Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Blaðsíða 12
12 Útlönd FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 DV Donald Rumsfeld Ósveigjanlegur og haröorður. Saddam Hussein fær aldrei að fara úr landi Donald Rumsfeld, landvarna- ráöherra Bandaríkjanna, hafnaði í gær öllum tilraunum annarra landa til að hafa milligöngu um endalok stríðsins í írak með því að leyfa Saddam Hussein forseta að yflrgefa landið. „Það eru engar likur á að samningur verði gerður. Það er alveg sama hver stingur upp á því,“ sagði Rumsfeld á fundi með fréttamönnum í Pentagon. UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Fiskislóð 73, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Agens ehf., gerðarbeiðendur Bún- aðarbanki íslands hf. og Tollstjóra- embættið, þriðjudaginn 8. apríl 2003 kl. 10.00.______________________ Laufengi 15,50% ehl. í 0204,3ja herb. íbúð á 2. hæð t.h. og geymsla merkt 01112 m.m., Reykjavík, þingl. eig. Bjarni Bergmann Vilhjálmsson, gerð- arbeiðendur Laufengi 15, húsfélag og Tal hf., þriðjudaginn 8. apríl 2003 kl. 14.30,__________________________ Laufengi 180, 0101, 5 herb. íbúð á tveimur hæðum, 115,7 fm m.m., Reykjavík, þingl. eig. Rannveig Páls- dóttir og Juan Carlos. Pardo Pardo, gerðarbeiðendur Ingvar Helgason hf., Tal hf. og Tollstjóraembættið, þriðju- daginn 8. apríl 2003 kl. 15.00. Nesvegur 59, 0001, 50% ehl. í íbúð í kjallara og 1/3 hluti lóðar, Reykjavík, þingi. eig. Ævar R. Kvaran, gerðar- beiðandi Tollstjóraembættið, þriðju- daginn 8. apríl 2003 kl. 11.00. Rekagrandi 8, 0303, Reykjavík, þingl. eig. Elín Guðmundsdóttir, gerðarbeið- andi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 8. apríl 2003 kl. 11.30. Sólbraut 5, Seltjarnarnesi, þingl. eig. Sólbraut 5 ehf., gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður og Seltjarnarnes- kaupstaður, þriðjudaginn 8. apríl 2003 kl. 10.30. Vættaborgir 4, 0102, Reykjavík, þingl. eig. Helga Sigurðardóttir, gerðarbeið- endur Fróði hf., Garðar Briem og Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 8. apríl 2003 kl. 15.30._________________ SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Hepsveidp Bandapíkjamanna heptóku flugvölinn í Bagdad - segja hann 80% á sínu valdi eftir bardaga næturinnar Að sögn talsmanna Bandaríkja- hers hertók þúsund manna herdeild þriðju fótgönguliðssveitar banda- ríska hersins stóran hluta Sadd- ams-flugvallar í nágrenni Bagdad í nótt eftir öflugar loftárásir á völlinn í gærkvöld. Herdeildin sótti í gegnum vamir íraka strax eftir loftárásirnar í nótt og varð mótspyrnan mun minni en búist hafði verið við. Að sögn tals- manna bandaríska hersins féllu að minnsta kosti 320 írakar í bar- dögunum. Richard Myers, formaður banda- ríska herforingjaráðsins, varaði þó við bjartsýni í morgun og sagði að búast mætti við áframhaldandi bar- dögum í dag þar sem írakar héldu enn hluta vallarins, sem væri mjög stór. „Þetta er rétt byrjunin á loka- sókninni inn í Bagdad og þar sem við erum svo nærri miðborginni má ætla að bardagar eigi eftir að harðna til muna,“ sagði Myers. John Altman, foringi í leyniþjón- ustu hersins, sagðist í morgun álíta að um 80% flugvallarins væru nú á valdi Bandaríkjamanna. „Ekkert er Sigurmerkið gefið. þó öruggt fyrr en við höfum kannað hvern krók og kima í byggingunum sem eru mjög margar og stórar," sagði Altman og bætti við að ekkert hefði sést til liðssveita Lýðveldis- varðar Saddams Husseins við flug- völlinn. Bardagamir í nótt voru þeir fyrstu innan borgarmarka