Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Blaðsíða 13
Tónleikastaðurinn Astoria er enn opinn en borgaryfirvöld hótuðu að loka honum eftir að
skotárás átti sér stað fyrir utan hann þegar So Solid Crew voru þar með tónleika.
hægt að detta niður á flottar hljómsveitir á
þessum stöðum þó að auðvitað sé líka vel
mögulegt að maður lendi á einhverri með-
almennskusveit sem maður á aldrei eftir að
heyra minnst á framar.
Fjölbreytt klúbbaflóra
Danstónlistar- og klúbbalífið er sérstak-
lega öflugt í London og miklu meira að
gerast í borginni heldur en öðrum stór-
borgum, hvort sem það er París eða New
York. A sæmilegu kvöldi er hægt að velja
á milli 50 klúbba-kvölda og fjölbreytnin
er mjög mikil, allt frá house, teknó, drum
& bass og UK garage yfir í fönk, reggí,
soul, diskó, latin eða bara rokk. Þeir sem
hafa áhuga á klúbbamenningunni ættu að
tékka á stóru metnaðarfullu stöðunum —
klúbbum eins og Fabric, The End, Scala,
333 og Mass. Þessir staðir leggja mikið í
tónlistina sjálfa en gera minna út á glam-
úrinn. Dagskráin getur verið mjög misjöfn
kvöld frá kvöldi. Eitt kvöldið er kannski
Warp-útgáfan með allar þrjár hæðimar í
Scala og þá getur maður séð stórstjömur
Á sæmilegu kvöldi er
hægt að velja á milli 50
klúbba-kvölda og fjöl-
breytnin er mjög mikil,
allt frá house, teknó,
drum & bass og UK ga-
rage yfir í fönk, reggí,
soul, diskó, latin eða
bara rokk.
eins og Aphex Twin á bak við spilarana;
næsta kvöld er það svo eitthvað allt annað.
Dagskrána má sjá í Time Out og eins er
hægt að finna flesta stóru klúbbana á Net-
inu. Fabric er framsæknastur af stóm
klúbbunum. Á föstudögum er t.d. alltaf
Fabric Live. Þá er hægt að sjá hljómsveit-
ir eins og UNKLE, Chemical Brothers
eða Scratch Perverts á aðalhæðinni en f
minni sölunum em drum & bass og break-
beat-snúðar. Grooverider, Roni Size, Pes-
hay og Fabio eru bara nokkrir af fasta-
snúðunum. The End er líka mikill gæða-
klúbbur. Næsta stóra kvöld þar verður
þann 31. maí nk. þegar þeir Darren Em-
erson og Timo Maas mætast á Und-
erwater Vs. Do This Do That-kvöldi. Af
glamúr-house-klúbbunum má nefha
Fridge í Brixton og svo frægasta klúbb
Bretlands, Ministry Of Sound. Tónlistin
þar er ekki alltaf mjög spennandi en
klúbburinn sjálfur er sérstaklega flottur og
svo eru líka reglulega stórviðburðir þar. 31.
maí nk. mæta t.d. sjálfir Masters At
Work á svæðið og spila 9 tíma sett! Mis-
jafnt er hvenær klúbbamir em opnir en
flestir eru þeir opnir a.m.k. til 2 virka daga
og 5-6 um helgar.
Flesta daga er hægt að finna spennandi
klúbbakvöld út um alla borg. Á miðviku-
dagskvöldum er t.d. hægt að velja á milli
!K7-kvölds, sem heitir eftir samnefndri
plötuútgáfu í Þýskalandi, Death Disco-
kvölds, sem er stjómað af Alan McGee,
fyrrum Oasis-umba, og svo tískuklúbbs
síðustu mánaða Nag, Nag, Nag, en hann
er einn af höfuðklúbbum elektroclash-
tónlistarinnar. Þama er spilað elektró,
pönk og diskó og svo tónlist hljómsveita
eins og The Rapture, Electric 6 og LCD
Soundsystem. Plötusnúðamir á Nag, Nag,
Nag em kannski ekki allir frægir en gest-
imir eru það oft á tíðum. Björk, Boy Ge-
orge, Pet Shop Boys, Sophie Ellis
Baxtor, Squarepusher, Bobbie Gillespie
og meðlimir Strokes og White Stripes em
á meðal þeirra sem hefur sést til á staðnum
undanfama mánuði. ...
