Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2003, Qupperneq 10
Flytjandi: Ymsir
Platan:
Útgefandi: Universal/Skífan
Lengd: 77:58 mín.
Poppmolar
Flytjandi: Eg
Platan: Skemmtileg fög
Útgefandi: íslenskar járnbrautir
Lengd: 46:21 mín.
vrir
vern i
skemmtlleaar niSurstaða
staðreyndir
Fugees gera upp feriunn
The Fugees var fyrir margra
hluta sakir tímamótasveit í
rappheiminum. í tónlistinni
þeirra var blandað saman hip-
hoppi og poppi og útkoman var
tónlist sem höfðaði til mun
breiðari hóps heldur en hip-hop
fram að þvf. Hljómsveitin sló
rækilega í gegn með plötunni The Score sem innihélt m.a.
smellina Killing Me Softly, Fu-Gee-La, Ready or Not og No
Woman No Cry. f kjölfarið urðu Fugees heitasta nafnið ftón-
listarheiminum og spiluðu á tónleikum úti um allan heim, þ.á
m. í Laugardalshöllinni árið 1997. Eftir það slitnaði upp úr
samstarfinu og þau Lauryn Hitl, Pras og Wyclef Jean héldu
hvert í sfna áttina ... Mörgum finnst að sólóplöturnar þeirra
hafi aldrei náð sömu hæðum og Fugees-plöturnar og lengi
var vonast til að sveitin sem aldrei hætti formlega kæmi
saman aftur og gerði nýja plötu. Líkurnar á því fara minnk-
andi ef eitthvað er en nýverið kom út safnplatan Greatest
Hits með bestu lögum sveitarinnar. Á henni eru allir smell-
irnir en líka remix og tónleikaupptökur, m.a. þeirra útgáfa af
meistaraverki Sam Cooke, A Change Is Gonna Come...
Afmælisútgáfa af Aladdin Sane
Það færist í aukana að gefa út
sérstakar tvöfaldar viðhafnarút-
gáfur af gömlum meistaraverk-
um úr rokksögunni. Þegar geisla-
diskarnir komu fyrst fram voru
gömlu plöturnar gqfnar út
óbreyttar en endurhljóðblandað-
ar. Næsta kynslóð var útgáfa með
aukalögum en í dag er komin
þriðja kynslóðin: Sérstakar út-
gáfur með aukadiski með ýmsum upptökum frá sama tíma
og viðkomandi plata. Dæmi um plötur sem hafa fengið þessa
meðferð undanfarið er What’s Going on með Marvin Gaye,
Exodus með Bob Marley, fyrsta Violent Femmes-platan,
Slanted 6 Enchanted með Pavement, Dirty með Sonic Youth
og svo Ziggy Stardust með David Bowie sem kom út í fyrra.
Það var sérstaklega gtæsileg útgáfa sem var m.a. valin besta
endurútgáfa ársins af tímaritinu Record Collector. Ef ein-
hver hefur vit á endurútgáfum eru það nördarnir sem skrifa
á það blað ... Góðu fréttirnar eru að Aladdin Sane, sem er
næsta Bowie-plata í röðinni, fær sömu meðferð. Tvöföld 30
ára afmælisútgáfa af henni kemur út 26. maí. Aladdin Sane
er eitt af meistaraverkum Bowies og innihetdur lög eins og
Time, The Jean Genie og Cracked Actor. Á aukaplötunni eru
m.a. lögin All the Young Dudes, John l'm Only Dancing og
áður óútgefnar tónleikaupptökur.
Og líka ...
New York-sveitin The Rapture (mynd) sem margir töldu
vera bestu hljómsveit síðustu Airwaves-hátíðar stefnir að
því að gefa út sína fyrstu plötu í fullri lengs í ágúst nk. Hún
hefur fengið nafnið Echoes og var tekin upp og pródúseruð
af þeim DFA-félögum í Williamsburg í Brooklyn en þeir eru
af mörgum taldir ferskustu pródúserarnir í rokkinu í dag...
Lou Reed er þessa dagana að spila fyrstu tónleikana á miktu
tónleikaferðalagi sem stendur fram iTokjúníog kemur mjög
víða við í Bandaríkjunum og Evrópu. Ný safnplata frá honum,
NYC Man, er væntanleg 15. maí... Dagana 7. og 8. júnt fer
fram Field Day .tónlistarhátfðin í Calverton í New York. Á
meðal þeirra sem koma fram eru Radiohead, Beck, Thievery
Corporation, Interpol, Royksopp, Liz Phair, Tortoise, The Ra-
veonettes, The Beastie Boys, The Roots, Blur, Elliott Smith,
N.E.R.D, Biackalicious, The Music og Sigur Rós... EMI, V2 og
Sancury eru á meðal þeirra plötu
fyrirtækja sem Courtney Love á f
viðræðum við en hún leitar að
úgefanda fyrir sólóplötuna sfna
America’s Sweatheart sem er
væntanleg fyrir árslok... DVD með
öllum myndböndum Pixies,
nokkrum tónleikum í heild sinni,
heimildarmynd o.fl. er væntan-
legt frá 4AD f haust.
