Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Blaðsíða 9
8 DVBlLAR LAUGARDAGUR 14.JÚNÍ2003
+
LAUGARDAGUR 14.JÚNÍ2003 DVBÍLAR 9
á(P|| REYNSLUAKSTUR „Aðgengi í Touran er með besta
fNj **' [ Njáll Gunnlaugsson móti enda opnast hurðir vel og
Æ&r ' J#í njatl@dv.is innstig er mátulegt"
VWTOURAN 1,6TRENDLINE
Vél: 1,6 lítra FSI bensínvél
Rúmtak: 1598 rúmsentlmetrar
Ventlar: 16
Þjöppun: HMBHHRHHHHHR
Gírkassi: 6 gíra, beinskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan: Sjálfstæð McPhearson
Fjöðrun aftan:Sjálfstæðfjölliða gormafjöðrun
Bremsur: Loftkældir diskar/ABS, EBD, BAS
Dekkjastærö: 195/65 R15
YTRI TÖLUR:
Lengd/breidd/hæð: 4390/1795/1650 mm
Hjólahaf/veghæð: 2675/150 mm
Beygjuradíus: 11,2metrar
INNRITÖLUR:
Farþegar með ökumanni: 7
Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 7/6
Farangursrými: 695- -1990 lítrar
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km: ; 7,6 lítrar
Eldsneytisgeymir: 60 lítrar
Ábyrgð/ryðvörn: 3/12 ár
Grunnverð: 2.250.000 kr.
Umboö: Hek la
Staðalbúnaður: Útvarp með geislaspilara og
8 hátölurum, rafstýrðir útispeglar, hiti (
speglum, rafdrifnar rúður, hiti í framsætum,
hæðarstillanleg framsæti,fjarstýrðar sam-
læsingar,'6 öryggispúðar með aftengimögu-
leika fyrir farþega (framsæti,2 12 volta
innstungur,toppgrindarbogar,armpúði með
hólfi, 49 geymsluhólf, 11 glasahöldur,spól-
vörn
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 115/5800
Snúningsvægi/sn.: 155 Nm/4000
Flröðun 0-100 km: 11,9 sek.
Hámarkshraði: 186 km/klst.
Eigin þyngd: 1425kg
Heildarþyngd: 2090 kg
Rúmgóður í hólf og gólf
Hekla hefur kynnt til sögunn-
ar nýja bíl er nefnist
Volkswagen Touran og er þar
um fjölnotabíl í millistærðar-
flokki að ræða.
Touran er byggður á sömu botn-
plötu og væntanleg fimmta kynslóð
Golf og gefur því vissa innsýn í
hvernig sá bfll muni koma fyrir
þegar hann verður frumsýndur á
bflasýningunni í Frankfurt í sept-
ember. VWTouran verður hér boð-
inn með 1,6 lítra vél til að byrja
með en hægt verður að sérpanta
bflinn með 1,9 lítra 100 hestafla
dísilvél og tveggja lítra 136 hestafla
dísilvél. iDV-bflar reyndu 1,6 lítra
bflinn í vikunni.
Aðgengi og pláss gott
Það sem skiptir fjölnotabfla
miklu máli er ekki síst gott aðgengi
en í nýja VW Touran fjölnotabfln-
um er það með besta móti. Hurðir
opnast vel út og innstig er lágt og
nóg pláss fyrir fætur. Einnig er set-
an í mátulegri hæð þannig að sest
er beint inn í bflinn en ekki upp eða
niður. Piáss í framsætum er nokk-
uð gott og þá sérstaklega til höfuðs-
ins þannig að maður fær á tilfinn-
inguna að um stærri bfl sé að ræða
en VW Touran er. Pláss í miðju-
sætaröð kemur þó mest á óvart og
þá einnig fótapláss undir ffamsæt-
um. Hvert sæti í miðjusætaröð er
einnig á sleða þannig að hægt er að
renna þeim fram eða aftur eftir
þörfum og leggja niður bak, jafnvel
taka sætin úr bílnum eftir hvað
hentar hverju sinni. Einn augljós
kostur við þetta er að hægt er að
færa fram sæti með barnabflstól
þannig að barnið verður alltaf í
seilingarfjarlægð. Öftustu sætin tvö
eru þó varla meira en barnasæti þó
að tveir fullorðnir gætu kannski
komið sér þar fyrir með herkjum.
Þau eru þó bæði með þriggja
punkta beltum og höfuðpúðum
eins og öll sæti í bflnum sem er
kostur. Einnig falla þau ofan slétt í
gólfið með einu handtaki sem er
einnig til þæginda.
Touran er með auka-
hliðarrúðu fremst líkt
og aðrir svipaðir bílar
en ólíkt þeim er gagn-
semi hennar lítil sem
engin í Touran.