Veisluborð plötusafnarans
Plötubúðir em úti um allt í London.
Flestir ramba strax á stóm keðjubúðimar:
Virgin Megastore, HMV og Tower
Records. Bæði Virgin og HMV em með
flaggskipin sín á Oxford Street, austan við
Oxford Circus, en stærsta Tower-búðin er
á Piccadilly Circus. Það er gott úrval t
þessum búðum og fyrir þá sem ekki hafa
mikinn tíma þá eru þær besti kosturinn
þó að þær séu ekki ódýrar. Þeim sem vilja
fá meira fyrir peninginn er bent á nýja búð
sem er um það bil mitt á milli HMV og
Virgin Megastore á Oxford Street. Hún
heitir Music Zone og, eins og slagorðið
þeirra, „Don’t Feed The Fat Cats“, gefur
til kynna er þeirra markmið að vera alltaf
ódýrari. Nýjar plötur í Music Zone em
aldrei dýrari en 12 pund og fást oft á 10
pund, en eldri útgáfúr, bæði geisladiskar
og DVD, em oft á ævintýralega lágu verði.
Þeir sem em að leita að einhverju sér-
stöku hafa svo marga möguleika. Plötu-
búðir em út um allt en við skulum einbeita
okkur að Soho, Camden og Notthing Hill
Gate. I Soho er allt krökkt af plötubúðum.
Gatan Berwick Street liggur suður af Ox-
ford Street, skammt frá stóm HMV-búð-
inni. Við þessa frekar stuttu götu em 9
plötubúðir, þ.á m. tvær tilboðsverðsbúðir
(Mr. CD er betri), reggíbúllan Daddy
Kool, þrjár búðir með notaðar plötur og svo
tvær gamlar og grónar indie-verslanir,
Sister Ray og Selectadisc. Sú síðamefnda
er ein af bestu plötubúðunum sem undir-
ritaður hefúr komið í. Urvalið er mjög mik-
ið, hvort sem um er að ræða rokk, raftón-
list, reggt, dmm &. bass eða hip-hop. Þama
má finna fullt af plötum sem ekki em til í
keðjubúðunum og verðið er undantekning-
arlítið töluvert lægra. I hliðargötum frá
Berwick Street em líka tvær athyglisverð-
ar búðir, Blackmarket Records (við
D’Arblay Street), sem er ein af ffægustu
danstónlistarbúðum Bretlands, og Sounds
Of The Universe (við Broadwick Street)
sem er verslun Soul-Jazz-útgáfunnar.
I Notting Hill em nokkrar ágætar
plötubúðir. Frægust þeirra er hin goðsagna-
kennda Rough Trade Records (130 Tal-
bot Road, W11 ÍJA) sem var lengi Mekka
neðanjarðar-rokksins og óháða geirans. Þar
má enn finna ýmsar óháðar útgáfur sem
ekki em fáanlegar annars staðar, pönk og
raftónlist, svo eitthvað sé nefnt. Svo er
líka gaman að fara í búðimar Music &
Video Exchange á Notting Hill Gate.
Þetta eru verslanir með notaðar plötur sem
hægt er að finna víða í borginni. Fjórar
þeirra em á Notting Hill-svæðinu. Kerfið
hjá Music & Video Exchange er þannig að
ef platan selst ekki þessa vikuna þá er hún
lækkuð um eitt pund og þannig heldur það
áffam þar til hún annaðhvort selst eða
endar í einhverjum tilboðskjallaranum.
