Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 17 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson A&alritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson A&stoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, bla&aafgrei&sla, áskrift: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viðtöl viö þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Frelsun eða hemám Innrás Bandaríkjamanna og Breta í írak gengur hægar en hernaðarsérfræðingar hugðu. Það sem kallað var í fyrstu „frelsun íraks“ er að margra mati að breytast í her- nám. Tvær vikur eru liðnar frá þvi hermenn bandamanna stigu á land í botni Persaflóa og mótstaða herja íraka er ekki einasta vanda- mál bandamanna heldur og andstaða almennings í írak. Það hefur komið á daginn sem fáir áttu von á að irösk al- þýða lítur útlendu hermennina hornauga. Persaflóastríðið fyrra og seinna eru ólíkar aðgerðir. Það fyrra snerist um að koma írökum út úr Kúveit. Það seinna snýst um að koma Saddam út úr írak. Og hvort sem karl- inn er dauður eða lifandi vaða menn áfram í oliureyk og úfnum sandi og drepa jafnt hermenn og konur og börn. Likur eru taldar á að um 600 óbreyttir borgarar hafi þeg- ar verið drepnir af innrásarliðinu og ef fer fram sem horf- ir er það aðeins byrjunin á tilfinningaþrunginni tölfræði næstu vikna. Menn greinir á um bardagaleiðir. Menn greinir á um ákafa. Misklíðar hefur gætt í samskiptum breskra og bandarískra hermanna. Þeir hinir fyrrnefndu segja dát- ana að vestan vera fullherskáa, skotglaða og kærulausa. Nokkur dæmi eru nefnd þar til sögunnar, svo sem lýsing á þvi þegar bandarískir hermenn skutu á bifreið sem var full af konum og börnum en ökumaður hennar kvað ekki hafa virt stöðvunarskyldu nálægt bænum Najav. Tíu lét- ust, nálega allir i bílnum. Bandarísku og bresku ungmennunum sem halda um vopnin í írak er nokkur vorkunn. Þau eiga við lævísan óvin að etja. Erfitt getur reynst að sjá muninn á fólksbíl, fullum af konum, og öðrum bíl á leið í sjálfsmorðsárás. Venjulega klæddur maður á götum úti getur reynst her- maður og ungur strákur, sem er ekki einu sinni hermað- ur, getur lumað á byssu af því hefð er fyrir því í landinu að bera vopn. Innrásin er því allnokkurt taugastrið og giska auðvelt að skjóta fyrst og spyrja svo. Eftir þvi sem slysaskotunum fjölgar í írak veröa þær raddir háværari sem segja að innrásin bitni helst á þeim sem síst skyldi. George W. Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir sem kunnugt er kvöldið sem hermenn hans tóku land í írak að alls yrði freistað til þess að alþýða fólks í írak liði ekki fyrir hernaðinn. Það hefur ekki gengið eftir; það er skotið grimmt á íbúðarhús, sprengjum varpað á sjúkrahús og skólar ekki einu sinni látnir í friði. Það er varla hernaðarlega mikilvægt. Stríðið er að dragast á langinn. Hvert atvikið af öðru þar sem saklausir borgarar falla í hópum er farið að reka annað. Á þriðjudag fórust ellefu manns úr sömu fjölskyld- unni, aðallega böm, þegar orrustuvélar bandamanna gerðu flugskeytaárás á íbúðabyggð í bænum Hilla í mið- hluta íraks. Á miðvikudag létust allmargir í grennd við sjúkrahúss nærri Bagdad og nokkrir læknar særðust. Svona lagað hefur verið kallað „fórnarkostnaður“ átaka - og hann er í okkar nafni. Ef til vill eru það mestu mistök hernaðarsérfræðing- anna sem undirbjuggu innrásina í