Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2003, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Dæmdur en
samt í gæslu-
varðhaldi
Hæstiréttur staðfesti í
gær dóms Héraðsdóms
þess efnis að ungur síbrota-
maður skuli sæta gæslu-
varðhaldi til 7. janúar á
næsta ári, þótt dómur sé
genginn í máli hans.
Maðurinn var fyrr í
mánuðinum dæmdur í 14
mánaða fangelsi fyrir
nokkra þjófnaði, fíkniefna-
brot, ölvunarakstur og
hylmingu. Afbrotin framdi
maðurinn í byrjun október
og hefur setið í gæsluvarð-
haldi frá 16. október.
í úrskurði Hæstaréttar
er vísað til 103. greinar laga
um meðferð opinberra
mála en þar segir að halda
megi manni í gæsluvarð-
haldi ef sýnt þykir að hann
haldi áfram brotum.
Maðurinn á að baki nær
samfelldan sakaferil frá ár-
inu 1985 og hefur frá 18 ára
aldri hlotið sex dóma fyrir
auðgunar- og fíkniefnabrot.
Gereyðingar
smákökur
Hertar reglur Bandaríkj-
anna um innflutning á
matvælum gætu valdið al-
menningi erflðleikum nú
um jólin. Til að jólasælgæt-
ið komist úr landi þarf að
senda tilkynningu til mat-
vælaráðs Bandaríkjanna.
Reglurnar hafa þegar tekið
gildi og eiga
að koma í
veg fyir
að ger-
eyðingar-
vopn berist
með matvæl-
um. Ein af
undanþágunum
frá reglunum varðar
heimabakstur en hann þarf
ekki að tilkynna sérstak-
lega. Hvort hryðjuverka-
menn eigi eftir að nýta pip-
arkökur til illra verka á hins
vegar eftir að koma í ljós.
Vill Clark í
Hvfta húsið
Madonna heldur með
Wesley Clark og vill að
hann hljóti útnefningu
demókrata vegna komandi
forsetakosninga í Banda-
ríkjunum. Þessi yfirlýsing
Madonnu hefur að vonum
vakið athygli vestra. Söng-
konan átti vart orð til að
lýsa fundi sínum og Clark
nýverið, svo hrifin var hún.
„Hann hefur samvisku og
svo hefur hann áhuga á
andlegum
málum.
Það skiptir
mig máli,“
sagði
Madonna.
Hún sagði þau hafa rætt
hugsanlegt forsetaframboð
á fundinum og ekki sé vafi
á að Clark sé fæddur leið-
togi. „Sá sem hefur verið
hershöfðingi jafnlengi og
Clark kann að vinna undir
miklu álagi. Miðað við
stöðuna í dag þá fær hann
mitt atkvæði," sagði
Madonna.
Wesley Clark á í harðri
keppni vegna forvalsins og
verða úrslit ekki ljós fyrr en
í sumar.
Húsvörðurinn, Ian Huntley, hefur verið dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi fyrir
morðin á Jessicu Chapman og Holly Wells. Innanríkisráðherra Breta hefur fyrir-
skipað rannsókn á hvernig Huntley fékk vinnu í skólanum en komið hefur í ljós að
hann hefur áður verið sakaður um kynferðisofbeldi gegn börnum.
Otrúleg grimmd
og miskunnarleysi
Það mátti heyra andvarp feginleikans í dóm-
salnum í Soham í gær þegar dómur var kveðinn
upp yfir Ian Huntley og fyrrum unnustu hans,
Maxine Carr. Huntley var dæmdur í tvöfalt lífstíð-
arfangelsi fyrir morð á tveimur tíu ára stúlkum,
Jessicu Chapman og Holly Wells, sem fundust
látnar í skurði í Soham á Englandi í ágúst í fyrra.
Maxine Carr, hlaut þriggja ára fangelsi, fyrir að
hafa hindrað framgang réttvísinnar. Hún var
sýknuð af ákæru um að hafa aðstoðað Hundey við
að fremja afbrotin.
Tíu kviðdómarar af ellefu töldu Hundey sekan
en dómari hafði gert kröfu um að minnsta kosti
tíu atkvæði þyrfti til að sakfella í málinu.
Blekkingarleikur
Dómsalurinn var þéttsetinn við uppkvaðningu
dómsins og voru foreldrar beggja stúlknanna við-
staddir. Moses dómari ávarpaði Huntley og sagði
hann hafa myrt báðar stúlkurnar. „Þú einn veist
hvernig þú fórst að því,“ sagði dómarinn og bætti
við: „þú hefur ekki grátið vegna stúlknanna held-
ur vegna sjálfs þín. Með lygum og blekkingum allt
til þessa dags hefurðu aukið þann mikla harm
sem þú hefur valdið fjölskyldum stúlknanna,"
sagði Moses dómari. Hann sagði síðar í ræðu
sinni að Huntley hefði sýnt af sér ótrúlega
grimmd og miskunnarleysi.
