Helgarblaðið - 13.03.1992, Blaðsíða 18

Helgarblaðið - 13.03.1992, Blaðsíða 18
Helgar 18 blaðið Umpottun pottablóma Nú er vorið komið af fullum krafti í gluggai- kistumar. Vonandi er þar framundan langt og litskrúðugt blóma- sumar. Það var nú reyndar meiningin að þessi pistill kæmi hér í síðustu viku, en flensupest allill setti rithæfiii garðyrkju- mannsins úr skorðum. Það ættí þó ekki að saka mikið og eru hæstvirtír lesendur Helgarblaðsins beðnir forláts á þessari töf vorverkaumræðunnar - en úr þessu verður haldið striki. Hafliðason Það er vel orðið tímabært að draga það ekki lengur að láta verða af því að skipta nú um mold á pottablómun- um. 1 undanfarandi þáttum höfum við farið yfir aðdrag- andann og útlistað það úrval og gerðir blómsturpotta og pottamoldar sem á markað- inum eru. Sjálf umpottunin er tals- vert verk sem borgar sig að gefa sér góðan tíma til að framkvæma. Best er að byrja á því að safna öllum plöntunum saman á einn stað, helst á borð þar sem góðrar birtu nýtur og hægl er um vinnupláss. Þar eru plöntumar grandskoðaðar, heilbrigði þeirra athugað og metið hversu mikið þarf að auka við pottarýmið hjá hverri og einni. Sumar plöntur taka sig best út í fremur smáum pott- um. Þær er best að klippa niður að mestu og skerða rætur þeirra og planta þeim svo aftur í sömu stærð af potti með nýrri mold. Af þessu tagi eru til dæmis ha- vaírósir, pelargóníur, fúksíur og íleiri blómslrandi plönt- ur. Einnig gyðingurinn gangandi, mölplanta, slönguskinn og álfamöttull. Afklippumar má nota sem græðlinga til að búa til nýjar plöntur. Aðrar plöntur, svo sem flkusar, séfflerur, árelíur og júkkur þurfa stærri potta og þá er hæfilegt að stækka pottana um þrjá til fimm sentimetra í þvermál. Sama gildir um stóra pálma. Bleytið fyrst Áður en við tökum piönt- urnar úr pottunum cr nauð- synlegt að vökva þær vel, helst rennvæta moldina og láta plönturnar síðan standa að minnsta kosti í hálftíma á eftir til að þær fái tóm til að fylla á alla vatnsgeyma sína. Þá þola þær umpottunina betur. Best er að hafa volgt vatn í fotu eða bala og sökkva pottunum upp fyrir brúnir og halda þeim ofan í vatninu þangað til loftbólur hætta að koma úr moldinni. Ab losa úr Til að losa plöntumar úr pottunum er best að taka með greipinni utan um rót- arhálsinn og styðja um leið við moldina í pottinum. Pottinum er síðan hvolft og pottbrúninni slegið létt í borðbrún. Þá losnar klump- urinn venjulega léttilega og lendir í hendi manns. Samt getur verið, ef plöntumar eru orðnar mjög potlgrónar, einkum í leirpottum, að þessi aðferð beri ekki árang- ur. Þá er ekki um annað að ræða en að skera plöntumar úr pottunum. Það er gert þannig að þjálu hnífsblaði er stungið með pottbarminum niður í botn og skorið hring- inn í kring. Þetta skemmir rætumar ekkert að ráði og reyndar þola allar plöntur einhverja skerðingu rótanna. Og það er alltaf betra að skera heldur en að merja rætumar eða að slíta þær. Yfirfariö rætur Þegar rótarklumpurinn er kominn úr pottinum er sjálf- sagt að skoða hann. Fúnar rætur eru fjarlægðar og sömuleiðis borgar sig að klippa burt grófar, hring- vaxnar rætur. Við reynum líka að ná burt sem mestu af gömlu moldinni, en það fer nokkuð eftir rótagerð hvesu langt við göngum fram í því. Séu rætumar í eðli sínu fin- gerðar látum við nægja að taka aðeins utan úr þeim. Af grófgerðari rótum getum við hrist moldina að mestu cll- egar skolað hana af í vatns- balanum. Notið hreina potta Ymsir kvillar og margvís- leg vandræði geta borist með óhreinum blómsturpott- um. Þess vegna er það ófrá- víkjanleg regla að þvo og þrífa alla potta á milli plantna. Það dugar vel að þvo plastpotta úr snarpheitu sápuvatni en leirpotta þarf að leggja í sjóðandi heitt grænsápuvatn og láta þá liggja í því yfir nótt eða svo. Reyndar er það líka góð regla þegar nýir leirpottar eiga í hlut að leggja þá í sápuvatn fyrir notkun. í nýj- um leirpottum