Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2003, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2003
Fréttir 0V
Playboy
til Serbíu
Playboy kom í fyrsta sinn
út á serbnesku í gær. Upp-
lag þessa fyrsta blaðs var 75
þúsund eintök en til saman-
burðar má nefna að blaðið
selst jafnan í þremur millj-
ónum eintaka í Bandaríkj-
unum og 4,5 milljónum í
öðrum löndum. Ein vin-
sælasta sjónvarpsíígúra
Serbíu, Olivera Kovacevic,
prýðir forsíðuna. Hún er að
sjálfsögðu mjög léttklædd.
Viðtalið, sem er að sjálf-
sögðu aðalefni blaðsins, er
við sjálfan forsætisráðherr-
ann, Zoran Zivkovic. Rit-
stjóri serbnesku útgáfunnar
gat ekki leynt ánægju sinn í
gær. „Þetta sýnir svart á
hvítu að Serbía er orðin
hluti af veröldinni," sagði
ritstjóri Playboy.
Flogið í
heila öld
í gær var þess minnst
um allan heim að eitt hund-
rað ár voru síðan Wright-
bræður flugu flugvél í fyrsta
sinn. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu íf á Flug-
málastjórn Islands. Á ráð-
stefnu sem var haldin á hót-
el Loftleiðum til að minnast
þessara tímamóta kom
meðal annars fram að á
hverjum degi stíga um 12
þúsund farþegar upp í ís-
lenska flugvél. Það eru sam-
tals 4,4 milljónir farþega á
hverju ári. Flug á fslandi
verður sífellt mikilvægari
samgöngumáti og þúsundir
íslendinga hafa atvinnu af
flugi eða flugstarfssemi.
Guðmundur
Árni Stefánsson
Ég er hræddur við ýmislegt: Til
dæmis verð ég hræddur í mik-
illi hæð og þegar ég sé rottur.
Við hvað ertu hræddur?
Svo er ég Itka hræddur við
byssur ert ég heflertt t öllu
þessu eirthvern tíma á lífsleið-
inni. Ég er hins vegar alveg
óttalaus í pólitik og stend fast
við mitt.
Flugleiðaþota á leið til Glasgow tók á sig sveig og lenti í London þar sem Dorrit
Moussaieff sté um borð. Farþegar fengu ekki að fara frá borði á meðan vélin var
þrifin hátt og lágt áður en forsetafrúin birtist og hvarf inn á Saga Class. Óánægjan
kraumaði meðal íslenskra og skoskra farþega sem gengu bölvandi inn í flugstöðv-
arbygginguna í Glasgow - þegar þeir loks komust þangað.
„Þetta var of mikið fyrir mig. Ég hefði eins get-
að farið til Taflands," segir Guðmundína Inga-
dóttir sem lagði af stað í ferð til Glasgow klukkan
sex að morgni þriðjudagsins en var ekki komin á
leiðarenda fyrr en um miðnætti. Hún var að fara
að heimsækja son sinn og barnabarn í Glasgow.
Guðmundína þurfti að bíða í Leifsstöð frá því
eldsnemma um morguninn og allt fram til klukk-
an 18 þegar Flugleiðaþotan fór loks í loftið.
Karl Bretaprins?
„Ég skildi ekkert í því hvers vegna við vorum
allt í einu komin til London og ekki varð ég minna
undrandi þegar ég sá allt hreingerningafólkið sem
streymdi um borð og hóf að
þrífa flugvélina hátt og lágt.
Svo fór áhöfnin að stækka
Saga Class-svæðið með því að
draga skilrúm með tjaldi yfir
höfuð farþega sem sátu í al-
menningi og máttu hvorki
fara út til að fá sér frískt loft né
rétta úr sér. Við héldum að
Karl Bretaprins væri að korna
um borð en þá birtist Dorrit
Guðjón Arngríms- Moussaieff allt í einu í gætt-
s°n, upplýslngafull- jnnj 0„ hvarf inn á Saga Class
trui ug et a, sem allt var orðið fi'npússað
með nýjum höfuðpúðum og ég veit ekki hvað,“
segir Guðmundína sem ásamt öðrum farþegum
varð að hírast í vélinni á flugvellinum í London í
hálfan annan tíma á meðan gert var klárt fyrir for-
setafrúna. „Þarna voru Bandaríkjamenn sem flog-
ið höfðu alla leið frá austurströnd Bandaríkjanna
og þeir voru byrjaðir að hrópa: „This is too much!
Who’s that lady?!“ Ég sagði þeim að þetta væri for-
setafrú íslands og þá fórnuðu þeir höndum og
æptu: „No more chicken!” Þá voru þeir búnir að fá
fjóra kjúklingaskammta í ferðinni.”
