Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2003, Blaðsíða 4
4 Magasín Fimmtudagur 9. október 2003 Undur veraldar Bráðfyndinn flótti Lögreglan í Mexíkó leitar nú að 23 föngum sem sluppu úr fang- elsi eftir að vinnumaður skildi eftir stiga upp við vegg fangelsis í bænum Sinaloa þar í landi. „í raun er þetta bráðfyndið þótt fangelsisflótti sé ekkert gaman- mál,“ segir talsmaður fangelsis- ins. Sá sem stigann skildi eftir starfar hjá raflagnafyrirtæki sem sér um viðhald í fangelsinu. Þyk- ir líklegt að hann sé ekki vanur jafn ströngum öryggisreglum og þeim sem gilda í fangelsinu. Lögreglan segir alla fangana sem flýðu vera stórhættulega. Þeir hafa meðal annars verið dæmdir fyrir morð, mannrán og fíkniefnasölu. Þegar er búið að handsama þrjá þeirra og einn komst reyndar ekki langt því hann datt niður stigann og slas- aðist. Dvergvaxið grænmeti Svissneskir vísindamenn hafa nú þróað ýmiss konar dvergvaxið grænmeti sem á að setja á mark- að í Japan. Þetta er gert til að koma til móts við þá fjölmörgu Japana sem búa einir, en þeim fer fjölgandi ár frá ári. Einhleypir búa á um 41% heimila í Tokyo og því vert að huga að þörfum þeirra. Meðal þess sem fer á markað eru dvergvaxin grasker og kál sem er þrisvar sinnum minna en annað kál sem er á markaðnum. Talsmaður japönsku heildsöl- unnar Aeon segir fyrirtækið hafa ákveðið að setja fleiri tegundir af dvergvöxnu grænmeti á markað- inn þar sem dvergvöxnu radís- urnar þaðan slógu í gegn í Tokyo. Kókaínið var barnapúður Femando Vasquez, 25 ára maður í Bólivíu, var handtekinn við landamærin frá Chile og sak- aður umsmygl á kókaíni. Hann þurfti að dúsa tvo mánuði í fang- elsi fýrir meintan glæp sinn áður en rannsóknir á efninu sem hann hafði í fórum sínum sýndu að efnið var í raun barnapúður. Fernando sagði lögreglunni þó um leið og hann var handtekinn frá því að efnið væri barnapúður sem hann notaði á fætuma á sér. Eitthvað fannst lögreglunni það þó ótrúlegt og lét manninn dúsa lengi í fangelsi áður en efnið var rannsakað. Þegar hið rétta kom í ljós var Fernando þegar látinn laus. „Ég sagði þeim strax að þetta væri barnapúður en þeir vildu bara ekki trúa mér,“ segir Fern- ando. „Ég er í algeru sjokki. Þeir fóm í gegnum allt dótið mitt og sögðu að ég væri eiturlyfjasali. Fjölskyldu minni hefur ekki verið tilkynnt um afdrif mín og heldur vafalaust að ég hafi lent í ein- hverju hrikalegu slysi eða sé lát- inn. Það er ekki hægt að bæta manni slíkt tjón." Helgarblað DV Trúnaðarbréf Hlínar Hlín Agnarsdóttir, leikstjóri og leikhúsfræðingur, hefur skrifað mjög sérstæða bók sem heitir: Að láta lífið rætast. Þetta er opinská og óvægin frásögn Hlínar af 16 ára ástarsambandi sínu við Þor- vald Ragnarsson, lögfræðing og alkóhólista, sem lést fyrir fáum árum úr krabbameini langt fyrir aldur fram. Helgarblað DV spurði Hlín um tilgang og tilurð bókar- innar. Kynlíf Helgu Brögu Helga Braga Jónsdóttir leik- kona ætlar að flytja það sem kall- að er kabarettfyrirlestur um kyn- líf fyrir gesti í Ými í haust. Þetta er alvara í bland við grín og byggist á kenningum og rannsóknum austurrískra kynlífsfræðinga. Helgarblað DV spurði Helgu Brögu út í kynlífið og kenndirnar og hvað væri svona fyndið við það. pðsT Heyrnarleysi Sigurlínar Sigurlín Margrét Sigurðardótt- ir er fyrsti heyrnarlausi þingmað- urinn sem tekur sæti á Alþingi ís- lendinga. Helgarblað DV gekk á fund hennar og spurði hana út í lff heyrnarlausra og starfið í þing- Afbrot Mansons Var hinn illræmdi fjöldamorð- ingi Charles Manson að vinna í síld á Seyðisfirði árið 1963? Helg- arblað DV rannsakar málið og ræðir við fólk fyrir austan sem telur sig muna eftir Manson í síldinni. Póstdreifing