Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Blaðsíða 4
4 OVBiLAR LAUGARDAGUR 14.JÚNÍ2003 Afhenti aðdáanda sínum nýja VW blæjubjöllu BLÆJUBJALLA: VW notaði dá- lítið óhefðbundna aðferð til að kynna nýju blæjubjölluna sína á dögunum og uppskar athygli heimspressunnar fyrir. Rétt áður en Sir Paul McCartney hélt tón- leika sína í Liverpool 1.júní s(ð- astliðinn tókst honum að koma einum aðdáanda sínum veru- lega á óvart.Hin 19 ára Laura Andrew fékk nefnilega lyklana að spánnýrri VW blæjubjöllu úr hendi goðsins sem áhorfandi númer 2.000.000 á tónleikaferð McCartneys,„Back to the World".Bjallan var sólarlags- rauð að lit en sá litur var mjög vinsæll á árum áður og Laura sagði að þetta væri einmitt rétti liturinn fyrir hana. Laura ætlar að eigin sögn að eiga bílinn það sem hún á eftir ólifað. Nýr Mercedes-Benz SLR væntanlegur í haust: Hraðskreiðasti Benz sem smíðaður hefur verið GLÆSILEGUR: Nýi SLR-sportbíllinn sómir sér vel hjá áður hraðskreiðasta b(l heims, SLR frá sjötta áratugnum. Mercedes hefur loksins látið frá sér fara myndir af nýja SLR-sport- bflnum, en hann er væntanlegur á markað í haust. Myndirnar sýna reyndar ekki allan bflinn og aðeins er sjáanlegur framendinn á honum sem byggist á tækni úr Formúl- unni. Með á myndinni er 300 SLR frá sjötta áratugnum í bæði keppn- is- og götuútgáfu. Sá bfll bar eitt sinn titilinn „hraðskreiðasti fram- leiðslubfllinn" og það er spurning hvort með þessu sé Mercedes að leggja grunninn að einhverju. Alla- vega eru loftinntökin nógu stór til að benda til vélar sem náð gæti miklum hraða, en hann þarf þá að ná meti McLaren-bflsins frá 1994 upp á 390 km á klukkustund. Nánast allur úr koltrefjum Bflnum er ætlað að keppa við bfla eins og Ferrari Enzo og Porsche Carrera GT sem einnig kemur á markað í haust. Verkfræð- ingar Mercedes segja nýja SLR-bfl- inn nánast allan úr koltrefjum sem gerir hann bæði sterkan og iéttan, auk þess sem öryggi í árekstri eykst til muna. Líkt og hjá Porsche eru bremsurnar úr keramiki. Lfldegt má telja að 5,5 lítra V8-vélin verði notuð og þá í öflugri útgáfu. Segja heimildir að vélin verði yfir 600 hestöfl og hámarkshraðinn langt á fjórða hundraðið. Hvort sem það verður hraðskreiðasti framleiðslu- bfllinn eða ekki verður það allavega hraðskreiðasti Mercedes sem smíðaður hefur verið. Bfllinn verð- ur frumsýndur á bflasýningunni í Frankfurt í september og verða 500 stykki smíðuð árlega. njall@dv.is Ný tegund veltuprófa Allt er stærst í henni Ameríku og nýjustu öryggisprófanir bfla þar bera því glöggt vitni. Til að inæla það hversu jeppum og jepplingum er hætt við veltum hefur umferðar- öryggismálastofnunin þar fengið risastóran prófúnararm frá NASA að láni, en hann er venjulega not- aður til að mæla áhrif G-krafta á tæki og stjórnendur þeirra. Bflun- um verður komið fyrir á þessum 36 metra langa snúningsarmi og síðan sett í gang. Á ákveðnum tímapunkti myndi bfllinn óhjákvæmilega velta út af pallinum en það færi eftir byggingarlagi og fjöðrun bflsins svo að eitthvað sé nefnt. Einnig skiptir þyngdarpunktur og þyngd bflsins nokkru máli líka. Nemar verða tengdir fjöðrunarkerfi bflanna og tölva mun sjá um að auka og minnka hraða armsins til að líkja sem mest eftir akstri á hlykkjóttum vegi og líka til að koma í veg fyrir að bfllinn endasendist út af pallinum. Enginn fær þó að sitja í meðan á prófun stendur svo að notast verð- ur við sérstaka árekstrarbrúðu. Prófunararmurinn er í Goddard- geimflugsmiðstöðinni í Maryland og er innan dyra, en hingað til hafa veltuprófanir farið fram á bflunum sjálfum utan dyra þar sem ytri þættir, eins og bleyta eða veggrip dekkja, geta skipt meira máli. Einnig mun prófunarkostnaður minnka til muna þar sem ekki þarf lengur að eyðileggja bflana. njall@dv.is Næsta kynslóð S40 tekur á sig mynd Volvo er um þessar mundir að leggja lokahönd á nýja kynslóð S40- bflsins en hann kemur væntanlega á markað í kjölfar bflasýningarinnar í Frankfurt í haust. Sá sem nú er í um- ferð var hannaður í samstarfi við Mitsubishi en sá nýi byggist á sama grunni og Ford Focus og Mazda 3 og mun nota sama undirvagn og þeir. Ofan á hann setja hönnuðir Volvo svo sína eigin yfirbyggingu