Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Blaðsíða 24
24 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 90 ára_________________________________ Rósa Guönadóttir, Hlíöarhúsum 7, Reykjavík. 80 ára__________________________________ Gunnar I. Sigurösson, Hlaðhömrum 14, Reykjavík. Hallfríöur Ásmundsdóttir, Háaleitisbraut 151, Reykjavík. Sigrún Hansdóttir, Sauöá, dvalarheimili, Sauðárkróki. 75 ára_________________________________ Borghildur A. Jónsdóttir, Álftamýri 30, Reykjavík. Sigurður Þóröarson, Fossvegi 6, Selfossi. 70 ára ________________________________ ■ Aöalborg Guttormsdóttir, I Skeljagranda 3, Reykjavík, í IjSíS veröur sjötug sunnud. ■ 6.4. Hún tekur á móti r '’f JI gestum að heimili sínu t I11 laugard. 5.4. kl. 17-21. Svala G. Sölvadóttir, Ársölum 1, Kópavogi. 60 ára_________________________________ Blrna Bogadóttir, Torfufelli 18, Reykjavík. Guölaug Jóhannsdóttir, Brautarlandi 17, Reykjavík. Jóna Vestfjörö Árnadóttir, Heiðvangi 2, Hafnarfirði. Kristín Karóiína Jakobsdóttir, Smiðjuvegi 23, Kópavogi. Ólafur Elríkur Þóröarson, Hæðargötu 3, Njarðvík. 50 ára_________________________________ Dýrlelf Egilsdóttir, Hlíðarhjalla 25, Kópavogi. Erla Gunnarsdóttir, Birkihvammi 13, Kópavogi. Guöbjörn Friöriksson, Löngumýri 20, Garðabæ. Hulda Finnlaugsdóttir, Baugstjörn 7, Selfossi. Jóhann Alfreðsson, Breiðvangi 12, Hafnarfirði. Jóhanna Sigurjónsdóttir, Raufarseli 1, Reykjavík. Pétur Lúövík Friðgeirsson, Ásvallagötu 20, Reykjavík. Vilhjálmur Vilhjálmsson, Fannafold 49, Reykjavík. 40_ára_________________________________ Anna Guörún Jónsdóttir, Freyvangi 7, Hellu. Bergþóra Jóhannsdóttir, Núpasíðu 2b, Akureyri. Bjarni Ólafur Magnússon, Birkihlíö 19, Vestmannaeyjum. Friöbjörn Axel Pétursson, Grenimel, Grenivík. Guðný Arnardóttir, Þverholti 9, Mosfellsbæ. Hallbjörg Þórarinsdóttir, Barmahlíð 48, Reykjavík. Ingólfur Örn Arnarson, Hringbraut 62, Hafnarfirði. Jocelyn Secong Abrenica, Suðurhllð 35, Reykjavík. Jóhannes Sigurösson, Dofraborgum 7, Reykjavík. Lára Matthildur Westerman, Bergvegi 17, Keflavík. Leó Geir Arnarson, Blöndubakka 6, Reykjavík. Ragnheiöur Jónasdóttir, Lindasmára 1, Kópavogi. Siguröur Ásmundsson, Eyjaholti 17, Garöi. Sudarat Jaidee, Oddnýjarbraut 5, Sandgerði. Jarðarfarir Friöbjörg Ólína Kristjánsdóttir frá Ein- arslóni, síðast til heimilis á Faxabraut 13, Keflavík, verður jarösungin frá Kefla- víkurkirkju föstud. 4.4. kl. 14.00. Maggý Helga Jóhannsdóttir, Kópavogs- braut lb, Kópavogi, verður jarösungin frá Fossvogskirkju 4.4. kl. 10.30. Markúsína Guðnadóttir hárgreiðslu- meistari verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju föstud. 4.4. kl. 13.30. Margrét Guðleifsdóttir veröur jarðsung- in frá Siglufjarðarkirkju laugard. 5.4. kl. 14.00. Ingibjörg Þorgeirsdóttir verður jarðsung- in frá Reykhólakirkju 5.4. kl. 14.00. Sveinn Magnús Magnússon frá Nes- kaupstað verður jarðsunginn frá Norð- fjarðarkirkju mánud. 7.4. kl. 14.00. Erla Bergþórsdóttir, Kornsá II, Vatnsdal, veröur jarösungin frá Blönduóskirkju laugard. 5.4. kl. 11.00. Jarðsett verður á Sauöárkróki. Einar Runólfsson frá Ásbrandsstöðum, Vopnafirði, verður jarðsunginn frá Vopna- fjarðarkirkju laugard. 