Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Síða 23
Fimmtudagur 30. október 2003 Magasín 23 Hvað um helgina? Hulda Bjarnadóttir Idol og aðgerðagreining „Hápunkturinn hjá mér um helgina er að á laugar- dagskvöld stendur til að fara á sýninguna 100% hitt með Helgu Brögu. Ég hlakka mikið til; get varla beðið. Mjög vel er látið af þessari sýningu og það sem kryddar sýninguna þetta kvöld sérstaklega er að nú er von á höfundi verksins, kynlífspabbanum sem leikkonan hefur kallað svo,“ segir Hulda Bjarnadóttir, dagskrár- stjóri á Létt 96,7. Hulda segir það alltaf vera tilhlökkunarefni hjá fjöl- skyldunni að setjast saman íyrir framan sjónvarpið á föstudagskvöldum og fylgjast með Idol-keppninni á Stöð 2. Haldin séu sérstök Idol-partí og þar ríki alveg frábær stemning. „Fyrir svo utan þetta man ég núna að fjölskyldunni er boðið í mat á laugardagskvöld þannig að þessi dagskrá sem ég nefni gæti tekið einhverjum breytingum." Að öðru leyti segist Hulda þurfa að grúfa sig yfir námsbækurnar um helgina. „Jafnhliða vinnu er ég í viðskiptafræðinámi við Háskóla Islands. I námið þarf maður að leggja talsvert mikla vinnu og virkilega að komast inn í hlutina. Eins og þeir eru oft torskildir, því 0TVARPSKONAN: „Stendur til að fara á sýninguna 100% hitt með Helgu Brögu," segir Hulda Bjarnadóttir. að ekki liggur til dæmis ljóst fyrir alveg við fyrstu sýn hvað sé aðgerðagreining.” sigbogi@dv.is Grúfa sig yfir námsbækurnar Hvað ertu að hlusta á? Hannes Guðrúnarson Lifandi tónlist í uppáhaldi „Ég vil taka það fram að ég er nánast alæta á tónlist, hlusta sem sagt á allt nema dauðarokk. Um daginn hlustaði ég til dæmis á tónleikadisk með Astor Piazolla heitnum og félögum. Einstakur tónlistarmaður með frábæra menn með sér og stemningin á tónleikunum skilar sér ótrúlega vel,“ segir Hannes Guðrúnarson gít- arleikari. Hann segir Elvis Presley einnig hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá sér, enda sé rödd hans óviðjafnan- Maður lærir svo lengi sem lifir lega þegar hann var upp á sitt besta. „Lifandi tónlist er annars í mestu uppáhaldi hjá mér og nýt ég þess að vera áheyrandi á tónleikum og þar með þátttakandi í þeim merka gjörningi. Ég sæki mest jasstónleika og ætla mér ekki að gera upp á milli þeirra góðu tónlistar- manna sem við eigum á því sviði. Þegar ég hlusta á tón- list á netinu þá sæki ég lfka í að heyra upptökur af tón- leikum, t.d. með Björk, Sting og fleiri." Gamlar upptökur eru ltka afar áhugaverðar, segir Hannes, eins og til dæmis 4. og 6. sinfónía Beethovens með Sinfóníuhljómsveit BBC, undir stjórn Toscanini, tekin upp árið 1939. „Undanfarið hef GfTARLEDCARINN: „Hlusta sem sagt á allt nema dauðarokk," segir Hannes Guðrúnarson. ég lfka verið að hlusta og horfa á upptöku af tónleikum sem ég hélt í Salnum 30. september sl. Þetta voru mín- ir fyrstu tónleikar hér í Reykjavík þannig að ég er að skoða hvað gekk vel og hvað ég gæti gert betur. Maður lærir svo lengi sem lifir, ekki satt?“ sigbogi@dv.is Hvað ertu að lesa? Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Áhugaverð ádeila „Ég er með á náttborðinu bók sem heitir Stupid White Men eftir Michael Moore. Hann færði okkur einmitt óskarsverðlaunamyndina Bowling for Col- umbine. Þeim sem fannst sú mynd góð ætti að þykja þessi bók ekki síður áhugaverð,” segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona. „Þetta er áfram ádeila og rannsókn hans á bandarísku þjóðfélagi. Ég mæli með henni og því að skoða í leiðinni íslenskt samfélag sem er svo hrifið af öllu sem amerískt er.“ Veröld sem var Steinunn kveðst lesa mikið og hefur alltaf einhverja bók við höndína. „Uppáhaldsbókin mín er Veröld sem var eftir Stefan Zweig og hún er án efa sú eftirminnileg- asta sem ég hef lesið. Ég hef nýlokið við bók sem heitir The da vinci code og er eftir Dan Brown. Ég heyrði af henni einhvers staðar og langaði strax í hana. Hún reyndist svo alls staðar uppseld en eftir mikla leit fann ég hana f Bóksölu stúdenta, bókabúð sem ekki klikkar! Bókin er frábær, alit sem góð spennusaga þarf að inni- bera. Spurð hvort hún gæti hugsað sér að setjast niður að loknum leikaraferlinum og skrifa ævisögu sína, segir hún að það komi ekki til greina. „Það yrði fjarskalega LEDCKONAN: „Gæti ekki hugsað mér að skrifa ævisögu mína," segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. leiðinleg bók Ég les sjaldan ævisögur og gæti ekki hugs- að mér að skrifa ævisögu mína eða láta skrifa hana utan um mig. Þetta er Ioforð.“ Guinot 30 ára 1. nóv. !i* 25% afsl. frá kl. 10-16 HRUND V e r s 1 u n & snyrtistofa Grænatún 1 • 200 Kópavogur • Sími 554 4025 Laujjavegí 206 Heildsöludreifing http://simnet. is/homedecorl928/ Skoðið heimasíðuna okkar og kikið á tilboð in Nýju vörurnar komnar. Yfír 200 vörunúmer. JÓLAFÖNDUR KORTAGERÐ • Bjóðum upp á ævintýralegt úrval af jólaföndri og spennandi kortagerðarefni • Yfir 1800 tegundir af myndastimplum • Úrval af stimplum með íslenskum textum • Vinsælu íslensku jólasveinastimplar Brians Pilkington eru komnir aftur SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16 • SÍMAR SS2 1412 og 551 2242

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.