Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Side 5
LAUGARDAGUR 28. JÚNl2003 DVBlLAR S
Fiat fækkar starfsfólki
FIAT: í fyrra
tapaði Fiat
; 3,9 millj-
örðum evra
og verður
augljóslega
að grípa til rót-
tækra varnarathafna. Nú í vik-
unni hrapaði hlutabréfaverð í
Fiat um 6% þegar ítalska blað-
ið II Sole/24 Ore komst á snoð-
ir um björgunaráætlanirfyrir-
tækisins og birti þær. Þar kem-
ur fram meðal annars að þá á
að fækka starfsmönnum Fiat
um tíu þúsund, þó aðeins um
eitt þúsund á Ítalíu og þessar
uppsagnir dreifast á næstu tvö
ár.Til að bregðast við
vandanum hefur Fiat einnig
tekið stórar peningaupphæðir
að láni frá ítölskum bönkum.
Verkföll tefja
BMW: Árið byrj-
ar ekki mjög
glæsilega hjá
BMW. Sala
nýrra bíla fór
niður um 11 af
hundraði fyrstu
fimm mánuði ársins miðað við
sama tímabil í fyrra og nú bæt-
ist það við að vegna verkfalls
stáliðnaðarmanna í þremur
BMW
ríkjum Þýskalands fær BMW
ekki nægilegt efni til að geta
framleitt gírkassa í 3-línu bíl-
ana. Verkfallið snýst um að
stytta vinnuvikuna úr núver-
andi 38 stundum í 35 stundir.
Hjá BMW bera menn sig samt
vel og segja að úr þessu muni
rætast innan tíðar og síðari
hluti ársins muni bæta þann
fyrri upp.
Minni bilanatíðni Fabia
SKODA: Bilanatíðni Skoda
Felicia á þýsku hraðbrautunum
er mun meiri en á Skoda Fabia
og Skoda Octavia. Felicia var
hannaðurog markaðssettur
áður en Volkskwagen tók við
framleiðslu á Fabia og Octavia,
en ólíku er saman að jafna
hvað varðar bilanatíðni þess-
ara bíla. Skoda er með ein-
hverja lægstu bilanatíðni allra
bíla hjá umboðinu hérlendis,
Heklu. Þegarframleiðsla á Oct-
avia hófst var eitt af markmið-
unum að halda bilanatíðni í al-
gjöru lágmarki og það virðist
hafa tekist framar öllum von-
um. Volkswagen kom sáralítið
nálægt framleiðslu á Felicia en
þó mun hafa verið sett í hann
vökvastýri og fleira frá
Volkswagen.
Trelleborg ísamstarf
við Continental um
landbúnaðardekk
Þýski dekkja- og bílapartafram-
leiðandinn Continental AG hyggst
heija samstarf við sænska keppi-
nautinn og dekkjaframleiðandann
Trelleborg um að framleiða dekk
fyrir dráttarvélar og önnur tæki til
landbúnaðarframleiðslu. Trelle-
borg hefur verið í sambandi við
fleiri dekkjaframleiðendur í Evrópu
um samstarf en ekki hefur fengist
uppgefið hverjir þeir eru. Talsmað-
ur Continental hefur staðfest að
samræður hafi farið fram og segir
að aðallega sé rætt um samstarf
hluta Barum-verksmiðju
Continental í Tékklandi og Trelle-
borg, jafnvel sameiningu við þá
einingu. Continental AG hefur áður
lýst því yfir að fyrirtækið mundi
leggja niður þann hluta rekstursins
sem ekki sýndi nægjanlegan rekstr-
arhagnað, enda væri samkeppni í
þessum iðnaði mjög hörð.
Continental hefur lagt niður fimm
rekstrareiningar síðan í árslok 2001
en þá hófst endurskipulagning á
allri starfsemi fyrirtækisins.
Trelleborg í Svíþjóð framleiðir
dekk fyrir tæki til skógræktar, ýmiss
konar iðnað og landbúnað. Trelle-
borg keypti landbúnaðarhluta
Pirelli*s árið 1998 og hefur haft á
stefnuskrá að auka starfsemina
með því m.a. að kaupa upp keppi-
nauta. Continental er einn helsti
keppinautur Trelleborg í fram-
leiðslu á dekkjum til iðnaðartækja
og landbúnaðartækja.
gg@dv.is
SCHUMACHER: Kemst hann yfir 500
stiga múrinn um helgina?
Schumachervill slá
met Fangio
Micheal Schumacher, ökumaður
hjá Ferrari í formúlu-1, hefur und-
irritað nýjan samning við Ferrari.
Hann státar nú þegar af fímm
heimsmeistaratitlum og haldi Ferr-
ari áfram að útvega honum jafn-
samkeppnishæfa bíla verður hann í
þeirri stöðu að geta tekið við nafn-
bótinni sem besti ökumaður allra
tfma af Juan Manguel Fangio.
Þeirri spurningu verður að vísu
aldrei svarað hvor þeirra Fangio
eða Schumacher er betri þar sem
þeir mætast aldrei á brautinni en
Schumacher leiðir nú Formúlu-1
keppnina eftir sigurinn í Kanada og
er ekki ólíklegur að fagna sjötta
sigrinum eftir síðustu keppnina á
Suzuka-brautinni í Japan 12. októ-
ber nk. gg@dv.is
Skíðakl
’Hjðlafestinga
Kajakfestingar
THUI
SWEDEN
■
mm
Farangursbox, ýmsar stærðir
& 9 gl^
Hjólafestingar á dráttarkúlu
www.stilling.is ■■P
DALSHRAUN113 • SlMI 555 1019
EYRARVEGI 29 • SlMI 483 1800 SKEIFUNNI 11 ■ SÍMI 520 8000
SMIÐJUVEGI 68 • SlMI 544 8800 BlLDSHÖFÐA 16 • SÍMI 577 1300
tómstundir og afþreying
550 5000
i