Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Side 5
LAUGARDAQUR 27. SEPTEMBER 2003 DVBILAR 35
Schumacher í lykilstöðu
Þjóðverjanum gæti dugað að enda í öðru sæti
Það er farið að sfga á seinni hluta
keppnistímabilsins, aðeins tvær
keppnir eftir og niðurstaðan sem
allir hafa beðið eftir síðan í mars
gæti fengist ekki seinna en á morg-
un. Michael Schumacher er kom-
inn í lykilstöðu í stigakeppninni eft-
ir glæsilegan baráttusigur á Monza-
kappakstursbrautinni fyrir hálfum
mánuði. Þá bætti hann stöðu sína
um tvö stig og hefur nú þriggja
stiga forystu á Juan Pablo Montoya
og sjö stig skilja hann og Kimi
Raikkonen. Finninn á enn tölfræði-
lega möguieika á heimsmeistara-
titlinum. Það er barátta og umræð-
ur á fleiri vígstöðvum en á stigatöfl-
unni því að ríkt hefur spenna á
ökumannamarkaðnum að undan-
förnu. Allt getur oltið á því hvað
verður um heimsmeistarann fyrr-
verandi, Jacques Villeneuve, hvort
hann mun aka á næsta ári eða ekki.
Á meðan bíða nokkrir góðir með að
raða sér á þau sex sæti sem enn eru
laus.
Verður Schumacher heims-
meistari á morgun?
Það getur vel farið svo að
Michael Schumacher verði krýndur
heimsmeistari í sjötta sinn á ferlin-
um á morgun. Schumacher, sem
nú hefur einungis þriggja stiga for-
ystu á Williams-ökumanninn Juan
Pablo Montoya, gæti tryggt sér
fjórða titilinn í röð með því að sigra
á Indianapolis á morgun, þó með
því skilyrði að Montoya endi neðar
en í sjötta sæti. Kimi Raikkonen má
undir sömu kringumstæðum ekki
lenda ofar en í þriðja sæti eigi
möguleikar Schumacher á því að
grípa dolluna á morgun að vera
einhverjir. Annað sæti gæti einnig
dugað heimsmeistaranum. Til þess
ÖKUMANNAMARKAÐURINN:
Uð Staðfestir ökumen
Ferrari: Michael Schumacher, Rubens Barrichello
Williams: Juan Pablo Montoya, Ralf Schumacher
McLaren: Kimi Raikkonen, David Coulthard
Renault: Fernando Alonso, Jarno Trulli
Toyota: Oliver Panis, Cristiano da Matta
BAR: Jenson Button?
Jagúar: Mark Webber?
Sauber: Giancarlo Fisichella, ?
Minardi: Jos Verstappen, ?
Jordan: ? ?
VONBIÐLAR
Jacques Villeneuve
Nick Heidfeld
Heinz H Frentzen
Felipe Massa
Justin Wilson
Takuma Sato
Nicolas Klesa
Ralph Firmann
Alexander Wurz
að það sé mögulegt þyrftu þeir
Montoya og Raikkonen að hafna í
sjöunda og fjórða sæti. Töifræðin er
alltaf skemmtileg á síðustu dögum
keppnistímabilsins en sé litið á ár-
angur Juans Pablos Montoya í síð-
ustu átta keppnum þá hefur hann
ekki misstigið sig í langan tíma og
hefur endað á verðlaunapalli síðan
í kanadíska kappakstrinum. Eftir að
stigagjöfinni var breytt fyrir þetta
keppnistímabil er ljóst að keppnin
hefur verið jöfnuð talsvert. Sé mið-
að við gamla stigakerfið væri
Schumacher með 67 stig á móti 61
stigi Montoya. Schumacher dygði
því að sigra í keppninni á morgun
hefði gamla kerflð enn verið í gildi.
En sem betur fer fyrir okkur áhorf-
endur er langlíklegast að við þurf-
um að bíða til aðfaranætur 12.
október, eftir japanska kappakstr-
inum, til að fá úr því skorið hver
þessara þriggja ökumanna fer heim
frá Suzuki með breiðasta brosið.
