Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003 31 DV Sport Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu á laugardag og sunnudag: - Arsenal vann öruggan sigur á Charlton í gær og jók forystu sína á toppi deildarinnar í átta stig Arsenal náði átta stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með því að leggja Charlton að velli, 2-0, á Highbury. Sigurinn var mjög ör- uggur og hélt Arsenal uppi stans- lausri skothríð að marki Charlton. Francis Jeffers og Robert Pires skoruðu mörk Arsenal í fyrri hálf- leik og var seinni hálfleikurinn nán- ast formsatriði gegn Charlton sem hafði unnið fimm leiki í röð á und- an. Framherjinn frábæri Thierry Henry sagði eftir leikinn að stigin þrjú væru mikilvægust. „Það skiptir ekki alltaf öllu máli að vinna með fjórum eða fimm mörkum - að fá þrjú stig er mikil- vægast. Við viljum vinna alla leiki sem við spilum, hver sem andstæð- ingurinn er. Charlton spilar alltaf vel á Highbury og því var þetta mjög mikilvægur sigur.“ Alan Curbishley, knattspyrnu- stjóri Charlton, viðurkenndi eftir leikinn að liðið hefði mætt oíjörlum sínum. „Við getum ekki borið okkur saman við Arsenal. Þeir eru með stórkostlegt lið sem hefur áralanga hefð fram yflr okkur,“ sagði Curbis- hley eftir leikinn og bætti við að það væri erfltt fyrir hann að vera fúll þrátt fyrir tap þvi að frammi- staða liðsins í vetur væri búin að vera stórkostleg - raunar miklu betri heldur en hægt var að búast við. Dunn aftur hetjan Það var hinn endurfæddi David Dunn sem skoraði eina mark leiks- ins þegar Blackburn sigraði Manchester City um helgina. Dunn, sem fyrr í vetur var harðlega gagn- rýndur fyrir frammistöðu sina af sjálfum framkvæmdastjóranum, Graeme Souness og var í kjölfarið tekinn úr liðinu og settur á sölu- lista, hefur nú skorað tvö gríðarlega mikilvæg mörk í síðustu tveimur leikjum fyrir Blackbum og virðist hafa endurheimt traust fram- kvæmdastjórans að nýju. Það var samt sem áður Robbie Fowler sem var blórabögull leiksins, en hann klúðraði hverju dauðafærinu á fæt- ur öðru og hefur hann ekki enn skorað síðan hann gekk til liðs við Manchester City. Souness var hæstánægður með frammistöðu Dunn og segir að hann hleypti nýju blóði í lið sitt. „Mér fannst hann standa sig frábærlega fyrstu tuttugu mínútur leiksins en ég held að allir hafi séð í síðari hálf- leik að hann er ekki tilbúinn í heil- an leik,“ sagði Souness. Kollegi hans hjá City, Kevin Keegan, tók upp hanskann fyrir hinn mislukkaða Fowler. „Mér fannst hann frábær í dag. Hann er á hraðri leið í sitt besta form og það verður ekki komist hjá því að hann skori fljótlega. Hann spilar betur og betur með hverjum leik og þetta er aðeins spuming um að brjóta ís- inn,“ sagði Keegan. Sunderland kemst nær 1. deild Ófarir Sunderland ætla engan enda að taka og eftir tap gegn Ful- ham um helgina er liðið nú komið hálfa leið niður í fyrstu deild. Nú þegar níu leikir eru eftir af deildar- keppninni er Sunderland sjö stigum á eftir næstneðsta liði deildarinnar og miðað við spilamennsku liðsins á tímabilinu verður það að teljast kraftaverk nái liðið að halda sér uppi. Sunderland var reyndar furðu nálægt stigi því það var ekki fyrr en sex mínútum fyrir leikslok að Louis Saha skoraði sigurmark leiksins. „Nú skiptir öllu að gleyma því sem á undan er gengið og byrja að hugsa um leikina níu sem við eig- um eftir. Við spiluðum vel í dag og verðskulduðum meira úr leiknum. Ef við sýnum sömu spilamennsku í þessum síðustu leikjum hef ég trú á að við komum okkur upp töfluna," sagði Wilkinson bjartsýnin uppmál- uð að leik loknum. Ferdinand minnti á sig Nýjasti liðsmaður West Ham, Les Ferdinand, var sínum gömlu félög- um í Tottenham örlagavaldur um helgina, en hann skoraði fyrsta markið í 2-0 sigri West Ham. Ferdinand, sem skoraði 33 mörk í 118 leikjum fyrir Tottenham áður en hann var seldur í kjölfar komu Robbie Keane, meiddist strax á 13. mínútu leiksins og er jafnvel talinn hafa kinnbeinsbrotnað. Hann neit- aði að yfirgefa völlinn og Glenn Roeder sér væntalega ekki eftir því að hafa leyft honum að halda áfram því aðeins 18 mínútum seinna hafði hann opnað markareikning sinn hjá félaginu. Það var Michael Carrick sem bætti við öðru marki áður en yfir lauk og þar við sat. David James, markvörður West Ham, hrósaði Ferdinand í hástert eftir leikinn og segir hann vera lyk- ilinn að velgengni sinna manna í undanfornum leikjum. „Hann hefur komið með þessa sigurlöngun sem okkur hefur vantað allt tímabilið. Og í dag spiluðum við frábærlega, okkar besti leikur á tímabilinu og ég hafði ekkert að gera allar 90 min- útumar," sagði James. Hoodle sparaði ekki fúkyrðin á sína menn og var hann öskuvondur í leikslok. „Við spiluðum illa. Send- ingar okkar voru skelfilegar, við sýndum enga löngun til að sigra og við áttum ekkert skilið út úr þess- um leik.