Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2003, Page 6
6 DVBlLAR LAUGARDACUR 5. JÚLÍ2003
| Lengd brautar ^
Keppnislengd ^
Ráspóll 2002 - Montoya: (1:11,985s) 212,594 km/klst
Hraðasti hringur - Coulthard: (1:15,045s) 203,925 km/klst, hringur 62
Mesti hraði (tfmatöku) - M Schumacher: 306,0 km/klst
Keppnisbrautin á Magny-Cours hefur farið i upplyftingu eins og
Nurburgring og er höfuðmarkmiðið að auka möguleikana á
framúrakstri. Helstu breytingarnar eru á siðustu beygju
brautarinnar, sem og á aðrein og afrein þjónustusvæðisins.
Chateau d'Eau beygjunni hefur einnig verið breytt.
Magny-Cours er samansett af löngum, beinum köflum sem tengdir
eru með þröngum U-beygjum og lítt að skapi ökumanna. Þó er
Estroril undantekning á þvf, löng og aflíðandi hægri beygja sem er
mikilvæg fyrir hraðasta hluta brautarinnar. Hér gætu
tímatökurnar ráðist. 4
Yfirborð brautarinnar er rennislétt, og því er hægt að
aka bílnum f lægstu hugsanlegri aksturshæð. Það
gefur aukið loftafl og meira grip. Erfitt getur
þófyrirhjólbarðannaað'fóta'sigáhálli (284)
brautinni, og dekkjasliter því
talsvert. 232 tM <j
Adelaide
Cháteau
d'Eau
jTímasvæði* Hraðámæling
LycéePin
Ii ÍOOO^a Þyngdarkraftur
íí-gt m
Númerbe!
*dstaðfest
Samanlagt
Frakkland
Circuit de Nevers: Magny-Cours
4.251km
Úrslit 2002
Fljótastir i tímatökum
Stöður og staðreyndir
▼ Viðmiðunartímar
(Frá árinu 2002)
RásstaÖa
• (ökumenn innan viö h sek frá ráspósltima)
Upplýsingar: RKNAULT
m/ /yyjg ^ iok251|ij
t: 1 Gömul Braut
/M/ 1 mlíf Æ\ 9 : Grande Courbe 1
(228
Imola
I.MIchael Schumacher 2 j 1 .Juan Pablo Montoya +0.0001 ökum. f mark 101
| 2.Kimi Raikkonen 4 | 2.Michael Schumacher 0.023 Fóru alla hringi ~5i
I B.David Coulthard 6 :|i B.Rubens Barrichello 0.212 §Í Fóru ekki alla hringi 5|
| 4Juan Pablo Montoya 1 |; 4.Kimi Raikkonen 0.259 R KEK; (2 dæmdir út) B
| S.Ralf Schumacher 2 H S.Ralf Schumacher 0.439 m Bilanir 7|
| ð.Jenson Button 7 j| 6-David Coulthard 0.513 Otafakstur/óhapp 2Í
Slndri Reykjavík • Klettagöröum 12 • sími 575 0000 Slndri Akureyri • Draupnisgötu 2 • sími 462 2360 Sindri Hafnarfirði • Strandgötu 75 • sími 565 2965
BMW og Williams
áfram saman
Um síðustu helgi var undirritað-
ur samningur milli BMW-bíla-
framleiðandans og WilliamsFI
um áframhaldandi samstarf í
Formúlu 1 kappakstri til ársins
2009.
Þessi tvö sterku félög hafa unnið
saman allt síðan árið 2000 og hefur
samstarf þeirra skilað sjö sigrum og
fjölda ráspóla og verðlaunasæta.
Þrátt íyrir að engir meistaratitlar
séu í höfn hófst samstarfið vel því
strax í fyrstu keppni komst Ralf
Schumacher í þriðja sæti í Mel-
bourne. Árin 2000 og 2001 endaði
BMW WilliamsFl í þriðja sæti
stigalistans en bætti um betur árið
eftir er öðru sætinu var náð. Um
síðustu helgi hélt liðið upp á nýjan
samning með tvöföldum sigri Ralfs
og Juan Pablo Montoya í evrópska
kappakstrinum á Niirburgring og
komst upp fyrir McLaren í stiga-
keppninni og er sem stendur í öðru
sæti með 82 stig. Sannarlega gieði-
leg helgi fyrir BMW og WilliamsFl á
miklum tímamótum.
Meiri samvinna í framtíðinni
Formúla 1 er mikil fjárfesting fyr-
ir stóran bílaframleiðanda eins og
BMW og er Burkhard Gyschel,
stjórnarmeðlimur BMW Group,
sérstaklega ánægður með samn-
inginn sem hefur verið í vinnslu
sfðan á síðasta ári. „Við erum mjög
ánægðir með að hafa náð samning-
um við WilliamsFl til svo langs
tíma. Þessi nýi samningur innsiglar
nánara samstarf þessara tveggja
aðila. Sem bílaframleiðandi höfum
við tækifæri sem eru einfaldlega
ekki opin keppnisliðum og þurfum
við nauðsynlega á hvor öðrum að
halda til að nýta alla möguleika.
