Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2003, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ2003 DV BÍLAR 7
Ahyggjur af gæðum Michelin
David Richards, liðsstjórí BAR, vill betrí dekk
Eins og oft hefur verið talað um
hér á síðum DV er dekkjastríðið
milli Michelin og Bridgestone í
mikilli sveiflu þessa dagana og
nú virðist sem yfirburðir jap-
anska framleiðandans séu að
dala og sá franski að taka yfir-
höndina.
Stóran þátt í geysilegri velgengni
Ferrari á síðasta ári mátti rekja til
Bridgestone-dekkjanna sem þá
voru í algerri sérstöðu í saman-
burði við samkeppnisaðilann. Nú
hafa hlutirnir heldur betur snúist
við og er greinilegt, ef niðurstöður
tímatökunnar á Núrburgring eru
skoðaðar, að Michelin var i alger-
um sérflokki. Búist er við sama
gengi á Magny-Cours um þessa
helgi, sérstaklega ef loft- og braut-
arhiti verður mikill.
Hingað til hafa ekki heyrst há-
værar raddir utan ummæli
Michaels Schumachers eftir „tap“
sitt í Mónakó. Nú hefúr David Ric-
hards brotið blað og er fyrstur
keppnisstjóra til að tjá sig opinber-
lega og segist hafa verulegar
áhyggjur af gangi mála hjá
Bridgestone. „Þetta er mikið
áhyggjuefni fyrir okkur,“ sagði Ric-
hards um glæsilegan árangur hjá
Michelin. „Maður gerir ráð fyrir að
þeir hjá Bridgestone vinni jafn-
hratt að hlutunum og við. Það eina
í stöðunni er að halda áfram að
vinna vel saman," sagði Richards,
keppnisstjóri BAR. Þrátt fyrir slak-
an árangur Bridgestone-dekkjanna
er Ferrari í forystu í stigakeppni
ökumanna og keppnisliða en hefur
sannarlega fengið að vinna fyrir
hlutunum. Ef einhverjir hafa talað
alvarlega við Bridgestone-menn
var David viss um að þeir hjá Ferr-
ari hefðu látið í sér heyra. „Ég er
klár á að Ferrari-bfllinn ætti að
vera í algerum sérflokki, en þrátt
fyrir það eru þeir í vandræðum. Því
held ég að þeir hjóti að vera í ein-
hverju sambandi," sagði hann og
vildi meina að það væri aflt annað
Eitt er víst að Michelin
hagnast á samvinnu
við Williams og
McLaren
en rólegheitaspjall.
BAR-liðið er eitt þeirra fimm liða
sem nota sóla frá Japan og í heild-
ina litið er árangur þessara liða
mjög slakur, utan Ferrari. Sauber,
Jordan og Minardi eru hin liðin og
er best að skoða árangur Sauber til
að sjá muninn milli ára í gæðum
hjólbarðanna. Þeir voru geysilega
sterkir á síðasta ári en einungis níu
stig eru komin í pottinn í ár þrátt
fyrir að fleiri stig séu í boði í kjöffar
breyttrar stigagjafar. Eitt er víst að
Michelin hagnast á samvinnu við
Williams og McLaren en
Bridgestone reiðir sig aðallega á
Ferrari. Flæðið af upplýsingum er
því meira og öll þróunarvinna er
hraðari. Það hlaut að koma að því
að Bridgestone yrði undir í barátt-
unni þar sem Michelin er nú búið
að vera í Formúlu 1 á þriðja ár. En
töfrarnir við gúmmíblöndur
galdrameistara hjólbarðafyrirtækj-
anna eru þeir að einn góðan veður-
dag er eins og allt snúist við og
hjólin fari að snúast betur hjá öðr-
um aðilanum en hinum. Það er
ekki öll nótt úti enn hjá Richards.
fl@dv.is
STIGAKEPPNi ÖKUMANNA:
1. Michael Schumacher 58
2. Klml Ralkkonen 51
3. Ralf Schumacher 43
4. Fernando Alonso 39
5. Juan Pablo Montoya 39
6. Rubens Barrichello 37
7. David Coulthard 25
8. JarnoTrulll 13
9. Giancarlo Fisichella 10
10. Jenson Button 101
STIGAKEPPNI KEPPNISLIÐA:
1. Ferrari 95
2. Williams 82
3. McLaren 76
4. Renault 52
5. BAR 13
6. Jordan Ford 11
7. Sauber 9
8. Jaguar 9
9. Toyota 4
10. Mlnardi 0
Ducati M800
Ducati ST2
Bæjarlind 1-3 | 201 Kópavogur | Sími: 5 400 600 | www.daelur.is
Ducati 999
Ducati 749S
JL> Dælur ehf.
Nú er ítalska goðsögnin loksins fáanleg á íslandi.
Ducati mótorhjólin njóta hylli um allan heim fyrir
einstaka hönnun og tæknilega yfirburði. Ducati er
Ferrari mótorhjólanna.
Skoðaðu Ducati götu-, ferða- og keppnishjól og
hjartað mun taka aukakipp. Ekki sfst þegar þú
sérð hagkvæmt verðið.