Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Blaðsíða 25
25
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003______________________________________________
DV Tilvera
lífiö
Allir íflróttavi>bunir í beinni á risaskjám. Pnnl. En>ur matse>ill.
Tökum a> nkkur hópa, starfsmannafélög. Stúrt ng gntt dansgnlf.
öld, það er tónlist Bachs og fleiri
tónskálda sem voru honum sam-
tíða.
„Semballinn var mjög vinsæli á
barrokktímanum og hefur verið í
endumýjun lífdaga á síðustu öld
og þessari,“ segir Helga. „Ég byrj-
aði að læra á píanó í Tónlistar-
skólanum í Reyicjavík og lærði hjá
Rögnvaldi Sigurjónssyni. Eg
kláraði það sem ég gat hér heima,
þ.e. einleikaraprófið áður en ég
stefndi út í framhaldsnám. Nánar
tiltekið tO Þýskalands. Ég tók eitt
ár í píanóleik þar en kolféll fyrir
sembalnum áður en ég byrjaði
annað árið. Ég kláraði einleikara-
próf í sembalnum eftir fimm ára
nám. Það var árið 1968 og nú gæti
ég ekki hugsað mér aö spila á ann-
aö hljóðfæri."
„Það sem mér finnst svo spenn-
andi við barrokk-tímabilið er að
tónskáldin spiluðu sjáifir á sembal
og kunnu því á hann út og inn,
þeir þekktu kosti hljóðfærisins og
gátu nýtt sér möguleika þess af
mikilli kunnáttu og kostgæfni.
Það er auðveldara að spila bar-
rokk heldur en eitthvað nýtt því
að tímabilinu fylgdu ákveðin stíl-
brögð. Það er ekkert svoleiðis til
að styðjast við í nýrri verkum."
segir Helga. „Nýju tónskáldin
nálgast hljóðfærið utan frá, hrífast
af hljómi þess, en kunna ekkert
með hljóðfærið sjálft að fara og
þarf ég oft að vinna með verkið í
langan tima til að láta það passa
að hljóðfærinu."
„Það eru nokkrar ástæður fyrir
því að ég gat fengið fjögur tón-
skáld til að semja sérstaklega fyr-
ir mig.“ segir Helga brosandi.
Eivör Pálsdóttir í
Kaffileikhúsinu
Færeyska söngkonan Eivör
Pálsdóttir verður með tónleika
ásamt hljómsveit sinni í
Kaffileikhúsinu í kvöld kl. 21.
Tónlistin er að mestu leyti eftir
Eivöru sjálfa en þó slæðist ýmislegt
annað líka með.
Lát hjartað ráða för
Það er síðasti sjéns að sjá sýningu
íslenska dansílokksins á verkinu
Lát hjartað ráða för í kvöld í
Borgarleikhúsinu. Þetta eru þrjú
verk sem eru flutt undir þessu heiti.
Lautarferð í hádeginu
Maður er manns gaman. Þess
vegna ætlar Útivist að hafa opið hús
á skrifstofunni í hádeginu alla
föstudag frá kl. 11.00-13.00. Hug-
myndin er að hittast yfir samloku
eða hverju því sem fólki dettur í
hug að koma með með sér. Þú tekur
með þér eitthvað til að snæða og við
verðum með nýlagað kaffi eða te.
Eurovision-söngskemmtun í
beinni á Broadway
í sýningunni er farið yfir þekkt-
ustu vinningslögin í Eurovision-
keppninni og nokkrum íslenskum
skotið inn á milli. Fjölmargir
söngvarar. Kynnar: Logi Bergmann
Eiðsson og Selma Björnsdóttir.
Hljómsveit Geirmundar Valtýsson-
ar leikur fyrir dansi. Á litla sviðinu:
Le’ Sing - fá sæti laus.
Helga Ingólfsdóttir semballeik-
ari heldur sína fyrstu einleikstón-
leika í höfuðborginni eftir fimmt-
án ára hlé. Verða tónleikarnir
haldnir í Salnum í Kópavogi nk.
sunnudag og hefjast kl. 20. „Ég er
nú ekki búin að sitja auöum hönd-
um allan þennan tíma þó ekki hafi
ég haldið einleikstónleika. Hef
verið í Skálholti á hverju einasta
sumri sem listastjórnandi Sumar-
tónleika Skálholtskirkju og hef
verið að leika á tónleikum og á
plötur með ýmsum tónlistarmönn-
um. Skálholtskirkja hefur samt að
mestu leyti verið minn starfsvett-
vangur," segir Helga sem leikur
aðallega tónlist frá bar-
rokk-tímanum 16.-18.
