Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Side 6
6
Magasín
Fimmtudagur 30. október 2003
Doktor.is
Útlit og heilsa íris ívarsdóttir er eigandi Naglaskóla lcelandic Beauty
Punktar um alnæmi
Landlæknisembættið hefur
nýlega gefið út upplýsinga-
bækling um alnæmi og einnig
er fjallað um málið á dokt-
or.is. Lftum á nokkra punkta:
* Er banvænasti kynsjúk-
dómurinn og honum veldur
veira, sem kallast HIV.
* HIV ræðst á og eyðileggur
ónæmiskerfi líkamans. Það
þýðir að smitaðri manneskju
er afar hætt við sýkingum og
getur dáið af sjúkdómum sem
hraustu fólki verður ekki
meint af.
* En sjúkdómurinn sækir
fram meðal gagnkynhneigðra,
ekki síst ungra ferðalanga. Al-
næmissmit er ekkert sérstak-
lega spennandi minjagripur
um sólarfrí á Ibiza eða útilegu
um verslunarmannahelgina.
* Einkennin eru margvísleg,
sumir fá engin, aðrir fá hita,
niðurgang, náttsvita, almenna
vanlíðan, bólgna eitla og létt-
ast.
* Alnæmi er ólæknandi. En
því fýrr, sem sjúkdómurinn
greinist, því meiri líkur eru til
að hægt sé að hjálpa.
Allir
með
húfur
Ég velti íyrir mér tískurmi í
dag. Nú er svo komiö í mörgum
grunnskólum að börn vilja hafa
húfur á höfðinu allan daginn,
þykkar, þunnar og allavega höf-
uðföt í raun. Sumir kennarar
vilja leyfa þetta en aðrir ekki. Er
þetta hollt eða óhollt út frá
heilsufarslegu sjónarmiði? Nú
hef égheyrt að heilinn vinni bet-
ur við lægra hitastig? Hvaö
fínnst sérfræðingum um þetta
efni, burtséð frá tísku og þeirri
kurteisi, sem sumum fínnst
sjálfsögð, að taka afsér höfuðföt
inni?
Svar
Húfur er misjafnar. Húfur
sem anda vel og valda því ekki
að einstaklingur svitni með þær
geta tæplega talist skaðlegar.
Auðvitað eru skiptar skoðanir
varðandi þetta eins og annað en
ein möguleg ástæða fyrir því að
húfur geti valdið skaða er sú að
einstaklingurinn svitni undir
húfunni sem getur hugsanlega
valdið sveppasýkingu eða ann-
ars konar húðvandamáli á höfði,
s.s. exemi og hárlosi í framhald-
inu.
Ég hef aldrei heyrt það að
heilinn vinni betur við lægra
hitastig, en það kann vel að vera.
Ég get þó ekki séð að það geti
verið haldbær rök gegn húfu-
notkun. Þá ættu allir að vera
rakaðir.
Hver og einn kennari verður
einfaldlega að gera þetta upp við
sig ef skólastjóri í viðkomandi
skóia er ekki tilbúinn til þess að
setja reglur um þetta.
Með góðri kveðju,
doktor.is
NAGLAFEGURÐ: fris Ivarsdóttir og Sigríöur Dögg Guðjónsdóttir eru báðar með mastersgráðu í Ez-flow akrýlnöglum, -IBD-gelnöglum og náttúrulegri handa- og naglafeg-
urð. Þær em einnig með alþjóðleg kennararéttindi og ættu því þeir nemendur sem fara til þeirra að vera í góðum höndum.
Glimmerneglur
nýjasta nýtt
„Við fylgjumst vel með tískunni
hér í Naglaskóla Icelandic Beauty
og bjóðum ávallt upp á það sem er
nýjast hverju sinni.
„Þetta er líka eini alhliða nagla-
skólinn og naglastofan á landinu,"
segir íris fvarsdóttir, eigandi fyrir-
tækisins. Sigríður Dögg Guðjóns-
dóttir starfar hjá írisi og eru þær
báðar með mastersgráðu í Ez-flow
akrýlnöglum, -IBD-gelnöglum og
náttúrulegri handa- og naglafeg-
urð. Þær em einnig með alþjóðleg
kennararéttindi og ættu því þeir
nemendur sem fara til þeirra að
vera í góðum höndum. íris segir
það skipta sig miklu máli að vinna
með góðar vörur og að allar vörur
sem fluttar eru inn af heildsölu
Icelandic Beauty séu viðurkenndar
af heilbrigðisyfirvöldum.
Gott er að bera á sig
handáburð daglega, sér-
staklega í kuldanum, og
bera þarf naglabandaolíu
á naglaböndin og negl-
urnar svo þær klofni
síður og þorni.
