Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Side 20
20
Magasín
Fimmtudagur 28. október 2003
Kvikmyndir Claire Danes í Igby Goes Down:
Hin svokallaða Claire
Það segir meira en margt annað
um Samuel L. Jackson að hann
er 54 ára gamall. Hann hefur þó
síður en svo verið í sviðsljósinu
stærstan hluta síns leikaraferils,
þvert á móti náði hann ekki að
köma sér á kortið fyrr enn á
fimmtugsaldri. En undanfarinn
áratug hefur hann náð að festa
sig í sessi sem ein allra skærasta
stjarna Hollywood, enda fáir
jafn eftirsóttir og hann.
í sinni nýjustu mynd, Igby Goes
Down, sem er frá árinu 2002, leikur
Danes stúlku að nafni Sookie Sapp-
erstein sem er kærasta aðalhetju
myndatinnar, Jason ‘Igby’
Slocumb yngri. Hann er leikinn af
Kieran Culkin, yngri bróðir hins
þekkta Macaulay Culkin sem er nú
að reyna að koma sér aftur í kvik-
myndabransann.
Ciaire Danes er fædd árið 1979
og á eitt eldra systkini. Hún ólst
upp í mjög skapandi umhverfi
enda móðir hennar fær í málaralist
auk þess sem hún starfar sem
kennari. Faðir hennar er tölvuráð-
gjafi en hefur ávallt hvatt dætur
sínar til að vera listglaðar.
18 ár í nútímadansi
Þegar Claire var einungis 6 ára
gömul fór hún að æfa nútímadans
Þegar Claire var 13 ára
gömul fór hún til Los
Angeles í þeirri von að
fá hlutverk hjá Steven
Spielberg í Schindler’s
List.
sem hún gerir reyndar enn þann
dag í dag. 9 ára gömul hóf hún að
sækja leiklistartíma og ræktaði þá
list enn frekar á næstu árum. Hún
hefur einnig miklar mætur á fim-
leikum og reyndi fyrir sér í þeirri
íþrótt í nokkur ár.
Upp metorðastigann
Leiklistarferill hennar hófst með
nokkrum uppfærslum í hinum
svokölluðu off-off-Broadway leik-
húsum og kom danskunnáttan sér
að góðum notum þar. Hún lék
einnig smáhlutverk í nokkrum
sjónvarpsþáttum og fikraði sig
þannig upp metorðastigann.
Þegar Claire var 13 ára gömul fór
hún til Los Angeles í þeirri von að fá
hlutverk hjá Steven Spielberg í
Schindler’s List. Á meðan hún beið
eftir að Spielberg tæki ákvörðun
um hlutverk fyrir hana gripu örlög-
in í taumana og framleiðendur
sjónvarpsþátta að nafni My So-
Called Life báðu hana um að leika í
þættinum, sem senn ætti að fara að
framleiða. Eftir að hafa hafnað
hlutverkinu sem Spielberg bauð
henni ákvað Claire að leika í fyrr-
nefndum sjónvarpsþætti. Upp úr
því fékk stúlka sitt pláss á stjörnu-
himninum og hefur gert það gott
síðan.
Þættirnir urðu reyndar aðeins 19
talsins en slógu engu að síður í
gegn, í það minnsta hér á landi og
geta margir vitnað um það.
í góðum félagsskap
Á meðan framleiðslu þáttanna
stóð tókst Claire að vekja mikla at-
hygli á sér. Hún fékk hlutverk í
myndinni Little Women sem er
Claire Danes hefur það
gott. Hún er gífurlega
vinsæl og birtist reglu-
lega á forsíðum tímarita
auk þess sem kvik-
myndaframleiðendur
bíða í röðum í þeirri von
um að fá að ráða hana í
vinnu.
byggð á þekktri samnefndri bók.
Hún var í þekktum félagsskap, aðr-
ir leikarar voru meðal annars Susan
Sarandon, Winona Ryder og
Gabriel Byrne.
