Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Side 10
10 Magasín Fimmtudagur 30. október 2003 Líf og yndi Skátar á Úlfljótsvatni Alls níutíu skátar úr Vífli í Garðabæ fóru á dögunum í ár- lega haustútilegu félagsins að Úlfljótsvatni. Þegar best lét voru um 90 skátar á svæðinu. I útilegum skáta myndast oft góð stemning og er oft talað um skáta- andann, sem fáir skilja nema þeir sem hafa hann upplifað. Undir- búningur að ferðalaginu stóð lengi. Að þessu sinni voru sjóræningjar þema útilegunnar. Var margt gert til þess að skapa sjóræningja- stemningu. Klifur og kvöldvaka í skátaferðalögum er farið í ýmsa leiki og fólk þarf að leysa þrautir. YLFINGASVEmN. Sveitin sú heitir Furðufuglar og fremstur er Andri Bjarnason. Hæst ber sig og klifur. Það getur lit- ið svolítið ógnvekjandi út að síga niður 10 metra háan turn og þurfa þeir sem stjórna stundum að telja kjark í skátana. Meginreglan í skát- unum er að allir séu þátttakendur. Því þarf útsjónarsemi hjá foringja til að finna næg verkefni handa öll- um. Kvöldvaka hjá skátum er frábær skemmtun. Sungin eru hress og skemmtileg lög með skemmtiatrið- um á milli sem skátarnir undirbúa fyrr um daginn. Sumir semja lag en aðrir halda tískusýningu. I þessari útiiegu voru það þreyttir skátar sem skriðu ofan í svefnpoka - en ánægðir eftir þrautir dagsins. íþróttaleikar og árangur A sunnudeginum fóru fram íþróttaleikar á Úlfljótsvatni. Keppt var í ýmsum þrautum sem reyndu á samvinnu flokksins. Þegar skát- amir takast á við þrautir sem þess- ar læra þeir hvað það skiptir miklu máli að standa saman svo að hlut- irnir beri árangur. Eftir svona úti- legu eru allir þreyttir en ánægðir með hvernig til hefur tekist. Eftir lifir minningin um ánægjulega úti- legu sem seint gleymist. FIMM ÆTTLIÐIR: Frá vinstri talið; Bjarney Elsebeth Sigvaldadóttir, Elsebeth Poulsen, Jóhanna Jóhannesdóttir, Agnes Rut Kristjánsdóttir og lengst til hægri er Áslaug Torfadóttir. Hittu ættmóðurina á Sandey: Fimm færeyskar Fyrir nokkrum vikum hittust í Skopum á Sandey í Færeyjum Elsebeth Poulsen, sem þar býr, og konur sem eru afkom- endur hennar aftur í fimmta liö. Þær Ijórar konur búa allir hér á landi og gerðu sér sérstaka ferð utan til að hitta ættmóðurina Elsebeth. Hún fæddist árið 1914 og eignaðist sjö börn, þar af þrjár dætur sem allar settust að hér á landi. Eftir allmörg ár „Þetta var afskaplega ánægju- leg ferð því ömmu mína hafði ég ekki hitt í allmörg ár,“ sagði Bjarney Elsebeth Sigvaldadóttir sem búsett er á Hvanneyri í Borgarfirði. Jóhanna móðir hennar, dóttir Elsebeth, kom hingað til Iands árið 1959 til að vinna hér. Þá var hún sautján ára. Örlög hennar voru að hitta draumaprinsinn sinn á fslandi og því átti hún ekki afturkvæmt til Færeyja. Jóhanna hefur alla tíð búið í Keflavík ásamt Sigvalda Arnoddssyni, eiginmanni sínum. Hitta Ömmu Elsabeth „Ég var alltaf í Færeyjum á sumrin sem lítil stúlka en eftir að ég komst á legg og stofnaði fjöl- skyldu hef ég ekki farið utan,“ segir Bjarney Elsebeth. Dóttir Bjarneyjar sem fór með utan í þessa ferð er Áslaug Torfadóttir sem fæddist 