geta nefni- lega verið restar af óhollum gastegundum og eins er betra að hafa þá vatnsmett- aða þegar plantað er í þá. Að sjálfsögðu þarf líka að þvo allar pottahlífar og undir- skálar um leið og umpottað er. Eins er gott að grípa tækifærið og gera hreint í gluggum og homum þar sem plöntur hafa staðið á meðan þær eru fjarverandi. Ný mold og undraefni Þegar hér er komið sögu er mál að setja plöntuna í pottinn. Eins og áður sagði borgar sig ekki að stækka pottana um of. Byrjað er á því að setja eina matskeið af grófum blómavikri eða við- arkolum í botninn á pottin- um. Ef um leirpott er að ræða er venja að setja leir- pottsbrot eða hraunmola yfir botngatið til að tryggja góða ffamrás vatns og koma í veg fyrir að moldin skríði út um gatið. Um þetta þarf ekki að hugsa hvað plastpottana varðar, því þó að götin á þeim séu fleiri virka þau á annan hátt. Þar sem plöntur eiga að standa í sólríkum gluggum er sjálfsagt mál að nota hjálparefni eins og Waterw- orks-kymi til þess að halda betur raka á rótunum. Það er gott að bleyta eina matskeið af þessu undraefni í tveim til þrem lítmm af vatni og blanda því svo saman við sex til níu lítra af mold. Waterworks-kymið dregur til sín fimmhundraðfalt rúm- mál sitt af vatni og miðlar því smátt og smátt til plantn- anna þegar moldin þomar. Það má eiginlega segja að það sé nauðsynlegur vara- tankur af vatni íyrir sólar- gluggaplöntur. Efnið belgir sig út af vatni við hverja vökvun og er því alltaf á verðinum til að bjarga því sem bjargað verður ef vökv- un gleymist einhvem sól- skinsmorguninn. Mold á milli rótanna Þegar plöntumar em settar í pottana verður að gæta þess að moldin fari vel inn á milli rótanna ekki síður en í kring um þær. Það er best að fylla pottinn í áföngum, banka létt í hann og kraka moldinni með fingmm ann- arrar handar ellegar mjóu priki inn í rótarklumpinn. Hin höndin styður plöntuna á meðan. Gætið þess að hvergi leynist holrúm. Þegar rótarklumpurinn hefur verið hulinn með moldinni er vökvað vel með volgu vatni. Að sjálfsögðu þarf að skilja eftir borð efst í pottinum fyrir vökvun. Eftir umpottunina em plöntumar látnar standa í friði á björtum en sólskins- lausum stað i nokkra daga svo að þær fái að jafna sig áður en þær em settar á sinn stað aftur. Gefið ekki blómaáburð fyrstu íjórar vikumar eftir umpottun. I pottamoldinni er alveg næg næring fyrir plöntumar í fimm til sex vikur. Aukaskammtur af áburði umfram það getur valdið rótarbmna og aftur- kipp hjá plöntunum. Nœst: Blómafrce og sitt hvað um sáningu þess og möguleika. um helgina Úrslit Úrslit íslandsmóts kvenna og yngri spilara í sveita- keppni verða spiluð um þessa helgi. 6 sveitír spila til úrslita í kvennaflokkn- um, allar við allar 20 spila leiki. 4 sveitir spila til úr- slita í yngri spilara flokkn- um, allar við allar 32 spila leild. Spilað verður í Sig- túni 9. 4 4 4 Matthías Þorvaldsson, liðsmaður í sveit Landsbréfa og nv. Islands- meistari í tvímenningi, er ellefti stigahæsti yngri spilari í Evrópu miðað við skráningu stiga í janúar 1992. Matthías er genginn upp úr yngri flokknum. 4 4 4 Utlit er fyrir mikla bridgcveislu í Reykjavík í endaðan maí. Þá mun Bridgefélag Reykjavíkur minnast 50 ára tímamóta í sögur félagsins. Til leiks em boðin sterkustu lands- lið heims um þessar mundir, heimsmeistarar, lsland, Evrópu- meistarar, Bretar, Norðurlanda- meistarar, Svíar, og Pólverjar, silf- urliðið frá HM sem spilaði til úr- slita við íslendinga efiirminnilegan leik í Yokohama á síðasta ári. Ætlað er að veislan standi yfir dagana 28.