Fleiri góðar
Aðrar myndir með vel þekktum
leikurum fýlgdu í kjölfarið en lang
stærsti smellurinn kom árið 1996
þegar hún lék í Romeo+Juliet, með
hinum geðþekka Leonardo
DiCaprio eftir leikstjórann virta Baz
Luhrmann. Myndin sló í gegn en
hún var byggð á þekktustu ástar-
sögu heims, um þau Rómeó og Júl-
íu eftir William Shakespeare. Ekki
sfst Jilutu Claire og DiCaprio at-
hygli fyrir frammistöðu sína og
samleik sinn á tjaldinu enda skaut
þessi mynd þeim báðum upp á
meðal risastjarna Hollywood.
Þvf næst kom annað stórhlut-
Dómar
Kill Bill vol. 1 ★★★★
„Enginn fer troðnar slóðir á jafn
frumlegan og árangursnkan hátt og
Quentin Tarantino. Kill Bill vol. 1 er
bijálæðisleg kvikmynd“ -HK
Intolerable Cruelty ★★★
„Ef til vill ekki besta mynd þeirra
Coen-bræðra, enda samkeppnin
erfið, en ein besta gamanmynd árs-
ins - fyrir fullorðna. “ -SG
Seabiscuit ★★★
„Aðalleikaramir hjálpa til með góð-
um leik að gera Seabiscuit að til-
finnaþrunginni mynd og kæmi ekki
á óvart efeinhver þeirra fengi óskar-
stilnefningu. “ -HK
Holes ★★★
„Þótt sögurþráðurinn sé að mörgu
leyti ótrúlegur fjallar hann samt um
mannlegt eðli og hvemig venjulegt
fólk bregst við óvenjulegum að-
stæðum. “ -SG
Open Range ★★★
„Klassískur vestri með nútímasnún-
ingi.“ -SG
Freaky Friday ★★*
„/ raun er alveg skothelt hjá Disney
að endurgera þessa mynd núna
þegar flestar stelpumar sem sáu
hana á sínum tíma eru orðnar mæð-
ur og geta farið aftur og upplifað
skiptin sem fullorðnar konur og tek-
ið táningsdætur sínar með. “ -SG
The Rundown ★★*
„Sagan er ekki merkileg en hefur
samt sinn sjarma og matreiðslan á
henni tekst vel. Hinir milu
fmmskógar í Amason gera sitt til að
skapa góða stemningu og leikarar
emgóðir:“ -HK
S.WAT. ★
„Sunduriaus kvikmynd sem er eins
og púsluspil sem eríitt er að púsla
saman. “ -HK
Væntanlegt
Um helgina:
• Calendar Giris
• Igby Goes Down
• Scary Movie 3
5. nóvember:
• The Matrix Revolutkms
Næstu helgi:
• Uptown Giris
14. nóvember:
• Elf
• The Texas Chainsaw Massacne
verk, nú lék hún undir stjórn Oliver
Stone í hinni hálffurðulegu U-Turn
ásamt mörgu góðu fólki.
Eftir það hélt Claire sér við lítt
þekktari myndir, enda telst hún til
þeirra leikara sem eru ekki að eltast
við hverja stórmynd sem framleidd
er í Hollywood hverju sinni. Hún
lætur þó þann markað ekki alger-
lega í friði en nú sfðast lék hún á
móti engum öðrum en ríkisstjóra-
efninu Amold Schwarzenegger í
þriðju Terminator-myndinni. Hún
lék einnig sæmilega stórt hlutverk í
The Hours, óskarsverðlaunamynd-
inni sem fjallaði um líf þriggja
kvenna, þeirra á meðal Virginia
Woolf.
Gífuriega vinsæl
Claire Danes hefur það gott. Hún
er gífurlega vinsæí og birtist
reglulega á forsíðum tímarita auk
þess sem kvikmyndaframleiðendur
bíða í röðum í þeirri von um að fá
að ráða hana í vinnu. Hún er í
sambandi við ástralska rokkarann
Ben Lee og hafa þau verið saman
undanfarin 6 ár. eirikurst@du.is
GÓÐ SAMAN: Helstu leikarar Igby Goes Down, frá vinstri eru Ryan Phillippe, Claire Danes, Kieran Culkin og Amanda Peet.