Háskólabíó - Nirgendwo in Afrika irir'k
Lífsreynsla
gyðingafjölskyldu
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Helga Ingólfsdóttir viö sembalinn
„Gæti ekki hugsaö sér aö spila á neitt annaö hljóöfæri.
Semball þarf góðan hljómburð
„Þetta eru allt staðartónskáld í
Skálholti á vegum Sumartónleik-
anna. Sum lögin eru meira að
segja mjög persónuleg fyrir mig.
Til dæmis er Strönd eftir Hafliða
Hallgrímsson samið um húsið
mitt sem ber einmitt nafnið
Strönd og er samið út frá útsýninu
úr stofuglugganum mínum.“
„Semballinn er hljómlítið hljóð-
færi, það þarf mjög góðan hljóm-
burð ef það á eitthvað að heyrast í
því. Skálholtskirkja hefur eina
bestu aðstöðuna til þess. Ég spil-
aði stundum í Kristskirkjunni
þangað til það var bannað að
halda tónleika þar. Þar er mjög
góður hljómburður. Ég bíð spennt
eftir að sjá hvort Salurinn hefur
ekki allt sem þarf til að semball-
inn hljómi vel,“ segir Helga til að
útskýra fjarveru sína frá borginni.
„Það var eiginlega að mínu
frumkvæði að Sumartónleikamir
í Skálholtskirkju urðu til,“ segir
Helga stolt. „Það eru að verða um
þrjátíu ár síðan. Þetta er elsta
sumartónlistahátíð á íslandi. Ég
er búin að vera þarna á hverju
einasta sumri síðan 1975. Á hátíð-
inni er lögð mikil áhersla á að
hafa bæði gamla og nýja tónlist."
„Það er alltaf heilmikið að gera
hjá mér.“ segir Helga. „Ég er að
rembast við aö að taka upp efni
fyrir geisladisk eins og ég hef gert
nokkrum sinnum áður, svo er ég
að taka upp á grammófónplötur.
Ég er í Bach-sveitinni sem var
stofnuð árið 1986 og er að vinna að
næstu sumartónlistarhátið sem
verður enn sem áður í Skálholti."
-AÞÁ
Færeysk myndlist
Á morgun kl. 14 opnar hin
þekkta færeyska myndlistarkona
Elisabeth Pike sýningu á mynd-
um sínum í Caffé Kúlture, Al-
þjóðahúsinu, Hverfisgötu 18. Sýn-
ingin stendur til 18. apríl. Elisa-
beth er fædd og uppalin í Færeyj-
um, en hefur í mörg ár búið í
Kanada. Á myndum hennar má
sjá að hún er ennþá með sterkar
rætur til Færeyjum.
Tveggja heima sýn
Sigurður
Þórir opnar
á morgim kl.
15 sýningu á
nýjum mál-
verkum í
Húsi málaranna á Eiðistorgi, Sel-
tjamarnesi. Sýningin ber heitið
Tveggja heima sýn og þar fjallar
listamaðurinn um manninn, frá-
sögnina og fantasíuna með vísan í
þann þjóðfélagsveruleika sem mað-
urinn býr við og þá óvissu sem
hann þarf að glíma við í sínu dag-
lega umhverfi og lífi. Sýningin
stendur út mánuðinn og er opin frá
fimmtudegi til sunnudags kl. 14-18.
Veggmyndir úr silfri
Elísabet Ásberg opnar sýningu á
veggmyndum úr silfri í Húsgagna-
versluninni EXO, Fákafeni 9, á
morgun kl.16. Sýningin stendur til
12. apríl. Verk Elísabetar hafa vak-
iö mikla athygli erlendis þar sem
hún hefur verið að hanna verk fyr-
ir hótelkeðjur í Bandaríkjunum,
sem og unnið fyrir arkitekta í
London.
Meindýrafaraldur úr kókdósum
Á morgun
kl. 16 opnar
sænski lista-
maðurinn
Thomas
Broomé sýn-
inguna Locust í Gallerí Hlemmi.
Sýningin samanstendur af sex-
hundruð engisprettum sem gerðar
eru úr kókdósum. Ásamt engi-
sprettuhljóðunum sem mynda þrí-
vítt hljóðumhverfi vekur verkið
upp heimsendalega sýn af vöru-
merki sem fjölgar sér í stöðugri leit
að gróða. Sýningin stendur til 27.
apríl og er opin fimmtudaga til
sunnudaga kl. 14-18.