“ -ósk/vig OKKAR MENN Eióur Smári Guöjohnsen spilaði ailan leikinn með Chelsea sem tapaði, 2—1, fyr- ir Newcastle á útivelli i ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Lárus Orri Sigurósson spil- aði allan leikinn fyrir West Brom sem tapaði, 1-0, fyrir Southampton í ensku úrvals- deildinni á laugardaginn. í ensku 1. deildinni á laugardaginn. Bjarni Guójónsson spilaði einnig allan leikinn fyrir Stoke. Pétur Marteinsson var ekki i leik- mannahópi Stoke í leiknum. leiknum með skalla á 13. mínútu og fékk einnig að líta gula spjaldið. ívar Ingimarsson lék allan leikinn fyr- ir Brighton sem tapaði fyrir Gillingham, 3-0, á útivelli 1 ensku 1. deildinni á laug- ardaginn. Þórður Guöjónsson var í byijunarliði Bochum sem tapaði fyrir Hannover, 2-1, á heimavelli í þýsku 1. deildinni á íaug- ardaginn. Þórður fór af velli á 74. min- útu. Brynjar Björn Gunnarsson spilaði all- an leikinn fyrir Stoke sem tapaði fyrir Bunrley, 1-0, á Britannia-leikvanginum Hermann Hreiðars- son var ekki með Ipswich gegn Norwich í ensku 1. deildinni í gær þar sem hann tók út leik- bann. Hei&ar Helguson. “röur fyrir Watford sem gerði jafn- son- tefli, 1-1, gegn Nottingham Forest í ensku 1. deildinni á laugardag- inn. Heiðar skoraði eina mark Watford í Rúnar Kristinsson spilaði allan leikinn fyrir Lokeren sem vann stór- sigur á Mechelen, 5-0, í belgísku 1. deildinni í gær. Rúnar skoraði fyrsta mark liðsins. Helgi Valur Daní- elsson lék allan leik- inn fyrir Peter- borough sem vann góðan útisigur á Crewe, 1-0, í ensku 2. deildinni á laugar- __________ daginn. ___________________ „ a c.éL.ee— Amar Grétarsson spilaðiall- Guöjons- Eyjólfur sverrisson Arnar Gretarsson- leikinn fyrir Lokeren og var ekki í leikmannahópi Hert- skoraði tvö mörk. hu Berlin gegn Hamburger í þýsku 1. deildinni. Marel Baldvinsson spilaði allan leik- inn fyrir Lokeren. -ósk Arnar Þór Viöarsson spilaöi ailan leikinn fyrir Lokeren. Brasilíumaöurinn Juninho var fljótur að minna á sig hjá Middlesbrough um helgina. Hann spilaði sinn fyrsta leik með liðinu síðan hann kom frá Atletico Ma- drid fyrir tímabilið og skoraði tæpum hálftíma eftir að hann kom inn á sem varamaður. Juninho meiddist illa á hné á undirbún- ingstímabilinu og Steve McClaren, knattspymustjóri Middlesbrough, var ánægður með að sjá litla Bras- Uíumanninn i liði sínu. „Hann hefur góð áhrif á leik- menn og gefur okkur miklu fleiri möguleika í sókninni. Það er gott að fá hann tU baka því hann styrkir liðið mikið." -ósk flimmy F. Hasselbaink Jimmy Floyd Hasselbaink, framherji Chelsea, komst á blað um helgina en það kætti þó ekki stuðningsmenn Chelsea eins og venjulega. Þessi mikli markahrók- ur vUltist inn i vítateig Chelsea gegn Newcastle og var ekki lengi að skaUa boltann glæsUega í eigið mark. Markið kom Newcastle á bragðið og fór svo að lokum að Chelsea tapaði leiknum og þrem- ur dýrmætum stigum í baráttunni um sæti í meistaradeUdinni á næsta tímabUi. Það verður senni- lega einhver bið á því að Caludio Ranieri, knattspymustjóri Chel- sea, biöji Hasselbaink um að fara tU baka þegar Chelsea fær hom á sig og dekka - hann reynir að skora í öU þau mörk sem hann sér. -ósk Mánudagur 3. mars Aston Villa - Birmingham Laugardagur 15. mars Aston Villa - Man. United Blackburn - Arsenal Charlton - Newcastle Everton - West Ham Fulham - Southampton Leeds - Middlesbrough Sunderland - Bolton Tottenham - Liverpool Sunnudagur 16. mars Man. City - Birmingham West Brom - Chelsea Laugardagur 22. mars Birmingham - West Brom Chelsea - Man. City Man. Utd - Fulham Middlesbrough - Charlton Newcastle - Blackbum Southampton - Aston Villa West Ham - Sunderland

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.