írak að slá því föstu að allur meginþorri írösku þjóðarinnar tæki fagnandi á móti hermönnum bandamanna. írösk þjóð hefur ekki haft margt gott af Vesturlandaþjóðum að segja á siðustu árum. Og nú þegar hermenn þeirra eru byrjaðir að skjóta tilvilj- anakennt út í loftið á langri leið sinni til Bagdad er ekki að undra að íbúarnir á bökkum Efrats og Tígris gjaldi var- hug við vestrænum hermönnum. Sigmundur Ernir Skatta- ob menitamal verða fyrirferðarmicB Fréttaljós Ólafur Teitur Guðnason blaðamaöur Vorþing Samfylkingarinnar hefst í dag þar sem flokkurinn skerpir á og kynnir helstu áherslur sinar í kosn- ingabaráttunni. Frambjóöendur sem DV ræddi við í gær töldu flestir að áherslur í skatta- og menntamálum myndu sæta tíðindum. Munum lækka skatta „Án efa verða skattamálin fyrir- ferðarmikil enda rík ástæða til að berjast fyrir lækkun skatta í ljósi aukinnar skattbyrði í tíð núver- andi ríkisstjórnar,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður Ungra jafnaðarmanna og frambjóðandi í 4. sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Hann segir að flokkurinn hafi skoðað alls kyns leiðir í þeim efnum: „Leiðin að því er kannski ekki aðalatriðið en það er ijóst að Samfylkingin vill fyrst og fremst lækka skatta á lágtekju- og milli- tekjufólki," segir Ágúst Ólafur. Hann segir að það muni koma í ljós hvort flokkurinn leggi til að tekið verði upp fjölþrepaskattkerfi en forystumenn stjórnarflokkanna hafa undanfarið fundið þeirri leið flest til foráttu. „Það kemur i ljós en þetta er sú leið sem er notuð í langflestum OECD-ríkjum og þess vegna hljótum við að skoða hana.“ Ungir jafnaðarmenn hafa lengi lagt áherslu á Evrópumál og segir Ágúst Ólafur að sú umræða lifi góðu lífi i flokknum. Komum á óvart „Ég held að skattamál og velferð- armál muni bera hæst,“ segir Ás- geir Friðgeirsson sem skipar 5. sæti í Suðvesturkjördæmi. „Að sjálfsögðu verður tekið utan um þá sem minnst mega sín í samfé- laginu en ekki bara þá því að vel- ferðarþjónustan snýst í okkar huga um grunnþjónustu við allan almenning á sviði mennta- og heilbrigðismála. Mig grunar að á Vorþinginu verði útspil í menntamálum sem eftir verður tekið," segir Ásgeir. „Og ég held það muni koma á óvart í ljósi sögunnar - eða al- mennra viðhorfa - hvað þarna muni verða mikil áhersla lögð á ábyrga hagstjóm og eflingu at- vinnulífs fyrir krafta markaðar- ins. Það mun koma á óvart - kannski ekki í ljósi undanfarinna daga en í Ijósi sögunnar. Þegar menn fara að skoða jafnaðar- menn og vinstrimenn á síðustu 10 árum held ég að menn muni á þessu vorþingi skynja annan tón en oft hefur verið áður,“ segir Ás- geir. Hann segir að Samfylkingar- fólki finnist að nú sé sögulegt tækifæri sem ekki hafi gefist áður: að jafnaðarmenn verði jafn- stórir og jafnvel stærri en Sjálf- stæðisflokkurinn: „Stemningin er sú meðal flokksmanna að það sé eitthvað sögulegt að gerast. Hvort við náum alla þá leið sem okkar villtustu draumar ná veit ég ekki en engu að síður held ég að í loft- inu liggi söguleg umskipti." „Hlustunarverkefnið" Á Vorþinginu verða meðal ann- ars kynntar niðurstöður úr verk- efninu „Samfylkingin hlustar“ sem fólst í því að frambjóðendur heimsóttu um 150 félagasamtök um allt land. Ásgeir Friðgeirsson segir aö hér sé um að ræða aðferð sem sé vel þekkt í markaðsfræð- um: „Kosningastefnuskrá okkar, sem verður lögð