Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Qupperneq 6
Fókus sepmtember 2003 Jmyndinni The Italian Job sem Ifrumsýnd verður í Háskólabíói og iLaugarásblói 5. september. iMyndin er endurgerð samnefndr- ar myndar frá 1969 og hefur feng- Áætlunin var gallalaus, verkið gekk fullkomlega upp og þeir komust auðveldlega undan. Það sem hinn snjalli þjófur, Charlie Croker (Mark Wahlberg), sá ekki fyrir var að einn af hans eigin mönnum myndi svikja hann. Charlie er með sér til aðstoðar innanbúðarmanninn Steve (Edward Norton), tölvusnillinginn Lyle (Seth Green), ökuþórinn Handsome Rob (Jason Statham), sprengjusérfræðinginn Left-Ear (Mos Def) og gamla brýnið John Bridger (Donald Sutherland). Saman fremja þeir bfræfið rán í höll í Feneyjum sem búin er fullkominni öryggisgæslu. Þessir félagar trúa því ekki þegar einn úr hópnum svíkur hina og nú snýst lff þeirra ekki leng- ur um ránsfenginn heldur um hefndina. Eltingarletkir á MINI Þá kemur til sögunnar hin íðilfagra Stella (Charlize Ther- on) sem er snillingur í því að brjóta upp peningaskápa. Hún gengur til liðs við hópinn og saman elta þau svikarann til Kaliforníu þar sem þau hyggjast stela gullinu aftur með því að brjótast inn í umferðaríjósakerfi Los Angeles, stjórna ljós- unum og koma af stað einni mestu umferðarteppu í sögu borgarinnar. The Italian Job er endurgerð á samnefndri mynd frá árinu 1969. f henni er að finna ótrúlega bílaeltingarleiki á nýjum og glæsilegum mini-bílum, meðal annars um stræti sem engir aðrir bílar myndu komast. Þetta er alvöru spennutryll- ir því auk þess fáum við að sjá spennuatriði þar sem koma við sögu brynvarðir bílar, mótorhjól og þyrlur. Nær Wahlberg sér aftur á strik? Það er sjálfur Mark Wahlberg sem fer með aðalhlutverkið hér. Wahlberg hefur verið rólegur upp á síðkastið eftir að hafa verið spáð miklum framafyrir nokkrum árum. Nú virð- ist drengurinn ákveðinn í að sanna sig og hér velur hann mynd sem teljast verður „örugg“. Mark Wahlberg er annars þekktastur fyrir hlutverk sín í Planet of the Apes, Three Kings og The Perfect Storm, auk snilldarmyndarinnar Boogie Nights sem kom honum á kortið í Hollywood. öllu meiri þungavigtarmaður kemur rétt á eftir honum í upptalningunni, sjálfur Edward Norton sem nýlega lék í Spike Lee myndinni 25th Hour. Norton hefur fyrir löngu sannað sig í myndunum Fight Club, The Score, Red Dragon og fleiri. Hann hefur auk þess verið tilnefndur til óskarsverð- launa fyrir leik sinn í American History X og Primal Fear. Ungir og efnilegir leikarar Þá er það sæta stelpan Charlize Theron. Hún hefur leikið f ræmum eins og The Cider House Rules, Woody Allen-mynd- unum Celebrity og The Curse of the Jade Scorpion, The Devil’s Advocate og Reindeer Games, svo nokkrar séu nefndar. Sannarlega leikkona sem við gætum átt eftir að fylgjast með um ókomna tíð. Annar ungur og efnilegur leikari í myndinni er Seth Green sem leikur Scott Evil, son dr. Evils í Austin Powers-myndun- um. Hann þykir líldegur til afreka á næstunni eftir að hafa sýnt skemmtilega takta í myndum á borð við Rat Race, Enemy of the State, Can’t Hardly Wait og Knockaround Guys. Þá talar hann inn fyrir táningsstrákinn í þáttunum Family Guy. Leikstjóri The Italian Job er F. Gary Gray sem síðast gerði A Man Apart með Vin