Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2003, Qupperneq 8
„Framtiðin er svolítið óljós því
ég er að bíða eftir svari frá
nokkrum skólum sem ég var að
sækja um f Svfþjóð. Þar langar mig
að læra Design Management sem er
eiginlega viðskiptafræði með „krea-
tífu“ fvafi. Ég ólst upp í viðskiptaum-
hverfi en hef alltaf haft áhuga á hönnum
svo það er fínt að sameina þaðsegir hin
rétt tæplega 21 árs Signý Kristinsdóttir
þegar Fókus slær á þráðinn til hennar.
Signý hefur unnið sér það til frægðar að
hún varð í öðru sæti f Ungfrú ísland.is í fyrra
en sfðan þá hefur ekki mikið borið á henni.
Það er kannski ekki skrýtið því hún hefur haft
í nógu að snúast við að klára stúdentsprófið af
listabraut í FB um sfðustu jól auk þess sem hún
á dótturina Birtu Líf sem er að verða þriggja
ára. Þegar Signý er spurð út f nafngiftina á dótt-
urinni segir hún það eins konar þýðingu á
Bright Life úr enskri tungu. Þessa dagana vinn-
ur Signý hjá heildverslunínni Echo. Hún lýsir
sjálfri sér þannig að f henni blundi bæði bis-
nesskona og svo listræna og skapandi týpan,
enda sé hún ítvíburamerkinu. „Ég er búin að vera
að skrifa Ijód og fleira í ellefu ár, mest fyrir sjálfa
mig þótt það sé alltaf gamanað koma sér á fram-
færi.“ Þegar Signý er ekki að vinna, sinna dóttur
sinni eða skrifa segist hún alltaf gefa sér tfma til
að rækta sjálfa sig og sálina, eins og hún orðar
það. „Ég hef mjög gaman af því að lesa og taka
Ijósmyndir, svo ég nefni eitthvað. Mér finnst
ég alítaf þurfa að vera að gera eitthvað
skapandi.“
Hvað sérðu þig gera í framtíðinni?
,,Ég sé mig alla vega ekki sem týpíska 9-5
manneskju. Ég held ég vilji vinna f ein-
hverju meira skapandi, þess vegna fór
ég til að mynda ekki f viðskiptafræði
þvf ég vildi alls ekki lenda í bókhaldi
eða einhverju slfku.“
Signý er á lausu og það virðist
ekki ætla að breytast á næstunni.
„Ég stefni náttúrlega að þvf að
fara út þannig það er kannski
best ad halda því þannig.“ Og
hún sendir karlmönnum skýr
skilabod: „Það virðist voða-
lega erfitt að finna jafn-
ingja á manns aldri sem er
nógu þroskaður og er tilbú-
inn að axla einhverja
ábyrgð.“ Heyriði það
drengir ...
Fokusmynd: Hari
Förðun:
Elín Reynisdóttir
1