Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2003, Qupperneq 17
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 17
„Ég held það fari ekkert á milli
mála hvaða skoðanir ég hefá
hlutunum og menn vita hvar ég
stend. Fólk virðist beina
spjótum sínum meira að þeim
mönnum sem tala beint út. Það
sem er á netinu er oft bara sori
og ég les það ekki einu sinni.“
Handknatdeikslið Hauka náði um helgina einum besta árangri sem íslenskt
félagslið hefur náð er þeir gerðu jafntefli við Evrópumeistara Barcelona á
útívellL Barcelona hafði fyrir þann leik unnið 40 leiki í röð á heimavelli sínum
og þvf er óhætt að segja að árangurinn sé einkar glæsilegur. Haukaskútunni
stýrir hinn eitiiharöi Viggó Sigurðsson sem er maður sem lætur sér fátt fyrir
bijósti brenna. Hann var sjálfur mjög farsæll leikmaður og sem þjálfari hefur
hann viðhaldið þeim góða sið. Hann er einnig umdeildur maður enda óspar á
að láta skoðanir sfnar á mönnum og málefnum í ljós, en þær hafa ekki alltaf
fallið í kramið. Viggó er í yfirheyrslu DV Sports þessa vikuna þar sem hann
svarar meðal annars hvort hann hafi áhuga á því að taka við landsliðinu og
hvort hann telji sjálfan sig vera besta þjálfera á Islandi.
Er þessi árangur hjá ykkur í
Barcelona besti árangur sem íslenskt
félagslið hefur náð?
„Já, ég held ég verði að segja það.
Þetta hlýtur að toppa eða að minnsta
kosti jafna það besta hingað til."
Á lið sem ncer slíkum árangri ekki
að rúlla upp íslensku deildinni?
„Nei, það tel ég nú ekki. Við
höfum ekkert spilað ofurvel
undanfarið og þetta er toppurinn
hingað til. En ef við gætum alltaf
leikið svona vel þá stæðist ekkert lið
hér heima okkur snúning."
Afhverju náið þið ekki upp sömu
stemningu í leikjum í deildinni hér
heima eins og þið gerðuð úti í
Barcelona?
. „Ástæðan er fyrst og fremst
mótafyrirkomulagið. Það er alveg út í
hött. Það má eiginlega segja að
deildin byrji ekki fyrr en í febrúar og
svo er úrslitakeppnin. Það er
voðalega erfitt að „peppa" liðið upp
þegar ekkert er í boði. Ég hef lengi
sagt það að þetta fyrirkomulag er ekki
handboltanum til framdráttar."
Vil hafa deildarkeppni
Hvernigfyrirkomulag vilt þú hafa
á mótinu?
„Ég vil hafa deildarkeppni með
tíu til tólf liðum þar sem leikin er
tvöföld umferð. Fyrst og fremst vil ég
að leikimir sem em leiknir yfir
veturinn hafi eitthvað vægi og að
það lið sem endar efst eftir alla
vetrarvinnuna verði svo
íslandsmeistari."
Kemur ekki meiri metnaður í
slakari liðin með þessu
fyrirkomulagi þar sem þau eiga
möguleika á að gera eitthvað?
„Það er bara á kostnað betri
liðanna. Það er líka þannig umhverfi
hérna að menn em ekkert að búa til
góð lið. Þegar það koma upp
efnilegir leikmenn í lakari liðunum
þá eru þeir yfirleitt farnir í betri
liðin. Þannig að það er alger
misskilningur að menn séu að búa
til einhverja breidd."
Ekki áhuga á landsliðinu
Hvað œtlarðu að þjálfa
Haukana lengi og hefurðu áhuga á
því að þjálfa aftur erlendis eða
íslenska landsliðið?
„í fyrsta lagi er erfitt að svara
með landsliðið. Liðið er með
frábæran þjálfara sem verður
örugglega við stjórnvölinn næstu
árin. Eins og staðan er núna þá hef
ég samt engan áhuga á slíku. Ef ég
yrði spurður að réttum aðilum
seinna meir þá myndi ég bara svara
því þá. Hvað Haukana varðar þá er
ég með samning út næsta tímabil.
Ég sé til hvað ég geri. Ég á eftir að
setjast niður með
forráðamönnunum og fara yfir
málin. Ég er ekki sáttur við að á
hverju einasta ári þurfi að byrja
vinnuna upp á nýtt. Við erum alltaf
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@dv.is
YFIRHEYRSLAN
að missa marga leikmenn frá okkur
og það hefur ekki verið stoppað
nægilega vel í götin. Ef menn vilja fá
aftur svona úrslit eins og við náðum
í Barcelona þá verður að hafa
mannskap til þess og það kostar
auðvitað peninga að hafa
mannskap. En menn verða að gera
það upp við sig hvort þeir vilji ná
svona úrslitum. Ég hef lítið hugleitt
að fara aftur út, ég fékk reyndar
fyrirspurn frá Þýskalandi fyrr í vetur
en ég gaf það frá mér.“
Myndirðu vilja að það vœri gert
atvinnumannalið úr Haukum ogef
svo væri er einhver grundvöllurfyrir
slíku?
