Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2003, Blaðsíða 19
DV Fókus
ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 7 9
Árleg tískusýning Victoria’s Secret var haldin í New York á dögunum. Að vanda létu ofurfyr-
irsæturnar sig ekki vanta og sýndu heimsbyggðinni hvað verður nýtt og spennandi að gerast
í heimi nærfatanna næsta árið.
Nýliðinn Rússneska fyrirsætanKurkova stóð sig
vel i hópi eldri og reyndari kvenna.
Naomi Campbell Tóksig vel út ínýjustu
klæðum Victoria's Secret, þrátt fyrir háan
starfsaldur iþessum bransa.
Heidi Klum Vakti mikta eftirtekt þetta
kvöldog ekkiað ástæðulausu.
Gisele Sýndi nýjustu tískuna og fórst það
afar vel úr hendi.
Tyra Banks Leiddi hóp föngulegra kvenna I
salinn við mikil fagnaðarlæti.
Brasilísk fegurð Gisele Bundchen er ein eftirsóttasta
nýjasta'mS °9 ^ °ð kvenÞÍ^inni það
Tjörnin lifi: Baráttan gegn ráðhúsinu
ur varð einnig til þess að málið dróst á lang-
inn, og um 1970 var endanlega hætt við
framkvæmdirnar.
Davíð kemur í bæinn
Það var ekki fyrr en 1984 sem skriða komst
aftur á ráðhúsmál Reykjavíkur þegar Davíð
Oddsson, er kjörinn hafði verið borgarstjóri
tveimur árum áður, efndi til samkeppni um
byggingu hússins. Um mitt sumar 1987 var til-
kynnt að arkitektarnir Margrét Harðardóttir og
Steve Christer hefðu unnið samkeppnina.
Þann fyrsta október, sama dag og ríkissjón-
varpið hóf útsendingar á fimmtudögum,
ákvað borgarstjórn að samþykkja byggingu
ráðhúss við norðurenda tjarnarinnar.
Ákvörðunin varð mjög umdeild. Fannst
sumum sem bogadregnir gangar hússins
minntu á bragga, en braggahverfin vom enn í
fersku minni. Aðrir höfðu meiri áhyggjur af
áhrifum framkvæmdanna á lífríki tjarnarinnar,
og einum og hálfum mánuði síðar var haldinn
útifundur gegn byggingu hússins á vegum sam-
takana „Tjörnin lifi.“ Á þriðja þúsund manns
mættu til að mótmæla. DV gerði um þessar
mundir skoðanakönnun meðal landsmanna
þar sem kom í ljós að mikill meirihluti var and-
vígur byggingu ráðhússins. Einna fremst í flokki
var Sjálfstæðiskonan Guðrún Pétursdóttir,
dóttir Péturs Benediktssonar, þess hins sama
og hafði tveimur áratugum áður beitt sér gegn
byggingu ráðhúss.
Baráttufundur gegn byggingu ráðhúss Kranarnir
voru notaðir til að sýna hversu stórt það myndi verða.
Davíð mundar skófluna
Guðrúnu varð þó ekki jafn ágengt og föð-
ur hennar. Davíð Oddsson borgarstjóri hélt
ódeigur áfram með áformin, enda stjórn-
skörungur mikill og ekki þekktur fyrir að
beygja sig undir almenningsálit. í apríl árið
eftir tók hann fyrstu skóflustunguna að nýju
ráðhúsi. Sama mánuð árið 1991 er svo horn-
steinn lagður að húsinu, en Davíð var þá í
þann mund að láta af embætti borgarstjóra
þar sem hann hafði fengið umboð til stjórn-
armyndunar. Fór hann og hitti Jón Baldvin í
Viðey og kvaddi borgarstjórastörfin, en ekki
þó án þess að skilja eftir sig mikla (og kostn-
aðarsama) minnisvarða. Þetta sama ár var
nefnilega Perlan opnuð við hátíðlega athöfn,
en hann hafði einnig barist ötullega fyrir
byggingu hennar. Ári eftir að hornsteinninn
var lagður var ráðhúsið vígt. Stóðst það
tímaáætlunina, sem telst sjaldgæft meðal
opinberra bygginga, en fór þó um þriðjung
fram úr kostnaði. Morgunblaðið óskaði
borgarbúum til hamingja með nýja húsið, en
gagnrýndi þó að öllum borgarbúum skyldi
ekki hafa verið boðið að skoða það á opnun-
ardaginn heldur væru haldnar veislur fyrir
fáa útvalda. Guðrún Pétursdóttir bauð sig
síðar fram til forseta, en hlaut ekki embætt-
ið. Hún er nú í Ástralíu á vegum sjávarút-
vegsstofnunar háskólans. Davíð býr enn og
starfar í Reykjavík.
Árið 1987 var haldinn fjölmennur mót-
mælafundur gegn byggingu ráðhúss við tjörn-
ina. Samtök sem nefndu sig „Tjörnin lifi“
stóðu fyrir aðgerðunum og undirskriftalisti var
afhentur borgarstjórn. Á honum voru nöfn
10.000 Reyk-
víkinga sem
lýstu sig and-
víga byggingu hússins. Allt kom þó fyrir ekki,
og árið 1992 var húsið vígt.
Horfnar hugsjónir
Arkitektarnir deyja
Áætlanir um að byggja ráðhús í Reykjavík
komu fram í lok 18. aldar, en fyrst árið 1918 var
eitthvað aðhafst þegar Knud Ziemsen borgar-
stjóri stofnaði nefnd vegna málsins. Áformað
var að byggja ráðhús við Arnarhól, en ekkert
varð þó úr. Árið 1941 var fyrst fyrirhugað að
byggja ráðhús við tjörnina, en einnig var
Grjótaþorpið neínt sem möguleg staðsetning.
Árið 1955 var loks tekin ákvörðun um
byggingu hússins og var ákveðið að það
skyldi vera við tjörnina. Sex manna vinnu-
hópur arkitekta var myndaður en tveir þeirra
létust rétt eftir að hópurinn hóf störf. Verkið
gekk brösulega en 1964 voru lokateikningar
af ráðhúsinu birtar í fjölmiölum. Fólk var al-
mennt farið að láta útlit borgarinnar sig
meiru varða en áður, og mættu áformin mik-
illi mótspyrnu. Meðal helstu andófsmanna
voru Pétur Benediktsson sendiherra, alþing-
ismaður og bankastjóri. Efnahagssamdrátt-