og íhluti sem Volvo er þekkt fyrir. Þar skiptir mestu máli nýr öryggispakki sem inniheldur ný fjögurra punkta ör- yggisbelti. Údit nýja bflsins er nokk- ur bylting frá fyrri gerð þótt sjá megi einkenni frá öðrum bflum Volvo. Má þar nefna svipuð afturljós og á S60 og tvískipt grillið. Bfllinn verður líka með hærra bogadregnu þaki. Þar sem undirvagninn gefur mögu- leika á fjórhjóladrifi er aldrei að vita nema vænta megi jepplingsútgáfu líka. Að sögn heimildarmanna inn- an Volvo-verksmiðjanna verður innréttingin í líkingu við innrétting- una í tilraunabflnum VCC, en þar mátti til dæmis færa til gírskiptingu og handbremsu eftir þörfum. Grunnvélin í nýja S40 verður að öll- um lfkindum 1,8 lftra vélin frá Ford og sú öflugasta verður 200 hestafla T5-vél frá Volvo, en það er í fyrsta skipti sem fimm strokka Volvovélin kemst fyrir í bfl af þessari stærð- argráðu. njall@dv.is C3í Cannes Hinn nýi C3-bfll frá Citroen var frumsýndur á alþjóðlegu kvik- myndasýningunni sem haldin var í Cannes í Frakklandi dagana 14. til 25. maí sl. Bfllinn var sýndur á bað- ströndinni fyrir framan Hótel Martinez og hafði ekkert að fela í sinni opinberun fremur en margar þær upprennandi kvikmynda- stjörnur sem þar opinberuðu gjör- samlega hvernig þær eru skapaðar. Bfllinn var einnig notaður í auglýs- ingu fyrir nýja ilmvatnið frá Jean Patou, „Enjoy". Ungar stúlkur óku upp og niður Croisette-hraðbraut- ina og hentu rósum úr Citroen- bflnum ásamt kynningarbæklingi fyrir bflinn og atburði í Cannes áð- urnefnda daga. Fyrstu 500 C3 Pluri- el-bflarnir seldust upp nánast á svipstundu. Citroén á Poznan Motor Show í Póllandi Citroén C3 Pluriel van sýndur á „Poznan Motor Show“ í Póllandi dagana 21. til 25. maí sl., auk þess sem hann var á sýningunni sýndur á 1,100 m skjá. Á sama stað kynntu Citroén-verksmiðjurnar Citroén Xsara WRC sem þegar hefur getið sér gott orð í heimsmeistarakeppn- inni í ralli. Citroén C3 er með mikinn staðal- búnað, s.s. rafstýrt vökvastýri með hraðaþyngingu, EBA-neyðarheml- unarbúnað, geislaspilara með fjar- stýringu í stýri, 4 öryggispúða, skynvædda sjálfskiptingu með möguleikum á beinskiptingu, hraðanæmar rúðuþurrkur og let- ingja á afturrúðuþurrku, hæðar- stillanlegt bflstjórasæti og vasa aft- an á framsætum. gg@dv.is Alfa Romeo endurvekur sportbílaarfleifð sína Alfa Romeo er að koma á markað með nýjan ofursportbfl sem byggist að nokkru á tilraunabflnum Brera sem vakti svo mikla athygli á bfla- sýningunni í Genf f fyrra. Honum er ætlað að keppa við merki eins og Porsche og Ferrari og verður tveggja sæta bfll. Bfllinn er kallaður Sportiva Evoluta í augnablikinu en þegar hann verður frumsýndur í Frankfurt í haust er talið lfldegt að hann fái nýtt nafn. Nafnið er nú reyndar ekki nýtt af nálinni en það kemur úr tilkomumikilli fortíð ÁJfa- merkisins. Lfldegt er talið að hann fá annaðhvort SZ- eða TZ- merk- inguna, SZ var ofurbfll frá níunda áratugnum en TZ var sportbfll frá þeim sjöunda sem líktist mikið Ferrari 250GTO. Bfllinn mun fá öfl- ugri útgáfu 3,2 lítra V6-vélarinnar og á að skila um 300 hestöflum í gegnum sex gíra beinskiptingu. Einnig getur verið að hann fái Selespeed-skiptingu en hvor sem verður notuð mun skila bflnum í hundraðið á innan við fimm sek- úndum. Það sem þykir þó mest um vert er að nýi bfllinn verður fyrsti afturhjóladrifni bfllinn frá Alfa síð- an SZ var og hét. Alfa 156 sýnir trjónuna Alfa Romeo 156 fjölskyldubfllinn hefur fengið nýja trjónu auk fá- einna annarra breytinga á ytra útliti í stfl við Alfa GTA sportbflinn. Áber- andi grill og framljós eru augljós- asta breytingin en einnig hefur hann fengið ný afturljós og aftur- stuðara. Nokkrar nýjar dísilvélar verða nú í boði en framboð bensín- véla verður nánast óbreytt, aðeins 2,5 lítra vélin verður ekki lengur fá- anleg með tímanum þar sem hún seldist illa. Nýju dísilvélarnar verða bæði öflugri og eyðslugrennri en áður og sem dæmi um það stekkur 1,9 lítra JTD-vélin úr 115 í 140 hest- öfl en eyðslan stendur nánast í stað. Einnig verður kraftmikil 2,4 lítra JDT-dísilvél í boði sem kemur bflnum í hundraðið á aðeins 8,3 sekúndum. njaii@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.