„Auðvitað hefði ég áhuga á því
en menn verða að vera á jörðinni
með allt slíkt. Það er örugglega
þeirra draumur líka en ég held að
það sé borin von að framkvæma
slíkt. Ég held að slíkt gangi ekki upp
áíslandi." '
Sori á netinu
Nú er óliætt að segja að þú sért
umdeildur maður og
handboltaáhugamenn eyða miklum
tíma í að skrifa um þig á netinu. Af
hverju er fólk að eyða svona miklum
tíma í að tala um þig?
„Ég held það fari ekkert á milli
mála hvaða skoðanir ég hef á
hlutunum og menn vita hvar ég
stend. Fólk virðist beina spjótum
sínum meira að þeim mönnum
sem tala beint út. Það sem er á
netinu er oft bara sori. Ég les það
ekki einu sinni og ég hef litlar
áhyggjur af því hvað menn eru að
skrifa um mig og það truflar mig
ekki neitt."
Nú ertþú farsæll þjálfari. Er þetta
öfund?
„Það er örugglega ein ástæðan.
Haukarnir hafa verið undir minni
stjóm besta liðið í langan tíma og
það er oft kalt á toppnum."
Telurðu sjálfan þig vera besta
þjálfara á íslandi í dag?
„Ég er með þeim betri en það
verða aðrir að meta það hvort ég sé
sá besti."
Nú voru deilur milli þín og HSÍ
mikið í umræðunni á dögunum.
Varstu sáttur við niðurstöðuna í því
máli?
„Já, í sjálfu sér held ég að þetta
hafi verið ágætis niðurstaða. Það er
meiningin að skoða þessi mál betur
og það á faglegri gmnni en áður og
ég er mjög sáttur við það. Ég fagna
því að það sé gert því það er í þágu
allra. Bæði dómara og
handboltaliðanna. Það þarf að setja
aðeins skýrari reglur með þessi mál
og menn verða að vita betur að
hverju þeir ganga. Ég hefði viljað
hafa miklu skýrari línur með
dómarapörin og hvernig þau em
metin. Mér finnst það vera
algjörlega í lausu lofti."
íslenski boltinn slakur
Er það ekki skandall ef Haukar
verða ekki íslandsmeistarar í vor?
„Nei, ég held ekki. Þegar maður
fer í úrslitakeppni þá skiptir máli
hvað þú ert með í höndunum því
það er engin ávísun fyrir því að allir
leikmenn séu heilir þegar út í
úrslitakeppnina er komið. Þetta er
enginn titill sem þú pikkar upp á
götunni. Það þarf að hafa fýrir
hlutunum og við berum fulla
virðingu fyrir öðrum liðum. Við
vorum slegnir út úr bikarnum af KA
þannig að það getur allt gerst."
VIGGÓ SIGURÐSSON
Fæddur: 11.02 1954
Hæð: 1,92 m
Þyngd: 98 kg
Hjúskaparstaða: Giftur Evu Þóreyju
Haraldsdóttir.
Börn: Rakel Margrét 22 ára, Jón
Gunnlaugur 21 árs, Haraldur Stefán
13 ára,Tómas Aron 11 ára.
Leikmannaferill:
1970-1078 Víkingur
1978-1980 Barcelona
Spænskur meistari 1980.
1980-1982 Bayer Leverkusen
1982-1985 Víkingur
4 (slandsmeistaratitlar, 5
bikarmeistaratitlar.
Landsleikir: 67,190 mörk.
Þjálfaraferill:
1985- 1986 fsland U-21
1986- 1989 FH
1989-1992 Haukar
1993-1995 Stjarnan
1996-2000 Wuppertal
Sigur í 2. Bundesligu norður 1997.
2000-? Haukar
(slandsmeistari 2
Bikarmeistari 3
Meistarar meistaranna 3
Evrópuleikir 40
Samtals titlar
18
Hvernig finnst þér handboltinn
hafa verið í vetur?
„Hann er frekar slakur. Þar
komum við aftur að því sama að það
er allt of mikill munur á liðunum í
deildinni. Ég finn enga spennu í
kringum mótið. Gæðin í boltanum
almennt eru ekki nægilega mikil og ♦
það batnar ekki við þetta
fýrirkomulag."