Koppar og kirnur
Mikið af hólfum og hirslum er
um allan bflinn og stundum eins og
þeim sé nánast ofaukið. Má þar
nefna þrjú gleraugnahólf fyrir ofan
baksýnisspegilinn, en tvö hefðu al-
veg verið nóg. Hinir ýmsu koppar
og kirnur koma sér þó vel eins og
hólfið í gólfí farangursrýmisins sem
nýtist undir margt. Útsýni úr bfln-
um er nokkuð gott en samt verður
ekki hjá því komist að minnast á
tvö smáatriði í því sambandi. Tour-
an er með auka-hliðarrúðu fremst
líkt og aðrir svipaðir bflar en ólíkt
þeim er gagnsemi hennar lítil sem
engin f Touran. Hún er bæði lítil og
B-bitinn það breiður að útsýni um
þær er nánast ekkert. Einnig pirraði
það aðeins undirritaðan að sveigja
neðst í gleri framrúðu truflaði að-
eins fókusinn. Efnisval í Touran er
með því besta sem gerist og ekkert
upp á það að klaga. Hins vegar er
frekar lítil breyting á efnisvali eða
uppsetningu mælaborðs sem er
frekar óvenjulegt í nýrri kynslóð.
Sex gíra beinskipting
í akstri vinnur bíllinn sér inn
mörg stig fyrir góða aksturseigin-
leika. Hann er nokkurn veginn laus
við undirstýringu og aðeins vottar
fyrir yfirstýringu þegar bfllinn er yf-
irkeyrður eða þegar ekið er’ á möl.
Hliðarvelta í kröppum beygjum er
einnig mjög lítil þannig að bfllinn
hefur gott veggrip og fer vel með
farþega sína. Fjöðrunin er í stífari
kantinum en verður þó aldrei
óþægileg. Með 1,6 lítra vélinni er
bfllinn sparneytinn og hún ætti að
Kostir Gallar
Aksturseiginleikar, aðgengi Breiður B-biti, lágur bakkgfr
duga flestum, sérstaklega með
skemmtilegri sex gíra beinskipting-
unni. Nokkuð dregur þó niður í
honum fulllestuðum en hann held-
ur hraða ef skipt er niður. Bíllinn er
hljóðlátur í akstri og gildir einu
hvort átt er við vindhljóð eða veg-
hljóð. Aðeins heyrist þó frá vél þeg-
ar reynt er á hana og sérstaklega í
bakkgír sem er mjög lágur svo það
hvín í honum á lítilli ferð.
Hærra verð, meiri gæði
Verðið á Touran, 2.250.000 kr. í
grunnútfærslunni sem við prófuð-
um er í hærri kantinum, enda vilja
þeir Volkswagen-menn leggja
áherslu á meiri lúxus í bflum sín-
um. Til að nefna nokkra keppi-
nauta kemur Honda Stream á svip-
Með 1,6 lítra vélinni er
bíllinn sparneytinn og
hún ætti að duga flest-
um, sérstaklega með
skemmtilegri sex gíra
beinskiptingunni.
uðu verði, 2.295.000 kr., upp í hug-
ann en hann er með öflugri, tveggja
lítra vél. Hin vel heppnaða Opel
Zafira er líka viðmiðið í þessum
flokki en beinskipt Zafira með 1,8
lítra vél kostar 2.390.000 kr. Mun
ódýrari er Hyundai Trajet með
tveggja lítra vél á 2.090.000 kr. og
einnig sex manna Kia Carens sem
kostar 1.890.000 kr.
|3 Stefnuljósið er nú einnig komið í hliðarspegilinn en þar sést það best frá
hlið og fyrir aftan bílinn.
|3 Þremur hólfum fyrir gleraugu má segja að sé ofaukið en þau má kannski
nota fyrir eitthvað annað.
Q Öftustu sætin má leggja ofan í flatt gólfið og aftast er hólf fyrir minni hluti.
13 Litlar breytingar má sjá á innréttingu og efnisvali ÍVWTouran miðað við VW
Golf.
Q Vélin er nokkuð neðarlega sem lækkar þyngdarpunkt bílsins og 115 hestöfl-
in duga honum þokkalega með sex gíra kassanum.
Q Plássið fyrir fullorðna er lítið í öftustu sætaröðinni en þar eru nú samt
þriggja punkta belti og höfuðpúðar.
Q Öll sætin í miðjusætaröð eru á sleða sem hægt er að renna fram. Einnig má
taka sætin úr bílnum með nokkrum handtökum.
Pláss í miðjusætaröð kemur þó mest á óvart og þá
einnig fótapláss undir framsætum. Hvert sæti í
miðjusætaröð er einnig á sleða þannig að hægt er
að renna þeim fram eða aftur eftir þörfum og
leggja niður bak, jafnvel taka sætin úr bílnum eft-
ir því hvað hentar hverju sinni.