Ástralska þungarokkshljómsveitin AC/DC fagnar 30 ára starfsafmæli
á árinu. Hún var nýlega tekin inn í heiðursflokk rokktónlistarmanna
(Rock and Roll Hall of Fame) og fagnar afmælinu með endurútgáfu á
fyrstu 15 plötunum. Trausti Julíusson rifjaði upp feril sveitarinnar
sem virðist enn höfða sterkt til ungra og upprennandi rokkara.
hva ð
Frábær plata. Maöur tekur fyrst eftir
tökulögunum. Meöferóin á Teen Spirit
er t.d. meiri háttar og Heart of Glass
er algjör sprengja. Hins vegar eru
frumsömdu lögin mörg hver ekkert
síðri. Krafturinn í sveitinni er ótrúlegur
miöaö viö hljóðfæraskipanina og oft
nær hún upp bullandi grúvi.
trausti júlíusson
Þaö er augljóst aö strákarnir í Ég hafa mjög
gaman af því sem þeir gera á plötunni. Þeir
gátu kannski ekki leyft sér allt það sem
,stærri‘ hljómsveitir geta við vinnslu plöt-
unnar en spilagleöin skín í gegn og þaö tel-
ur þeim til tekna. Fyrstu fimm lögin standa
upp úr ásamt laginu um Noel Gallagher en
önnur eru ekki eins sterk. Prýöisgóð
frumraun og vonandi fáum við að heyra
meira. höskuldur magnússon
Þetta er skemmtileg plata eins og viö
var aö búast, enda er stemningin í
svona tónlist frábær og grúvin sem
hinir indversku hljómlistarmenn (sem
njóta víst lítillar viröingar ( heimaland-
inu) framkalla oft mjög flott. Maður
skilur vel aö smekkmenn eins og Dre
og Timbaland skuli sækja í þahnan
gnægtabrunn. Sígild partíplatal
traustl júliusson
plö^udómar
oft subbulegir og aigerlega lausir
við pólitíska rétthugsun. AC/DC
átti bara að vera einföld skemmt-
un beint í andlitið á áhorfendum
og var andsvar við hinum háþró-
uðu og meðvituðu stórsveitum sem
voru allsráðandi í byrjun áttunda
áratugarins og höfðu þróast upp úr
hipparokkinu. AC/DC þótti alls
ekki fínn pappfr í byrjun. I Rolling
Stone var High Voltage úthúðað
sem algjöru rusli og sveitin sögð
„nýr botn í hörðu rokki“... Eftir
Dirty Deeds hætti Mark Evans og
Cliff Williams tók við á bassan-
um. Let There Be Rock kom út
1977. Ari seinna kom tónleika-
platan If You Want Blood You
Got It en það var platan Highway
to Hell sem gerði sveitina heims-
þekkta ári seinna en titillagið náði
17. sæti í Bandaríkjunum og 8.
sæti f Bretlandi.
Bon Scott drekkur sig í hel
Þann 19. febrúar 1980 varð
hljómsveitin fyrir miklu áfalli þeg-
ar Bon Scott fannst látinn í aftursæti bíls í London. Dánar-
vottorðið sagði að hann hefði „drukkið sig til dauða“ en hann
hafði sofnað í aftursætinu kvöldið áður eftir stífa drykkjutöm og
síðan kafhað í eigin ælu. Hljómsveitin tók sér samt ekki langt
hlé því bræðumir hófu fljótlega að æfa saman nýtt efhi til þess
aðreyna að vinna sig út úr áfallinu. Þeir prófuðu nokkra nýja
söngvara og völdu á endanum Brian Johnson, Englending frá
Newcastle. Saman gerði þessi nýja hljóðfæraskipan plötuna
Back in Black sem kom út seinna á árinu. Plötuumslagið var al-
svart til minningar um Bon Scott. Back in Black er almennt
talin meisiarverk AC/DC. Platan fór beint í fyrsta sæti banda-
ríska vinsældalistans og seldust milljón eintök f fyrstu vikunni.
Back in Black er gjaman á listum yfir bestu rokkplötur allra
tíma og hún er lfka enn í dag fjórða mest selda rokkplata sög-
unnar. 41 milljón eintök eru seld og þar af 19 milljón í Banda-
ríkjunum. Platan inniheldur marga smelli, t.d. You Shook Me
All Night Long, Hells Bells og Back in Black.
