Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2003, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson, ábm.
Ritstjóran
lllugi Jökulsson
Mikael Torfason
Fréttastjórar
Kristinn Hrafnsson
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm:
550 5020 - Aðrar deildir. 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
an auglysingar@dv.is. - Dreifing:
dreifing@dv.is
Setning og umbrofc Frétt ehf.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Margaríta í
Hafnarfirði
Leikfélag Hafnarfjarðar
hcfur hafí ð æfíngar á
Meistaranum og
Margarítu eftir
Bulgakov. Eru
bundnar mikl-
arvonirvið
sýninguna sem
verður ein sú
merkasta á
leikárinu ef að
iíkum lætur. Leikstjóri er
Hilmar Jónsson en sýn-
inguna skreyta margar
af helstu stjömum leik-
húsheimsins svo sem
Margrét Viihjálmsdóttir,
Kristján Franklín og
Hjálmar Hjálmarsson
svo einhverjir séu nefnd-
ir. Þá kemur lúðrasveitin
Svanur við sögu. Frum-
sýnt verður í byrjun
næsta árs.
Of margir kettir
Sigríður Heiðberg for-
maður Kattavinafélags-
ins telur að allt of mikið
af köttum sé í landinu.
Staðhæfir hún að kettir í
höfuðborginni séu ekki
undir 20 þúsund talsins
og þar af séu allt of
margir heimilislausir.
Sjálf er Sigríður með 20
ketti heima hjá sér og
hleypir þeim aldrei út.
Segir umferðina of
mikla.
Kvartað yfir Gísla
Söngkonan Leoncie hef-
ur kvartað yfír því að
hluti af viðtali sem Gfsli
Marteinn Baldursson
átti við hana í
sjónvarpsþætti
sínum sfðast-
liðið laugar-
dagskvöld var
klipptur úr fyr-
ir sýningu þátt-
arins. Leoncie
var þar að tjá sig um
samskipti sínvið
menntamálaráðuneytið
og mæltist vel. Ekkert af
orðum hennar í því efni
rataði þó heim í stofur
landsmanna. í kvörtun-
arbréfi sfnu til Gfsla
Marteins, segir söngkon-
an: „Þú lifír í fortíðinni
Gísli.“
Upprisa á Patró
Tilraunir hafa verið
gerðar til að endurvekja
Leikfélag Patreksfjarðar.
Fyrir skömmu var efht
til fundar í Skjaldborgar-
bíói þar sem reyna átti
að finna grundvöll fyrir
starfsemi leikfélagsins
sem ekki hefúr starfað í
nokkur ár. Eru menn
vongóðir um að brátt
verði aftur leikið á sviði á
Patreksfirði - og tími til
kominn.
Verið velkomin
■w-k aminogJanaSanahafanúfengiðland-
i-t vistarleyfí á íslandi í eitt ár af svonefnd-
X \ um mannúðarástæðum. Georg Kr. Lár-
usson, forstjóri Útlendingastofnunar, upp-
lýsir í samtali við DV í dag að eftir að árið er
liðið geti þau sótt um áframhaldandi vist á fs-
landi, ef jíau svo kjósa, og ekkert sérstakt hef-
ur komið á daginn sem mælti á móti áfram-
haldandi dvöl þeirra í landinu. Svo mikið er
víst að þau hjón þurfa ekki að óttast að verða
vísað úr landi, ásamt nýfæddum syni sínum.
Þau Ramin og Jana og litli drengurinn eru
því komin inn fyrir gættina hjá okkur íslend-
ingum og er það vel. Þau skulu hér með boð-
in velkomin og við vonumst til þess að þau
dvelji hér sem lengst og líki sem allra best við
land og þjóð.
Á hinn bóginn eru vonbrigði hjónanna
skiljanleg yfir því að þau skyldu ekki hafa
fengið það pólitíska hæli sem þau höfðu sótt
um og vonir höfðu staðið til að þau myndu fá.
Leit vissulega út fyrir á tímabili að þau
myndu fá þann eftirsótta sess en lendingin
um landvistarleyfi af mannúðarástæðum
varð ofan á. Þegar upp verður staðið er þar að
lrkindum um bitamun að ræða en ekki fjár í
tilfelli hjónanna, en hins vegar er löngu tíma-
bært að íslendingar taki á sig rögg og endur-
skoði afstöðu sína til þeirra sem sækja um
pólitískt hæli í landinu.
fsland gæti orðið frægt að endemum r hin-
um vestræna heimi fyrir það hversu erfitt er
fyrir útlendinga að fá hér pólitískt hæli.