Þama er oft hægt að gera ævintýraleg
kaup en svo koma líka dagar sem maður
finnur lítið.
Loks er það Camden. Þar em búðir eins
og Rhythm Records og Music & Video
London er sennilega sú
borg sem fylgist best
með nýjungum í tónlist-
arheiminum og þess
vegna er hægt að sjá
mjög mikið af ungum og
upprennandi hljómsveit-
um spila í borginni, bæði
enskum og amerískum.
Exchange (báðar á Camden High Street),
og svo er líka hægt að finna ýmislegt þar
sem ekki fæst annars staðar. Á markaðnum
um helgar er hægt að fá alls konar ólögleg-
ar upptökur, hvort sem um er að ræða sjó-
ræningjaútgáfur af útgefnu efni, óútgefna
mixdiska með mörgum af þekktustu plötu-
snúðum heims eða ólöglegar tónleikaupp-
tökur. Á einum básnum í Camden Canal
Market fann undirritaður t.d. yfir 20 boot-
legga með David Bowie og ólíkt því sem
áður tíðkaðist, þegar svona efhi var aðallega
fáanlegt á kassettum, þá eru margar geisla-
diskaútgáfumar mjög flottar - gefa hinum
löglegu og opinberu ekkert eftir ...
Trausti Júlíusson
Tónleikar f
sumar
Nokkrir tónleikar sem fyrirhug-
aðir eru f London í sumar. Þetta
er brotabrot af því sem þegar er
ákveðið og í hverri viku bætist
við fjöldi nýrra tónleika:
MAÍ:
23. The Dandy Wathols
24. Björk
24.-25. Radiohead
26.-27. Bruce Springsteen
JÚNÍ:
4. Marilyn Manson
6. AFI
6.-8. Nick Cave b The Bad Seeds
12. Grandaddy
21. Deep Purple 6 Lynard Skynard
21.-23. Eminem
22. -23. Queens of the Stone Age
24. Interpol
JÚLÍ:
1.-2. David Holmes Presents the
Free Association
4. The Polyphonic Spree
9. Dave Gahan
13. James Brown
ÁCÚST
1.-3. Robbie Williams & Kelly Os-
bourne
23. -24, 27, 29. The Rolling Stones
Tónlistar-
hátfðir
Meltdown-hátfðin
Þessi hátíð er haldin í júní hvert
ár í Royal Festival Hall á Suður-
bakkanum. Dagskráin er valin af
nýjum aðila ár hvert. Á meðat
þeirra sem hafa stjórnað dag-
skránni undanfarin ár eru David
Bowie, John Peel, Elvis Costello
og Nick Cave. f ár er það dub-
snillingurinn Lee Scratch Perry.
Á meðal atriða eru Public Enemy
(10. júnO, Tortoise ásamt Lee
Scratch Perry og The Mad Pro-
fessor (ll), Tricky (16), Linton
Kwesi Johnson 6 The Dennis
Bovell Dub Band (20, Macy Gray
og Lee Scratch Perry (27) og Asi-
an Dub Foundation (30).
Reading-hátfðin
Hún er ekki haldin í London en
ótrúlega stutt og auðvelt er að
komast til Readingfrá borginni.
Hátíðin í ár fer fram dagana
22. -24. ágúst. Metallica, System
Of A Down, Blur, The White
Stripes, Yeah Yeah Yeahs o.m.fl.
eru á meðal þátttakenda. Lítið
eftir af miðum.
Notting Hili Carnival
Ótrúlega vinsæl götuhátíð í
Notting Hill-hverfinu. í ár er hún
haldin dagana 24.-25. ágúst.
Stórt svæði er alveg undirtagt og
tónlist á hverju horni, bæði lif-
andi tónlist og plötusnúðar.
Milljón manns að troðast t góðri
stemningu. Einstök upplifun.
Jazz In The Streets
Djasshátíð f Soho og Covent Gar-
den. Haldin dagana 19.-27. júní.
16. maí2003 fókus
13