5.4. kl. 13.30. Jarösett verður í Hofskirkjugarði. FÚSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 DV Fólk í fréttum Guðmundur G. Þórarinsson byggingaverkfræðingur í Reykjavík Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur og fyrrv. alþm., fer fyrir nýjum stjómmálasamtökum, Nýju afli, sem stofnuð voru í gær. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík. Hann varð stúdent frá MR 1959, tók fyrrihlutapróf í verkfræði frá HÍ 1963 og próf í byggingarverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn 1966. Guðmundur kenndi við MR 1962-63, við MH 1970-71 og við TÍ 1971-73, var verkfræðingur hjá Reykjavíkurborg 1966-70, rak eigin verkfræðistofu í Reykjavík 1970-79, breytti henni þá í fyrirtækið Fjör- hönnun hf. í eigu starfsmanna, stofnaði, ásamt fleirum, Verkfræði- skrifstofu Suðurlands á Selfossi 1973, var forstjóri Þýsk-íslenska verslunarfélagsins 1983, var borgar- fulltrúi í Reykjavík 1970-74, var varaþm. 1974-79 og alþm. 1979-83 og 1987-91, rak með fleirum fiskeldis- stöðina ísþór hf. 1985-90 og rekur verkfræðistofu í Reykjavík frá 1991. Guðmundur sat í framkvæmda- stjórn og miðstjóm Framsóknar- flokksins, var gjaldkeri hans 1979-86, átti sæti í Evrópuráðinu í Strassborg 1979-83 og 1983-87, sat í stjórn Stéttarfélags verkfræðinga 1969-70, varaformaður þar 1970-71, sat í aðalstjóm Verkfræðingafélags íslands og formaður þess 1993-94, ritstjóri Árbókar VFÍ 1995 og var sæmdur gullmerki félagsins, situr í ráðgjafarstjórn verkfræðideildar HÍ frá 1994 og er formaður hennar frá 1999, var Reykjavíkurmeistari í glímu í flokkakeppni 1959, var for- maður nefndar FÍB sem hélt fyrstu rallaksturskeppnina, útgefandi timaritsins Skák, ásamt fleirum, 1962, keppti á heimsmeistaramóti stúdenta í skák í Póllandi 1964, var forseti Skáksambands íslands 1969- 74 og hafði þá forgöngu um að heimsmeistaraeinvígi Fischers og Spasskys var haldið í Reykjavík 1972 og aftur forseti þess 1992-97, forseti Skáksambands Noröurlanda 1970- 71 og er heiðursfélagi Skák- sambands íslands. Guðmundur sat í hafnarstjóm Reykjavíkur 1970-74, í stjóm Inn- kaupastofnunar Reykjavíkur 1970-74, var formaður byggingar- nefndar Listasafns íslands, sat í stjórn Þróunarfélagsins og í samn- inganefnd um orkufrekan iönað, var stjórnarformaður Ríkisspítal- anna 1987-91 og aftur 1995-99, var formaður Landsambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva, var formaður Spilliefnanefndar 1996-2002 er hún var lögð niður, er formaður stjómar Úrvinnslusjóðs, er formaður próf- nefndar eignaskiptayflrlýsinga, sit- ur í kærunefnd fjöleignahúsamála og hefur setið í fjölda opinberra nefnda. Fjölskylda Fyrri kona Guðmundar er Anna Björg Jónsdóttir, f. 15.5. 1939. Þau skildu. Börn Guðmundar og Önnu eru Kristín Björg, f. 10.12. 1962, dr. í dýralækningum, búsett í Mosfells- bæ, maður hennar er Árni Sigurðs- son veðurfræðingur og eiga þau tvo syni; Þorgerður, f. 23.5. 1966, háskólanemi í sálfræði, búsett í Reykjavík og á tvo syni; Jón Garð- ar, f. 30. 4. 1968, viðskiptafræðingur og MBA í Barcelona, kona hans er Margrét Ama Hlöðversdóttir lög- fræðingur og eiga þau tvo syni; Ólafur Gauti, f. 15. 2. 1978, verk- fræðinemi í Kaupmannahöfn. Kona Guðmundar er Sigrún Valdimarsdóttir, f. 7.6. 1950, lyfja- fræðingur. Sonur Guðmundar og Sigrúnar er Valdimar Garðar, f. 12.11. 