Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 Sport 27 DV Sara stefnir á þrjá titla Sara Jónsdóttir varð Islands- meistari í einliðaleik kvenna í badminton í fyrsta sinn i fyrra og stefnir ákveðin á að verja titilinn en hún ætti að fá þar harða keppni frá Rögnu Ingólfsdóttur sem hefur stað- ið sig mjög vel í vetur og er hæst ís- lenskra kvenna á heimslistanum. Ragna hefur þurft að sætta sig við þrjú sitfur í einliðaleiknum í röð og fmnst eflaust eins og fleiri kominn tími til að landa gullinu á mótinu um helgina. „Það er allt opið i þessu og þetta getur farið hvernig sem er,“ sagði Sara í viðtali við DV-Sport en hún dvelur við nám í Danmörku þar sem hún æfir í Alþjóðlegu Badmin- tonakademiunni. „Það hefur gengið vel úti en ég er að æfa mjög mikið. Mér finnst ég hafa bætt mig mikið en er þolinmóð aö þessar æfmgar muni skila sér seinna. Ég keppi í þremur greinum og stefni á þrjá titla. Ég veit að það verður erfitt að ná því markmiði enda þarf þá allt að ganga upp. Ragna verður minn helsti andstæðingur og við höfum verið að berjast lengi. Það gekk ekki alveg nægilega vel hjá mér fyrir áramót en þetta er allt að koma og ég náði inn í átta liða úrslit á móti í Hollandi," segir Sara sem á erfitt með að spá í úrslitin hjá strákunum líkt og fleiri. „Það er eigilega bara erfiðara að spá i þetta hjá strákunum. Það er líka mjög jafnt í tvíliða- og tvennd- arleiknum og þá sérstaklega i tvenndarleiknum. Þetta verður því örugglega mjög spennandi um helg- ina,“ sagði Sara að lokum. -ÓÓJ Margir eiga möguleika - Broddi Krist- jánsson ver ekki titilinn í fyrsta sinn en spáir tví- sýnni og spenn- andi keppni Badmintonfólk býður til hinnar ár- legu veislu í húsakynnum sínum í Gnoðarvogi um helgina og að þessu sinni gera margir tilkall til þeirra fimm íslandsmeistaratitla sem eru í boði á Meistaramóti íslands. Broddi Kristjánsson landsliðsþjálf- ari, þá 42 ára, stal senunni á mótinu í fyrra þegar hann tryggði sér sinn 14. íslandsmeistaratitil en alls hefur þessi sigursæli íþróttamaður unnið 40 íslandsmeistaratitla í badminton. Broddi ver ekki 14. íslandsmeistara- titilinn en ætlar að taka þátt í tvíliða- leiknum þar sem hann hefur orðið 17 sinnum íslandsmeistari. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég ver ekki titilinn en ég ákvað að vera ekki með núna. Það er alltaf spurning hvenær maður á að stoppa með titil- inn og ég ákvað að sleppa því að vera með núna,“ sagði Broddi sem lítur björtum augum til þeirra sem eru að taka við af honum. „Það má segja að það sé rétti tímapunkturinn núna til að láta strákunum þetta eftir því það er nokkuð bjart í einliðaleiknum. Ég vona að það sannist líka um helgina. Það er hluti af spennunni að sjá hvernig krökkunum gengur enda hafa þau verið að spila erlendis og hafa lítið spilað við hvert annaö. Það er líka alveg möguleiki að stór nöfn falli snemma út ef þau eru ekki á tán- um. Það gerðist í fyrra þegar Tómas Viborg, þá þrefaldur meistari, tapaði fyrsta leik. Það er því ekkert sem seg- ir að það geti ekki gerst aftur. Ég hugsa að það verði þó enn í fersku minni manna og því verði menn enn frekar á tánun,“ segir Broddi sem hefur trú á Tómasi. „Tómas Viborg er búinn að spila mjög vel undanfar- ið en ég veit að hinir strákarnir ætla að koma grimmir á móti honum og eru ákveðnir í að standa sig. Ég hugsa líka að Tómas hafi lært mest af reynslunni í fyrra og komi nú al- veg tilbúinn," segir Broddi um Tómas Viborg sem stundar nám og íþróttina í Svíþjóð en varð íslands- meistari 1999, 2000 og 2001. „Hjá stelpunum eru þær Ragna Ingólfsdóttir og Sara Jónsdóttir sterkastar fyrirfram en það er jafn- framt alveg greinilegt að þær mega ekkert slaka á,“ segir Broddi um þær sigurstranglegustu hjá stelpunum. „Þetta verður örugglega mjög jafnt og skemmtilegt mót og það eiga margir möguleika á sigri. Ég spái mörgum skemmtilegum leikjum í öllum um- ferðum," sagði Broddi sem ætlar að hafa gaman af Meistaramótinu þó að hann taki ekki þátt í einliðaleiknum. „Þetta er eigilega miklu skemmti- legra en þegar að maður er með. Vik- an fyrir Islandsmótið var alltaf frek- ar leiðinleg því maður beið og beið eftir fyrsta leik. Nú er þetta orðið miklu afslappaðra og það er mjög gott að prófa þetta líka,“ sagði Broddi að lokum. Úrslitaleikimir fara allir fram á sunnudaginn og mun Sjónvarpið sýna einliðaleikina beint. -ÓÓJ 10:00 Mæting keppenda I 1:00 Pit iokar og æfingar hefjast 13:00 Undanrásir hefjast 14:00 Keppni hefst i 6:00 Áætluð mótsiok og verðlaunaafbending Við hvetjum alla sem hafa gaman af hraða, spennu og hrikalegum stökkum að koma vel útivistarklædd í Skálafell á laugardag klukkan 13:00 og skemmta sér með okkur í Snocrossinu. Fylgist með á www.snocross.is Stórkostieg Snocrosskynning verður i Skautahöllinni í Laugardai, föstudagskvöldið 4. apríl klukkan 22:00 þar sem fólki gefst kostur á að sjá keppendur, keppnissleða þeirra og allt það sem fylgir Snocrossinu. Aðgangseýrir er enginn á þessa sýningu og allir velkomnir. imnlieinrt',,- -» wittuicnnrmet tc í ífH Nánari upplýsingar á eða í símum 894-296 ír a www.snocross.is 2967 og 898-2099 'd-LÍUU MRCTKCáT JPT i i garjsberq I.SIGMUNDSSON MOTORSPORTS ,\sprCt MOTUl ^sprent GPediSmyndir' JBjt ÁmiHekMsxm W-tf/7' Vtrkfkl 6l7f*flrtl hönmm: ^PtfdfontyrnJii'' www.pedrofny.ndir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.