Þróaðasta gelið á markaðinum
Icelandic Beauty er með umboð
fýrir ýmis þekkt merki, svo sem Ez-
flow, -IBD- og Orly. „Orly er ein
stærsta og breiðasta náttúrulega
naglalfnan á markaðinum og hefur
unnið til margra verðlauna fyrir
flottan stfl og nýjungar í náttúru-
legum naglavörum, Orly uppgötv-
aði til dæmis French manicure-út-
litið, sem er eitt það vinsælasta í
langan tíma,“ segir íris.
„Einnig hefur Ez-flow akrýl farið
sigurför um allan heim og -IBD-
framleiðir þróaðasta gelið á mark-
aðinum. Við hjá Icelandic Beauty
vinnum því með það besta á mark-
aðinum."
Með litum og blómum
íris og Sigríður Dögg fara oft utan
til að kynna sér nýjustu tísku-
straumana í gervinöglum. Aðspurð
segir íris nýjustu tískuna í dag vera
WALK OG FAME; þá er glimmerlit-
um blandað saman á einum stað á
nöglinni og sinn liturinn er á hvorri
hlið naglarinnar en engin skil eiga
að myndast. Hún segir French
manicure-stílinn einnig enn vera í
tfsku en í nýrri útfærslu séu endar
naglanna ýmist málaðir með litum
eða blómum og límdir eru á negl-
urnar skrautíegir steinar.
Heilbrígðar neglur
Blaðamaður DV-Magasíns bað
írisi um góð ráð varðandi naglaum-
hirðu til handa lesendum og eru
þau eftirfarandi:
„Konur þurfa að hugsa reglulega
um neglur sínar til að þær haldist
heilbrigðar. Gott er að bera á sig
handáburð daglega, sérstaklega í
kuldanum, og bera þarf nagla-
bandaolíu á naglaböndin og negl-
umar svo þær klofni síður og þomi.
Þó þarf að fara mjög varlega þegar
naglaböndunum er ýtt upp því
annars er hætta á að svæðið undir
naglaböndunum, sem stuðlar að
heilbrigði naglanna, skemmist. Til
dæmis geta skemmdir á því svæði
orsakað hvítar skellur á nöglunum.
Margir halda því fram að slíkar
skellur myndist vegna kalkskorts
en svo er ekki,“ segir fris og heldur
áfram:
Sverfa fram á við
„Einnig þurfa konur að hafa það í
huga að ávallt á að sverfa neglur
fram á við. Ef strokið er fram og til
baka opnast trefjarnar og negiur
klofna og rifna. Það er því hægt að
hugsa vel um neglur sínar heima
við en við hjá Naglaskóla Icelandic
Beauty bjóðum þeim sem það vilja
upp á alhliða þjónustu í öllu sem
viðkemur nöglum,“ segir Iris ívars-
dóttir, eigandi fyrirtækisins.
Vörur sem Iris
_ 'U________
mælir með
Fyrir þunnar neglur
og lélegar:
Nail defense frá Orly. Það er
prótínstyrktur naglaherðir sem
styrkir lélegar og þunnar neglur.
Nagaðar neglur:
NO bite er lakk með beisku
bragði sem hjálpar til við að
losna við þennan pirrandi og oft
sársaukafulla vana.
Rákir í nöglum:
Ridgefiller er grunn- og undir-
lakk sem gerir neglumar sléttar
með því að fylla í rákimar.
Hollráð írisar
„Hendur og neglur segja allt
um okkur. Það eru hendurnar
sem fólk tekur fyrst eftir því þær
em mest áberandi,“ segir fris.
Hún gefur hér lesendum nokkur
hollráð sem vert er að taka eftir:
- f frostí og vindi þorna hend-
ur og neglur og geta spmngið. Þá
þarf að nota meira af rakagefandi
handáburði og olíu á naglabönd-
in, t.d. ólífuolíu.
- Þurrka þarf hendumar vel eft-
ir handþvott og nota ávallt vett-
linga eða hanska.
- Gott er að nota handa- eða
andlitsmaska til að bera á hend-
urnar fram að naglaböndum.
- Þeir sem em með viðvæmar
neglur þurfa að fara varlega með
naglabursta því að hann getur
farið illa með neglumar. Gott er
að nota í staðinn svamp eða bóm-
ull.
- Notið ávallt gúmmíhanska
eða annars konar hlífðarhanska
við húsverkin og garðvinnuna.
- Gott er að nota mjúkan
„buffer" á neglumar til að örva
blóðstreymið.
Of lítil neysla prótíns getur leitt
til að neglur verða viðkvæmar.