1982. Dóttir hennar, fimmti ættliðurinn, er Agnes Rut Kristjánsdóttir sem er tæpra fjögurra ára. sigbogi@dv.is Hin hliðin Elís Árnason Á réttri hillu í lífinu Nafn: ElísÁrnason. Aldur: 38 ára, fæddur á Reyðarfirði árið 1965. Fjölskylduhagír: í sambúð með Sóleyju Höllu Egg- ertsdóttur. Af fyrra sambandi á ég þrjá drengi og aðeins örfáir dagar í fjórða drenginn - barn okkar Sóleyjar. Menntun Og störf: Kjötiðnaðarmaður og matreiðslu- maður, en þá iðn lærð ég hjá KEA á Akureyri. Eftir að ég flutti suður fyrir einu og hálfu ári hef ég fengist við fast- eignasölu - vinn núna hjá sölunni Akkurat sem við stofnuðum fyrir skömmu, þar sem ég er akkúrat á réttri hillu. Að sunnan rek ég síðan Sjallann á Akureyri með Þórhalli Arnórssyni, félaga mínum, en skemmtistaður- inn er 40 ára um þessar mundir. HelstU áhugamál: Vinnan og fjölskyldan. Og síðan sumarbústaðurinn minn í Fnjóskadal; sælureitur sem býður upp á margvíslega dægradvöl árið um kring. Uppáhalasmatur: Rjúpan er alltaf góð og bragðið eitt ^ fær mig til að hlakka til jólanna. g Uppáhaldsdrykkur: Kaldur Tuborg þegar vel á við. tj Fallegasti Staður á íslandi: Hrísey, þar sem ég var | kokkur í flmm sumur á veitingahúsinu Brekku. Eyjan á | sterk ítök í mér. Eftiríætisstaður erlendis: Einn sona minna býr í | Kaupmannahöfn. Því fer ég oft þangað utan og hef ^ heillast af borginni í þessum ferðum þannig að nú er hún orðin eftirlæti mitt. Með hvaða liði heldur þú í íþróttum: Að sjálfsögðu KA - gulir og glaðir. Hvaða bók ertu að lesa í augnablikinu: ísfólkið, bók sem er númer 20. Síðan er ég alltaf með í handraðanum bækur sem snúa að ýmsum viðfangs- efnum mínum hverju sinni. Eftirlætistónlistarmaður: Margir frábærir listamenn hafa spilað hjá mér í Sjallanum. Hins vegar vil ég ekki gera upp á milli þeirra - því ella gæti einhverjum þess- ara vina minna sámað. Hvað hefur mótað þig helst og haft áhríf á þig á lífsleiðinni? Foreldrar mínir og fjölskyldan öll hafa mótað mig mikið - sem og góðir vinir. Öll lífsreynsla sem við göngum í gegnum - ljúf sem sár - hefúr lfka alltaf mikið að segja. Hvaða þjóðþrifamálum á Islandi er brýnast að bæta úr: Ég hlýt að nefna göng undir Vaðlaheiði - þeg- KOKKURINN: „Öll lífsreynsla sem við göngum í gegnum - ljúf sem sár - hefur mikil áhrif á okkur," ar þau eru komin verð ég aðeins örfáar mínútur frá Ak- ureyri yfir í bústaðinn minn í Fnjóskadal. Tilhugsunin ein gerir mig eindreginn stuðningsmann framkvæmd- anna. Fylgjandi eða andvígur ríkisstjórninni: Fylgjandi, þó svo að ég verði seint talinn pólitískur maður. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór: Stefndi alltaf á kokkinn - og náði þar settu marki. Hver eru þín persónuleg markmið fyrir komandi mánuði? Sinna fasteignasölunni vel og ná þar góðum árangri. Einnig er sitthvað fram undan í rekstrinum á Sjallanum. Þín ráð til að krydda hvunndaginn: Fara á vélsleða fyrir norðan. Þannig tekst mér algjörlega að skipta um umhverfi og hlaða mig orku til átaka og nýrra starfa. Lífsspeki: Lifa lífinu lifandi. Skemmtistaðurínn Sjallinn áAkureyii erfjörutíu ára um