Þetta snýst allt um að styðja þá sér-
þekkingu sem eitt sigursælasta
keppnislið í Formúlu 1 býr yfir,
tengja saman þekkingu og ná full-
kominni samvinnu.“ Fram að
þessu hefur BMW einungis útvegað
vélar til Williams-liðsins, en í fram-
tíðinni er þess vænst að BMW sjái
um smfði gírkassa og miðli betur
þeirri þekkingu sem þeir hjá BMW
búa yfir sem framleiðandi á sport-
og fólksbílum.
BMW góður samstarfsaðili
Frank Williams hefur verið f sam-
starfi með mörgum vélaframleið-
endum þau tuttugu og íjögur ár
sem lið hans hefur tekið þátt í For-
múlu 1 kappakstri. Flonda og
Renault eru þau sigursælustu og
fram að þessu hafa línumar verið
Eftir langar og strangar
samningaviðræður, þar
sem BMW vildi koma á
nánari samvinnu, hafa
báðir aðilar mæst á
miðri leið.
skýrar. „Við útvegum bílinn, þið
vélarnar." Eftir langar og strangar
samningaviðræður, þar sem BMW
vildi koma á nánari samvinnu, hafa
báðir aðilar mæst á miðri leið.
Lengi vel leit út íyrir að BMW ætlaði
að slíta samstarfinu vegna óánægju
með árangur FW25, sem á síðustu
vikum hefur verið að smella saman
og var fljótastur bíla f síðustu
... að næstsigursælasti öku-
maður f sögu Formúlu 1 var
Frakkinn Alain Prost. Hann hef-
ur sigrað f franska kappakstrin-
um sex sinnum en aðeins
þrisvar var hann á ráspól á
heimavelli. Alain Prost vann 51
keppni á ferlinum og fjórum
sinnum var hann krýndur
heimsmeistari. Síðast árið 1993
er hann ók fyrir Williams
Renault.
... að Alain stofnsetti sitt eigið
keppnislið undir nafninu
PROST og notaðist við Peugeot-
vélar sem b.iluðu mikið og skil-
uðu aldrei árangri. Draumurinn
um franskt Formúlu 1 keppn-
islið varð aldrei að veruleika.
Síðasta keppnistímabil PROST
var árið 2001.
... að franski bílaframleiðand-
inn Renault er einn sá sigursæl-
asti f sögu Formúlu 1. Á árunum
1991 til 1997 unnu þeir hjá
Renault 95 keppnir og voru 136
sinnum á ráspól. Einnig unnu
þeir sex liðatitla og fimm öku-
mannstitla með Williams og
Benetton. Nú hefur Renault
ákveðið að fara eitt og óstutt í
baráttuna og keypti til þess
Benetton-liðið.
... að síðustu tólf ár hefur
franski kappaksturinn verið
háður á Magny-Cours-braut-
inni, eða allt síðan 1991. Áður
fyrr var kappaksturinn oftast
hýstur á Paul Richard-brautinni
í Suður-Frakklandi eða alls fjórt-
án sinnum. Paul Richard er nú í
eigu Bernie Ecciestone og eru
höfúðstöðvar prófana Toyota-
liðsins.
... að síðustu þrjú ár hefur
David Coulthard átt hraðasta
hringinn á Magny-Cours. Einnig
hefur Michael Schumacher
unnið franska kappaksturinn
sex sinnum, síðast í fyrra er
hann innsiglaði fimmta heims-
meistaratitil sinn eftir að Kimi
Ráikkonen fataðist flugið og
missti af fyrsta sigri sínum.
... að árið 2001 náði Ralf
Schumacher sfnum fýrsta ráspól
á Magny-Cours á 26. afmælis-
degi sínum. Sama ár var franski
kappaksturinn sá 100. hjá
Frakkanum Oliver Panis.
Schumacher vann keppnina og
var það fimmtugasti sigur hans
á ferlinum.
... að Ferrari er sigursælasta
keppnisliðið í sögu ffanska
kappakstursins. Alls þrettán
sinnum hefur Ferrari átt fyrsta
bíl í mark á franskri grundu. Lot-
us og Williams koma þar næst á
eftir með sjö sigra en McLaren
hefúr ekki unnið nema fimm
sinnum. Jordan á að baki einn
sigur í franska kappakstrinum,
en árið 1999 vann Heinz Harald
Frentzen á Jordan eftir glæsileg-
an akstur.
WILUAMS-BMW: Ralf hefur tvöfalda ástæðu til að fagna eftir sigur í síðustu keppni því að
Williams-liðið fær að nota BMW-vélarnar sex ár f viðbót
keppni. Ekkert bólar þó á að bfla-
framleiðandinn sé að að kaupa sig
inn í Williams-liðið líkt og Benz
hefur gert með McLaren. „BMW-
menn hafa verið mikilfenglegir og
sérstaklega áhugasamir samstarfs-
aðlilar síðan 2000,“ sagði Frank
Williams eftir undirritun samn-
ingsins. „Ég hef fulla trú á að með
nýju fýrirkomulagi komum við til
með að geta kafað dýpra í þekking-
arbrunn BMW. Þegar það kemur
saman við tækniþekkingu og sigur-
vilja WilliamsFl trúi ég að þetta
samstarf gefi af sér góðan arf,“
sagði hann að lokum. fi@dv.is