Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2003, Page 4
4 DVBÍLAR LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ2003
Erlendar fréttir VW dísilvélarna Vélan Volkswagen vann nýlega til verðlauna frá breska tímarit- inu Fleet World fyrir bestu dísil- vélalínuna í atvinnubílum. Það eru ökumenn bílanna sem gefa bílunum einkunn gegnum heimasíðu Fleet World. VW býður upp á dísilvélar í allri framleiðslulínu sinni, allt frá 60 hestafla Lupo upp í 313 hest- afla Phaeton-lúxusbíl. r bestar ggJ ... 3ja dyra Fabia SMÁBÍLL: Skoda mun frumsýna á næsta ári nýja þriggja dyra útgáfu Fabia smábílsins og verður hann líka fáanlegur sem RS-bíll. Þannig verður hann bú- inn 130 hestafla 1,9 lítra dísilvél eða 1,8 lítra 150 hestafla bens- ínvél. Bíllinn verður eflaust ódýrari en fimm dyra bíllinn þótt ekkert hafi verið látið uppi um það enn þá.
Sex bílar í viðbót fá fimm
stjörnur hjá EuroNCAP %
Nýjasta kynslóð Renault
Espace fjölnotabílsins hlaut í
síðustu viku hæstu einkunn
sem EuroNCAP hefur gefið í
árekstraprófi sínu.
Hlaut bfllinn alls 35 stig og þar af
leiðandi fimm stjörnur. Öfugt við
Espace hlaut Kia Carnival lægstu
einkunn bfla síðan 2001 eða aðeins
tvær stjörnur og 18 stig. Hann kom
sérlega illa út úr prófinu að framan
en bfllinn er aðallega framleiddur
fyrir Ameríkumarkað. Fimm aðrir
bflar náðu einnig fimm stjörnu
markinu, BMW X5, Peugeot 807,
Saab 9-5, Toyota Avensis og Volvo
XC90. Allir þessir framleiðendur
hafa látið setja sætisbeltaáminn-
ingu í bfla sfna eins og EuroNCAP
gefur m.a. einkunn fyrir, en próf-
anirnar miðast við að farþegar séu
í beltum og því er áminningin
mjög mikilvæg. AIls hafa nú tólf
bflar náð þeim árangri að fá fimm
stjörnur síðan Renault Laguna
tókst það fyrst árið 2000. öryggi
fótgangandi vegfarenda er einnig
að aukast og hlaut meðal annars
VW Touran hæstu einkunn eða
þrjár stjörnur fyrir það atriði, ann-
ar evrópskra bfla. Einnig er mikil
aukning á Isofix-festingum fyrir
barnabflstóla, en þær hafa komið
ÖRUGGASTUR; Renault Espace getur með réttu kallast öruggasti bíllinn því að hann fékk
35 stig sem er hæsta einkunn sem bíll hefur hlotið í prófunum EuroNCAP.
vel út úr prófunum EuroNCAP.
Gerðar eru fjórar árekstrarpróf-
anir á bflunum auk annarra athug-
ana og eru þær þessar; Árekstur að
framan á 64 km hraða. Hliðar-
árekstur á 50 km hraða. Árekstur
við staur á 29 km hraða. Árekstur
við gangandi vegfaranda á 40 km
hraða. Notast er við sérhannaðar
brúður sem eru búnar nemum sem
geta metið hugsanleg meiðsl víða
um líkamann. Prófanir þessar eru
miðaðar við bfla framleidda fyrir
Evrópumarkað en Ástralía hefur
einnig tekið upp sömu staðla og
EuroNCAP sem þeir nota þegar
þeir prófa fyrir sína bfla. Hægt er
að nálgast frekari niðurstöður á
slóðinni www.euroncap.com
njall@dv.is
2 STJÖRNUR: Kia Carnival kom sérlega illa út úr prófunum EuroNCAP, sérstaklega í
árekstri að framan á 64 km hraða.
ÖRYGGI: Alls fengu sex bíla fimm stjörnur, þar á meðal Volvo XC90, m.a. fyrir gott öryggi
barna í aftursætum.