-31. maí. Fyrri 2 dagana verður um að ræða sveitakeppni ofangeindra liða, en síðari 2 dag- ana verður spiluð opin tvímenn- ingskcppm. Spilastaður er ckki ákveðinn, cn hátíðinni vcrður að lokum slitið í nývígðu ráðhúsi Reykjavíkur sunnudaginn 31. maí. 4 4 4 Svcit Landsbréfa komst í 16 sveita úrslit á alþjóðlega Höchst- stórmótinu í Hollandi. Sveitin hafnaði í 14. sæti. Svcit Trygg- ingamiðstöðvarinnar lcnti í C-riðli, el'tir hörkubaráttu um sæti i A-úr- slitum. Aðeins voru spiluð 6 spil í leik. Yfir 80 sveitir tóku þátl í mótinu. Sigurvcgarar uröu bresk sveit, en danska lCL-sveitin (sem lcnti í 2. sæti á Bridgehátíð hjá okkur i ár) hafnaði cinnig í 2. sæti á Höchst-stórmólinu. I sveit Landsbréfa voru; Jón Baldursson, Aðalstcinn Jörgensen, Matthías Þorvaldsson og Sverrir Ármanns- son. 4 4 4 Í framhaldi iná nefna að umsjón- annaður hefur hcyrt þá „frétt“ svífa um bæinn að þeir Jón Bald- ursson og Aðalsteinn Jörgenscn séu hættir að spila saman. Umsjón- armaður sclur þó ekki þessa „frétt“ dýru verði. 4 4 4 Ráðnir hfafa verið þjálfarar að landsliðum okkar í ár. Þeir eru; 4 4 4 Kvennalandsliðið tekur þátt í Norðurlandamóti í Svíþjóð 29. júní-3. júlí. Fyrirliði og þjálfari verður Jón Hjaltason. Tvö pör verða í kvennalandsliðinu. Unglingalandsliðið tekur þátt í Evrópumóti yngri spilara í París 17.-26. júlí. Fyrirliði ogþjálfari verður Sævar Þorbjömsson. Þrjú pör 25 ára og yngri verða í ung- lingalandsliðinu. 4 4 4 Landslið í opnum flokki tekur þátt í Norðurlandamótinu í Svíþjóð (2 pör) og cinnig í ólympíumótinu scm spilað verður á Italíu 22. ág- úst-5. scpt. (3 pör). Fyrirliði og þjálfari verður Björn Eysteinsson. 4 4 4 Ákvörðun um það hvort um kcppni eða val til þátttöku í lands- liöum þessa árs verður að ræða hefur vcrið tekin af landsliðsein- valdi og fyrirliðum viðkomandi landsliða. Ekki verður um form- lega landsliðskeppni að ræða í neinum flokki. Með góða liðsheild og góðan árangur að markmiði á komandi mótum erlendis vcrða liðsmcnn valdir eftir frammistöðu þeirra í mótum vetrarins, svo og fyrri reynslu. 4 4 4 Eftir 34 umfcrðir af 47 í aðaltví- menningskeppni Bridgefélags Reykjavíkur er staða efstu para orðin þcssi: Bragi Hauksson- Sig- tryggur Sigurðsson 407, Guðlaug- ur R. Jóhannsson-Öm Amþórsson 311, Helgi Jónsson- Helgi Sigurðs- son 290, Jón Ingi Bjömsson-Karl Logason 271, Bjöm Eysteinsson- Magnús Ólafsson 268, Hemiann Lámsson-Ólafur Lámsson 252, Sævar Þorbjömsson-Karl Sigur- hjartarson 247. 4 4 4 Eftir 20 umferðir af 31 í aðaltví- menningskeppni Skagfirðinga er staða efstu para orðin: Jón Stefáns- son-Sveinn Sigurgeirsson 413, Lárus Hermannsson-Óskar Karls- son 342, Höskuldur Gunnarsson- Gunnar Valgeirsson 223 og Guð- laugur Sveinsson-Magnús Sverris- son 208. 4 4 4 Og minnt er á skráninguna í af- mælismótið hjá Bridgefélagi Breiðholts, laugardaginn 21. mars. Skráð er á skrifstofu BSÍ eða hjá Hermanni Lárussyni í s: 41507. 4 4 4 Reykjanesmótið í tvímenningi var haldið um síðustu helgi. Sigur- vegarar urðu Hrafnhildur Skúla- dóttir og Jömndur Þórðarson. Reykjanesmeistarar urðu hins veg- ar Þröstur Ingimarsson og Sveinn R. Eiríksson sem höfnuðu í 2. sæti, en réttinn til þátttöku á lslandsmót- ið hlutu hins vegar Úlfar Kristins- son og Ingvaldur Gústafsson, sem höfnuðu í 3. sæti. Allt vegna væg- ast sagt flókinnar rcglugerðar, enda logaði allt í illdeilum eftir mótið. 4 4 4 1 síðasta þætti sáum við dæmi um öryggisspilamennsku. Lítum á annað dæmi; Lárusson 4 K95 ?43 \x ÁD2 * K5432 4 ÁG873 cv’ 65 C' K43 * ÁD8 A/V hafa ekki skipt sér af sögn- um, en þú ert sagnhafi í 4 spöðum. Vcstur tekur á ás og kóng í hjarta í útspilinu og skiptir síðan yfir í tíg- ulgosa. Hér tekur þú við, lesandi góður. Hafirðu lagt niður spaðaás (báð- ir mótherjar fylgja lit) og síðan spilað lágum spaða að níunni, ertu vel að þér í fræðum öryggisspila- mennskunnar. Hönd Vestur gæti litið svona út; 4 D1042 v ÁKD2 \'' G109 * 76 Þú mátt gefa spaðaslag. Ef þú hins vegar mátt EKKI gefa slag á spaða, er réttara að spila spaða upp á kóng og síðan „svína“ gosanum. En með þessari sipamennsku, sem lýst er hér á undan, ræður þú alltaf við 4-1 leguna í trompi, sama hvorum megin hún er. Fösludagurinn 13. mars

x

Helgarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.