Enn öflug tónleikasveit
Vinsældir ACfDC dvfnuðu heldur á seinni hluta níunda
áratugarins en hljómsveitin átti glæsta endurkomu með plöt-
unni The Razors Edge sem kom út 1990 og innihélt m.a. ofur-
smellinn Thunderstmck. Almenningsálitið á sveitinni hafði á
þeim tíma batnað töluvert. „Ég held að fólk hafi áttað sig og
hugsað: „Hey! þeir átu ekki börnin okkar eftir allt. Þeir steiktu
þau ekki!““ sagði Angus Young hlæjandi þegar hann var spurð-
ur að því nýlega af hverju ímynd sveitarinnar hefði batnað.
AC/DC þykir ekki hafa þróast mikið tónlistarlega á ferlinum
þó að enn sé hún talin meðal öflugustu tónleikasveita.
Malcolm Young hefur þetta um málið að segja: „Við erum sak-
aðir um að gera alltaf sömu hlutina og að sjálfsögðu erum við
ekki listræn hljómsveit eða hljómsveit með þoðskap. Eini boð-
skapurinn okkar er að fólk skemmti sér. Við höldum okkur við
hann.“
Þetta er safn af tónlist jjr indverskum
Bollywood-myndum. Fyrir lengra
komna er kominn út þriggja diska
pakkinn The Music of Bollywood en
þessi plata er safn af því besta úr
þeim pakka á mjög hagstæðu kynning-
arveröi. Hér er að finna tónlist úr
nokkrum af vinsælustu Bollywood-
myndunum, t.d. Sholay og Chori Chori
Chupke Chupke.
The Bad Plus, sem stundum er kallaö
„háværasta píanó-tríó sögunnar", spil-
ar mjög kraftmikinn djass sem sækir
áhrif í rokk, popp og danstónlist. Þetta
er samt ekki neinn bræðingur, heldur
innlima þeir félagar poppið og rokkiö í
djassinn. Þessi plata ætti að höfða
jafnt til djass- og poppáhugamanna
sem eru opnir fyrir nýjum hlutum.
Skemmtileg lög, veröur best lýst sem
rokkplötu meö fótboltaþema. Hljóm-
sveitin styðst við heföbundna hljóö-
færaskipan en þeir drengir eru dugleg-
ir viö að radda og lyftir þaö plötunni
talsvert. Við fýrstu sýn og hlustun virö-
ist platan algert rusl. Umslagiö af af-
spyrnuljótt og lögin virka ekki sterk.
Þaö breytist þó fljótt þegar platan fær
aö rúlla nokkrum sinnum á fóninum.
Þeir sem eru að sleppa sér yfir Panjabi
MC ættu kannski að tékka á þessari
plötu til þess aö heyra hvaðan hann
kemur. Svo er þetta lika tónlist sem
ætti aö höföa til þeirra fjölmörgu ís-
lendinga sem eru farnir aö stunda
magadans og líka tónlist fyrir alla þá
sem hafa húmor fyrir þeirri ofur-
stíliseruðu rómantík sem einkennir
Bollywood-myndirnar.
The Bad Plus á rætur í ýmsum djass-
kombóum í Miövesturríkjunum en
hljómsveitin í núverandi mynd varð til
áriö 2000. Áriö 2001 kom fyrsta plat-
an út hjá spænsku smáfyrirtæki en
eftir tónleika á Village Vanguard-
klúbbnum í New York í fyrra gerði sveit-
in samning viö Columbia-plötufýrirtæk-
ið. Chad Blake (Pearl Jam, Peter
Gabriel, Tom Waits) pródúserar.
Þaö hefur lítiö heyrst frá Ég að undan-
förnu. Þaö gæti kannski verið skýrt
meö því aö þeir hafi verið uppteknir við
aö fylgiast meö síðustp vikum Evrópu-
fótboltans. Alla vega virðast þeir alger-
ir fanatíkerar þegar kemur aö þeirri
íþrótt því að í tveimur lögum syngja þeir
um fótbolta og umslagið er undirlagt af
knattspyrnutengdu efni. Á næstunni
mun sveitin þó leika á fjölda tónleika.
Þaö er mikiö sótt í indverska tónlist í
dag. Hip-hop pródúserar eins og
Timbaland, Missy Elliott og Dr. Dre
sækja stíft í þessa tónlist og bhangra-
tónlistin, sem hefur kraumað undir
niöri í Bretlandi undanfarin ár, er konv
in upp á yfirborðið meö lagi Panjabi
MC, Mundian to Bach Ke sem sampF
ar þemalagið úr Bollywood-myndinni
Knight Rider.