1987, framhaldsskólanemi. Alsystkini Guðmundar eru Jó- hann Þórir Jónsson, f. 21.10. 1941, d. 2.5.1999, ritstjóri og útgefandi Tíma- ritsins Skákar; íris Guðfmna, f. 27.1. 1943, húsmóðir í Reykjavík. Hálfsystkini Guðmundar, sam- feðra, eru Kristján Bjarnar, f. 19.11. 1944, framkvæmdastjóri við Mý- vatn; Kristlaug Dagmar, f. 21.1.1945, búsett á Selfossi; Kristín, f. 26.11. 1945, starfsmaður hjá RÚV; Símonía Ellen, f. 21.4. 1949, búsett á Akra- nesi; Ingveldur Guðfmna, f. 21.4. 1947, húsmóðir í Reykjavík; Helgi, f. 7.5. 1948, búsettur í Noregi; Sigurð- ur Reynir, f. 13.11. 1950, fjármála- stjóri í Reykjavík; Ragnheiður, f. 22.12.1951, verslunarmaður í Hvera- gerði; Kolbrún, f. 22.12. 1951, hús- móðir í Garðabæ; Þórunn Guðjóna, f. 21.4. 1954, húsmóðir i Reykjavík; Einar Matthías, f. 2.1. 1955, bóndi í Hrútsholti; Jakob Sigurjón, f. 1.7. 1956, lögregluvarðstjóri, búsettur á Selfossi; Ólafur, f. 3.11. 1959, tækni- maður í Reykjavík. Hálfsystkini Guðmundar, sam- mæðra, eru Ingibjörg Kristjánsdótt- ir, f. 19.7. 1947, skrifstofumaður í Hafnarfirði; Ómar Kristjánsson, f. 3.9. 1948, framkvæmdastjóri Inn- flutningsverslunar; Jósteinn Krist- jánsson, f. 21.3. 1950, framkvæmda- stjóri L.A. kaffi. Foreldrar Guðmundar: Þórarinn Bjarnfmnur Ólafsson, f. 12.7.1920, d. 7.5. 1977, verkamaður og bílstjóri i Reykjavík, og Aðalheiöur Sigriður Guðmundsdóttir, f. 18.9.1922, d. 14.2. 1990, húsmóðir. Ætt Þórarinn var sonur Ólafs, versl- unarmanns í Kaupmannahöfn, Pét- urssonar, formanns á Akranesi og í Reykjavík, bróður Þorvarðar, for- stjóra Gutenbergs og formanns HÍP, langafa Birnu Lárusdóttur, forseta bæjarstjómar á ísafirði. Annar bróðir Péturs var Óli, faðir Páls Eggerts prófessors og afi Inga R. Jó- hannssonar, alþjóðlegs skákmeist- ara. Þriðji bróðirinn var Svein- björn, afi Halls Símonarsonar bridgespilara og langafi Friðriks Ólafssonar stórmeistara. Pétur var sonur Þorvarðar, vþm. á Kalastöð- um, Ólafssonar, hreppstjóra, lrm. og dbrm. í Kalastaðakoti, Péturs- sonar. Móðir Péturs var Margrét Sveinbjarnardóttir, pr. á Staðar- hrauni, Sveinbjarnarsonar, hálf- bróður Þórðar, dómstjóra. Móðir Margrétar var Rannveig, systir Bjarna Thorarensens skálds. Móðir Þórarins var Guðfinna Helgadóttir. Aðalheiður var dóttir Guðmund- ar, sjómanns í Ólafsvík, Þórðarson- ar, b. í Ytri-Bug í Fróðárhreppi, Þór- arinssonar af Kópsvatnsætt, bróður Þórarins, föður Þórarins ritstjóra. Guðmundur var sonur Þórðar, b. í Ytri-Bug í Fróðárhreppi, hálfbróður Árna, afa Halldóru Ingólfsdóttur, ekkju Kristjáns Eldjárns forseta. Móðir Aðalheiðar var Ólafia Sveinsdóttir. ig Jóna Dís Bragadottir uppeldisfræðingur og nýbúakennari Jóna Dís Bragadóttir, uppeldis- fræðingur og nýbúakennari, Steinahlíð, Mosfellsbæ, er fertug í dag. Starfsferill Jóna fæddist í Reykjavík en ólst upp í Borgarnesi og var þar í grunnskóla. Hún lauk stúdents- prófi frá FB, stundaði nám við HÍ og lauk þaðan BA-prófi í uppeldis- fræði og íslensku 1995 og stundar nú nám í kennsluréttindum við KHÍ. Jóna Dís var deildarstjóri við leikskólann Reykjakot 1996-99 og hefur kennt við Varmárskóla í MosfeUsbæ frá 1999. Jóna Dís var formaður foreldra- félags leikskólans Vesturborgar í Reykjavík og foreldrafélags Varm- árskóla í nokkur ár, sat í fræðslu- nefnd Mosfellsbæjar 1994-2001 og var einn af stofnendum Esju, fé- lags framsóknarkvenna í Kjalar- nes- og Kjósarhreppi. Fjölskylda Eiginmaður Jónu Dísar er Helgi Sigurðsson, f. 20.7.1952, dýralækn- ir og sérfræðingur í hrossasjúk- dómum. Foreldrar Helga: Sigurð- ur Helgason, f. 20.4.1922, pípulagn- ingameistari í Reykjavík, og Fjóla Steingrímsdóttir, f. 28.8. 