Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2003, Page 8
8 DVBlLAR LAUGARDAGUR 5. JÚU2003
REYNSLUAKSTUR
Njáll Gunnlaugsson
njall&dv.is
Ánægjulegasti hlutinn við
prófun á bíl sem þessum er
sjálfur aksturinn
Reynsluakstur nr. 777
Vél: 3,0 lítra, sex strokka benslnvél
Rúmtalc 2979 rúmsentímetrar
Ventlan 24
Þjöppun: 10,2:1
Glrkassi: Sjálfskiptur, fimm þrepa
fíD-fíVAGIi:
Fjöðrun framan: . Sjálfstæð Macpherson
FJÖðrun aftan: Sjálfstæð, fjölarma
Bremsun Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD, DSC
Dekkjastærö: ___________ 225/45 R17
VTf iTOLUR:
Lengd/breidd/hæö: 4471/1739/1415 mm
HJólahaf/veghæö: 2725/130 mm
Beygtjuradlus: 10,5 metrar
INNRí TÖLUR:
Farþegar m. ökumannl: 5
Fjöldi höfuöpúöa/örygglspúöa: 5/6
Farangursrýml: 440 lltrar
HAGKVÆ.MNl:
Eyösla á 100 km: 10,3 Ktrar
Eldsneytlsgeymlr. 63 lltrar
Abyrgö/ryðvöm: 3/8 ár
Grunnverð: 5.160.000 kr.
Verð prófunarbds: 6.050.000 kr.
Umboð: B&L
Staðalbúnaðun Isofix-festíngar fyrir barnabíl-
stól, fjarstýrðar samlæsingar með ræsivörn,
aksturstölva, rafdrifnar rúður og útispeglar, 17
tommu álfelgur, armpúðar, þokuljós, geislaspil-
ari, leðurstýri með aðdrætti og fjarstýringu fýr-
ir hljómtæki, skrikvörn
Aukabúnaöur I prófunarbd: Fjórhjóladrif, leður-
og viðarinnrétting, rafstýrð framsæti með
minni, upphituð framsæti, regnskynjari, gas
fyllt HID-lágljós, sjálfvirk loftkæling, Harman
Kardon-hljómkerfi, hvít stefnuljós, hallaviðnám
SAMAN8URÐARTOLUR:
Hestöfl/sn.: 231/5900
Snúnlngsvægl/sn.: 300 Nm/3500
Hröðun 0-100 km: 7,4 sek.
Hámarkshraði: 247 km/klst.
Elgin þyngd: 1540 kg
Heildarþyngd: 1965 kg
Er eins og límdur við malbikið
Það fylgir því alveg sérstök
ánægjutilfinning að keyra
BMW-bíla, sérstaklega ef um er
að ræða sportlega útgáfu eins
og 330i sem DV-bílum bauðst að
prófa í vikunni.
Hönnuðir BMW hafa verið trúir
ákveðnum gildum lengi og því eru
bflar þeirra enn afturhjóladrifnir
þegar flestir samkeppnisaðilanna
eru búnir að færa sig í framdrif.
Reyndar var prófunarbfllinn fjór-
hjóladrifinn svo að hann hafði
geysilega gott veggrip.
Hannaður fyrir ökumann
Maður fær það reyndar strax á til-
finninguna að þessi bfll sé hannað-
ur með ökumanninn í huga um leið
og sest er inn í hann. Þykkt, leður-
klætt stýrið er ekki mikið um sig og
sætin falla vel að lflcamanum. Öku-
mannssæti er með rafstillingum og
auk þess er hægt að færa fram set-
una til að styðja betur við fætur
ökumanns og farþega í framsæti.
Mælaborð er sportlegt og mælar og
stjórntæki í miðjustokki halla örlítið
í átúna að ökumanni. Það er ekkert
sérlega rúmt um fætur enda gert
vísvitandi til að ökumaður geti haft
stuðning af miðjustokki í kröppum
beygjum. Allt umhverfi ökumanns
er því hannað með það fyrir augum
að honum líði vel og hafi góða yfir-
sýn yfir það sem hann er að gera.
Vel búinn en mætti vera
rúmbetri
Pláss fyrir aftursætisfarþega er
með ágætum í 3-línunni þótt það
jafnist ekki á við það sem best gerist
í þessum flokki. Sama má segja um
farangursrými sem er 440 lítrar í
þessum bfl en staðallinn í þessum
flokki virðist miðast við 500 lítra. í
bfl sem þessum er búnaður mikill
og þar stenst hann fyllilega saman-
burð. Við höfum þegar nefnt raf-
stýrð framsætin en einnig er bfllinn
búinn sex diska magasíni í miðju-
stokki, sex öryggispúðum, hita-
stýrðri miðstöð, aksturstölvu, gas-
fylltum HID-ljósum, skriðstilfi í
stýri sem aukabúnaði. Bfllinn er líka
með DSC spól- og skrikvöm sem
staðalbúnað og ótrúlegt en satt
Kostir QáiláT
Veggrip, Ekki hægt að
aksturseiginleikar. slökkva alveg á
sæti spólvörn, lágt
undir hann
hallaviðnámi, en slflct sér maður
bara í vel búnum jeppum. Þetta get-
ur þó verið sniðugur búnaður í
fólksbfl lflca þegar ekið er niður
bratta brekku í hálku, kannski jafn-
vel með kerm í eftirdragi. Virkar þá
hallaviðnámið þannig að það
bremsar þeim hjólum sem fara að
renna og heldur bflnum á 5 km
hraða.