The Bad Plus er ein af uppgötvunum
ársins í Bandarikjunum. Þetta er
djasstrió skipaö bassaleikaranum
Reid Anderson, píanóleikaranum Eth-
an Iverson og trommuleikaranum Dav-
id King. Þeir hafa vakiö mikla athygli,
m.a. fyrir nýstárlegar útgáfur á lögum
eins og Smells Like Teen Spirit eftir
Nirvana, Blondie-laginu Heart of Glass
og Film eftir Aphex Twin.
Fyrsta plata hljómsveitarinnar Ég sem
kom út fyrir síðustu Jól. Platan hvarf í
útgáfuhafiö þá enda erfitt fyrir unga
menn meö titll efni að keppa viö ís-
lenska útgáfurisa. Ég skipa Róbert
Örn Hjálmtýsson, Steindór Ingi Snorra-
son, Baldur Sivertsen Bjarnason, Arn-
ar Hugi Hreiðarsson og Siguröur Breið-
fjörö Jónsson.
Flytjandi: The Bad Plus
Platan: These Are Thi
Útgefandi: Columþia/Skífan
Lengd:56:38 mín.
Þegar við vorum að byrja í Ástr-
alíu spiluðum við mest á pöbbum.
Stórum pöbbum sem taka svona
600-1.000 manns,“ segir
Malcolm Young gítarleikari
AC/DC í nýlegu viðtali um það
hvernig tónlistin þeirra varð eins
hörð og hröð og raun ber vitni,
„Þama voru aðallega harðir naglar
komnir til þess að skemmta sér. Ef
við hefðum spilað einhver róleg
lög hefði bara einhverju verið
hent í okkur.“
Fyrstu 15 AC/DC-plötumar
verða endurútgefnar núna á árinu.
Fyrstu fimm: High Voltage
(1976), Dirty Deeds Done Dirt
Cheap (1976), Highway to Hell
(1979), Back in Black (1980) og
Live komu í marsmánuði og
næstu fimm, Let There Be Rock
(1977), Powerage (1978), For
Those. About to Rock We Salute
Yóu (1981), Who Made Who
(1986) og The Razors Edge
(1990) ættu að vera að koma { ________________________
verslanir þessa dagana. Plötumar
innihalda engin aukalög en eru endurhljóðblandaðar og koma
í mjög veglegum digipak-umbúðum.
SUBBULEGIR STUÐBOLTAR
AC/DC var stofhuð í Sydney í Ástralíu árið 1973 af gítarleik-
aranum Malcoim Young eftir að fyrri hljómsveitin hans,The
Velvet Underground (á ekkert skylt við New York-sveitina
með sama nafhi!), lagði upp laupana. Yngri bróðir hans, Angus,
var sólógítarleikari. I byrjun hljóðrituðu þeir smáskífuna Can 1
Sit Next to You með söngvaranum Dave Evans, en ári seinna
fluttu þeir til Melboume. Þar gengu trommuleikarinn Phil
Rudd pg bassaleikarinn Mark Evans til liðs við þá og bílstjór-
inn þeírra, Bon Scott, tók við sem söngvari þegar Dave neitaði
einn daginn að fara á svið. Þegar Angus byrjaði í hljómsveitinni
var hann bara 15 ára og systir hans stakk upp á því við hann að
hann færi á svið í skólabúningnum sfnum. Skólabúningurinn
varð fljótlega eitt af einkennum AC/DC. Annað sem setti svip
á sveitina strax í byrjun var karakter Bons Scotts. Hann hafði
verið trommuleikari í poppsveitunum Fratemity og The Val-
entines en það sem skipti meira máli var það orðspor sem fór af
honum. Hann átti að baki nokkra dóma fyrir minni háttar
glæpi og ástralski herinn hafði hafnað honum vegna þess að
hann þótti samfélagslega óhæfur. Þetta styrkti ímynd sveitar-
innar sem subbulegra harðjaxla.
„Nýr botn í hörðu rokki"
ACfDC gaf út sínar fyrstu tvær plötur í Ástralíu eingöngu.
Þetta voru High Voltage, sem kom út 1974, og TNT sem kom
ári seinna. Efni af þessum tveimur plötum var safnað saman á
fyrstu alþjóðlegu plötuna sem kom út 1976 og fékk nafnið High
Voltage. Seinna sama ár kom svo Dirty Deeds Done Dirt
Cheap. Tónlist AC/DC í byrjun var einfalt og kraftmikið
þungarokk með miklum blúsáhrifum. Lögin voru einföld og
grfpandi gítarriff áberandi. Textamir voru mjög ungæðislegir,
AC/DC nýtur enn
mikillar hylli.
Meistaraverk sveit-
arinnar, Back in
Black ,hefur selst f
yfir 41 miltjón ein-
taka og er fjórða
mest selda rokk-
plata sögunnar.
Ekki listræn sveit
með boðskap
10
9. maÍ2003