Spyrjist ferill okkar í þessum efnum verulega
út meðal annarra þjóða er til dæmis ekki vrst
að það verði okkur til framdráttar í hinni
frægu kosningabaráttu okkar til sætis í örygg-
isráði Sameinuðu þjóðanna. Nú er það að
vísu svo að sæti þar geta ríki léttilega fengið
þótt þau hafi afleitan orðstír, svo ekki sé
meira sagt, í mannréttindamálum. En við
hljótum að gera meiri kröfur til okkar sjálfra
en annarra og ríki sem hefúr þá hálf-opin-
beru stefnu að taka ekki við pólitískum flótta-
mönnum getur vart verið til stórræðanna á
alþjóðlegum vettvangi.
Að minnsta kosti er ljóst að ef einhvern
tíma var ástæða til að veita pólitískt hæli var
það í þetta sinn. Nefna má að eins og fram
kom í DV í gær hafa ættingjum Ramins feng-
ið slík hæli í Danmörku, Sviss, Bretlandi og
Kanada. En hann fær ekki pólitískt hæli hér.
Ljóst má vera að stjómvöld hafa ekki viljað
veita þeim hjónum hæli fyrst og fremst til að
fá ekki yfir sig holskeflu umsækjenda um
pólitísk hæli. Að koma í veg fyrir slíkt virðist
hafa verið fyrsta markmið stjómvalda. í ljósi
þess geta þau Ramin og Jana vel við niður-
stöðuna unað.
En við hvetjum þó Bjöm Bjarnason dóms-
málaráðherra til að stíga skrefið til fulls þegar
hann fær málið til meðferðar, eftir kæru
þeirra hjóna, og veita þeim pólitískt hæli og
sýna þannig ábyrgð íslendinga á alþjóðavett-
vangi.
Illugi Jökulsson
lllleð bankann
í vasanum"
Við héldum að það væri ein helsta
skylda bankamanna að kunna að
telja. Raunarhéldum við að það væri
kannski sú eina skylda sem hægt
væri að gera kröfu um. Og erum
reyndar enn á þeirri skoðun.
En þó læðist að okkur efí. Eftir
sviptingamar síðastliðinn föstudag
var greint frá því í fréttum að fjöldi
viðskiptavina hefði tekið fé sitt út úr
Kaupþingi Búnaðarbanka oglagtinn
á aðra banka. Ekki fengust uppgefh-
ar nákvæmar tölur um þetta, en þó
er altént á hreinu að bæði Davíð
Oddsson ogritstjóri Frétta.com tóku
út peninga sína.
Því á netsíðu Frétta.com segir:
„Æðstu stjómendur Kaupþings
Búnaðarbanka hafa fengið skilaboð
frá Jörðinni og hafe nú svarað. Sig-
urður Einarsson,
stjómarformaður
Kaupþings Búnaðar-
banka og Hreiðar Már
Sigurðsson, forstjóri,
virðast hafa áttað sig á
alvarleika málsins,
skynjað óánægju
fólksins og fúndið fyr-
ir því þegar Davíð Oddsson, forsæt-
isráðherra, tók út 400.000 krónur og
ritstjóri ERÉTTA (Steingrímur Ólafs-
son) tók út rífiega 5.000 krónur efdr
hádegi í dag.“
En þrátt fyrir að bæði Lands-
banka- og íslandsbankamenn láti
drýgindalega yfír þeim auknu við-
skiptum sem klúður Kaupþings
hafði íför með sér fyrir bankann, þá
fullyrða Kaupþingsmenn að við-
skiptavinum bankans hafí alls ekki
fækkað, heldurþvert á móti fjölgað!
Þannig segir Sigurður Einarsson í
Morgunblaðinu í gær að hann telji
að þótt ímynd bankans hafí vissu-
lega skaðast hafí hann ekki beðið
beint fjárhagslegt tjón enn sem kom-
ið væri. „Fleiri viðskiptavinir hafí
komið en hættu íviðskiptum oginn-
lán einstaklinga hafí ekki minnkað
Steingrímur Ólafsson rítstjórí
Frétta.com tók fimm þúsund kall út úr
Búnaðarbankanum á föstudaginn varl
Fyrst og fremst
þann dag (föstudag)," hefur Mogg-
inn eftir Sigurði.
Er sem sagt niðurstaðan sú að á
föstudaginn var, hafí viðskiptavinum
allra bankanna fjölgað? Er þá ekki
eitthvað athugavert
við hvernig banka-
menn telja? Eða er I
raunin virkilega sú að [
fjöldi fólks, sem fram
á föstudag hafði I
geymtpeningana sína
undir koddanum, hafí |
séð þennan dag
vænstan til að rjúka út í banka og
stofna sparisjóðsbók? Og náttúrlega
ekki séð neinn vænlegri kost í stöð-
unni akkúrat þennan dag en
Kaupþing Búnaðarbanka ?