Afar fullkominn stöðugleika-
búnaður
Ánægjulegast hlutinn við prófun
á bfl sem þessum er sjálfúr akstur-
inn og þar komast fáir með tærnar
þar sem þessi hefur hælana. Sex
strokka línuvélin urrar lágt en
ákveðið í gegnum tvöfalt pústkerfið
um leið og sett er í gang. Afturhjóla-
drifinn BMW 330i er svo sem ekkert
leiðinlegur heldur en þegar komið
er fjórhjóladrif í bflinn er hann eins
og límdur við malbikið. Eru þar
margir samverkandi þættir sem
spila inn í. í fyrsta lagi er fjöðrun
bflsins hönnuð með það fyrir aug-
um að bfllinn liggi vel í beygjum og
einnig á miklum hraða enda há-
Fjórhjóladrifið hefur að
sjálfsögðu mikið að
segja því að það er
alltafvirkt.
markshraðinn við 250 km markið.
Þess vegna er hann með fjölarma
fjöðrun að aftan sem minnkar til
muna hliðarveltu á yfirbyggingu
bflsins. Fjórhjóladrifið hefur að
sjálfsögðu mikið að segja því að það
er alltaf virkt og er 38% átaksins á
framhjólunum. Til að fullkomna
verkið er svo DSC-skrikvörn í bfln-
um sem virkar ekki aðeins á drif-
búnað og bremsur heldur einnig
fjöðrunarbúnað hans. Þannig er
nánast sama hvað bflnum er boðið
upp á í erfiðum aðstæðum, cflltaf
skal hann halda sínu striki og jafn-
vel óvanur ökumaður kæmist upp
með ýmislegt svo lengi sem hann
veit hvert stýra skal bflnum. Það er
kannski líka með þann ökumann í
huga að ekki skuli vera hægt að
slökkva alveg á skrikvöminni, en
hægt er að slökkva á henni að hluta,
þannig að hún grípur seinna inn í.
Það getur komið sér vel við erfiðari
aðstæður eins og mikla lausamöl
eða snjó og veitir ekki af enda er lágt
undir bfllinn svo ekki sé meira sagt.
Fyrir þá sem kunna að keyra
minnkar það þó aðeins skemmt-
anagildið að ekki skuli vera hægt að
slökkva alveg á skrikvöminni.
Verðið ekki svo slæmt
Svona góður bfll getur ekki verið
ódýr, eða hvað? Fjórhjóladrifin út-
gáfa 330i bflsins eins og þessi kostar
sjálfskiptur 5.160.000 kr. sem er
auðvitað þónokkuð fyrir fólksbfl.
Sambærilegir bflar em fáir en finn-
ast þó á stangli. Mercedes-Benz C
320 4Matic kostar 5.640.000 kr. með
sambærilegri vél og búnaði. Einnig
er hægt að nefna bfla eins og Audi
A4 Quattro sem með 220 hestafla
vél kostar 5.050.000 kr. og Volvo S60
Turbo AWD sem kostar sjálfskiptur
með 210 hestafla vél 4.335.000 kr.
Þannig má segja að verðið á BMW
330i sé ekkert svo agalegt í saman-
burðinum.
JJ Mælaborðið er vel upp sett og aldrei þarf að teygja sig langt (stjórnbúnað.
J Öflug, sex strokka línuvélin skilar nægu afli við allar aðstæður og hendir
þessum sjálfskipta,eins og hálfs tonns bíl í hundraðið á 7,4 sekúndum.
3 Bíllinn er búinn gasfylltum HID-ljósum sem staðalbúnaði.en þau veita
meiri og betri birtu. Felgurnar eru 17 tommu og bíllinn kemur á lágbarða
dekkjum.
j| Farangursrýmið er þokkalegt en stenst þó ekki samanburð við það besta í
flokknum.
Q Framsætin eru sérlega þægileg hvort sem ekið er greitt eða ekki og munar
þar mikið um stillanlegan stuðning undir hnésbæturnar.
3 f miðjustokki er búið að koma fyrirtökkum fyrir DSC-skrikvörn og merki-
legt nokk, hallaviðnámi!