fram á Vorþing- inu, byggir bæði á almennri stefnuskrá Samfylkingarinnar og svo þessu hlustunarverkefni. í því felst að þú ferð til valinna markhópa og hlustar en ert ekki að selja. Svo ferðu með þann pakka heim og reynir að taka saman alla þræði. Hvert okkar skilaði inn skýrslu um hvern fund, hún var send til okkar við- mælenda sem staðfestu að þetta hefði verið inntak fundarins og allt fer þetta inn í okkar gagna- skrár og hefur verið leiðbeinandi varðandi stefnumótun flokksins. Þetta er mjög lærdómsríkt og frambjóðendum var uppálagt að halda ekki stefnu okkar að fólki á þessum fundum heldur hlusta á áhyggjuefni og hugðarefni þeirra sem við vorum að tala við. Og þetta hefur hríslast aðeins inn í stefnumótunina á síðasta sprett- inum. Skatta- og menntamál „Ég býst ekki við neinum sér- stökum átökum um stefnumálin enda er verið að draga saman stefnumótunarvinnu siðustu missera og ára,“ segir Björgvin G. Sigurðsson sem skipar 3. sæti í Suðurkjördæmi. „Þarna er verið að leggja lokahönd á þau stóru mál sem hafa verið í deiglunni síðustu mánuðina í flokknum og verið að ‘flnísera’ útfærslu frekar en að leggja fram ný stefnumið. Stærstu tíðindin verða væntan- lega áherslur í skatta-, menntun- ar- og velferðarmálum," segir Björgvin og býst við að þessi mál fái mesta athygli bæði í framsög- um forystumanna flokksins og stefnumálum sem kynnt verða á þinginu. Ágúst Ólafur Björgvin G. Agústsson. Sigurðsson. Jóhanna Þórunn Svein- Siguröardóttir. bjarnardóttir. Breytum kjörum fólks „Ég held að það sé alveg óhætt að segja að við erum að koma þarna með tillögur sem munu breyta veru- lega kjörum fólks,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir sem skipar 1. sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður. „Meg- ináherslan verður lögö á að bæta kjör og aðstæður fólks með meðal- tekjur og lágar tekjur og þess fólks sem hefur orðið undir í tíð þessarar ríkisstjórnar." Jóhanna segir að Samfylkingin ætli sér að sigra í kosningunum og hún sé sannfærð um að Vorþingið muni marka upphafið að mjög sterkri lokasókn Samfylkingarinn- ar. En hvað myndi teljast sigur? „Ég ætla ekki að negla það við neina prósentu," segir Jóhanna. „Það sem við stefnum að er að verða forystuafl í nýrri ríkisstjórn og til þess að svo megi verða þurf- um viö að ná verulegum árangri. Það er sögulegt tækifæri fram und- an. Þetta er í fyrsta sinn sem þjóð- in eygir möguleika á að það verði tveggja flokka stjórn án þátttöku Sjálfstæðisflokksins og það vil ég að verði okkar markmið." Samstaða um stefnu Þórunn Sveinbjarnardóttir segist ekki búast við átakaþingi vegna þess að það sé einfaldlega mikil samstaða um stefnuna í flokknum. „Hún hefur verið vel unnin og lýð- ræðislega og þótt það séu skiptar skoðanir um einstök mál er það ekkert sem setur okkur út af spor- inu,“ segir Þórunn. „Formaður og forsætisráðherraefni flokksins munu kynna okkar helstu stefnu- mál en að sjálfsögðu er verið að huga að aðgerðum til þess að bæta kjör almennings í landinu, sérstak- lega þeirra sem hafa átt undir högg að sækja í tíð þessarar ríkisstjórn- ar, og þeim pólitísku verkefni sem við blasa, hvort sem það er við stjóm efnahagsmála, velferðarmál, menntun, lýðræði og önnur mál sem við höfum haft í forgrunni mjög lengi.