Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Blaðsíða 4
4 DVBlLAR LAUGARDAGUR 28. JÚNl2003
Erlendar fréttir
Santa Fe með mestan togkraftinn
í samanburði toggetu 6 jeppa í
jepplingaflokki, allra sjálf-
skiptra, kemur í Ijós að toggeta
Hyundai Santa Fe er mest, 2,3
tonn. Santa Fe er með 6 cyl.
vél, 177 hestafla, og eigin
þyngd 1.722 kg. Næstur kemur
Suzuki Grand Vitara sem togar
1.850 kg, er með 4 cyl. vél, 128
hestafla, en eigin þyngd bílsins
er 1.400 kg.Toyota RAV togar
1.500 kg, er með 4 cyl. vél, 150
hestafla og eigin þyngd 1.420
kg. Subaru togar 1.500 kg, er
með 4 cyl. vél, 125 hestafla, og
eigin þyngd er 1.375 kg. Niss-
an X-trail togar 1.300 kg, er
með 4 cyl. vél, 140 hestafla, og
eigin þyngd er 1.535 kg. Loks
kemur Honda CRV, með 4 cyl,
vél, 150 hestafla, og eigin
þyngd bílsins er 1.450 kg.
MESTUR TOGKRAFTUR: Santa Fe
togar mest í sínum flokki sam-
kvæmt könnun.
P. DIDDY: Listamaðurinn, sem hét áður Puff Daddy, þykir mikill töffari og svalir
Lincoln-jeppar með hans nafni verða brátt fáanlegir í Ameríku.
Rapparinn P. Diddy selur
sérútbúna Lincoln-jeppa
Hip-hop tónlistarmaðurinn Sean
„P. Diddy“ Combs ætlar að útfæra
hina vinsælu fatalínu sína yfir á
Lincoln Navigator-jeppa og pall-
bfla sem verða sérlega vel útbúnir.
Eins og sumir kannski muna eftir
flúði P. Diddy lögregluna ásamt þá-
verandi unnustu sinni, Jennifer
Lopez, á Lincoln Navigator eftir
skotbardaga í næturklúbbi árið
1999. Lincoln-bflaframleiðandinn
teiur ekki að þetta setji svartan blett
á merkið og er, að sögn Todds Nis-
sens, talsmanns Lincoln, „ánægður
að sjá þessa viðbót við merkið inn á
markað þar sem Lincoln-bflar hafa
ekki verið hingað til.“
Með víbrandi framsætum
P. Diddy sýndi frumútgáfu bfls-
ins á MTV-tónlistarhátíðinni og
ætlar að sýna hann fullbúinn á
BET-verðlaunahátíðinni í Los Ang-
eles seinna í þessum mánuði. Ætl-
unin er að selja 100 slíka bfla í sér-
völdum Lincoln-sýningarsölum og
verða þeir allir svartir og merktir
söngvaranum. Þeir verða á stærri
dekkjum og felgu, með lituðum
rúðum, gervihnattatengingu,
þremur DVD-spilurum, sex sjón-
varpskjám og upphituðum og ví-
brandi framsætum. Þetta framtak
P. Diddy er þó ekki nýtt af nálinni
því að körfuboltastjarnan Shaquille
O’Neal markaðssetti í fyrra Ford
Expedition-jeppa undir nafninu
Shaq SST. Stórir jeppar og pallbflar
eru líka vinsælir meðal svartra tón-
listarmanna og sjást reglulega í
myndböndum þeirra, einkum
Cadiilac Escalade lúxuspallbfllinn.
njall@dv.is
INNKÖLLUN: 6.800 af hinum nýja VWTouran fjölnotabíl voru innkallaðir vegna
skammhlaups í loftræstikerfi bílanna.
Innköllun VWTouran
í Þýskalandi
Volkswagen í Þýskalandi til-
kynnti í síðustu viku að 6.800 af
hinum nýja VW Touran fjölnotabfl
yrðu innkallaðir vegna skamm-
hlaups í loftræstikerfi bflanna.
Fram kom galli í sjálfvirkum stýri-
búnaði kæliviftu sem gerði að verk-
um að viftan fór þá ekki í gang þó
full þörf væri. Þetta kemur fram í
danska netmiðlinum motor-
magasinet 18. júní sl. Fijótlegt er að
skipta um búnaðinn og ætti ekki að
valda nýbökuðum Touran-eigend-
um miklum vandræðum. Fram
kemur einnig að þessi galli er ekki
lengur til staðar í bflum sem fram-
leiddir eru eftir miðjan maí þannig
að íslenskir Touran-kaupendur
eiga trúlega að geta ekið áhyggju-
lausir út af þessu.
Á sama tíma tilkynnti Isuzu
Motors í Japan um innköllun á alls
64.000 bflum frá sér, aðallega
Trooper-jeppum eða 50.743 slflcum.
Er það vegna grindargalla í yfirbygg-
ingu bflsins sem þarf að sjóða í á
þremur stöðum. Er bilunin í
Trooper-jeppum framleiddum frá
júlí 1993 til maí 1996. Innköllunin
nær einnig til MUs, Horizon og Jazz-
bfla framleiddra á svipuðu tfmabili,
en Horizon og Jazz voru einnig seld-
ir af Honda Motors. „Samkvæmt
upplýsingum frá Isuzu virðist þetta
ekki ná yfir þá 13 bfla sem við seld-
um umrætt tímabil," sagði Hannes
Strange, markaðsstjóri Bflheima,
þegar DV-bflar spurðu hann hvort
einhverjir bflar hérlendis féllu undir
innköllunina. njait@dv.is
Citroen-gengið náði ágætum ár-
angri á Kýpur-rallinu um sl. helgi en
það var hluti af heimsmeistara-
keppninni. í fimm efstu sætunum
vom þrír Citroén Xsaras, í 3., 4. og 5.
sæti. Aðeins „Chevrons" Marque-
gengið náði þeim árangri að skila
öllum bflum í mark í þessu ralli.
