Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2003, Page 12
12 MENNING FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003
Menning
Leikhús • Bókmenntir • Myndlist • Tónlist • Dans
Umsjón: Sllja Aðalsteinsdóttir
Netfang: silja@dv.is
Sími: 550 5807
Stjórnun á tímum hraða
Ljósmyndasamkeppni
FRÆÐIRrT: JPV útgáfa hefur
gefið út bókina Stjórnun á tím-
um hraða og breytinga eftir
ÞórðVíking Friðgeirsson.
Þetta er fyrsta bók sinnar gerð-
ar á íslensku og tekur mið af ís-
lenskum aðstæðum. Hún fjallar
um skipulag fyrirtækja og und-
irbúning verkefna, áætlana-
gerð og eftirlit, verklok og mat
á árangri. Dæmi úr íslensku at-
vinnulífi
varpa Ijósi á
efnið og
kynnt er ís-
lensk könn-
un á árangri
verkefna-
stjórnunar í
fyrirtækjum. Geisladiskurfylgir
með ítarefni og stuðningsefni
er á www.stefni.is.
UÓSMYNDIR: Hafin er Ijós-
myndasamkeppni á vefsíðunni
www.ljosmyndari.is í fimmta
sinn. Hún er öllum opin og get-
ur hver einstaklingur sent inn
allt að fimm myndir. Myndefnið
er frjálst. Eingöngu er tekið á
móti myndum í tölvupósti á
netfangið Ijosmynd-
ari@ljosmyndari.is til 15.
október 2003. Þetta er
útsláttarkeppni. Hægt verður
að sjá allar myndirnar 15. til 31.
október og greiða atkvæði. 200
myndir halda áfram keppni og
vikulega verður hægt að gefa
atkvæði þeim myndum sem
eftir standa. Loks ræður þriggja
manna fagdómnefnd úrslitum.
Verðlaun eru stafræn stækkun
að verðmæti 80.000 krónur. Sjá
nánar á www.ljosmyndari.is.
Létttangó-
sveifla
TÓNUSTARGAGNRÝNI
Jónas Sen
Tríó Nordica, sem samanstendur afþeim Auði
Hafsteinsdóttur fiðluleikara, Bryndísi Höllu
Gylfadóttur sellóleikara og Monu Sandström pí-
anóleikara, hélt upp á tíu ára afmæli sitt með
tónleikum i Salnum í Kópavogi á þriðjudags-
kvöldið.
Tríóið hefur ekki verið áberandi í íslensku
tónlistarlífl undanfarin ár, en vonandi á það
eftir að breytast því þetta eru allt afburða
músíkantar, eins og fram kom í grein minni í
DV í gær um tónleika Kammermús-
íkkiúbbsins.
Fyrst á efnisskránni var glænýtt tríó
eftir Þórð Magnússon og var það í tveimur
köflum. Hinn fyrri var fremur afslappaður
þótt lífleg hrynjandi væri aldrei langt undan,
en hinn síðari var hraður með léttu tangóí-
vafi. Grunnhugmyndirnar voru í sjálfu sér
ekki frumlegar en sannfærandi úrvinnsla vó
þar upp á móti og var útkoman aldrei leiðin-
leg. Einkennandi fyrir verkið var skýr fram-
setning, úthugsuð hljóðfæraraddsetning og
rökrétt framvinda en það sat ekki beinlínis í
manni eftir á. Hins vegar var það prýðilega
spilað af þremenningunum, allar nótur voru
skýrar, takturinn vísindalega nákvæmur og
gott samræmi á milli hljóðfæraleikaranna.
Auk tónsmíðar Þórðar voru leikin tvö tríó
eftir Brahms, fyrst nr. 3 í c-moll op. 101 og
síðan nr. 1 í H-dúr op. 8. Óþarfi er að fjölyrða
eitthvað um þessar tónsmíðar, sem eru
Sérstaklega verður að nefna
H-dúr tríóið, þar sem píanó-
leikarinn fór bókstaflega á
kostum i fjörlegum öðrum
kaflanum en ofurhratt
fingraspilið var bæði hnífjafnt
og glæsilegt.
dæmigerðar fýrir tónskáldið. En þær voru
báðar afburðavel fluttar af Tríóinu, og hin
þunga undiralda sem er dæmigerð fyrir
Brahms var áberandi í túlkuninni. Sérstak-
lega verður að nefna H-dúr tríóið þar sem pí-
TRÍÓ NORDICA:
Lék afburðavel á tíu ára afmælinu.
DV-mynd ÞÖK
anóleikarinn fór bókstaflega á kostum í fjör-
legum öðrum kaflanum en ofurhratt
fingraspilið var bæði hnífjafnt og glæsilegt.
Fagrir sellótónar Bryndísar Höllu í hæga
þættinum voru einnig sérlega áheyrilegir og
sömu sögu er að segja um Auði, sem kann þá
list að spila kammermúsík án þess að vera
stöðugt að reyna að stela senunni eins og
sumum fiðluleikurum hættir til að gera.
Þetta voru ánægjuiegir tónleikar og er Tríó
Nordica hér með óskað til hamingju með
stórafmælið; megi það lengi lifa.