dreifir Magasíni. Líf og yndi Góð þátttaka í tungumálasamskiptum Alþjóðah ussins Á FYRSTA FUNDI: Pálína Sif Gunnarsdóttir og Konstantinos Velgrinos í tungumálasamskiptum sl. mánudag. „Við ætlum að taka íslenskuna fyrir í öðmm tímanum og grískuna í hinum," segir Pálfna hér í viðtalinu. Gyðjan lærir grísku „Mér er það mjög mikilvægt að geta haldið grískunni minni við og því eru þessi tungumála- samskipti alveg kærkomið tækifæri fyrir mig. Við Kon- stantinos hittumst í fyrsta skipti nú í vikunni og hugmyndir okk- ar fara alveg saman. Hann þarf að bæta sig í íslensku og ég í grískunni," segir Pálína Sif Gunnarsdóttir, hárskeri í Reykjavík Fólkið parað sarnan Alþjóðahúsið í Reykjavík er farið af stað með svokallaða tungumála- miðlun. Hugmyndafræðin er sú að íslendingar læra annað tungumál af úúendingi sem býr hér á landi og útlendingurinn fær tækifæri til að æfa sig og bæta íslenskukunnáttu sína. Fólk skráir sig til leiks í gegn- um heimasíðu Alþjóðahússins sem er á slóðinni www.cihus.is. Starfs- fólk þar á bæ sér síðan um að para fólkið saman samkvæmt óskum hvers og eins. Verkefnið er í samstarfi við Stúd- entaráð Háskóla fslands, enda margir erlendir háskólanemar hér á landi sem þurfa að herða sig í ís- lenskunni. Til stendur svo á seinni stigum að fá fleiri aðila til sam- starfs, svo sem ýmsa tungumála- skóla. Rómönsku málin vinsælust „Viðtökumar hafa verið mjög góðar," segir Broddi Sigurðsson hjá Alþjóðahúsinu í samtali við DV- Magasín. Alls hafa um 250 manns skráð sig til leiks - og þar af um 70% íslendingar. „Okkur vantar tilfinnanlega fleiri útlendinga og vonum að þeim fjölgi í fyllingu tímans. Meðal ís- lendinga er mestur áhugi á því að „Við ætlum að taka ís- lenskuna fyrir í öðrum tímanum og grískuna í hinum. Sjálf er ég búin að útvega mér íslensku- bækur úr grunnskóla sem ég get notað við að aðstoða Konstantinos í náminu.“ kynnast fólki erlendis frá til að læra rómönsku málin svokölluðu; það er spænsku, frönsku og ítölsku. Enda em þetta tungur sem talaðar eru í löndum sem fólk héðan heimsækir gjarnan í sumarleyfúm sínum. Einnig er rússneska sæmi- lega vinsæl. Hvað útlendingana varðar vantar okkur íslendinga sem hefðu áhuga á að læra til dæmis pólsku eða tungumál ýmissa Asíu- landa. Hér á landi em margir það- an sem vilja nauðsynlega bæta sig í íslenskunni. En ekki síður er þetta til þess fallið að rjúfa þá félagslegu einangmn sem þvf miður er hætta á að margir úúendingar hér á landi búi við,“ segir Broddi enn fremur. íslenskubækur og myndasögur Þau Pálína Sif og Konstantinos Velgrinos hittust sl. mánudag á rak- arastofunnni þar sem hún starfar. Þau stefna að því að hittast viku- lega héðan í frá. „Við ætlum þá að taka íslensk- una fyrir í öðrum tímanum og grískuna í hinum. Sjálf er ég búin að útvega mér íslenskubækur úr grunnskóla sem ég get notað við að aðstoða Konstantinos í náminu. Síðan stakk ég upp á því að hann kæmi með myndasögublöð sem ég gæti grúskað í og spreytt mig á. Hins vegar verð ég að segja að mér fmnst Konstantinos alveg merki- lega góður í íslenskunni," segir Pálína sem fór utan til Grikklands árið 1990. Hún tengdist landinu þá strax sterkum böndum - og hefur síðan farið utan nær árlega. ,Ætli ég hafi ekki verið gyðja í fyrra lífi," segir Pálfna og hlær. Konstantions Velgrinos hefur búið og starfað hér á landi síðustu þrjú árin og stundar um þessar mundir nám í umhverfisfræðum við Háskóla íslands. „Mér finnst Pálína alveg ágæt í grískunni, að minnsta kosti skilur hún málið ágætlega en vantar hins vegar meiri þjálfun. Vonandi get ég hjálpað henni þar - rétt eins og hún mér í íslenskunáminu." sigbogi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.