn Liverpool voru ánægðir með sigurinn:
Happaleikvangur
' '-'W fl
Hér sjást leikmenn Liverpool elta Steven Gerrard, skömmu eftir aö hann haföi skoraö fyrra mark Liverpool
meö glæsilegu skoti af um 30 metra færi. DV-mynd Reuters
Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Manchester United:
Dudek var ótrúlegur í markinu
„Það sem gerði gæfumuninn hjá þeim í síðari
háífleik var Dudek í markinu. Hann vann leikinn
fyrir Liverpool," sagði Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóri Manchester United, að úrslitaleikn-
um loknum. Þetta eru orð að sönnu því Jersey
Dudek varði eins og berserkur allan leikixm og
fundu leikmenn United enga leið fram hjá honum.
Ferguson var ekki ánægður með leik sinna manna.
„Liverpool spilaði alveg eins og við var að búast
en við vorum ekki nægilega fljótir að byggja upp
okkar hefðbundna spil. Eftir að við lentum undir
reyndum við enn frekar en án árangurs og því fór
sem fór,“ sagði Ferguson. Hann segir að United
muni nú einbeita sér að deildarkeppninni og meist-
aradeildinni. „Leikmennimir eru vissulega
vonsviknir því viö ætlum okkur að vinna titil í vet-
ur. En þá verðum við bara að gera það á hinum víg-
stöðvunum okkar,“ sagði Ferguson. -vig
Michael Owen var hæstaánægður með að
hafa nýtt sitt eina alvöru marktækifæri í leikn-
um. „Þetta vxir í eina skiptið sem ég komst einn
í gegn og sem betur fer tókst mér að koma
knettinum fram hjá Barthez. Sem framheiji
verður þú alltaf að vera á tánum fram til síð-
ustu mínútu. Þetta var eins á móti Arsenal fyr-
ir tveimur árum. Þá fékk ég tvö góð færi og
náði að skora í bæði skiptin. En þaö er frábært
að hafa unnið titilinn," sagði Owen og játaði að
honum líkaði vel að spila á Þúsaldarvellinum.
„Sumir leikvangar eru sérstakir og þetta er
okkar happavöllur," sagði Owen.
Houllier hughreysti Dudek
Maður leiksins í gær var án efa Jersey
Dudek, markvörður Liverpool. Hann sagði að
Houllier hefði fyllt hann sjálfstrausti fyrir leik-
inn. „Hann sagði að ég yrði hetja leiksins og að
hann hefði fulla trú á mér. Ég var mjög ánægð-
ur að heyra þessi orð frá stjóranum sjálfum og
ég var ákveðinn í að bregðast honum ekki,“
sagði Dudek sem var mjög ánægður með vik-
una í heild.
„Ég er mjög ánægður með leikinn. Liðið
spilaði vel og ég tel að sigurinn hafi verið verð-
skuldaður. Á fimmtudaginn slógum við Aux-
erre út úr Evrópukeppninni og nú þessi bikar.
Lífið gerist ekki öllu betra,“ sagði pólski mark-
vörðurinn.
Frábær leikur
Danny Murphy átti góðan leik á miðjunni
hjá Liverpool og hrósaði hann leikmönnum
Manchester United fyrir að gefast ekki upp.
„Dagar eins og þessi verða ekki oft að veru-
leika fyrir stuðningsmenn liösins. Þeir fengu
frábæra skemmtun og leikmenn United gerðu
allt sem þeir gátu til að jafna metin. Sem bet-
ur fer fyrir okkur tókst þeim það ekki,“ sagði
Murphy.
Hinn markaskorarinn, Steven Gerrard,
sagði að mark sitt hafði róað leik liðsins niður
og það hefði verið það sem þurfti eftir að hafa
haft taugar þandar til hins ýtrasta fyrstu mín-
úturnar. Um markið sagði Gerrard ekki skipta
máli þótt hann hefði farið í Beckham. „Við
munum aldrei vita hvort hann hefði farið inn
hefði ekki verið fyrir snertinguna. En hverjum
er ekki sama? Boltinn fór inn fyrir línuna og
það er það sem skiptir máli,“ sagði Gerrard.
-vig
Leikmenn Manchester United voru niöurlútir í leikslok. DV-mynd Reuters
+