FJÖLNOTABÍLAR:
Bill: Árekstraröryggi: öryggi fótgangandi:
Peugeot 807 5 stjörnur 1 stjarna
Renault Espace 5 stjörnur 2 stjörnur
HyundaiTrajet 3 stjörnur 1 stjarna
KIA Carnival 2 stjörnur 1 stjarna
Ford Fusion 4 stjörnur 2 stjörnur
VWTouran 4 stjörnur 3 stjörnur
SPORTBÍLAR:
Bfll: Árekstraröryggi: öryggi fótgangandi:
MGTF 4 stjörnur 3 stjörnur
JEPPAR:
Bíll: Arekstraröryggi: öryggi fótgangandi:
BMW X5 5 stjörnur 1 stjarna
Volvo XC90 5 stjörnur 2 stjörnur
KIA Sorento 4 stjörnur 1 stjarna
SMÁBÍLAR
Bfll: Arekstraröryggi: öryggi fótgangandi:
Citroén C3 Pluriel 4 stjörnur 2 stjömur
Nissan Micra 4 stjörnur 2 stjörnur
RenaultTwingo 3 stjörnur 2 stjörnur
STÆRRI FJÖLSKYLDUBÍLAR:
Bfll: Arekstraröryggi: öryggi fótgangandi:
Saab 9-5 5 stjörnur Ekki prófað
Toyota Avensis 5 stjörnur 1 stjarna
Honda Accord 4 stjörnur 2 stjörnur
Opel Signum 4 stjörnur 1 stjarna
SMÆRRI FJÖLSKYLDUBÍLAR:
Bfll: Peugeot 307 CC Árekstraröryggi: 4 stjörnur öryggi fótgangandi: 2 stjörnur
Smart Forfour á Fyrsta mynd
markað næsta sumar af Hummer H3
Smart bflaframleiðandinn hefur
hingað til verið þekktur fyrir að
framleiða litla tveggja sæta bfla, en
nú skal gera brgarbót á. Smart hef-
ur látið frá sér fara fýrstu myndir af
hinum nýja Forfour sem, eins og
nafnið bendir til, er fýrsti bfll smá-
bflaframleiðandans sem er fyrir
fleiri en tvo farþega. Bfllinn var
hannaður í samstarfi við Mitsu-
bishi og notar 60% sömu hluti og
væntanlegur Mitsubishi Colt, með-
al annars sama undirvagn og fjöðr-
un. Fimm vélar verða í boði, þar af
þrjár bensínvélar frá Mitsubishi og
tvær dísilvélar frá Mercedes-Benz.
Forfour kemur á markað næsta
sumar á sama tíma og Colt en næsti
bfll frá Smart er væntanlegur 2006
og verður hann sá fyrsti sem fram-
leiðandinn fer með á Ameríku-
markað. njall&dv.is
FORFOUR: Nýjasti bíllinn frá Smart er sá fyrsti sem er með sæti fyrir fjóra.
Hér gefur að líta fýrstu mynd
sem náðst hefur af Hummer H3,
nýjustu afurð General Motors. H3
er í takt við þá línu Hummer að
minnka bfla sína í stað þess að
stækka eins og aðrir framleiðendur,
svo þeir verði viðráðanlegri í verði
fýrir hinn almenna kaupanda, enda
nýi bfllinn ætlaður þeim. Myndin
sýnir meðalstóran jeppa á sterkleg-
um undirvagni en káetan er greini-
lega minni en á H2 þótt undirvagn-
inn og dekkin geti verið þau sömu.
Áður hafði verið áætlað að H3
myndi koma á sama undirvagni og
Colorado-jeppinn en miðað við
myndina má ætla að hann noti
sama drifbúnað og hinn vinsæli
Hummer H2. Bfllinn verður bæði
fáanlegur sem jeppi líkt og myndin
sýnir en einnig sem pallbfll. Full-
vaxinn Hummer H1 kostar um 7,5
H3: Næsti Hummer er minni er forverar
hans og því viðráðanlegri í verði.
milljónir í Bandaríkjunum en H2
bfllinn 3,3 milljónir. Ætla má að
Hummer H3 muni kosta um það
bil 2-2,5 milljónir en verður þó lík-
Iega nokkru dýrari hérlendis ef
hann kemur hingað þegar bfllinn
fer á markað árið 2005. Smærri
Hummer H4 er jafnvel í burðar-
liðnum hjá GM.
njall@dv.is