Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2003, Blaðsíða 25
DV Fókus
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 25
Orlando Bloom í Hringadróttinssögu
Nýtt kyntákn
Orlando Bloom er í dagdraumum
milljóna kvenna, og ekki bara þegar
hann skartar ljósri hárkollu og álfa-
eyrum í hlutverki Legolas í Hringa-
dróttinssögu. Þessi breska stjarna er
nú alþjóðlegt kyntákn og ástæða
þess að hann fór út í kvikmynda-
bransann passar bara ágætlega við
það. „Ég er eiginlega bara að leika út
af konunum," segir hinn 26 ára
Bloom. „Peningarnir
skipta mig ekki svo
miklu máli. í raun, ef
ég fæ tækifæri til þess
að kyssa einhverja
stelpu í bíómynd,
myndu þeir ekki þurfa
að borga mér
neitt."
Sem bet-
ur fer er
banka-
reikning-
urinn hjá
Orlando
orð-
frekar feitur eftir hlutverk hans í
Hringadróttinssögumyndunum
þremur, Pirates of the Caribbean og
Black Hawk Down. Hann á líka alveg
„sæmilega" kærustu, leikkonuna
Kate Bosworth, og það eru ekki
nema nokkur ár síðan hann var í
leiklistarskóla. Það kann því að líta
út fyrir að hann hafi farið auðvelda
leið á toppinn í Hollywood en það er
öðr'u nær.
Var feitur sem
krakki
Á meðal þeirra
hindrana sem
stóðu honum í
vegi var barátta
gegn lesblindu
og slys sem leiddi
næstum til þess að
hann lamaðist. Glæsi-
legt útlit er heldur ekki
eitthvað sem hann hefur
alltaf geta nýtt sér. „Ég
var frekar feitur krakki,"
segir hann. „Liðsíþrótt-
irnar í skólanum hentuðu
mér ekki alveg."
Hann var þó alltaf með það á
hreinu hvað hann ætlaði að
verða."Ég hef ætlað mér að verða
leikari síðan í barnaskóla. Ég hugs-
aði með mér að ef ég væri leikari
gæti ég fengið að vera flugmaður
eða eitthvað slíkt. Ég fékk fullt af
brjáluðum hugmyndum."
mn
Orlando Bloom Frami hans i
Hollywood hefur verið afar hraður.
Ekki eru nema nokkur ár siðan hann
var í leiklistarskóla ennúer hann eitt
afheitustu nöfnunum. Hann hefur þó
þurft að ganga i gegnum ýmislegt á
leið sinni þangað.
líSSSt
itlll
Orlando missti föður sinn, sem
var frá Suður-Afríku, þegar hann var
fjögurra ára. Síðar kom þó í ljós að
hann var í raun ekki faðir hans. Þess
í stað kom í ljós að gamall vinur fjöl-
skyldunnar var í alvöru faðir hans.
Hann komst fljótt yfir þetta áfall en
árið 1998 varð hann fyrir enn alvar-
legra áfalli. Þá var hann í leiklistar-
skóla í London og var í heimsókn hjá
vini sínum í borginni. Hann ædaði
að stökkva á milli þaka þar sem
íbúðin var en ekki vildi betur til en
svo að hann féll niður og lenti á
stálbita. Hann slasaðist alvar-
lega á bakinu og var sagt að
hann myndi kannski aldrei
getað gengið aftur. Skurðað-
gerð heppnaðist aftur á móti
mjög vel og hann slapp út af
spítalanum tólf dögum eftir
slysið.
Ég hefði getað dáið
„Þetta breytti lífi mínu, þetta
breytti öllu. Þetta var stærsta
þraut lífs míns enda hefði ég getað
dáið. Ég lít á mig sem útivistar-
manneskju og hefði ekki getað
fmyndað mér að lifa lífinu án þess
að geta spriklað að vild. Eftir þetta
hef ég reynt að nýta mér þessa
reynslu á jákvæðan hátt. Ég er far-
inn að læra að kunna að meta
lífið betur því allt sem ég
geri núna er bónus,"
segir drengurinn
sem þó virðist ekki
fara neitt sérstak-
lega varlega.
Þannig braut
hann rifbein þeg-
ar hann datt af
hestbaki við tök-
ur á Hringadrótt-
inssögu og þegar
hann var í fríi frá
tökum notaði
hann gjarnan
tækifærið til að
fara í fallhlífar-
stökk og fleira í
þeim dúr.
Eftir að hafa
þegið ráð frá
johnny Depp vill
Orlando lítið tjá sig
um ástarlíf sitt.
Hann er á föstu
með Kate
Bosworth og var
áður meðal ann-
ars í sambandi við
Christinu Ricci.
„Ég er örugglega
ágætur kærasti en
kannski svolítið
ákafur," fæst hann
til að segja og bæt-
ir við að þegar
hann sé með stelp-
um sé alltaf gaman
hjá þeim. Og hann
er ánægður með
feril sinn til þessa.
