Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Page 12
12
Magasín
Fimmtudagur 30. október 2003
Opnuviðtalið Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður útskrifast með tvær háskólagráður
MEÐ FJÖLSKYLDUNNI: Ágúst Ólafur með Þorbjörgu Sigríði konu sinni og dótturinni Elísabetu Unu. „Dóttirin er sautján mánaða og auðvitað verður það að eignast barn til þess að breyta líft manns og hugsun á
allan hátt. Forgangsröðunin breytist. Og maður fer einnig að hugsa nýja hluti svolítið pólitískt; furðar sig stundum á því hversu dýrt er að vera með barn á leikskóla."
Hugsjónirnar
skipta alltaf mestu
Það vakti athygli á háskólahá-
tíð um síðustu helgi að meðal
þeirra sem þá brautskráðust frá
skólanum var einn af þing-
mönnum þjóðarinnar, Agúst
Ólafur Ágústsson. Hinn korn-
ungi þingmaður Samfylkingar-
innar heldur nú út í lífið með
próf í tveimur greinum, það er
Íögfræði og hagfræði.
Kveðst hann vænta þess að þetta
verði sér haldgott veganesti í póli-
tíkinni, enda geri menntun fólki yf-
irleitt gott eitt. „Menntun getur ver-
ið góður undirbúningur fyrir lífið
en er ekki algildur mælikvarði á
neitt og f raun langt frá því. Margt
af hæfasta fólkinu sem nú situr á
Alþingi hefur einungis sitt barna-
skólapróf. Hefur svo farið út í
stjórnmálin vegna hugsjóna og
réttlætiskenndar. Við skulum aldrei
vanmeta að þetta eru hvatirnar
sem skipta alltaf mestu í stjórnmál-
um,‘‘ segir Ágúst Ólafur í viðtali við
DV-Magasín.
Ekki jafn mikill námsmaður
Ágúst Ólafur Ágústsson er sonur
þeirra Kolbrúnar Ingólfsdóttur
sagnfræðings og Ágústs Einarsson-
ar, ív. alþingismanns, og prófessors
við viðskipta- og hagfræðideild Há-
skóla íslands. Sat Ágúst Ólafur
meira að segja um hríð tíma í
rekstrarhagfræði hjá föður sínum.
Bræður Ágústs Ólafs eru tveir. Sá
eldri er Einar, en nafn hans komst á
hvers manns varir fyrir nokkrum
árum eftir miklar þrekraunir sem
hann lenti í eftir að hafa villst í
frumskógum Mið-Ameríku. Allir
hafa þeir bræður gengið mennta-
veginn og Einar hefur raunar upp á
vasann háskólapróf í sex greinum.
„Nei, ég er ekki jafn mikill náms-
maður og elsti bróðir minn er.
Hefði raunar aldrei haft áhuga á að
safna svona mörgum gráðum að
mér,“ segirÁgúst Ólafur og hlær.
Menntast fyrir sjálfan mig
„Það var alls ekki sjálfgefið að ég
færi í lögfræðina," segirÁgúst Ólaf-
ur. „Raunar var ég lengst með hug-
„Eg vona að við unga
fólkið, sem nú höfum
verið kjörin til þingsetu,
náum að koma ýmsum
málum í gegn sem víkja
að hagsmunum þeirra
sem eru á okkar aldri.
Mér finnst við hreinlega
vera í skuld við okkar
kynslóð að því leyti."
ann við líffræði eða mannfræði, en
í vikunni áður en innritunarfresti
lauk sló ég til og valdi lögfræði.
Bætti sfðan hagfræðinni við mig
litlu seinna. Mér fannst meginmál-
ið að velja mér skemmtileg fög til
þess að námið yrði auðveldara. Síð-
an eru þetta hvort tveggja greinar
sem opna ýmsa möguleika og snú-
ast þess utan um ýmis pólitísk
álitaefni í umræðu dagsins. Þótt
það vanti kannski ekki fleiri lög-
fræðinga á þing þá sýnist mér vera
þörf á fleiri hagfræðingum. Að ég
best veit þá er aðeins einn annar
hagfræðingur á þingi og enginn
viðskiptafræðingur. Eg vona því að
þessi menntun nýtist mér í núver-
andi starfi en líka í því sem framtíð-
in ber í skauti sér. Maður er fyrst og
fremst að mennta sig fyrir sjálfan
sig en ekki fyrir eitthvert ákveðið
starf.“
Hann kveðst í lögfræðinni hafa
haft gaman af skatta-, Evrópu- og
refsirétti. í hagfræðináminu hafi
það verið þjóðhagfræðin sem eink-
um hafi höfðað til sín.
Eykur víðsýni og
umburðarlyndi
Þegar Ágúst var kjörinn á þing í
vor átti hann lokahnykkinn í námi
sínu eftir. Það er að taka próf í
nokkrum áföngum og skila báðum
lokaritgerðunum.
„Því varð ég að setja hausinn
undir mig og hespa þessu af í sum-
ar. Ég náði að ljúka 25 einingum í
sumar. Þetta var svolítill sprettur,
en eftir á að hyggja var þetta aðeins
skemmtilegt."
En þrátt fyrir að menntunin opni
ýmsa möguleika og geti aukið
mönnum víðsýni og þekkingu -
leggur Ágúst líka áherslu á að
reynsla manna og þroski skipti
alltaf miklu máli.
„Mér eldri menn á Alþingi hafa
auðvitað margfalt meiri lífsreynslu
á að byggja og ég geri mér grein fýr-
ir mínum takmörkunum. En á hinn
bóginn vona ég að ég hafi eitthvað
til brunns að bera. Ég er t.d. orðinn
faðir en ég á sautján mánaða gamla
dóttur - og það að eignast barn er
nokkuð sem hefur alveg gefið mér
nýja sýn á tilveruna. Ég var formað-
ur Ungra jafnaðarmanna um árabil
og hef unnið ýmis störf með nám-
inu. Ég hef einnig ferðast til yfir 40
landa í fimm heimsálfum en slík
ferðalög auka víðsýni manns og
umburðarlyndi. Ég vona að ég hafi
eitthvað fram að færa því annars
ætti ég að snúa mér að einhverju
öðru."
Magasín-myndir E.Ól.