Diesei í aðalhlutverki. Hann gat sér gott orð fýrir gerð tónlistarmyndbanda áður en hann fór út í kvikmyndir en á ferilskránni nú eru Friday (með Chris Tucker og Ice Cube), Set It off og The Negotiator (Samuel L. Jackson og Kevin Spacey). The Italian Job verður frumsýnd 5. september í Háskólabíói og Laugarásbíói. The Life nf Dauid Gale Kevin Spacey leikur prófessor I Texasríki sem er andvígur dauðarefsingum en ei sjálfur dæmdur til dauða fyrir að nauðga samstarfskonu sinni og myrða hana. Kate Winslet leikur blaðamann sem skráit sögu hans áður en hann er líflátinn og sannfærist hún um að Gale sé fórnarlamb samsæris vegna skoðana sinna. Auk aðal- leikaranna þykir Laura Linney fara á kost- um í hlutverki fórnarlambsins. Leikstjóri er Alan Parker sem meðal annars gerði Mississippi Burning. Frumsýnd: 12. september í Sambíóunum og Háskólabíói. w Hatnhstink Men Þeir Roy (Nicolas Cage) og Frank (Sam Rockwell) hafa í sig og á með því að pretta fólk. Þessa dagana selja þeir fólki vatnssí- ur á uppsprengdu verði og ljúga því að kaupendurnir geti unnið glæsileg verð- laun. Svindlbransinn er hins vegar ekkert grín og Roy á í erfiðleikum í einkalífinu. Hann leitar sér meðferðar og kemst þá að því að hann á 14 ára dóttur sem hann hef- ur aldrei hitt. Þegar hann fer að umgang- ast dótturina uppgötvar hann að hún er með svindlaragenið f sér og þarf hann þá að ákveða hvort hann vill leyfa henni að ganga í gegnum það sem hann hefur gert. Frumsýnd: 26. sept í Sambíóunum. ________________Daddu Ddu Car Charlie (Eddie Murphy) og Phil (Jeff Garlin) eru svo uppteknir í fínu störfun- um á auglýsingastofu sinni að þeir hafa engan tfma til að njóta þess að vera með börnunum sínum. Þegar þeir eru svo reknir úr vinnunni hafa þeir ekki lengui efni á að borga dýra dagvistun fyrir syni sína og þurfa að sjá um þá sjálfir. Þegar þeir uppgötva að þeir eru vel færir um það ákveða þeir að það geti nú ekki verið miklu erfiðara að sjá um tíu krakka í einu. Þegar þeir hafa stofnað eigið barnaheim- ili sjá þeir að barnapössun er ekki eins auðveld og þeir héldu. Frumsýnd: 5. september í Smárabíói og Regnboganum. Bad Boms II Ríertm-Lawrence og Will Smith snúa aftur sem kolrugluðu fíkni- efnalöggurhar Marcus og Mike sem komu fram í Bad Boys fyrii átta árum. Þeir starfa nú í hópi sem á að vinna gegn útbreiðslu al- sælu í Miami og komast f kast við eiturlyfjabarón sem hikar ekki við að drepa mann og annan til að ná markaðnum undir sig. Þar að auki er gullfalleg systir Marcusat (Lawrence), sem einnig er fíkni- efnalögga, búin að villa á sér heim- ildir og lendir í miðjum látunum, Eins og það sé ekki nóg þarf Marcus að horfa upp á félaga sinn, Mike, renna girndaraugum til syst- ur sinnar. Frumsýnd: 19. september í Smára- bíói og Regnboganum. Handhafar SVARTA KORTSINS fá eftirfarandi kaupauka með skólatilboðum Pennans á IBM, HP og Dell fartölvum: * Allir fá ókeypis HP 3320 bleksprautuprentara. • 70 fyrstu fá einnig afhentan HP/COMPAC minnislykil. Skilyröi er aö greiöa e-n hluta meö SVARTA KORTINU. Tilboðið gildir til 30. september 2003. Penninn, Hallarmúla 2, Reykjavík, sími 540 2000 Penninn-Bókval, Hafnarstræti 91-93, Akureyri, simi 461 5050 Heimasíöa Pennans: www.penninn.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.