Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Blaðsíða 10
10 DVBlLAR LAUQARDAGUR28. JÚNÍ2003
REYNSLUAKSTUR
Njáll Gunnlaugsson
njall@dv.is
Öflugur bíll sem teyg-
ir sig í lúxusflokk
Kia Sorento kom á markað í
fyrra en þar er á ferðinni jeppi
sem teygir sig í lúxusflokk.
Hann keppir við nokkuð breið-
an flokk jeppa, enda verðið á
bílnum mjög hagstætt.
Hann er nú fáanlegur með öflugri
V6 bensínvél og er seldur þannig í
EX-útfærslu og þá aðeins með sjálf-
skiptingu. DV-bílar reynsluóku
þeirri útgáfu Sorento á dögunum.
ítorfærum virkar Sor-
ento vel á mann og
fjórhjóladrifið með
„Tog eftir þörfum"
kerfinu virkar vel við
allar erfiðari aðstæður.
Rúmgóður í alla staði
Um nokkuð vel búinn bíl er að
ræða í Sorento EX þótt bíllinn með
V6-vélinni sé f sjálfu sér ekkert betur
búinn en bíllinn með dísilvélinni.
Gott dæmi um það er fjöldi öryggis-
púða, en aðeins tveir öryggispúðar
eru staðalbúnaður í Sorento. öku-
mannssæti er rafstýrt og setan er
nokkuð há þannig að stíga þarf upp
í bílinn. Pláss í framsætum er gott og
sérstaklega í aftursætum þar sem
rúmt er um fætur. Aðgengi í aftur-
sæti mætti þó vera betra en þar vill
bæði hjólaskál og bogadreginn C-
bitinn flækjast aðeins fyrir. Farang-
ursrými er rúmgott en nokkuð hátt
upp í það að aftan sem gerir
hleðsluhæð þægilega. Einnig má
opna afturgiugga sér sem er til frek-
ari þæginda við hleðslu á léttum
hlutum.
Hætt við undir- og yfirstýr-
ingu
I akstri virkar Sorento hljóðlátur
og traustvekjandi á mann. Bíllinn er
frekar mjúkur á ijöðrun og því und-
irstýrður í kröppum beygjum en
þægilegur á möl og öðrum ójöfnum.
Kraftmikil vélin skilar vel sínu en í
afturhjóladrifinu eingöngu er bíln-
um þess vegna mjög hætt við yfir-
stýringu, sérstaklega í bleytu.
Reyndar voru vetrardekk undir bíln-
um sem eru griplítil á malbiki en
samt má segja að bíllinn hefði gagn
af spólvörn eða skrikvöm, svona til
frekara öryggis. í torfæmm virkar
Sorento vel á mann og fjórhjóladrif-
ið með „Tog eftir þörfum" kerfinu
virkar vel við allar erfiðari aðstæður.
Reyndar er takkinn fyrir það á
óhefðbundnum stað, vinstra megin
við stýri, sem kemur þó ekki mikið
að sök. Einnig hjálpar honum mikið
hversu hátt er undir hann og gaman
Kostir Gallar
Afl, pláss, torfærueiginleikar Aðgengi í aftursæti, vinna við stýri
væri að sjá þennan bíl nokkuð vel
breyttan. Stýrið er mjög lítið „dobbl-
að" og þess vegna er nokkur vinna
við það enda þarf næstum fjóra
snúninga borð í borð.
Stýrið er mjög lítið
„dobblað" og þess
vegna er nokkur vinna
við það enda þarf
næstum fjóra snúninga
borð í borð.
Á mjög góðu verði
Eins og áður sagði er samanburð-
urinn á Sorento gagnvart öðmm
jeppum nokkuð fjölbreyttur og fer
það bæði eftir verði og búnaði. Sor-
ento V6 er á mjög góðu verði,
3.525.000 kr. og er það aðeins
Suzuki Grand Vitara V6 sem gerir
betur á 2.975.000 kr. Sambærilegur
Hyundai Terracan Luxury kostar
3.400.000 kr. en þá vantar í hann raf-
stýringu á ökumannssæti og hita-
stýrða miðstöðina. Vilji menn svo
dýrari merki eins og Toyota og
Mercedes-Benz er óhætt að bæta
rúmum tveimur milljónum við
verðið. Sambærilegasti kosturinn
við Sorento er þó SsangYong Rexton
sem kostar mjög svipað búinn
4.190.000 kr. með sex strokka línu-
vélinni. Sú vél er þó 25 hestöflum
öflugri en V6 vélin í Sorento.
Q Mælaborðer í senn einfalt og smekklegt nema stilling fyrir fjórhjóladrif er á
skrýtnum stað vinstra megin.
Qj Vegna öflugrar vélar er Sorento hætt við yfirstýringu sé honum gefið hraust-
lega inn.
Q Nokkuð hátt er upp í farangursrými sem er rúmgott.
|3 Gott fótarými er í aftursæti með ökumannssæti í eðlilegri stöðu en aðgengi
er aðeins heft af hjólaskál og C-bita.
■3 Sorento virkar traustvekjandi á mölinni þar sem hann er bæði hljóðlátur og
rásfastur.
fl V6-vélin er í senn hljóðlát og öflug og frágangur (vélarrými er til sóma.Takið
eftir tvöföldum lofttjökkum sem halda uppi vélarhlífinni.
KIA SORENTO EX
Vél: 3,5 litra, V6 bensínvél
Rúmtak' 3497 rúmsentímetrar
Ventlar 24
Þjöppun: 8,9:1
Glrkassi: 4ra þrepa sjálfskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan: Tvöföld klafafjöðrun
Fjöðrun aftan: Fjölarma
Bremsun Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD
Dekkjastærð: 245/70 R16
YTRITÖLUR:
Lengd/breidd/hæð: 4567/1863/1730 mm
Hjólahaf/veghæð: 2710/229 mm
Beygjuradius: 11,1 metri
INNRITÖLUR:
Farþegar með ökumannl: 5
Fjöldl höfuðpúða/öryggispúða: 5/2
Farangursrými: 965-1750 litrar
HAGKVÆMNI:
Eyðslaá lOOkm: 14 Iftrar
Eldsneytisgeymir: 80 lítrar
Ábyrgð/ryðvörn: 3/6 ár
Grunnverð: 3.525.000 kr.
Umboð: Kia (sland
Staðalbúnaður Hraðanæmt stýri, 50% tregðulæsing á afturdrifi, álfelgur, útvarp með
geislaspilara og 8 hátölurum, rafmagnsloftnet, rafstýrðir útispeglar, hiti í speglum,
aðfellanlegir speglar, rafmagnsrúður að framan og aftan, hiti i í framsætum, hitastýrð
miðstöð, fjarstýrðar samlæsingar, fjarstýrð opnun á afturrúðu, 2 öryggispúðar, þrjár
12 volta innstungur, hæðarmælir, áttaviti, loftþrýstimælir, toppgrindarbogar, vind-
skeið, þokuljós, armpúði.
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 195/5500
Snúnlngsvægl/sn.: 294 Nm/3000
Hröðun 0-100 km: 9,4 sek.
Hámarkshraðl: 185 km/klst.
Eigin þyngd: 1930 kg
Heildarþyngd: 2560 kg