Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2003, Blaðsíða 14
Á hverju ári koma á markaðinn mörg hundruð kvikmyndir sem eru misjafnar eins og þær eru margar.
Og það gefur augaleið að þær komast ekki allar að í bíói. Þær kvikmyndir sem hljóta þau örlög þykja
oftar en ekki í lakari kantinum en öðru hverju leynast á milli myndir sem vert er að sjá. Fókus kíkti
aðeins á myndbandamarkaðinn og spurði hvað ráði því hvort kvikmyndir fá sýningu í kvikmyndahús-
um eða fara hreinlega „beint á vídjó“.
Ekki gleyma þessum ...
„Oftar en ekki em það kvikmyndaverin í Bandaríkjunum
sem stjóma því hvort myndir fara í kvikmyndahús eða
beint á myndbandaleigumar," segir Ómar Friðleifsson,
sölustjóri leigumyndbanda hjá SAM-myndböndum. „Það
kemur einnig líka til að sú ákvörðun er tekin hjá okkur en
þá er það einungis fjárhagsleg ákvörðunartaka — það getur
verið dýrt að sýna mynd í kviktnyndahúsum sem fær litla
sem enga aðsókn.“
En skyldi það vera dauðadómur fyrir kvikmyndir að fá
ekki sýningu í bíóum? Vissulega að því leyti að þá strax er
viðkomandi kvikmynd búin að fá á sig þann stimpil að hún
þyki ekki nógu góð fyrir bíóin. „Hinn almenni kúnni er
ekki að leita sér að kvikmynd til að leigja. Og þá spilar það
stórt hlutverk að ef mynd er ekki búin að fá þá auglýsingu
og umfjöllun sem fylgir því að hún sé sýnd í bíói þá verður
hún undir. Það er ekki nema fyrir allra hörðustu kvik-
myndaáhugamenn sem vilja sjá sem mest og jafnvel allar
myndir með sínum uppáhaldsleikara og svo framvegis," seg-
ir Ómar.
Það virðist samt sem áður skjóta skökku við að sumar
myndir sem fá sýningu í bíóhúsum landsins eru hreinlega
slæmar á meðan fullt af góðum myndum týnist í mynd-
bandaflóðinu á vídeóleigunum. En eins og Ómar segir er sú
ákvörðun oftast tekin, hvaða myndir fara í bíó og hvaða ekki,
hjá dreifingaraðilum í Bandaríkjunum. „Oft er látið eitt og hið
sama gilda um öll Evrópulönd hvað dreifingu varðar og þýðir þá
lítið fyrir okkur að reyna að fá myndir í sýningu héma á Islandi.
Það stóð til dæmis aldrei til að sýna The Salton Sea (með Val
Kilmer) í bíóhúsum í Evrópu og þurftum við að berjast með
kjafti og klóm til að fá að sýna hana í íslenskum bíóum,“ segir
Ómar.
Það þýðir því lítið að bölva íslenskum dreifingaraðilum í sand
og ösku, í flestum tilfellum er þessi ákvörðun tekin í Bandaríkj-
unum. Viðkomandi framleiðandi telur kannski myndina vera
mistök, eftir á að hyggja, og leggur ekki í að firamleiða hana í
tugþúsunda tali fyrir kvikmyndahús í Evrópu og víðar, enda
mun ódýrara að fjölfalda kvikmyndir á myndbönd en að búa til
eftirprent á filmum svo hún sé sýningarhæf í kvikmyndahús-
um. Það er því um að gera að fyígjast vel með, því oft leynist
gullmoli inn á milli sem einhverra hluta vegna hlaut ekki náð
fyrir augum yfirmanna og markaðssérfræðinga sem halda til í
cárum hluta heimsins. Hér á síðunni er bent á nokkrar mynd-
ir, góðar og slæmar, sem fóru beint á myndbandaleigumar en er
ef til vill vert að gefa gaum.
Ghost World
Leikstjórinn Terry Zwigoff, sem hafði slegið í gegn með heimilda-
mynd sinni um hinn sérvitra Robert Crumb, neitaði að taka þátt í
farsanum sem viðgengst í Hollywood og hafnaði meðal annars tilboði
að leikstýra The Virgin Suicides.sem Sofia Coppola tók að sér á end-
anum. Þess í stað barðist hann hart fyrir því að fá að gera Ghost World
sem byggist á samnefndri myndasögu um tvær unglingsstúlkur í til-
vistarkreppu. Myndin skartar Thom Birch og Scarlett Johans-
son og hefur fengið einróma lof gagnrýnenda hvert sem hún fer.