Nóttin sýnir í tvo heima
BÓKMENNTAGAGNRVNI
Silja Aðalsteinsdóttir
Þora Jónsdottir:
Einnota vegur
Mýrarsel2003
Konan sem talar við lesanda sinn I nýrri Ijóða-
bók Þóru Jónsdóttur, Einnota vegur, hefur lifað
langa ævi. Það eryfir knöppum Ijóðunum kyrrð
og sátt sem gefur þeim afar aðlaðandi blæ.
Ljóðunum er skipt í fjóra kaíla og eru sá
fyrsti, þriðji og fjórði keimlíkir að tóni, en
annar hlutinn, „Ung ijón og spörvar", er
fyndnari en hinir og jafnvei stríðnislegur;
óvæntar staðhæfmgar markvisst notaðar til
að koma lesanda á óvart. Þar er ljóðmælandi
yngri eða á hana sækja minningar. Kvennalíf
og -störf eru látin mynda andstæður við
æskudrauma eins og þegar „Raddir kalla mig
/ inn í fjarlægðir", en það genguryfir „á með-
an ég mála ruslatunnuna / með hreingern-
ingarklút á höfði" (32).
Þau eru ekki viðburðarík eða átakamikil á
yfirborðinu þessi ljóð; ljóðmælandi situr á
svölum, sér álftir fljúga yfir, gengur í fjöru,
hugsar um náttúruna, blómin, dýrin,
draumana, tímann, fortíðina - og nútíðina
(22):
Föstudagsumferðin
er ísögulegu hámarki
Það sést afglerbrotunum
Hefðirðu trúað
að þú ættir þetta eftir
En á bak við mörg þeirra lúrir dauðinn. „Ég
ek veginn", segir í ljóðinu sem geymir bókar-
titilinn (11):
Þóra er afar málhög og mynd-
mál hennar er víða fallegt og
lifandi - til dæmis er vorinu
lýst með því að náttúran eigi
von á sér og „Ijósmóðirin"
taki lengri og lengri vaktir.
Enginn staðnæmist
á þessari leið
nema fyrir eitt
Þetta er einnota vegur
Einhver er fast á eftir mér
Ég sé ekki andiitið
„... kveðjustundum fjölgar / við brottfararhlið-
in“ (37) og tíminn er orðinn naumur, „Þú bíður
ekki lengur / eftir útnefningu og kórónu," (38) seg-
ir (lokaljóði annars hluta. Kannski má þar merkja
ofurlítil sárindi skálds sem hér gefur út sína ní-
undu frumsömdu ljóðabók og hefur ef til vill ekki
fengið þá athygli sem hún á skilið að fá.
Þóra er afar málhög og myndmál hennar er víða
fallegt og lifandi - til dæmis er vorinu lýst með því
að náttúran eigi von á sér og „ljósmóðirin" taki
lengri og lengri vaktír (10). Á öðmm stað undrast
máninn, þar sem hann „hvílir á bakinu / nálægt
haffletínum", hve ástvinimir em komnir langt frá
þeim stað þar sem vaggan stóð. Stakar semingar
greypast líka í minnið, eins og þegar „Tíminn
keppist við / að telja niður hjartaslög" eða „nóttín
sýnir f tvo heima" (44). Stundum er stillt saman
náttúm og mannlífi á sláandi hátt (46):
Eftir skýfall næturinnar
er jarðvatnið íhámarki
Súla grátsins stendur
misháttí manninum
Það er djúp og vitræn hugsun á bak við þessi
ljóð. Þau em fögur kveðja lífsreyndrar skáldkonu
til landa hennar.
Stjörnur á faraldsfæti
Þeir sem ekki fengu miða á tónleika Sig-
rúnar Hjálmtýsdóttur, Gunnars Guðbjörns-
sonar, Kristins Sigmundssonar og Jónasar
Ingimundarsonar í Salnum annað kvöld geta
huggað sig við að tónleikarnir verða endur-
fluttir í Salnum mánudagskvöldið 29. sept. kl.
20. En ekki bíða með að kaupa miða! Sími í
miðasölu er 5 700 400 og líka er hægt að
kaupa miða á veffanginu www.salurinn.is.
Tónleikarnir verða ekki oftar á höfuðborg-
arsvæðinu, en tónlistarfólkið ætlar í staðinn
með þessa söngveislu út um landið. Þar
verða fyrstu tónleikarnir í Siglufjarðarkirkju
laugardagskvöldið 27. sept. kl. 20.30, síðan í
Miðgarði í
Skagafirði
sunnudaginn
28. sept. kl. 16,
í Fjölbrauta-
skóla Suður-
lands á Sel-
fossi þriðju-
dagskvöldið
30. sept. kl.
20.30, og að
lokum í Reyk-
holtskirkju
fímmtudags- Sigrún Hjálmtýsdóttir.
kvöldið 2. okt.
ki. 20.30.
Á efnis-
skránni eru
vinsælar aríur,
dúettar og
terzettar úr
þekktum óp-
emm eftir
Mozart, Bizet,
Gounod, Verdi og Puccini, og íslensk sönglög
eftir Sigfús Einarsson, Sveinbjörn Svein-
björnsson, Sigvalda Kaldalóns, Markús Krist-
jánsson, Emil Thoroddsen og Bjarna Þor-
steinsson.
Það er ekki á
hverjum degi
sem þessir
vinsælu
söngvarar hafa
möguleika á
því að hittast
og syngja sam-
an á tónleik-
um, og munu tónlistamnnendur vafalaust
fagna einstæðu tækifæri til að heyra í þeim
saman.