Fyrst minnst var á Fréttir.com, þá
hljóðar ein fréttaklausan á netsfð-
unnisvo:
„Lfldega er búið að skrife
kennslubók f almannatengslafræð-
um sem heitir; „Hvemig á EKKf að
meðhöndla mál“ í þessum Kaup-
þings Búnaðarbanka fersa. Hinir
saklausu vom seldr, fbúar glerhúsa
stóðu f steinakasti og borðum vhdara
var hrundið rétt áður en þau vom
reist við aftur. Það er lfldega leitun að
lélegri stjómun á almannatengslum
(PR) og óhætt að segja að hér hafi
verið á ferðinni eitthvert lélegasta PR
í langan tíma. FRÉTTER leituðu álits
nokkurra almannatengslasérfræð-
inga og niðurstaðan var einróma;
falleinkunn. Sérfræðingamir vom
sammála um að; í fyrsta lagi hefðu
almannatengslasérfræðingar bank-
ans átt að vera undirbúnir, f öðm lagi
lém þeir málið „danglast" í fjölmiðl-
um í tvo daga áður en nokkuð var
gert og í þriðja lagi undirbjuggu þeir
málsvömina illa (þegar hún loksins
kom).
Það er spurning hvort það hjálpi
bankanum eitthvað að nota slagorð
sem Kaupþing Búnaðarbanki á skráð
sem vörumerki, en það er:
„ Vertu með bankann í vasanum “
Spurning hvort Sigurður Einars-
son, stjórnarformaður og Hreiðar
Már Sigurðsson, forstjóri, geti nýtt
sér þetta eitthvað?““
Ekki vitum við það. En hins vegar
verðum við að taka ofan fyrir Kaup-
þingsmönnum fyrir að hafa látið sér
detta í hug að skrá þetta vörumerki.
Oghvetjum til þess að það verði tek-
ið í brúk hið fyrsta.
Sviptingar á fslenskum fjármála-
markaði em femar að vekja athygli
erlendis. Það er lfldega dæmi um al-
þjóðavæðingu íslensks viðskiptalffs.
I gær birtist eftirferandi klausa í dálki
í hinu virta breska blaði, Financial
Times, sem einkum helgar sig um-
fjöllun um peninga- og atvinnumál.
Blaðið hafði sagt ítarlega frá uppi-
s tandinu sem varð þegar Kaupþings -
menn fengu kaupaukann sinn en f
dálknum er vöngum velt yfir þýð-
ingu málsins. Dálkurinn nefnist
Observer, eða sá sem fyigist með.
„Hvað lá að baki þeirri ákvörðun
Davíðs Oddssonar, forsædsráðherra
á íslandi, að mótmæla samningi um
kaupauka hjá yfirmönnum Kaup-
þings-Búnaðarbanka með því að
ijúka til og taka sparifé sitt úr bank-
anum?
Var einfaldlega um að ræða lýð-
skrum eða var þetta nýjasta skotíð að
Jóni Asgeiri Jóhannessyni, hinum
unga og kraftmikla stjómanda
Baugs? Baugur, sem hefúr yJBrburða-
stöðu í smásöluverslun á fslandi og á
orðið vaxandi hlut í íslenskum fjöl-
miðlum, hefúr Kaupþing að bak-
hjarlL Engir kærleikar em með for-
sætisráðherranum og auðjöfrinum.
(Davíð) Oddsson hefúr sakað Baug
um að hafe reynt að múta honum.
(Jón Ásgeir) Jóhannesson gerist
fyrir sitt leytí afer óþolinmóður
vegna opinberrar
rannsóknar sem fyrir-
tæki hans hafe sætt í
síðustu viku gerðu
menn frá skattínum
meira að segja innrás í
aðalstöðvar fyrirtækis
hans. Er hér um að
ræða svar íslands við
orrustu Vladimirs Pútíns (Rússlands-
forseta) við Mikhail Khodorkovsky,
fyrrum stjómanda Yukos olíufélags-
ins?
Ekki vitum við það en vekjum
hins vegar athygli á auknum fjárfest-
ingum Baugs utan íslands. Félagið er
nýbúið að kaupa Hamleys leikfenga-
verslunina í London og á nú þegar
fataverslunarkeðjuna Oasis á Bret-
landi“
Það er alltaf gaman að vekja at-
hygli í útlöndum. En við erum hins
vegar ekki vissir um hvaða mynd
klausur afþessu tagi - úrhinum dag-
lega veruleika íslensks viðskiptalífs -
gefa afokkur.