Jacques Villeneuve enn í
óvissu
Á sama tíma fyrir sex árum var
Jacques Villeneuve miðpunktur
alis. Hann var í titilbaráttu á móti
Michael Schumacher og ók þá fyrir
Williams Renault. Hann hafði unn-
ið sex keppnir og í lok tímabilsins
hafði hann ræst tíu sinnum af rás-
pól og var krýndur heimsmeistari.
Það var árið 1997 og svo virðist sem
Villeneuve ætli að verða „one hit
wonder" eins og sagt er f popp-
bransanum. Blaðið hefur snúist
gjörsamlega við. Villeneuve hefur
gjörsamlega horfið af stjörnuhimn-
inum og hefur einungis komist
fjórum sinnum á verðlaunapall á
síðustu sex árum. Dagar þessa fyrr-
verandi heimsmeistara, sonar
þjóðsagnapersónunnar Giiies Vil-
leneuve og næsthæst launaða öku-
manns Formúlunnar, gætu verið
taldir í Formúlu 1. Hann hefur ekki
fengið eitt einasta tilboð frá nokkru
einasta liði. Ekki einu sinni Minardi
hefur boðist til að útvega honum
ökumannssæti, hvað þá BAR-liðið
sem hann er sjálfur hluthafí í. Tvær
keppnir eru eftir af tímabilinu og
iengi var óljóst hvort hann æki fyrir
lið sitt í japanska kappakstrinum.
Japaninn Takuma Sato þykir líkleg-
ur til að taka af honum sætið á
næsta ári þar sem hann hefur sterk
tengsl við Honda sem útvegar BAR-
liðinu vélar.
Sex laus sæti
Það eru fleiri en Villeneuve með
lausa samninga og baráttan um
þau sex sæti sem eru laus fyrir
næsta ár er geysihörð. Umboðs-
menn eru nú á hlaupum á eftir lið-
stjórum til að sannfæra þá um
ágæti umbjóðenda sinna. Sá sem
ólíklegastur er til að verða án öku-
mannssætis fyrir næsta ár er Þjóð-
verjinn Nick Heidfeld. Hann hefur
nú misst sæti sitt hjá Sauber eftir að
Fisichella var ráðinn til liðsins.
Fastíega er gert ráð fyrir að prufu-
ökumaður Ferrari, Felippe Massa,
aki við hlið ftalans á næsta ári fyrir
svissneska liðið. Því verður Nick að
biðla til BAR eða Jagúars ef hann á
ekki að hverfa af sjónarsviði For-
múlunnar. Annar hugsanlegur
möguleiki fyrir Þjóðverjann væri að
komast til McLaren sem prufuöku-
maður. Hann hafði á sínum tíma
mjög náið samband við liðið og
urðu margir undrandi þegar Kimi
Raikkonen var valinn umfram
hann til McLaren. Vegna
stöðunnar er viðbúið að umboðs-
menn þeirra ökumanna sem enn
eru á lausu gangi hart eftir toppár-
angri í tveim síðustu keppnum árs-
ins. Hart verður því barist á öllum
vígstöðvum í Indianapolis á morg-
un. Umhverfið er sögulegt og er
Indy ein merkilegasta kappaksturs-
braut Bandaríkjanna. Þegar þróað-
asti og erfiðasti kappakstur heirns-
ins og Indy-brautin sameinast hlýt-
ur eitthvað sérstakt að gerst.
fl&dv.is
JíUUUESTUHE 3LIZZAK Loftbóludekkin
Frábær naglalaus vetrardekk
í snjó og hálku. Aftur og aftur
heyrum við ótrúlegar
reynslusögur frá ökumönnum...
©ORMSSONÍ____HJÓLBARÐAVERKSTÆfíl
ZifllUGESTUHF
Dekkjaþjónusta Bridgestone í Lágmúla 9.
Hagstætt verð á skiptingum og dekkjum
BRÆÐURNIR
©ORMSSON
LÁGMÚLA 9 SÍMI 530 2837