höfuð- borgarinnar en flugvöllurinn er aðeins í um tuttugu kílómetra fjar- lægð frá miðborginni. Allt rafmagn fór af borginni með- an loftárásimar á flugvöllinn stóðu sem hæst og var borgin myrkvuð í mestalla nótt. Ekki var vitað hvort skemmdir vegna loftárásanna orsökuðu raf- magnsleysið en vatn fór einnig af borginni á sama tíma. Talsmenn bandaríska hersins neituöu því í morgun að eiga nokkum þátt i rafmagnsleysinu og sögðu að írakar hefðu sjálflr tekið það af. Miklar sprehgingar heyrðust einnig í miðborg Bagdad upp úr miðnætti í nótt og sagði einn sjón- arvotta að að minnsta kosti sextán þeirra hefðu sprungið við stjómar- byggingar og hallir Saddams Huss- eins. Naji Sabri, utanríkisráðherra ír- aks, gerði lítið úr afrekum innrás- arliðsins í útvarpsviðtali í morgun og sagði að ekkert hefði sést til þess innan borgarmarkanna eða í ná- grenni hennar. Hann sagði Saddam á lífi og við góða heilsu. REUTERSMYND Svangur hvutti í Irak Hungriö sverfur ekki aöeins aö mannfóikinu í írak, heldur hafa dýrin einnig fengiö aö kenna á styrjaldarhörmungun- um. Þessi litli svangi hvolpur var aö reyna aö komast í eitthvaö ætilegt í námunda viö bryndreka bandarískra fót- gönguliöa viö mikilvæga brú yfir Efrat-fljót þegar Ijósmyndari Reuters rakst á hann. Mjódd • Dalbraut • Austurströnd Mjódd * Dalbraut • Austurströnd iooo kr. tiiboð TILBOÐ sótt /I kr. i. ooo Gusmao hapmap stpíðið Xanana Gusmao, forseti Austur-Tímors og fyrrum skæruliða- foringi í frelsis- stríði landsins gegn Indónesum, sagði fréttamanni Reuters í Ástralíu í morgun að stríð Bandaríkja- manna í írak væri ónauðsynlegt og hryggilegt. Kaninn hleypup í tang SÞ Hátttsettur embættismaður hjá Sameinuðu þjóðunum spáði því í gær að bandarísk stjórnvöld myndu hlaupa í fang SÞ og biðja um samvinnu vegna gífurlegs kostnaðar við endurreisn íraks og lagalega flókinnar stöðu að stríðinu þar loknu. Fjápveiting til stpíðspekstpap Bandaríkjaþing samþykkti í gær með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að veita nærri 80 millj- arða dollara til stríðsrekstrarins í írak og skyldra verkefna. ísnaelar dnápu sjö í gæn ísraelskir hermenn drápu sjö Palestínumenn á Gaza og Vestur- bakkanum í aðgerðum i gær og Bandaríkjamenn höfðu uppi heit- strengingar um að reyna nú að koma á friði. lilfinningap páða ekki föp Vladimír Pútín Rússlandsforseti, sem hefur verið fremst í flokki þeirra sem gagn- rýna stríðið í írak, sagði í gær að Rússar létu til- finningar ekki ráða utanríkisstefnu sinni. Hann sagði að Rússar myndu áfram eiga samvinnu við Bandaríkin, þrátt fyrir stirð samskipti um þessar mundir. Þjóðernishyggja á uppleið Þjóðemishyggja meðal araba- þjóðanna fer nú vaxandi vegna stríðsins í írak sem margar lýsa sem nýrri nýlendustefnu. Þreföld mistök BNA Jean-Pierre Raf- farin, forsætisráð- herra Frakklands, sagði í sjónvarps- viðtali gær að Bandaríkjamenn hefðu gert sig seka um siðferði- leg, pólitísk og herfræðileg mistök með því að fara í stríð við írak. Bónopð eftip 78 ápa sambúð Zyness O’Haver sá eftir 78 ára sambúð með Sallie Warren að við svo búið mátti ekki standa og bað hennar. Hinn 95 ára Zyness og hin 94 ára Sallie gengu svo í hjónaband í Oklahoma í vikunni. Nunnan hlýddi fopsetanum Kaþólsk nunna í Bandaríkjun- um sagði fyrir rétti í gær að hún hefði verið að hlýða boðum Bush forseta um að eyðileggja gjöreyð- ingarvopn þegar hún fór, ásamt tveimur stallsystrum sínum, í leyfisleysi inn á eldflaugasvæði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.