Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2003, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
Batt konu með
lampasnúru
Karlmaður á sjötugsaldri
hefur verið dæmdur í mán-
aðarfangelsi fyrir að snúa
upp á handleggi þrítugrar
konu, og binda báðar
hendur hennar með raf-
magnssnúru, með þeim af-
leiðingum að hún hand-
leggsbrotnaði. Aðdragandi
atburðanna er óljós, en
maðurinn segir að konan
hafi ætlað að stinga hann
með hnífi. Fundust á hon-
um grunnir áverkar, og
taldi dómurinn að mannin-
um hafi verið heimilt að
beita konuna valdi til að ná
hnífnum. Hann féllst hins-
vegar ekki á að nauðsynlegt
hafi verið að binda hana.
Dómurinn er skilorðsbund-
inn til þriggja ára.
Áreittir læknar
eru óánægðir
Hótanir og áreiti yfir-
manna og samstarfsmanna
gegn læknum á Landspítal-
anum er alvörumál að sögn
Vinnueftirlitsins.
Könnun sem Vinnueftir-
litið gerði meðal lækna
Landspítalans leiddi í ljós
að 6 prósent læknanna telja
sig hafa orðið fyrir ofbeldi af
hálfu yfirmanns og 4 pró-
sent af hálfu samstarfs-
manna. Mest er þó ofbeldið
ffá sjúklingunum og að-
standendum þeirra.
„Það er alvörumál, þó
um lítinn hóp sé að ræða,
að nokkrir læknar telji sig
hafa orðið fyrir áreiti og hót-
unum yfirmanna og sam-
starfsmanna sinna," segir
Vinnueftirlitið sem einnig
fann út að 65 prósent lækn-
anna eru óánægðir með
stjórn Landspítafans.
Loðnan týnd
í haustmælingu Haf-
rannsóknastofnunarinnar
mældist einungis tíundi
hluti af stórloðnu og fimm
prósent af smáloðnu miðað
við það sem venjulegt er.
Stofnunin ályktar að niður-
staða leiðangursins geti
vart talist trúverðug, af
þeirri ástæðu einni hve lítið
fannst.
Undarlegar niðurstöður
eru raktar til hærra
hitastigs sjávar kringum
landið, sem hefur einkum
mikil áhrif á loðnuna, sem
er kaldsjávarfiskur og lík-
lega sá fiskistofn við landið
sem viðkvæmastur er fyrir
umhverfisbreytingum.
„Er ekki best að lýsa því
hvernig ég hef það í
augnablikinu. Þú ert að
trufla mig í hádegisboltan-
um þar sem ég er rennandi
sveittur og úrvinda af
þreytu," segir sr. Halldór
Hvernig hefur þú það?
Reynisson verkefnisstjóri á
Biskupsstofu. „Við komum
saman nokkrir félagar úr
prestastétt, tvisvar í viku,
og leikum okkur í fótbolta
undir yfirskriftinni Presley
United. Jú, jólaös-
in leggst bara
nokkuð vel í mig.
Að vísu kemur hún
h'tið við mig sem
prest enda er ég nú
í seinni tíð bara
bírókrat sem vinn
á skrifstofu."
Kaupþing Búnaðarbanki kærði konu fyrir að senda sjálfri sér excel-skjal eftir að
hún sagði upp til að ganga til liðs við Landsbankann. Konan segir skjalið enga þýð-
ingu geta haft fyrir samkeppnisaðila og segir bankann bregðast við af offorsi.
Sólon Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kaup-
þings Búnaðarbanka, segir að kona sem var í
barneignarleyfi frá bankanum, hafi stolið mikil-
vægu forriti í eigu bankans degi áður en hún sagði
upp og tilkynnti að hún hyggðist ganga til liðs við
Landsbankann. Hann segir að í ljós hafi komið
þegar Búnaðarbankamenn könnuðu hvað hún
hafði aðhafst á skrifstofunni að hún hefði sent
sjálfri sér forrit bankans, sem hefði verið þróað
um árabil til að rannsaka áhrif vaxtabreytinga á
rekstur bankans.
„Hún kom daginn eftir seinna skiptið og sagði
upp. Þá sagðist hún hafa ráðið sig sem aðstoðar-
mann Sigurjóns Þ. Árnasonar, bankastjóra Lands-
bankans," segir hann. Búnaðarbankinn kærði
konuna strax og upp komst um tölvupóstsend-
ingu hennar. „Þetta er þjófnaður. Hún viður-
kenndi að hafa sent sjálffi sér forritið," segir Sól-
on.
Að sögn Atla Atlasonar, starfsmannastjóra
Landsbankans, var hætt við ráðningu þegar
konan tilkynnti um kæru Búnaðarbankans á
hendur sér. Hann segir Landsbankann enga
sendingu hafa fengið og engan áhuga hafa á því
tölvugagni sem hún er sögð hafa sent sjálfri sér.
