Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2003, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 TILVERA 17
Húshjálpin í mál við Will
Hollywoodleikarinn Will Smith
stendur í stappi við fyrrum hús-
hjálp sína sem krefst þess að
hann greiði henni um tíu millj-
ónir króna. Marilu Cooley segir
að Will og eiginkona hans
skuldi sér laun fyrir 1.640 auka-
vinnutíma og að hún hafi verið
rekin þegar hún færði það í tal
við húsbændurna. Marilu bjó
hjá fjölskyldunni í fjögur ár.
Cooley segist oft hafa unnið
meira en 40 stundir á viku og
fengið greitt fyrir yfirtíðina
fyrstu tvö árin í vistinni. Greiðsl-
urnar voru hins vegar stöðvaðar
árið 1999 en á móti kom að Will
og frú lofuðu að greiða henni
um fjórtán milljónir króna í
bónus árlega. Þær greiðslur skil-
uðu sér aldrei og nú vill hús-
hjálpin fá tíu millur.
Nærbuxnasýning í klefanum
Svíinn Freddie Ljungberg, leik-
maður Arsenal, hefur heldur
betur fengið að finna fyrir
stríðni félaga sinna í Lundúna-
liðinu eftir að hann fór að leika í
nærbuxnaauglýsingum fyrir
Calvin Klein og auðvitað er það
í búningsklefanum sem hann
verður helst fyrir barðinu á
þeim.
Eftir æfingu á föstudaginn fyrir
leikinn gegn United tóku þeir
Ray Parlour, Ashley Cole og Thi-
erry Henry sig til og settu upp
sína eigin tískusýningu þarsem
þeir tróðu sokkum í buxurnar til
þess að sýnast lítið eitt kýldari.
„Þeir gáfu allt í sýninguna og
dilluðu sér fýrir framan Freddie
sem auðvitað hafði gaman af
fílalátunum í þeim," sagði einn
viðstaddra.
Jeepers Creepers 2
Creeper er frekar viðbjóðsleg
vængjuð skepna sem kynnt var í
Jeepers Creepers. Hún er nú kom-
in á kreik aftur og það er matmáls-
tími hjá henni. Það er ekki oft sem
hún tekur sig til og borðar en það
sem henni þykir best er manna-
kjöt og skrímslið vill mikið af því.
Nú eru 23 ár frá því Creeper borð-
aði síðast og skepnan er svöng og
hefur hún 23 daga til að nærast
áður en hún leggst til hvílu aftur.
Jeepers Creepers 2 er framhald
Jeepers Creepers frá árinu 2001en
sú mynd náði nokkrum vinsæld-
Rúta körfuboltaliðs ásamt
fríðu föruneyti klappstýra og
þjálfara stöðvast skyndilega á
hinum alræmda East 9 þjóð-
vegi. Og hver haldið þið að
MATCHSTICK MEN: Nicolas Cage leikur
krimmann Roy og Alison Lohman leikur
dóttur hans.
heimsæki krakkana? Jú, Creeper
er mættur til leiks. Þegar dimm og
ógnvekjandi nóttin færist yfir
þurfa ungmennin að heija baráttu
upp á líf og dauða við ómann-
eskjulega grimman andstæðing.
Samstaðan í hópnum er í hættu
því undir slíkum kringumstæðum
geta viðbrögð mannsins verið óút-
reiknanleg, sérstaklega þegar ótt-
inn er orðinn miklu meira en
óbærilegur.
í helstu hlutverkum eru ungir
og tiltölulega óþekktir leikarar
sem eru að hefja feril sinn. Leik-
stjórinn Victor Salva hefur meiri
reynslu. Hann leikstýrði einnig
fyrri myndinni.
hkarl@dv.is
LANGFLOTTUST: Italska teikkonan Sophia Loren er alltaf jafnglæsileg þótt komin sé af
allra léttasta skeiði, eins og þessi mynd ber með sér. Sophia veifar hér til aðdáenda sinna
við komuna á kvikmyndahátíðina í Hamborg í Þýskalandi. Hún er þar með syni sínum
Eduardo Ponti að kynna mynd þeirra, Between Strangers. Það er hundraðasta myndin
hennar en fyrsta mynd sonarins.
Mariah gerir það
við eigin undirleik
Ameríska poppstjarnan Mariah Carey
stundar kynlíf ekki í miklum mæli
þegar hún er einhleyp, elns og nú.
Annað er upp á tenlngnum þegar
hún á kærasta. Pá gerir hún það oft
og á hinn fjölbreytilegasta máta.
„Ég hef stundað símakynlíf, ég
hef gert það við undirleik eigin laga
og ég hef gert það í fataskáp," segir
söngkonan íturvaxna í viðtali við
karlatímaritið Maxim.
Aðspurð segir söngkonan að
nokkuð langt sé um liðið síðan hún
naut ásta undir eigin tónlist.
„Ég man það þó að það kveikti
ekkert sérstaklega í mér. Það var
hugmynd stráksins að setja plötu á
fóiiinn af því að hann var aðdáandi
minn áður en við hittumst," segir
Mariah Carey.
ELSKAST UM ALLT: Söngkonan Mariah
Carey hefur gaman af því að elskast á ólík-
legustu stöðum.
Björgun Jessicu Lynch
Einhver æsilegasta uppákoman
í stríðinu í írak er. björgun hinnar
ungu Jessicu Lynch. Mikið hefur
verið skrifað um hetjudáðina í
kringum björgun hins unga her-
manns. Og í fyrstu var talið að um
mikla hetjudáð hefði verið að
ræða. Fljótt fóru þó að kvisast út
sögur um að atburðurinn hefði
ekki verið á þann veg sem kynnt
var. Mótspyrnan á spítalanum þar
sem Jessica Lynch var hefði verið
engin og hún ekki í hættu, var að
vísu særð. Bandaríkjamenn sjálfir
trúðu sögunni enda þjóðernis-
kenndin slík að enginn má segja
neitt þar í landi sem stuggar við
Bush forseta og stefnu hans í mál-
efnum Iraks. Hvað er satt og hvað
ekki kemur sjálfsagt aldrei skýrt
fram.
NBC-sjónvarpsstöðin sá að
þarna var kominn góður sögu-
þráður í sjónvarpsmynd (að sjálf-
sögðu heldur NBC sig við banda-
rfsku útgáfuna) og setti í hraðgír til
að geta sýnt myndina fyrir áramót.
Þar sem ekki var hægt að kvik-
mynda í Irak var farið til Dallas til
þess. í skjóli olíufurstanna og
skýjakljúfanna var síðan byggt
umhverfi sem á að líkjast sögu-
slóðum í Irak. Þarna verður mynd-
in að langmestu leyti tekin og
kemur hún fyrir augu bandarískra
áhorfenda í lok nóvember.
MÓTSÖGN: Hér má sjá hvernig gata í (rak
lítur út þegar bandarískir sviðshönnuðir
eru búnir að breyta breiðgötu í Dallas.
Eins og sjá má gnæfa skýjakljúfar í bak-
grunninum.
-
ffli íæ M
, , | MjSxá -pTTí l—
■M fl:
Wm