Hreingerningasirkus
Verulega var af Guðmundínu dregið þegar hún
loks komst til Glasgow. Sonur hennar hafði á orði
að hún titraði hreinlega af þreytu og það var ekki
ofmælt. Verra var að eftir alla þessa seinkun voru
lestir hættar að ganga í Glasgow og þurfti Guð-
mundína því að taka leigubfl heim til sonar síns.
„Það kostaði 70 pund og þá upphæð vil ég fá end-
urgreidda frá Flugleiðum. Ég vil einnig að félagið
endurgreiði mér farseðilinn því ég ætlaði bara til
Glasgow en ekki í fjórtán tíma ferðalag og ein-
hvern hreingerningasirkus fyrir forsetafrúna."
Guðmundína er á sjötugsaldri og er óðum að
hressast eftir þetta langa ferðalag í faðmi fjöl-
skyldu sonar síns í Glasgow. Hún vonast til að
með okkur í vélinni voru orðnir arfavitlausir þeg-
ar þeir loks komust heim til sín og hrópuðu for-
dæmingar í garð forsetafrúarinnar og Flugleiða í
flugstöðvarbyggingunni. Slíkt hef ég aldrei heyrt
áður,“ segir Guðmundína.
Vélin bilaði
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flug-
leiða, harmar að töf hafi orðið á morgunflugi til
Glasgow á þriðjudaginn.
„Það varð bilun í vélinni sem átti að fara til
Glasgow og viðgerð tók langan tíma. Síðdegis var
ákveðið að bjóða farþegum að fara með vélinni til
London og þaðan til Glasgow og það þáðu um 60
farþegar. Öllum átti að vera ljóst hvert þeir voru
að fara og hvers vegna. Það er alltaf hvimleitt þeg-
ar tafir verða en þá reyna allir að gera sitt besta til
að leysa úr málunum.”
„This is toomuch! Who 's that
iadý?H"Ég sagði þeim að
þettaværi forsetafrú íslands
og þá fórnuðu þeir höndum og
æptu:„No more chickenV' Þá
voru þeir búnir að fá fjóra
kjúklingaskammta í ferðinni."
verða búin að ná fullri heilsu fyrir nýárið. „En
þjónustan um borð var til fyrirmyndar þrátt fyrir
allt. Flugfreyjurnar reyndu að gera sitt besta en
það er ljóst að ekki er sama hver á í hlut þegar
flogið er með þessu flugfélagi. Skotarnir sem voru
John Cleese nennir ekki að leika í fleiri gamanmyndum.
Vill verða borgarstjóri
Breski háðfuglinn John Cleese
er orðinn leiður á kvikmyndaleik
og er búinn að fá sig fullsaddan á
gamanmyndum. Cleese mun hafa í
hyggju að feta í fótspor annarra
stórmenna hvíta tjaldsins, þeirra
Ronalds Reagans, Arnolds
Schwarzeneggers og Clints
Eastwoods, með því að gerast póli-
tíkus. Cleese er búsettur í Santa
Barbara í Kaliforníu og að sögn fé-
laga hans, Michaels Palin, stefnir
leikarinn á framboð til borgar-
stjóra. Fregnir af þessu bárust um
heimsbyggðina í gær og var það
Paiin sem sagði frá öllu saman í
viðtali við breskt dagblað. Palin og
Cleese eru gamlir félagar og voru
meðal annars í Monty Python-
genginu. „Hann hefur fullan hug á
framboði til borgarstjóra," sagði
Palin í téðu viðtali og bætti við að
hann efaðist ekki í eina mínútu um
að Cleese myndi standa sig vel í
starfi. Palin sagði Cleese hafa mik-
inn áhuga á þjóðfélagsmálum og
hann fylgdist grannt með málum í
Santa Barbara. „Hann hefur ekki
lengur áhuga á gamanleik. Þátttaka
hans í Harry Potter hefur líka tryggt
honum auðævi sem endast honum
út lífið," sagði Palin.
John Cleese á að baki langan og
farsælan feril í kvikmyndum. Hann
hefur leikið í 105 kvikmyndum og
sjónvarpsmyndum. Hann hefur
samið 46 handrit og framleitt fjölda
kvikmynda og sjónvarpsþátta.
Cleese fæddist í Somerset í
Englandi fyrir 63 árum. Hann er
þríkvæntur og núverandi kona
hans heitir Alice Faye Eichelberger.
Cleese er ekki menntaður leikari,
hann lauk hins vegar lagaprófi frá
Cambridge.
John Cleese Hefurmikinrt áhuga á
þjóðfélagsmálum.