„Það stóð til að ráða manneskjuna, en við hættum
við það vegna þess að hún fékk á sig þessar ávirð-
ingar. Þetta er ekki í neins hag. Landsbank-
inn þarf ekki á þessu skjali að halda og
mun ekki þurfa á því að halda."
Sólon segir ekki víst að far
ið verði með málið alla leið.
„Við höfum ekki tekið
ákvörðun um hversu langt
við förum með málið. Ef
það kemur í ljós að hún
hefur ekki sent það áfram
til annars aðila getur vel
verið að við látum málið
niður falla."
í viðtali við DV segir
konan að rangt sé hjá
fyrrum vinnuveitenda
hennar að um mikilvægt
forrit hafi verið að ræða. Hún segist hafa sent
sjálfri sér nokkurra ára gamalt excel-skjal með
gömlum upplýsingum fimm dögum áður en hún
sagði upp, en ekki degi áður, lfkt og Sólon segir.
Hún kveðst hafa metið skjalið sem svo að það
hefði ekkert mikilvægi fýrir samkeppnisaðila,
enda hafi hún ekki ætlað sér annað en að eiga
skjalið sjálf, þar sem hún hafi sjálf unnið við gerð
þess. Hún segir kæru Kaupþings Búnaðarbanka
hafa komið sér á óvart og kveðst ekki skilja hvers
vegna fyrrum vinnuveitandi hennar bregðist við
af offorsi, líkt og raun beri vitni. Viku eftir að kær-
an kom fram ræddi hún við bankann og baðst af-
sökunar á þeim óþægindum sem hún hefði vald-
ið, og taldi málið leyst.
Konan er enn í barneignar-
leyfi og undirgengst rann-
sókn lögreglu.
jontrausti@dv.is
n
Þetta erþjófnaður. Hún við-
urkenndi að hafa sent sjálfri
sér forritið."
Slgurjón Þ. Árnason
Landsbankinn fékk enga
sendingu og hefur engan
ahuga á þvi tölvugagni
sem hún er sögd hafa sent
Solon Sigurðsson
Konan sagdist hafa rádid
sig sem adstoðarmann
Sigurjóns bankastjóra i
Landsbankanum.
Sömu fréttir á sama tíma - fréttastjóri fýkur
EHH
Svarthöfði
Það mátti svo sem sjá það fyrir.
Alla vega var Svathöfði búinn að því
fyrir löngu. Nýjustu fréttir herma að
áhorf á sjónvarpsfréttir hafi hrunið
og þá sérstaklega hjá Stöð 2. Svo
sem ekki skrýtið þegar fréttastjórar
taka það upp hjá sjálfum sér að
senda út fréttir á sama tíma og
keppinauturinn. Þó fólk hafi tvö
augu er ekki hægt að horfa á fréttir
beggja sjónvarpsstöðvanna í einu.
í byrjun reyndi Svarthöfði að
skipta á milli stöðva upp úr klukkan
sjö á kvöldin til að sjá allt. En það
skipti svo sem litlu. Það voru yfir-
leitt sömu fréttirnar á báðum rás-
um. Munurinn helstur sá að hjá
Ríkinu sat Elín Hirst en á Stöð 2
Karl Garðarsson. Valið stóð því á
milli þeirra. Og eins og alltaf þegar
kynin keppa um athygli sigrar kon-
an.
Svarthöfði telur þetta helstu
ástæðu þess að Stöð 2 hefur tapað í
fréttakapphlaupinu. Hin er að sjálf-
sögðu sú að Stöð 2 var með sömu
fréttir og Ríkið. Þó ekki alltaf í sömu
röð. En það eitt dugir ekki til sigurs
og því þarf þjóðin brátt að sjá á bak
enn einum fréttastjóranum. Það
verður að skipta um Karl Garðars-
son í brúnni ef hann fiskar ekki. Sú
almenna regla gildir alls staðar
nema hjá Ríkinu sem var óvart svo
heppið núna að vinna.
Svarthöfði hefur haft góð kynni
af Karli Garðarsyni. Hann hefur
reynst fyrrum eigendum Stöðvar 2
auðsveipur þjónn og rekið þá sem
honum hefur verið sagt að reka. Nú
verðurhann rekinn sjálfur. Ekki fyr-
ir að reka sjónvarpsmenn ársins í
kippum. Heldur frekar hitt að hafa
rekið áhorfendur frá skjánum með
því að senda út sömu fréttir og
keppinauturinniog það á nákvæm-
lega sama tíma. Sjónvarp snýst ekki
um jafntefli. Sjónvarp snýst um sig-
ur. Stöð 2 hefur tapað.
r Svarthöföi