Þá vék Moses dómari sér að Maxine Carr. „Þú
hafðir fjölmörg tækifæri til að neita þátttöku í
blekkingarleiknum. Þú kaust að taka þátt. Ef þér
hefði verið annt um fjölskyldur stúlknanna þá
hefðirðu sagt rétt og satt frá.“
Röð kynferðisbrota
Hundey er einn til frásagnar um hvernig dauða
stúlknanna bar að. Hann sagði þær hafa dáið af
slysförum á baðherbergi á heimili sínu. Lík þeirra
fundust mjög illa út leikin í skurði á fáförnum stað
fýrir utan Soham. Dánarorsök verður aldrei að
fullu ljós. Frásögn Huntley þótti ekki trúverðug og
eftir 17 klukkustundir var niðurstaða kviðdóms sú
að Huntley hefði banað stúlkunum. Kviðdómur
vissi að Huntíey hafði verið kærður fyrir nauðgun
en kæran dregin til baka.
Það sem kviðdómur vissi ekki er að Huntley
hefur nokkrum sinnum verið sakaður um kyn-
ferðislegt ofbeldi gagnvart ungum stúlkum. Þeir
atburðir áttu sér stað í Grimsby og víðar fyrir um
áratug.
Innanríkisráðherra Breta, David Blunkett, hef-
ur nú hrundið af stað rannsókn á hvemig stendur
á því að Huntley fékk vinnu sem húsvörður í
barnaskóla. Einhverra hluta vegna leiddi almenn
skoðun á fortíð hans ekkert slíkt í ljós. Venja er að
kanna feril allra sem sækja um störf í skólum á
Englandi.
Röð mála þar sem Huntíey var sakaður um
nauðgun eða fyrir að hafa haft samræði við barn-
ungat stúlkur er
nú að koma í
ljós. Svo virðist
líka sem
Huntley hafi
ávallt flutt sig
um set þegar
slíkar ásakanir
komu upp. Mál-
in verða ekki
fleiri því Ians
Huntíey bíður
ævilöng fang-
elsisvist. Fyrr-
um unnusta
hans, Maxine
Carr, mun hins
vegar sleppa að
einu og hálfu
ári liðnu.
arndis@dv.is
Holly og Jessica Stúikurnar ætluðu i sakleysi
slnu að heimsækja Maxine Carr sunnudaginn 4.
ágúst 2003. lan Huntley bauð þeim inn. Þær áttu
ekki afturkvæmt.
Niðurskurður á Landspítalanum
Uppsagnir kynntar
starfsfólki
Fundað á Kleppi Starfsfólk á geðsviði Landspitalans á Kleppi fékk að heyra um uppsagnir i
þeirra röðum á þriðjudaginn.
Framkvæmdastjórn Landspítala-
háskólasjúkrahúss hefur lokið við
fundaröð með hundruð starfs-
manna vegna fyrirhugaðra upp-
sagna á 200 starfsmönnum spítal-
ans. Magnús Pétursson forstjóri seg-
ir fólk hafa tekið tíðindunum hátíð-
lega. „Fólk tekur þessu af skilningi,
hvað annað getur það gert? Æðstu
menn þjóðarinnar hafa talað um
niðurskurð og þá tekur fólk þetta há-
tíðlega," segir hann.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrun-
arfræðinga hefur sent frá sér yfir-
lýsingu þar sem hún harmar að af-
leiðingar samdráttar og yfirvofandi
uppsagna allt að 200 starfsmanna á
Landspítala-Háskólasjúkrahúsi
hafi ekki verið ræddar opinberlega.
Telja hjúkrunarfræðingar að upp-
sagnirnar muni hafa í för með sér
útgjaldaaukningu hjá öðrum opin-
berum stofnunum, vegna aukinnar
þarfar fyrir þjónustu í heilsugæslu,
vaktþjónustu lækna og sérfræði-
læknum.
Þá mótmælir miðstjórn Banda-
lags háskólamanna uppsögnunum
harðlega. „BHM sættir sig ekki við
að hundruð einstaklinga missi at-
vinnuna með aðgerðum sem flest-
um ber saman um að þjóni ekki
þjóðhagslegum tilgangi," segir í
ályktun bandalagsins. Telja háskóla-
menn að sparnaður Landspítalans
muni felast í tilfærslu á verkefnum
til annarra heilbrigðisstofnana og
hann muni þvert á móti leiða til
verulegs kostnaðarauka fyrir heil-
brigðiskerfið í heild.
Á næstunni mun framkvæmda-
stjórn spítalans funda með trúnað-
armönnum og stéttarfélögum vegna
yfirvofandi uppsagna. Gert er ráð
fyrir að skýrt verði hverjir verði fyrir
uppsögnunum í lok janúar, en
Magnús segir að engin stétt eða
starfsemi spítalans verði undanþeg-
in uppsögnum.
jontrausti@dv.is