„Mitt markmið var að ljúka þessu
ralli og best var auðvitað að afiir
keppendur Citroén hefðu lokið því,
og það tókst. Mér á að takast að vera
a.m.k. 3 sekúndum fljótari, og það
tekst vonandi í næstu keppni. Undir
það tók liðsstjórinn, Guy Fréquelin.
Hann sagði takmarkið hafa verið að
eiga bfl í einhverju af 5 efstu sætun-
um og það tókst mjög vel. Liðið sé
framar í keppninni en búist var við í
upphafi.
Fyrsta legginn í akstrinum vann H.
Rovenperá á Peugeot 206, annan
legginn T. Makinen og þriðja legginn
P. Solberg á Subaru Impreza sem
einnig náði 7 sinnum besta tíman-
um.
í heimsmeistarakeppninni er lið
Peugeot efst með 81 stig, Citröen er í
2. sæti með 73 stig, í 3. sæti Subaru
með 47 súg, Ford með 43 stig, Skoda
með 20 stig og Hyundai með 6 stig. í
heildarkeppni ökumanna em í 10
efstu sætunum R. Bums með 37 stig,
C. Sainz með 36 stig, M. Grönholm
með 30 stig, P. Solberg með 29 stig,
S. Loeb með 23 stig, M. Martin með
23 stig, C. McRae með 23 stig, H.
Rovanperá með 16 stig, T. Mákinen
með 15 stig, F. Duval með 9 stig ogT.
Gardemeister með 9 stig. gg@dv.is
RÖÐ KEPPENDA Á KÝPUR:
1. P. Solberg-Ph Mllls
(Subaru Impreza)
2. H. Rovanperá - R. Pietlláinen
(Peugeot 206)
3. Loeb - D. Elena
(Citroén Xsara)
4. C. McRae - D. Ringer
(Citroén Xsara)
5. C. Sainz - M. M. Marti
(Citroén Xsara)
6. M. Hirvonen - J. Lehtinen
(Ford Focus)
7. S. Schwarz - M. Hiemer
(Hyundai Accent).
A Daewoo yfir hálfan hnöttinn
Tveir breskir ævintýramenn em
nú lagðir af stað frá London til
Seoul í Suður-Kóreu á Daewoo
Kalos bifreið til ijáröflunar fyrir
SOS-barnaþorpin. Til Seoul er
áætlað að koma 14. ágúst nk. Pen-
ingunum, sem safnast, verður varið
í byggingu íjölskylduhúss í nýju
SOS-barnaþorpi í Nepal. Richard
Meredith, 54 ára rithöfundur, og
Phil McNerny, 25 ára verkfræði-
nemi, lögðu af stað í ferðina miklu
þann 9. júní sl. Leiðin sem félag-
arnir fara er 16 þúsund kflómetrar
og mun taka 80 daga líkt og ferð
Jules Verne átti að hafa gert. Full-
trúar SOS-barnaþorpanna í Suður-
Kóreu munu í þakklætisskyni fyrir
LAGT (' ANN: Rallíakstursmaðurinn
Yves Fordain útbjó bílinn sérstaklega til
fararinnar. Hann er hér með ferðalöng-
unum Richard Meredith og Phil
McNerny skömmu fyrir upphaf ferðar.
eigin velgengni afhenda peningana
fátækara Asíurflci. Þess vegna verð-
ur peningunum varið í fjölskyldu-
hús í Bharatpur í Nepal þar sem nú
er byggt barnaþorp sem 140 mun-
aðarlaus börn munu eiga heima í.
Leið Bretanna tveggja mun liggja
um 20 lönd. Þeirtnunu ferðast um
hlykkjótta og oft á tfðum torfarna
vegi. Utan Evrópu munu þeir ferð-
ast um Aserbædsjan, Usbekistan,
Kyrgistan og Suður-Kóreu.
Meredith, sem mun annast há-
skólakennslu í Beijing frá septem-
berbyrjun, fékk sjálfur hugmyndina
að því að ferðast frá London til
Beijing í fjáröflunarskyni fyrir góð-
gerðarmál. GM Daewoo bifreiða-
framleiðandinn leggur til Kalos-bif-
reiðina enda er hann náinn sam-
starfsaðili SOS-barnaþorpanna f
Suður-Kóreu til margra ára.
gg@dv.is
Toyota kynnir vetnisbíl
Framtíðarbíll Toyota-verksmiðj-
anna í Japan var frumsýndur
mánudaginn 16. júní sl. í sýningar-
sal Toyota, „Toyota Environmental
Forum" í Tokyo. Bfllinn er knúinn
vetni og þykir sem slíkur allnokkuð
sparneytinn.
Björn Víglundsson, markaðs-
stjóri Toyota-umboðsins á fslandi,
segir að nokkuð sé farið að aka
vetnisbflum frá Toyota í Japan og
Kaliforníu en það sé almennt álít
yfirmanna Toyota í Japan að
vetnisknúnir bflar verði ekki al-
mennt markaðsvara fyrr en að 10 til
15 árum liðnum, þ.e. jafnvel ekki
fyrr en árið 2018. gg@dv.is
VETNISBÍLL: Þessi Sport Coupe vetnisknúni bíll frá Toyota var kynntur ÍTokyo sl.
mánudag. Rennilegur bíll sem þó verður varla á markaði fyrr en árið 2018.