Rules of Attraction
Sjarmörinn James Van Der Beek (Dawson’s Creek) fer hér á
kostum í unglingakynlífsmynd af bestu gerð. Hún segir frá
flóknum ástarþríhymingi sem myndast á háskólaheimavist á
miðjum 9. áratugnum, þar sem hinn tvíkynhneigði Paul elskar
Sean, Sean elskar Lauren, sem á kærastann Victor en elskar
bæði Sean og Victor. Herbergisfélagi Lauren, Lara, er líka skot-
in í Victor sem heldur í langt ffí til Evrópu og fara þá hlutirnir
að gerast.
Donnie Darko
Donnie Darko var af mörgum kvikmyndamógúlum hyllt sem ein
af bestu myndum síðasta árs enda fyrsta flokks hrollvekja á ferð. Hún
segir frá unglingspilti sem sleppur naumlega úr lífshættulegum að-
stæðum af því að hann heyrði rödd tæpra tveggja metra hárrar kan-
ínu í draumi sfnum. Hann fær í kjölfarið reglulegar heimsóknir frá
kanínunni sem fær hann til að gera
Lantana
Áströlsk spennumynd með Geoffrey Rush í aðalhlut-
verki. Hún segir frá dularfúllum dauðdaga ónefndrar
konu þar sem lögreglurannsókn ber lítinn árangur í
byrjun. En þegar á líður flækist sífellt fleira fólk inn í
söguþráðinn sem leysist ekki í blálokin, líkt og í
Magnolia og Short Cuts, fyrir þá sem þær myndir
þekkja.
SWEPT AWAY
Hjónakomin Guy Ritchie og Madonna réðust í endurgeið
ítalskrar myndar frá árinu 1974. Hún segir frá ríkri, snobbaðri
konu og stýrimanni á skemmtiferðaskipi sem verða strandaglóp-
ar á eyðieyju. Myndin hlaut svo slæma dóma í Bandaríkjunum
að hún komst aldrei í kvikmyndahús í Evrópu.
Interstate 60
Það er einvalalið þekktra leikara sem koma
fram í þessari mynd. Michael J. Fox leikur
smáhlutverk í byrjun myndarinnar en aðal-
hlutverkin eru í höndum James Marsden og
Gary Oldman. Christopher Lloyd og Chris
Cooper koma við sögu sem og þokkadísimar
Amy Smart og Amy Jo Johnson. Mikil ádeila
á bandaríska menningu.
Ash Wednesday
Edward Bums hefúr fyrir löngu áunnið sér orðspor sem
góður leikstjóri og handritshöfundur. Ash Wednesday er 6.
myndin eftir hann og olli ef til vill mörgum aðdáendum
hans vonbrigðum en ásamt honum leikur Elijah Wood að-
alhlutverkið í henni. Þeir leika tvo bræður sem flækjast
inn í ítölsku maffuna í New York f lok 9. áratugarins.
Human Nature
Patricia Arquette, Rhys Ifans og Tim
Robbins leika aðalhlutverkin í Human Nat-
ure sem er skrifúð af heitasta handritshöf-
undi Hollywood þessa dagana, Charlie
Kaufman. Myndinni hefur verið lýst sem
kolsvartri kómedíu og segir frá því þegar
tveir vísindamenn finna einstakling sem
hefur verið alinn upp í villtri náttúrunni.
Sjaðu Ifka
Avencinc Ancelo
Sylvester Stallone í allri
sinni dýrð.
Waking Life
Draumkennd mynd fyrir
hugsuði.
Lone Star State of
Mind
Grínmynd með fullt af
góðum leikurum.
The Anniversary
Party
Flókin ástarmynd
bestu gerð.
The Foreigner
Steven Seagal klikkar
tlfe seint.
Vampires: Los muer-
TOS
Jon Bon Jovi í fram-
haldsmynd Vampires
eftir John Carpenter.
The Man from Elysi-
AN FlELDS
Mick Jagger þykir fara
á kostum í þessari
dramamynd.
Boondock Saints
^ Spennumynd sem hef-
ur verið ífkt við Pulp
Fiction.
The Badce
Billy Bob Thornton og
Patricia Arquette í
glæpatrylli.
f ó k u s
16. maÍ2003