1927, nú látin, húsmóðir í Hafnarfirði. Börn Jónu Dísar eru Bragi Páll Sigurðsson, f. 29.3. 1984, mennta- skólanemi; Anna Jóna Helgadótt- ir, f. 24.3. 1993; Hinrik Ragnar Helgason, f. 1.11. 1994. Systkini Jónu Dísar eru Hinrik Bragason, f. 10.9. 1968, athafna- maður, búsettur í Reykjavík, kvæntur Huldu Gústafsdóttm’ og eru börn þeirra Edda Hrund og Gústaf Ásgeir; Guðrún Edda Bragadóttir, f. 27.8. 1970, verslun- arstjóri, búsett í Reykjavík, sam- býlismaður hennar er Sveinn Ragnarsson viðskiptafræðingur og eru synir þeirra Ragnar Bragi og Konráð Valur. Foreldrar Jónu Dísar eru Bragi Ásgeirsson, f. 20.3.1940, tannlækn- ir í Reykjavík, og k.h., Edda Hin- riksdóttir, f. 2.3. 1944, hárgreiðslu- meistari og kennari við Iðnskól- ann í Reykjavík. Ætt Bragi er sonur Ásgeirs, dýra- læknis í Borgarnesi, bróður Braga læknis. Ásgeir var sonur Ólafs, kaupmanns í Keflavík, bróður Ófeigs í Leiru, fóður Tryggva út- geröarmanns, fóður Páls Ásgeirs, fyrrv. sendiherra. Ólafur var sonur Ófeigs, hreppstjóra á Fjalli, Ófeigs- sonar, ættföður Fjallsættar, Vigfús- sonar. Móðir Ófeigs á Fjalli var Ing- unn Eiríksdóttir, ættfóður Reykja- ættar, Vigfússonar. Móðir Ólafs var Vilborg Eyjólfsdóttir, hreppstjóra í Auðsholti, Guðmundssonar og Sig- ríðar Ólafsdóttur. Móðir Ásgeirs var Þórdís Einarsdóttir, b. á Kletti í Króksfirði, Jónssonar, b. á Kletti, Björnssonar. Móðir Einars var Þór- dís Jónsdóttir. Móðir Þórdísar var Halldóra Jónsdóttir, b. á Bakka í Geiradal, Jónssonar, b. á Gillastöð- um, Jónssonar. Móðir Halldóru var Elísabet Jónsdóttir, b. á Kambi, Jónssonar. Móðir Braga var Guðrún Svava, systir Gunnars framkvæmdastjóra, föður Styrmis, ritstjóra Morgun- blaðsins. Guðrún Svava var dóttir Árna, kaupmanns og leikara í Reykjavík, Eiríkssonar. Móðir Áma var Halldóra Ámadóttir, b. á Út- skálahamri, Magnússonar, b. þar, Magnússonar, b. á Bakka, Hall- grímssonar, b. þar, Þorleifssonar. Móðir Hallgríms var Guðrún Eyj- ólfsdóttir, b. á Ferstiklu, Hallgríms- sonar, sálmaskálds, Péturssonar. Móðir Halldóru var Margrét Þor- kelsdóttir, b. í Lykkju, Jónssonar, og Álfheiðar Alexíusdóttur, systur Rannveigar, formóður Össurar Skarphéðinssonar, Marðar Árna- sonar og Guðrúnar Helgadóttur rit- höfundar. Móðir Álfheiðar var Helga Jónsdóttir, ættföður Fremra- Hálsættar, Ámasonar. Móðir Guðrúnar Svövu var Vil- borg Runólfsdóttir, b. í Ásgarði í Landbroti, Jónssonar, og Vilborgar Ásgrímsdóttur. Edda er dóttir Hinriks, vörubil- stjóra í Reykjavík, Ragnarssonar, skipstjóra á Hellissandi, Konráðs- sonar, sjómanns, Konráðssonar. Móðir Ragnars var Kristin Friðriks- dóttir frá Amarstapa. Móðir Hin- riks var Hólmfríður Ásbjömsdóttir, formanns á Sandi, Gíslasonar. Móð- ir Hólmfríðar var Hólmfríður Guð- mundsdóttir frá Purkey. Móðir Eddu var Jóna Margrét Árnadóttir, b. á Áslaugarstöðum í Selárdal í Vopnafirði, Ámasonar. Móðir Jónu Margrétar var Hólm- fríður Jóhannsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.