“ Þórunn segist aðspurð gera ráð fyrir því að tillögur flokksins í skattamálum verði útfærðar á þinginu og utanríkismálin verði að sjálfsögðu einnig á dagskrá: „Já, að sjálfsögðu verða þau þama með. Skiljanlega er stríðið í írak langfyr- irferðarmest í utanríkismálaum- ræðunni og við höfum frá upphafi verið á móti þeirri ákvörðun Dav- íðs og Halldórs að styðja árásar- stríð Bandaríkjamanna og Breta gagnvart írak. Hins vegar fara verkefni eins og Evrópumálin auð- vitað ekkert í burtu þótt þau víki til hliðar þegar svona tíðindi verða; þeirri vinnu verður auövitað að halda áfram,“ segir Þórunn. -ÓTG Ummælí „Það er áreiðanlega einstakt í íþróttasögu íslendinga að forseti heildarsam- taka þess- arar hreyf- ingar, sem kennir sig við hinn rómaða íþróttaanda og ólympíuhugsjón, sem m.a. bygg- ist á heiðarlegum vinnubrögðum og keppni, skuli staðinn að verki á hendur öörum íþróttaforystumanni eins og hér er lýst.“ Júlíus Hafstein í grein í Morgunblaö- inu. Um bréfaskrif Ellerts B. Schram til til Heimssambands ólympíunefnda þar sem hann mun hafa óskaö eftir því að Júlíus yröi settur út úr undir- nefnd Alþjóöa ólympíunefndarinnar. öllu ætlast ég til þess að at- vinnurek- endur séu skikkaðir til að hafa fólk í vinnu sem þeir telja ekki skila nægilega miklu. En hvernig má það vera að starfsmenn sem unnið hafa í yflr þrjátíu ár hjá bankanum, helgað honum bestu ár starfsævi sinnar, séu kallaðir inn á teppi, sagt upp og gert að hætta samdægurs, nánast eins og þeir hafl gert eitthvað af sér? Aðgát skal höfð í nærveru sálar.“ Jón G. Hauksson á Heimi.is. Varari um sig? Olympíuandinn Vonbrigði „Guð minn góður hvað ég er orð- in leið á umræðu á þessu plani, guð minn góður hvað ég þrái meiri virðingu ykkar sem leitið eftir at- kvæði mínu; hvað í ósköpunum gerir það að verkum að þið leyfiö ykkur að koma fram við okkur kjósendur eins og við séum heimsk?“ Signý Sigurðardóttir í grein I Morgun- blaðinu. Um umræður Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur um skattamál í Kastljósinu. Uppsagnin í Landsbanka „Ekkert hef ég út á rétt nýrra eigenda að setja að hjóla í toppana tuttugu og segja þeim upp. Þeir voru í fullum rétti til þess. Síst af B„Þetta var eitthvað rúmlega einn þriðji úr prósenti af allri ís- lensku þjóð- inni og þessi mikli fjöldi þýðir til dæmis að bregði mað- ur sér út á götu, til að mynda á Laugaveginn í Reykjavík, þá getur maður gengið út frá því sem vísu að þegar maður er búinn að mæta svona tvö hundr- uð fullorðnum manneskjum, þá sé maður búinn að mæta að minnsta kosti einum fulltrúa á landsfundi Sjálfstæðisflokksins.“ lllugi Jökulsson á vef JPV-útgáfu. Kristjón Kolbeins vlöskipta- fræöingur Þótt fyrirsögn greinarinnar gefi til kynna að fáir kunni sig í góðu veðri heiman að búa er fullsterkt tii orða tekið að telja að engir kunni sig heiman að búa. Fullyrða má að ýmsir kunni sig ekki í vondu veðri heiman að búa og treysti um of á vernd bún- aðar, sama hvað á dynur. Nýliðnir atburðir minna okkur óþyrmilega á hversu válynd veður verða á íslandi og veðrabrigðin snögg. Því er oft lítill fyrirvari til að leita skjóls eða annars athvarfs ef með þarf. Til allrar hamingju hafa ekki orðið mannskaðar vegna veðurs það sem af er vetri, þökk sé björgunar- og hjálpar- sveitum sem lagt hafa á sig ómælda vinnu og jafnvel hrakn- inga til að bjarga fólki í nauð sem fullt bjartsýni hefir lagt út í óvissu án þess aö huga að horfum þar eð búið var að