þessarmundir og haidið verður upp áþað með veglegum hætti nyrðra nú um helgina. ElísÁmason hefurrekið staðinn við annan mann síðan 1995. Árinu eldri Hjöríeifur Guttormsson náttúrufræðingur verður 68 ára 31. október. Er frá Hallorms- stað en hefur í áratugi búið í Neskaupstað. Starfaði lengi við kennslu. Sat á þingi 1978 til 1999, ráðherra og lét að sér kveða varðandi umhverfismál og barðist gegn stóriðjuáformum af fullri hörku og með rökum. Hefur skrifað og myndað bækur um náttúru landsins af sannri listfengi og má þar meðal annars nefna nokkrar Arbækur Ferðafélags íslands og bókum um Vatnajökul og hans og nánast óendanlegu hvítu breiðu. Gunnhildur Hrólfsdóttir rithöfundur verður 56 ára 1. nóvember. Er úr Eyjum og hefúr ýmsum störfum sinnt. Ritstörfin ber vitanlega hæst og fyrir þau er hún best þekkt. Fyrsta bók Gunnhildar kom út 1980 og í kjölfarið hafa komið margar barna- og unglingabækur sem gerður hefur verið góður rómur að og hefur fyrir þær meðal annars hlotið fjölda viðurkenninga. Bækur hennar þykja spennandi og meðal annars hefur hún nýtt sér æskuárin f Eyjum til að spinna skemmtilegar sögur. Gísli Baldur Garðarsson lögmaður verður 53 ára 1. nóvember. Sem ungur maður var Gísli í blaðamennsku á Mogga og var fyrsti karlinn í hlutverki sjónvarpsþular. Þannig man þjóðin Gísla nánast út í það óendanlega í lögmennsku hefur Gísli starfað fyrir mörg stórfyrirtæki. Hann er stjórnarformaður Olís en við annan mann keypti hann olíufélagið sl. sumar. Þá hefur hann nýlega tekið við formennsku í Flugráði og er til þeirrar vegsemdar skipaður af samgönguráðherra. Ingi Björn Albertsson heildsali verður 51 árs 3. nóvember. Sonur Alberts ráðherra og fór- boltakappa og hefúr bæði í boltanum og pólitík fetað f fótspor föður síns en þó ekki náð sama árangri og hann. Hefur þjálfað nokkur knattspyrnulið. Ingi Björn sat á Alþingi í nokkur ár, fyrst fyrir Borgaraflokkinn og síðar Sjálfstæðisflokk, en hefur seinni árin einkum sinnt viðskiptum, svo sem veitingarekstri. Þá starfrækir hann heildsölu Alberts Guðmundssonar, fyrirtækið sem faðir hans rak forðum. Viðar Hreinsson íslenskufræðingur verður 47 ára 3. nóvember. Bóndasonur frá Hríshól í Eyjaijarðarsveit sem ungur lagði fyrir sig íslensk fræði. Starfaði m.a. sem framhaldsskóla- kennari, en hefur einkum sinnt fræðistörfum. Þar ber hæst ævisögu Stephans G. en seinna bindi er að koma út um þessar mundir. Sú bók þykir mikið stórvirki og ljóst er eldhuga hefur þurft til þess að geta varpað ljósi á líf og starf íslenska öndvegisskáldsins sem nánast alla sína tíð bjó í Klettafjöllum vestur í Kanada. Karí ÁgÚSt Úlfsson leikari verður 46 ára 4. nóvember. Hann er einn af Spaugstofumönn- um. Þykir lunkinn handrits- og textahöfundur. Hefur skrifað verk fyrir fjölmarga, en einnig fengist við leikstjórn. Þykir býsna fjölhæfur á sínu sviði - og mál eru ævinlega í góðum höndum hjá Karli. í Spaugstofunni túlkar Karl meðal annars hlutverk nískupúkans ógurlega - en fleiri karaktera hefur hann einnig mótað og túlkað - og gert fræga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.