„Þetta virðist allt
stefna í rétta átt og
ég er bara að reyna
að taka réttu
ákvarðanirnar.
Stjörnuspá
Vilhjálmur Egilsson ráðuneytisstjóri er
51 árs í dag. „Manneskjan
sem um ræðir býr yfir
miklum vitsmunum og er
fljót að átta sig á stöðu
mála. Viðkomandi
áttar sig að sama
skapi fljótt og ör-
ugglega á aðstæð-
um þegar kemur
að ákvarðana-
2 > töku," segir í
stjörnuspá hans.
Vilhjálmur Egilsson
VV Mnsberm (20. jan.-18.febr.)
VV ----------------------------------------
Þú umgengst fólk í fullri vin-
semd og ekki síður fordómalaust en þar
er sannur og góður eiginleiki í fari þínu
sem þú ættir að halda fast í um ókomna
tíð.
K
F\Skam\r (19. febr.-20.mars)
Ekki gefa meiri fyrirheit en efni
standa til þessa dagana. Ræktaðu sjálfið
og hugaðu vel að áhugamálum þínum,
enn betur en áður. Hugur þinn og vits-
munalegur þroski náungans verður án
efa ætíð æðsta markmið þitt í desember.
Hrúturinn (21.mars-19.aprn)
Þér hættir hérna til að sökkva
þér of djúpt í líf einhvers sem á hug
þinn og hjarta um þessar mundir og
ferð jafnvel yfir markið. Ekki hika við að
næra þig og aðra á dýpsta sviði tilfinn-
inga þinna því styrkur þinn og ekki síð-
ur geta einkenna þig á áþerandi hátt.
Nautið (20. apríl-20. mai)
T
ö
Þú býrð yfir þeim ágæta hæfi-
leika að vera fær um að aðstoða fólk við
að halda sig við efnið með einlægni
þinni. Draumar þínir rætast frekar ef þú
segir óskir þínar upphátt án þess að
hika.
l\l\bmm (21.moi-21.júní)
Stjarna þín birtist hér í góðu
jafnvægi þar sem daglegt líf þitt birtist
sem allsherjar skemmtilegt ævintýri.
Það er mikilvægt að þú dekrir við sjálfið
með því að huga vel að eigin líðan and-
lega, og ekki síður líkamlega.
Krabbinng2/i/n/-22.jú;/j_______
Án skilgreininga eða útskýr-
inga birtist hér jákvæð reynsla sem þú
ert um það bil að ganga í gegnum. Ekki
taka ánægjustundum sem bíða þín sem
sjálfsögðum hlut með því að hverfa til
þröngsýninnar. Mikil gleði tengist þér
og þínum hérna.
Jl
IjÓntö (23. júli-22.dgúst)
Í15
Minnkaðu væntingar þínar ef
þú getur og efldu sköpunarþörf þína
með uppbyggilegri útrásarleið. Þú ættir
að hafa hugfast að þú þarft ekki að gera
öðrum grein fyrir tilfinningum þínum
nema þú kjósir að gera slíkt sjálf/ur.
Meyjan (23. agúst-22. sept.)
Þú ættir að líta í eigin barm
og endurmeta líf þitt um þessar mund-
ir. Gerðu þér Ijóst að róin sem þú ert
stöðugt að leita að kemur fyrst og
fremst fram þegar þú treystir og elskar
annað fólk af öllu hjarta.
Q Vogin (23. sept.-23.okt.)
Þú hefur mikla þörf fyrir ör-
yggi og ekki síður velþóknun annarra.
Þú hefur nægt sjálfstraust og innri styrk
þegar álag einkennir líðan þína og þá
sér í lagi þegar starf þitt er annars veg-
ar.Treystu og lærðu.
Hi
Sporðdrekinn mr/
Þú ert án efa viss um eigin
hæfileika á sama tíma og verkefni sem
tengist þér hér krefst aðhalds af þinni
hálfu sem er þér án efa mikil ögrun.
Tímasettu markmið þín betur og hafðu
báða fætur á jörðinni það sem eftir lifir
árinu.
/
Bogmaðurinn(22./iw.-2/.ítej
Þú blómstrar og reynir að
styðja hugboð þitt með áþreifanlegum
sönnunum sem tengjast óskum þínum
á einhvern hátt varðandi hátíðarnar
fram undan.
Steingeitinpz fe.-/9.jmj
Dagamir fram undan færa þér
atburði sem hughreysta þig á einhvern
máta og styrkja þig tilfinningalega að
sama skapi. Þú virðist eiga það til að
einfalda líf þitt töluvert en það leiðréttir
sig yfirleitt sjálft þegar stjarna steingeit-
ar er annars vegar.
81 ‘AMAÐl R.IS