skipuleggja óbyggðaferð með löngum fyrir- vara. í öðrum tilvikum er ráðist í ferðarlög án þess að huga að veð- urspám. Læðist að höfundi sá grunar að undir niðri sé treyst á hjálparsveittir og farsímasam- band ef illa skyldi takast til. Oft eru erlendir ferðalangar á faraldsfæti sem lítt þekkja til ís- lenskrar náttúru og veðrabrigða. Er þeim því að einhverju leyti vorkunn vegna fákunnáttu og tak- markaðrar þekkingar á veðri. Þótt mest hætta sé á mannskaðaveðr- um um hávetur er þó full ástæða til að sýna aðgát allt árið, einkum ef hugað er að jöklaferðum. Að jafnaði lækkar hitastig um 0,6 gráður við hverja 100 metra sem land hækkar frá sjó þótt frá því séu nokkur frávik Samkvæmt framangreindri líkingu ætti því hitastig að vera um 12 gráðum lægra þegar komið er í 2.000 metra hæð, sem er hæð Bárðarbungu, en er við sjávarmál. Fyrir því fengu kunningjar höfundar að finna fyr- ir nokkrum árum er þeir hugðust ganga yfir Vatnajökul að sumri. Skóflur komu í góðar þarfir Undirbúningur var allur eins og best varð á kosið miðað við skil- yrði á þessum tíma árs, hásumri þegar veður ætti að vera hvað best. Höfundur hafði aflað sér upp- lýsinga meðal reyndra fjalla- manna og jöklafara sem töldu heppilegast að ferðast að nætur- lagi þar eð búast mætti við krapa Fáir kunna sig í góöu veðri heiman að búa Sliguðust tjöld manna, fyrst sök- um ofankomu og skafrennings en fuku síðan út í veður og vind án þess að við nokkuð yrði ráðið. Varð hópurinn að hírast í fonn í fimm dægur vegna stórhríðar og skafrennings, sambandslaus við umheiminn. Hrakningarnar vöktu ekki athygli alþjóðar þar eð lítt var vitað um afdrif hópsins fyrr en til byggða var komið og þeirra því aldrei saknað. Fararstjórinn reit þó grein um förina í tímarit írskra fjallamanna sem birtist seinna í þýðingu undirritaðs í Morgunblað- inu. Útlendingar í málaferlum Nokkur dæmi eru um slark út- lendinga á íslenskum jöklum sem haldið hefir verið á lofti. Hefir jafnvel legið við málaferlum þar sem viðskiptavinir hafa talið sig eiga hönk upp í bakið á innlend- um skipuleggjendum jöklaferða. Áhættu- og slarkferðir eru tölu- vert annars eðlis en jöklaferðir. Þær eru auglýstar með myndum, teknum af viðskiptavinum í glampandi sólskini með bros á vör á vélsleðum geysandi eftir hjarn- breiðum. Þess í stað getur æxlast þannig að viðskiptavinurinn verði blautur, kaldur og allt að því vit- stola af hræðslu verði hann við- skila viö samferðamenn sína eins og hent getur þegar lagt er með hóp fólks út í tvísýnu, jafnvel þeg- ar skyggni er vart neitt og nær eingöngu treyst á staðsetningar- tæki. Til allrar hamingju hafa ekki orðið mannskaðar vegna veðurs það sem af er vetri, þökk sé björgunar- og hjálparsveitum sem lagt hafa á sig ómœlda vinnu og jafnvel hrakninga til að bjarga fólki í nauð og bleytu á jöklinum að degi til vegna bráðnunar. Á lokastigi und- irbúnings var það fyrir hreina til- viljun að viðmælandi benti ferða- félögum á að þeir gætu þurft að grafa sig í fonn. Nota skyldi bak- poka og sleða til verksins. Skýröi hann út fyrir þeim hvernig að slíku verki skyldi staðið. Það varö til þess að teknar voru skóflur með í ferðina sem áttu þátt sinn í því að betur fór en á horfðist er leið- angursmenn hrepptu foráttubyl á jökli þótt um miðjan júlí væri meðan blíðviðri var í byggð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.