Nirgendwo in Afrika gerist að
langmestu leyti í Afriku, nánar til-
tekið í Kenía og segir sögu af gyð-
ingafjölskyldu sem flyst þangaö
áður en síðari heimsstyrjöldin brýst
út. Á yfirborðinu er myndin um erf-
iða lifsbaráttu á ókunnugum slóð-
um. Það býr samt enn meira í sög-
unni. Heimsstyrjöldin er aldrei í
mikiili fjarlægð og örlög ættingja
hvílir þungt á fjölskyldunni. Auk
þess eru þau handtekin og þurfa um
skeið að vera í haldi. Þó að hremm-
ingar gyðinga séu í fjarlægð þá
erum við hvað eftir annað minnt á
þá staðreynd að Redlich fjölskyldan
er í flokki með þeim heppnu og erf-
iðleikar þeirra eru erfiðleikar sem
fólk á öllum tímum glínir við á með-
an ættingjar þurfa að þola grimmd
sem er einstök í sögu mannkynsins.
í upphafi myndarinnar fáum við
strax sterka tilfinningu fyrir hörm-
ungunum sem munu gerast í Þýska-
landi og hvað bíður móður og dóttur
sem eru að flytjast til Afríku. Heim-
ilisfaðirinn, Walter Redlich er einn
fárra sem gerir hefur gert sér grein
fyrir því að Hitler mun ekki hlífa
gyðingum. Hann er lögfræðingur,
sem ekki hefur fengið atvinnu og
kýs frekar að ráða sig sem leiguliða
í Kenía heldur en að búa fjölskyldu
sinni framtíð í Þýsklandi nasist-
anna. Hinum ýmsu viðhorfum nær
leikstjórinn Caroline Link að fanga
í góðum atriðum í upphafi þar sem
skipt er á milli Afríku og Þýska-
lands.
Þegar mæðgumar Jettel og Reg-
ina koma til Afríku er ljóst að Jettel
á erfitt með að aðlagast hinu erfiða
lífi leiguliðans á meðan Regina
blómstrar í umsjón kokksins Owo-
ur. Walter hefur tekið ákvörðun um
að hér ætlar hann að vera og sættir
sig við það að því er virðist. Þegar
fram líða stundir þá er það Jettel
sem aðlagast betur Kenía heldur en
Walter. Ólík viðhorf hjónanna verða
til þess að hjónabandið stendur
aldrei á traustum fótum. Það er svo
í gegnum Reginu sem við fáum Afr-
íku í sinni jákvæðustu mynd. Hún
tengir örlagasögu fjölskyldunnar
við hið daglega líf.
Vinir í Afríku
Hin unga Regina (Lea Kurka) vingast
viö hinn innfædda Owuor (Sidede
Onyulo).
Nirgendwo in Afrika er epísk
kvikmynd, mikil saga sem gerist á
örlagatímum. Sagan er byggð á
skáldsögu Stefanie Zweig, sem hún
byggöi á eigin lífsreynslu. Mikið
reynir á Juliane Köhler og Merag
Minidze í hlutverkum hjónanna
Jettel og Walter. Á meöan Ninidze
virðist oft vera í erfiðleikum með
persónuna þá geislar af Köhler og er
leikur hennar frábær túlkun á
manneskju sem styrkist með hverri
raun. Leikur hennar og stórfengleg
kvikmyndataka gera það fyrst og
fremst að verkum að Nirgendwo in
Afrika er eftirminnileg kvikmynd.
Sagan, þrátt 'fyrir örlög og miklar
tilfinningar, skilur ekki jafn mikið
eftir sig og hún hefði átt að gera.
Leikstjórn og handrit: Caroline Link.
Kvikmyndataka Gernot Roll. Tónlist: Niki
Reiser. Aöalleikarar: Juliane Köhler,
Merab Ninidze, Matthias Habich, Sidede
Onyulo, Lea Kurka og Karoline Eckertz.
Björg Örv-
ar opnar mál-
verkasýningu
á morgun kl.
14 í Galleríi
Sævars Karls
í Bankastræti. Björg lauk námi
frá MHÍ 1979 og frá University of
Califomia 1983. Listamaðurinn
hefur tekiö þátt í ijölda samsýn-
inga og haldið tólf einkasýningar
hér heima og erlendis.
Málverk